Morgunblaðið - 18.12.2001, Page 18

Morgunblaðið - 18.12.2001, Page 18
SUÐURNES 18 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HREPPSNEFND Gerðahrepps ákvað á aukafundi sínum í gær- kvöldi að ráða Ernu M. Sveinbjarn- ardóttur sem skólastjóra Gerða- skóla í Garði frá áramótum. Þá var lagt fram bréf Jóns Ögmundssonar aðstoðarskólastjóra um að hann óskaði eftir að draga uppsögn sína til baka. 80 íbúar í Garði hafa lýst yfir stuðningi við skólastjórnendur. Fjórar umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Gerðahrepps þegar staðan var auglýst eftir að skóla- stjórinn sagði upp störfum vegna óánægju með launalækkun sem fólst í kjarasamningi kennarasam- takanna og sveitarfélaganna í land- inu. Skólanefnd Gerðahrepps mælti með því við hreppsnefnd að Erna M. Sveinbjarnardóttir yrði ráðin skólastjóri en frestaði afgreiðslu á umsókn um stöðu aðstoðarskóla- stjóra sem einnig sagði upp störfum af sömu ástæðum. Skólastjórinn ráðinn annað Í gær afhentu fulltrúar foreldra skólastjórnendunum lista með und- irskriftum 80 Garðmanna þar sem skorað er á þá að draga uppsagnir sínar til baka. Ásthildur Sigurjóns- dóttir, einn af forystumönnum hóps- ins, sagði að listarnir hefðu legið frammi í einni verslun og tveimur söluturnum frá því á þriðjudag. Þegar listarnir voru afhentir kom í ljós að Einar Valgeir Arason skóla- stjóri hefur þegar ráðið sig sem kennari við Fjölbrautaskóla Suður- nesja en Jón Ögmundsson aðstoð- arskólastjóri hefur dregið uppsögn sína til baka. Þeir kváðust þó ánægðir með stuðninginn og þökk- uðu hann. Jón segist treysta því að breyting verði á launamálum skólastjórnenda í vor, almennt yfir landið, annað gangi ekki. Segist hann ætla að sjá til hvort af þessu verði og meta stöðuna þá að nýju. Þá segist hann hafa fundið mikinn stuðning meðal foreldra og starfsmanna skólans. Hreppsnefnd vísaði hinu nýja erindi Jóns til umsagnar skólanefndar. Erna Sveinbjarnardóttir ráðin skólastjóri Gerðaskóla Aðstoðarskólastjóri dreg- ur uppsögn sína til baka Garður MAÐUR slasaðist alvarlega þegar hann féll fimm og hálfan metra ofan af húsþaki í Grinda- vík í gærmorgun og hafnaði í kari með byggingarusli. Á laug- ardag slasaðist drengur á hendi í frystihúsi á staðnum. Lögreglunni var tilkynnt í gærmorgun að 25 ára gamall maður hefði fallið fimm og hálf- an metra ofan af þaki húss hjá tilraunaeldisstöð Hafrann- sóknastofnunar í Grindavík og lent ofan í kari. Hann var að klæða og einangra þak hússins þegar hann féll niður um óklætt op þess og hafnaði í fiskeldis- kari sem með byggingarusli. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús. Hann er sagður mikið slasaður en þó ekki talinn í lífshættu. Hann er með áverka á hrygg og höfðu og víða um líkamann. Á laugardag fór ellefu ára drengur með höndina inn í færiband í frystihúsi í Grinda- vík. Hann brotnaði illa og var fluttur á sjúkrahús. Á laugardag var tilkynnt inn- brot í bát í Grindavíkurhöfn. Lyfjaskápur hafði verið brotinn upp og morfíni stolið. Féll rúma fimm metra Grindavík GRINDAVÍKURBÆR hefur aug- lýst forval vegna fjármögnunar, byggingar og reksturs húsnæðis leikskóla í Lautahverfi, til að velja þátttakendur í fyrirhugað útboð verksins sem einkaframkvæmdar. Grindavíkurbær áformar að reisa nýjan leikskóla í stað leikskólans við Dalbraut. Ákveðið hefur verið að leita til einkaaðila um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir leikskólann sem bærinn mun síðan taka á leigu til 25–35 ára. Í auglýsingu á útboði vegna einka- framkvæmdarinnar er boðað að samhliða verði verkið boðið út sem alútboð, það er að segja að óskað verði eftir tilboðum í hönnun og byggingu hússins en Grindavíkur- bær fjármagni bygginguna og reki. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku í forvalinu þurfa að gefa sig fram hjá Ríkiskaupum fyrir 10. janúar næst- komandi. Nýr leikskóli boðinn út til einkafyrirtækja Grindavík FJÖLMARGIR áhorfendur voru að árlegri jólasýningu sem fim- leikadeild Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, hélt síðastliðinn laugardag. Sýningin var öll hin glæsilegasta og augljóst að mikil vinna hafði farið í undirbúning hennar, en auk fimleika- og dans- atriða um 160 iðkenda var íþrótta- salurinn skreyttur stjörnum sem glitraði á í skemmtilegri ljósa- uppsetningu. