Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ókhalds- námskeið Nokkur sæti laus á 120 stunda morgun- eða kvöldnámskeið sem hefjast 8. og 14. janúar. hjá NTV í Kópavogi. B K la p p a ð & k lá rt / ij Verslunarreikningur (24 stundir) Tvíhliða bókhald (36 stundir) Tölvubókhald (42 stundir) Launabókhald (12 stundir) Vsk. uppgjör og undir-búningur ársreiknings (6 stundir) Helstu námsgreinar n t v . is nt v. is n tv .i s Upplýsingar og innritun í síma 544 4500 og á ntv.is Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is GUÐRÚN Gísladóttir KE, nýtt nóta- og togveiðiskip Festar hf. í Keflavík, kom til hafnar í Reykjavík í morg- un úr sinni fyrstu veiðiferð með afla að verðmæti um 100 milljónir króna. Skipið, sem smíðað var í Kína, kom nýtt til landsins síðastliðið haust. Skipið er á síldveiðum og er aflinn flakaður og fryst- ur um borð. Alls landaði skipið um 800 tonnum af síld- arflökum og um 200 tonnum af ferskri síld til vinnslu. Alls gera það um 1.800 tonn af síld upp úr sjó en skipið var um fjórar vikur að veiðum. Verðmæti aflans er 100 milljónir króna og er þetta því einn verðmætasti upp- sjávarfisksfarmur sem komið hefur á land hérlendis. Ásbjörn Helgi Árnason, framkvæmdastjóri Festar, segir árangurinn vonum framar. „Það tekur auðvitað alltaf tíma að stilla strengina í nýju skipi og nýjum bún- aði. Það voru hinsvegar tæknimenn um borð nánast alla veiðiferðina og með samstilltu átaki þeirra og áhafnarinnar tókst alveg ótrúlega vel að yfirvinna byrjunarerfiðleika og koma vinnslunni í fullan gang. Skipið hefur þar að auki reynst mjög vel í alla staði. Við erum því mjög ánægðir með árangurinn en við gerðum okkur aldrei vonir um að þetta myndi ganga svona vel í upphafi,“ segir Ásbjörn Helgi. Guðrún Gísladóttir KE var alla veiðiferðina að veið- um á Austfjarðarmiðum og gerir Ásbjörn ráð fyrir að skipið haldi á veiðar aftur fyrir jól. Alls eru 20 manns í áhöfn en skipstjórar eru þeir Sturla Einarsson og Hall- dór Jónsson. Ljósmynd/Snorri Snorrason Guðrún Gísladóttir með 100 milljóna aflaverðmæti Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að úthafsrækjukvóti á yf- irstandandi fiskveiðiári verði aukinn í 35 þúsund tonn en í upphafi ársins var settur 17 þús- und tonna bráðabirgðakvóti. Rannsóknir stofnunarinnar benda til þess að rækjustofninn sé verulega að rétta úr kútnum. Niðurstöður úr líkönum Haf- rannsóknastofnunarinnar benda til að stofn úthafsrækju hafi auk- ist verulega frá árinu 2000 og muni árið 2002 verða nálægt því sem hann var á árunum 1992– 1993. Þótt vísitölur stofnstærðar rækju hafi verið þær sömu árið 2001 og 2000 hefur kvendýravísi- tala rækju aukist um 18%. Nýlið- un samkvæmt mælingum bendir til þokkalegrar nýliðunar árið 2002 eða svipaðrar og árið 2001. Staðlaður afli á togtíma fyrir norðan landið hefur hækkað um 40% frá árinu 2000 til 2001. Hafrannsóknastofnunin hefur því lagt til við sjávarútvegsráðu- neytið að leyfilegur hámarksafli á fiskveiðiárinu 2001 til 2002 verði 35 þúsund lestir. Í upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs var gefinn út 17 þúsund tonna bráða- birgðakvóti. Í