Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Handmálaðir
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Fundarboð
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn í Skipagötu
14, 4. hæð, (Alþýðuhúsinu), fimmtudaginn 27. desember 2001 og
hefst kl. 11.00 f.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands,
verður gestur fundarins.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar
KAUPFÉLAG Skagfirðinga, sem rekur m.a.
mjólkursamlag á Sauðárkróki, íhugar kaup á
hlut í Norðurmjólk, samlagi í eigu Kaupfélags
Eyfirðinga, KEA, og eyfirskra og þingeyskra
kúabænda. Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skagfirðinga, staðfesti þetta í sam-
tali við Morgunblaðið en frá þessu var greint á
vefmiðlinum skagafjordur.com um helgina. Þór-
ólfur sagði að síðar í vikunni eða milli jóla og
nýárs myndi skýrast hvort af kaupunum yrði.
Hann sagði fleiri mjólkurframleiðendur einnig
hafa verið að skoða möguleika á kaupum á
hlutabréfum í fyrirtækinu af KEA, þar sem
allra leiða væri leitað í átt til hagræðingar í
mjólkuriðnaðinum í heild sinni. Norðurmjólk
hefur átt við rekstrarvanda að etja en nýlega
var ákveðið að hætta allri mjólkurvinnslu fyr-
irtækisins á Húsavík í áföngum á næsta ári og
flytja hana alfarið til Akureyrar. Með því er
áætlað að sparist 40 milljónir í rekstrarkostn-
aði.
Bændur einnig
að kaupa meira
Stefán Magnússon í Fagraskógi, sem á sæti í
stjórn Norðurmjólkur fyrir hönd Auðhumlu,
samvinnufélags kúabænda í Eyjafirði og S-
Þingeyjarsýslu, kannaðist vel við áhuga Skag-
firðinga er haft var samband við hann. Sagði
hann viðræður komnar vel á veg og aðeins væri
eftir að ná samkomulagi um kaupverð og fleiri
atriði. Eftir væri að bera málið almennt undir
kúabændur sitt hvorum megin við Tröllaskag-
ann.
Stefán sagði einnig koma vel til greina að
Auðhumla yki hlut sinn í Norðurmjólk, en fé-
lagið hefði forkaupsrétt á þeim hlutabréfum
sem KEA væri tilbúið að losa sig við. Nafnvirði
hlutafjár Norðurmjólkur er í kringum 450
milljónir króna og miðað við 68% hlut KEA í
fyrirtækinu er um 300 milljóna kr. hlutafé falt
um þessar mundir.
Skagfirðingar íhuga kaup
á hlut KEA í Norðurmjólk
GÓÐ aðsókn var að leiklistar-
námskeiðum sem Leikfélag Ak-
ureyrar hefur staðið fyrir síðustu
vikur, en þátttakendur á nám-
skeiðunum sýndu nokkra leik-
þætti fyrir gesti og gangandi í
Samkomuhúsinu um helgina við
lok námskeiðanna.
Leiðbeinendur voru þau Laufey
Brá Jónsdóttir og Þorsteinn
Bachmann, en þátttakendur voru
á öllum aldri, þeir yngstu þriggja
ára. Um er að ræða nýjung í
starfsemi Leikfélags Akureyrar
og var boðið upp á sjö mismun-
andi námskeið. Aðsóknin var það
góð að bætt var við fleiri nám-
skeiðum.
Góð aðsókn á námskeið
Leikfélags Akureyrar
Morgunblaðið/Kristján
Yngstu þátttakendurnir á leiklistarnámskeiðinu blása töfradufti.
Þessar ungu dömur voru á meðal leikara í verkinu „Þegar hrein-
dýrin björguðu jólunum“ en þar komu einnig kettir við sögu.