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, for- maður fimleikadeildarinnar, sagði undirbúning hafa staðið yfir und- anfarnar þrjár vikur og gífurlega vinnu að baki. „Íris Dröfn Halldórs- dóttir og María Óladóttir eru yf- irþjálfarar deildarinnar, en þær hafa alveg séð um sýninguna. Svo höfum við fengið mikla og góða hjálp frá foreldrum iðkenda og eiga þeir þakkir skildar, en það hefur gríðarlega mikið að segja að for- eldrar styðji við bakið á börnum sín- um í íþróttum,“ segir Sigurbjörg. Hátt í 200 börn á aldrinum 4–17 ára æfa fimleika hjá félaginu. Yngsti hópurinn, „Kelar“, er í nokk- urs konar íþróttaskóla, en annars er lögð áhersla á hóp- og áhaldafim- leika. Það vekur hins vegar athygli að það eru aðeins þrír drengir að æfa fimleika hjá félaginu og eru þeir allir í yngsta hópnum. „Við höf- um hvorki áhöld né pláss til að bjóða strákum upp á,“ segir Sigurbjörg. „Deildin var stofnuð 1985 af áhuga- fólki sem átti fimar stúlkur og kom þessu á fót. Síðan þá höfum við átt fullt í fangi með að halda í horfinu vegna mikillar eftirspurnar. Við fáum reglulega fyrirspurnir um það hvort ekki sé hægt að stofna deild fyrir stráka. Það var reynt fyrir nokkrum árum, en gekk ekki nógu vel. Það verður að bíða betri tíma.“ Langþráð gryfja Framkvæmdir eru nú hafnar við stækkun á aðstöðu fimleikadeild- arinnar, þar sem meðal annars verð- ur gryfja og fleira sem nauðsynlegt má teljast til að ná árangri í grein- inni. Sigurbjörg segir mikinn spenn- ing vera í iðkendum og þjálfurum vegna nýju aðstöðunnar sem áætlað er að verði tilbúin í mars eða apríl 2002. „Nú er gryfjan loksins að koma, en við erum búin að bíða eftir henni í mörg ár. Við höfum fengið afnot af sal fimleikafélagsins Bjarkar í Hafn- arfirði og farið þangað með elstu iðkendurna á laugardögum í mörg ár. Slíkt er að sjálfsögðu mjög tíma- frekt og kostnaðarsamt jafnt fyrir félagið sem foreldra. Við erum búin að standa í miklum fjáröflunum að undanförnu vegna stækkunarinnar, en jólasýningin er okkar stærsta og helsta fjáröflun,“ segir Sigurbjörg. Gaman í fimleikum Írist Ósk Arnarsdóttir, Lilja Guðný Magnúsdóttir, Flóra Karitas Buenano og Heiðrún Rós Þórð- ardóttir eru 14–16 ára og meðal elstu fimleikaiðkenda í Keflavík. Þær segjast rosalega spenntar yfir nýju byggingunni, enda búnar að bíða eftir henni lengi: „Við heyrum stundum í vélunum þar sem verið er að vinna í byggingunni og fáum þá alveg í magann af spenningi,“ segja stúlkurnar. „Það verður hægt að æfa miklu meira af stökkum og svoleiðis án þess að eiga á hættu að meiða sig. Það er alveg „ýkt“ gaman í fim- leikum og gott fyrir líkamann. Þetta er einn besti grunnurinn fyrir krakka því þau verða bæði sterk og fim. Það er samt ekki hægt að vera neitt svo lengi í fimleikum, kannski til átján ára, en þá getur maður far- ið í þolfimi, hreysti eða bara á lík- amsræktarstöðvar,“ segja stúlk- urnar fimu að lokum. Ljósmynd/Kolbrún Pétursdóttir Fimleikastúlkurnar voru með viðeigandi höfuðbúnað á jólasýningunni. Um 160 tóku þátt í fimleika- og dansatriðum Keflavík Nauðsynlegt er að fá stuðning á fyrstu fimleikasýningunni. ÞEIR eru oft óhefðbundnir síðustu dagarnir í skólastarfinu í grunn- skólanum í Grindavík. Krakkarnir skrifa hver öðrum jólakort, allir verða að skrifa til allra í sínum bekk og svo til allra hinna vin- anna að sjálfsögðu. Þá þurfa einhverjir að sjá um að búa til jólapóstkassa fyrir hvern bekk og stelpurnar í 10.P. voru ekki í vandræðum þegar nokkrar þeirra bjuggu til Grýlu og Leppa- lúða með lítið barn í potti. „Það er hefðbundið hjá okkur að brjóta upp kennsluna og vera með skreytingardag og fönd- urdag. Það er helst jólasveinalest- ur nemenda í 7. bekk fyrir yngstu nemendurna sem er öðruvísi en áður í desember. Krakkarnir mæta þá í yngstu bekkina og lesa ljóðin hans Jóhannesar úr Kötlum um jólasveina. Þá reynum við að tengja alla vinnu í hinum ýmsu námsgreinum jólunum, svo sem enskuverkefni um jólin og jóla- ljóðagerð,“ segir Pálmi Ingólfs- son, deildastjóri á unglinga- stiginu. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Þórdís Gunnlaugsdóttir, Tinna Ásgeirsdóttir, Elva Rut Sigmarsdóttir og Hrafnhildur Guðjónsdóttir með frumlegu póstkassana í 10. bekk P. Óvenju- legir póst- kassar Grindavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.