Morgunblaðið - 18.12.2001, Síða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 13
FRÁ og með næstu áramótum verða áfengisveit-
ingar í Reykjavík stöðvaðar jafnskjótt og veitinga-
leyfi rennur út eða nýr aðili tekur við rekstrinum,
hafi ekki verið útgefið bráðabirgðaleyfi. Þetta er
meðal aðgerða sem skrifstofa borgarstjórnar hef-
ur ákveðið að grípa til í kjölfar tillagna starfshóps
borgarstjóra og lögreglustjórans í Reykjavík um
úrbætur í veitingamálum.
Starfshópurinn skilaði niðurstöðum sínum í
september síðastliðnum og meðal þeirra 30 til-
lagna um úrbætur sem þar var að finna voru þrjár
sem sneru beint að skrifstofu borgarstjórnar. Við-
brögð skrifstofunnar við þeim voru lögð fram á
borgarráðsfundi í gær.
Á næstu dögum mun skrifstofan senda öllum
handhöfum áfengisveitingaleyfa sem og Samtök-
um ferðaþjónustunnar bréf þar sem kemur fram
að framvegis verði óskað eftir því við lögreglu að
áfengisveitingar verði stöðvaðar um leið og leyfi
rennur út eða nýr aðili tekur við rekstrinum, hafi
ekki verið útgefið bráðabirgðaleyfi. Bráðabirgða-
leyfi verða gefin út til tveggja mánaða og ekki
framlengd nema Reykjavíkurborg beri ábyrgð á
töfum við útgáfu almenns leyfis. Er stefnt að því
að þetta verði komið til fullrar framkvæmdar um
næstu áramót.
Fylgst með vanskilum
veitingaaðila
Önnur tillaga starfshópsins laut að því að borgin
fylgdist betur með því að leyfishafar uppfylltu lög-
bundin skilyrði þess að fá útgefin slík leyfi. Var
lagt til að reglulega yrði aflað upplýsinga frá inn-
heimtumönnum ríkissjóðs um skuldastöðu leyfis-
hafa á sköttum og opinberum gjöldum.
Viðbrögð skrifstofu borgarstjórnar eru að frá
og með næstu mánaðamótum verður tollstjóran-
um í Reykjavík sendur mánaðarlega listi yfir
handhafa áfengisveitingaleyfa. Óskað verður eftir
því að hann yfirfari listann og láti vita ef einhverjir
leyfishafar eru í vanskilum sem nema hærri fjár-
hæð en hálfri milljón króna. Heimilt er samkvæmt
áfengislögum að synja útgáfu leyfis þegar hlut-
aðeigandi skuldar meira en það í skatta, opinber
gjöld eða iðgjöld í lífeyrissjóð. Borgarráði verði
svo falið að ákveða hvernig taka skuli á því reynist
svo vera.
Þá mun skrifstofa borgarstjórnar kalla Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur, byggingarfulltrúa og
eldvarnareftirlit Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins á fund og fara yfir hlutverk og skyldur þessara
stofnana varðandi það að tilkynna skrifstofunni
um brot veitingaaðila á reglum sem falla undir eft-
irlit viðkomandi stofnana.
Hert á eftirliti með vínveitingaleyfum
GUÐMUNDUR Freyr Úlfarsson
varði doktorsritgerð í sam-
gönguverkfræði við byggingar- og
umhverfisverk-
fræðideild Há-
skólans í Wash-
ington í Seattle,
Bandaríkjunum
hinn 6. júní
2001. Ritgerðin
ber heitið: Inj-
ury Severity
Analysis for
Car, Pickup,
Sport Utility
Vehicle, and
Minivan Drivers: Male and Fe-
male Differences.
Tilgangur með ritgerð Guð-
mundar er að kanna kynjamun á
meiðslum í umferðarslysum, sér í
lagi með tilliti til áhrifaþátta, svo
sem umhverfis, ökutækis og veg-
hönnunar. Notaðar eru aðferðir úr
hagrannsóknum til að setja fram
spálíkön er meta líkur á meiðslum,
til að kanna eðli áhrifaþátta og
rannsaka mun kynjanna. Gögn
fengust úr umferðarslysaskrá
Washingtonríkis í Bandaríkjunum.
Niðurstöður leiddu í ljós að
ýmsir megináhrifaþættir auka lík-
ur á alvarlegri meiðslum fyrir
bæði kynin hvort sem ekið er í
jeppum eða fólksbílum, svo sem
ungur aldur ökumanns, akstur
undir áhrifum áfengis, bílbelti ekki
notuð, bílvelta eða ökumaður sofn-
aði. Aðrir áhrifaþættir sýna mun á
meiðslum milli ökumanna jeppa og
fólksbíla, t.d. eru ökumenn jeppa
sem lenda í slysi á blautum vegi
líklegri til að verða fyrir alvarlegri
meiðslum en ökumenn fólksbíla
við sömu aðstæður. Þegar tekið er
tillit til mismunandi ökutækja
kemur einnig í ljós mikilvægur
munur á kynjunum, t.d. erukonur
sem aka jeppa og lenda í slysi sem
orsakast vegna galla í dekkjum
líklegri til að verða fyrir alvarlegri
meiðslum en karlar við sams kon-
ar aðstæður. Karlar sem voru öku-
menn fólksbíla og lentu í árekstri
við jeppa voru líklegri til að hljóta
alvarlegri meiðsl en konur við
sömu aðstæður. Orsakir munar á
meiðslum kynjanna eru marg-
þættar. Í slysi er ekki ólíklegt að
karlar og konur bregðist við á
mismunandi hátt. Einnig má búast
við því að ýmsir hönnunarþættir
ökutækja, vega, vegriða og ann-
arra öryggisþátta verki mismun-
andi á fólk eftir líkamsgerð, stærð
og þyngd.
Leiðbeinandi var dr. Fred L.
Mannering, prófessor og núver-
andi deildarforseti byggingarverk-
fræðideildar Purdue-háskóla, Ind-
iana, Bandaríkjunum. Í dómnefnd
sátu einnig dr. Nancy L. Nihan,
dr. G. Scott Rutherford og dr.
Venkataraman N. Shankar, pró-
fessorar við byggingar- og um-
hverfisverkfræðideild Háskólans í
Washington; og dr. Paul A. Wadd-
ell, prófessor í stjórnsýslu og
borgarskipulagi við Háskólann í
Washington.
Guðmundur er fæddur 18. októ-
ber 1970. Hann lauk stúdentsprófi
frá stærðfræðideild Verzl-
unarskóla Íslands vorið 1990.
Hann lauk BS-prófi í eðlisfræði
frá Háskóla Íslands 1994, BS-prófi
í tölvunarfræði frá Háskóla Ís-
lands 1996 og MS-prófi í sam-
gönguverkfræði frá Háskólanum í
Washington, Seattle, Bandaríkj-
unum 1997.
Guðmundur er sonur Freyju Jó-
hannsdóttur, sérkennara í Álfta-
mýrarskóla, og sr. Úlfars Guð-
mundssonar, prófasts í
Árnesþingi.
Doktor í
samgöngu-
verkfræði
Guðmundur
Freyr Úlfarsson
FRÉTTIR
mbl.is