FYRIR síðustu jól tóku stjórnend-
ur Samherja hf. ákvörðun um að
senda ekki út jólakort heldur yrði
andvirði þeirra notað í þágu góðs
málefnis. Sami háttur verður hafð-
ur á fyrir þessi jól og mun andvirði
jólakortanna renna til styrktar
starfi Þroskahjálpar á Norðurlandi
eystra. Að sögn Kolbrúnar Ingólfs-
dóttur hjá Þroskahjálp á Norður-
landi eystra verða fjármunirnir
notaðir til uppbyggingar og rekstr-
ar sumardvalarheimilis í Botni í
Eyjafjarðarsveit sem félagið hefur
rekið um árabil. Að Botni koma
fötluð börn af Norðurlandi eystra
sem að jafnaði búa í heimahúsum.
Þau dvelja í Botni um skemmri
tíma, sér til ánægju og skemmt-
unar og til að létta álagi af fjöl-
skyldum.
Þroskahjálp á Norðurlandi
eystra er aðili að landssamtökunum
Þroskahjálp, sem er samnefnari
þeirra félaga sem vinna að mál-
efnum fatlaðra með það að mark-
miði að tryggja þeim fullt jafnrétti
á við aðra þjóðfélagsþegna. Þetta
kemur fram á heimasíðu Samherja.
Samherji
styrkir
Þroskahjálp
EFTIR að sameiningarhugmyndum
9 hreppa í Þingeyjarsýslum var
hafnað í kosningu sem fram fór í
byrjun nóvember hefur í nokkrum
þeim sveitum sem að málinu komu
verið sett í gang könnun um hugs-
anlegan vilja íbúa til annars konar
sameiningar heldur en þeirrar sem
fyrr var boðið upp á. Í Mývatnssveit
er nýafstaðin slík könnun, niðurstöð-
ur hennar eru ótvíræðar, hafi menn
áður velkst í vafa um vilja íbúanna.
Spurningalista svöruðu 169 sem er
um 52,8% þátttaka, þar af höfnuðu
104 hvers konar sameiningu. Aðrir
möguleikar fengu óverulegan stuðn-
ing.
Mývetningar hafna öllum
hugmyndum um sameiningu
Mývatnssveit
FYRIRTÆKIÐ Norðlenska hefur
ákveðið að senda ekki jólakort til við-
skiptavina sinna fyrir þessi jól.
Þess í stað hefur andvirði þeirra
verið varið til góðgerðarmála.
Norðlenska styrk-
ir góðgerðarmál
ÞAÐ er orðinn árviss atburður að
halda Lúsíuhátíð hér í Grímsey. Að
þessu sinni buðu skólabörnin eyj-
arbúum upp á ljúffenga Lúsíusnúða
sem þau bökuðu sjálf í heimilisfræð-
inni og var þeim skolað niður með
góðu kaffi og appelsínusafa.
Börnin sungu Lúsíusönginn sinn
ásamt nokkrum vel völdum jólalög-
um. Vel var mætt og má nefna að all-
ir í saltfiskvinnslunni notuðu kaffi-
tímann sinn með Lúsíubörnunum.
Eitt var óvenjulegt við Lúsíuhátíðina
að þessu sinni, hún var haldin í
blankalogni, sólskini og sjö stiga
hita.
Vel mætt á
Lúsíuhátíð
Grímsey
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kvatt
að íbúðarhúsi við Háhlíð sl. laugar-
dagskvöld en þar hafði komið upp
eldur í fólksbílakerru sem stóð yf-
irfull af spýtnarusli við bílskúr.
Vegfarandi sem átti leið hjá lét
íbúa hússins vita og hringdi hann á
slökkvilið. Nágranni kom með
slökkvitæki og sló á eldinn, það mik-
ið að hægt var að draga kerruna frá
húsinu. Ekki mátti það tæpara
standa því ytra gler í rúðum hafði
brotnað og nokkurt tjón varð á kerr-
unni.
Einnig var slökkvilið kvatt að fjöl-
býlishúsi vegna vatnsleka á 3. hæð
en þar hafði klósettkassi brotnað og
vatn flætt um. Slökkviliðsmenn
hreinsuðu upp vatnið og stöðvuðu
lekann.
Eldur í
fólksbílakerru
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