endurskoðaðri þjóðhagsáætl- un Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að verðmæti útfluttra sjávarafurða nemi 122 milljörð- um króna á árinu 2002. Gera má ráð fyrir að hækkun á leyfilegum hámarksafla á úthafsrækju á fiskveiðiárinu í 35 þúsund tonn auki útflutningsverðmætið um rúmlega þrjá milljarða, þ.e. úr 122 milljörðum í 125 milljarða. Þá munu auknar veiðiheimildir ásamt bættum aflabrögðum væntanlega leiða til betri af- komu í rækjuveiðum á árinu 2002. Leggur til aukinn rækjukvóta Útflutningsverð- mæti sjávarafurða eykst um þrjá milljarða SEÐLABANKI Japans hefur lýst sig reiðubúinn að ábyrgjast veik- burða banka landsins, en aðeins ef til efnahagslegs hruns kemur, að því er m.a. kemur fram á fréttavef BBC. Masaru Hayami, seðlabankastjóri í Japan, segir að atburðirnir fyrir þremur til fjórum árum sem leiddu til gjaldþrots Yamaichi-fjármálafyr- irtækisins muni ekki endurtaka sig. Þá varð hrun á gengi hlutabréfa í bönkunum vegna mikillar skuld- setningar. „Ef til óvæntra atburða kemur erum við reiðubúin að koma til aðstoðar,“ segir Hayami. „Nú er til staðar öryggisnet en það var ekki á árunum 1997 og 1998.“ Japanskir bankar eiga í miklum erfiðleikum um þessar mundir og eru mjög skuldsettir. Hayami tekur þó skýrt fram að núverandi ástand sé ekki þess eðlis að Seðlabankinn komi til bjargar. Seðlabanki Japans aðstoð- ar ef bankakerfið hrynur FRANSKI fjölmiðlarisinn Vivendi Universal hefur keypt afþreyingar- hluta USA Networks fyrir 10,3 millj- arða bandaríkjadala sem samsvarar hátt í 1.100 milljörðum íslenskra króna. USA Networks á m.a. Sci-Fi- sjónvarpsstöðina og Home Shopping Network. Vivendi Universal varð til með sameiningu franska fyrirtækis- ins Vivendi og hins kanadíska Sea- gram á síðasta ári. Með sameining- unni við USA Networks fær Vivendi aukinn kraft til að keppa við AOL Time Warner í Bandaríkjunum þar sem aukinn aðgangur fæst að dreifi- kerfinu þar í landi, að því er fram kemur m.a. á fréttavef BBC. Sérfræðingar telja sameininguna skynsamlega þar sem Vivendi hafi sárvantað aðgang að bandarísku dreifikerfi. Vivendi eykur umsvifin í Bandaríkj- unum FINNSKA símafélagið Sonera og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hafa gengið frá samningum um kaup á nýju hlutafé í ZooM hf. Sonera átti fyrir 32% hlut en Nýsköpunarsjóður kemur inn sem nýr hluthafi. Aðrir hluthafar ZooM eru Íslenski hug- búnaðarsjóðurinn og frumkvöðlar. Að sögn Helga Axelssonar, stjórn- arformanns ZooM, í fréttatilkynn- ingu framleiðir félagið hreyfimyndir fyrir sjónvarp svo og kvikmyndir. Nú hefur ZooM einnig hafið fram- leiðslu á hreyfimyndum eða skjáhvíl- um fyrir síma, en fyrirtækið fram- leiðir þá vöru undir vöruheitinu ZoomPix © . ZooM hefur gert sölu- samninga við Inmobia AB í Dan- mörku og KAST á Íslandi um dreif- ingarrétt á ZoomPix © til símafélaga sem hafa alls um 7 milljónir farsíma- notenda í áskrift. Eftir þessa hluta- fjáraukningu er Sonera hluthafi 46% fyrirtækisins, Nýsköpunarsjóður 18 %, Íshug 7%, og frumkvöðlar 25%. Hlutafé ZooM aukið ♦ ♦ ♦ FASTEIGNIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.