Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Handavinna, föndur,
jólamaturinn o.fl.
Áskriftarsími 551 7044.
Jólablað
Húsfreyjunnar
VINNA við aðalskipulag fyrir
Stykkishólm fyrir árin 2002–2020 er
nú á lokastigi. Haldinn var kynning-
arfundur miðvikudaginn 12. desem-
ber þar sem íbúum bæjarsins voru
kynntar hugmyndir að nýju aðal-
skipulagi.
Það er Bæring Bjarnar Jónsson
arkítekt sem hefur endurskoðað
skipulagið og lagt fram breytingar.
Bæring er fæddur og uppalinn í
Stykkishólmi og þekkir vel til stað-
hátta og á hér sínar rætur.
Meðal þess sem kallar á endur-
skoðun nú er skortur á landi undir
atvinnusvæði, frístundabyggð og
heilsutengda ferðaþjónustu. Megin-
markmið skipulagsins er að nýta
landið betur þannig að ný byggð
myndi samfellu við núverandi byggð
og ekki myndist eyður á milli
hverfa. Því verður reynt að þétta
byggð og gera bæinn samfelldan á
ný eins og hann var fyrir 30 árum. Í
skipulaginu er lögð áhersla á vernd-
un og varðveislu gamla miðbæjar-
ins, en þar er að finna einstök
menningarverðmæti á landsvísu.
Afhafnasvæðið verður hjá
Hamraendum og verða lóðirnar
flokkaðar eftir eðli og ásýnd starf-
seminnar. Sumarhúsabyggð hefur
verið valin staður í Nýræktinni
norðan við Birgisborgina við Nes-
voginn. Þar hafa verið teknir frá 24
hektarar lands sem rúma um 80
sumarhús.
Kynningarfundurinn var vel sótt-
ur og bæjarbúar sýndu skipulaginu
áhuga. Bæjarstjórn mun fljótlega
taka til fyrstu umræðu endurskoð-
unina á aðalskipulaginu og hún mun
síðan vísa því réttar leiðir í gegnum
kerfið. Talið er að hægt verði að af-
greiða skipulagið formlega um miðj-
an maí á næsta ári.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir Stykkishólm næstu 20 árin. Bæring
Bjarnar Jónsson arkítekt hefur unnið að endurskoðun þess. Fjólublátt er
íbúðarsvæði, gult er verslunar-, þjónustu- og miðsvæði, hafnasvæðið er
blátt, athafnasvæði grátt, græn eru opin svæði til sérstakra nota og gráa
svæðið við Nesvoginn er ætlað fyrir frístundasvæði.
Endurskoðun
fer fram á
aðalskipulagi
Stykkishólmur
TILLAGA barst frá Skipulagsstofn-
un 14. desember sl. vegna Kötluvik-
urs ehf. og Hönnunar hf. að matsáætl-
un vegna mats á umhverfisáhrifum
vikurnáms á Mýrdalssandi. Allir geta
kynnt sér tillöguna og lagt fram at-
hugasemdir. Hægt er að óska eftir
eintökum af tillögunni hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, í Reykjavík.
Einnig er hægt að nálgast tillögu að
matsáætlun á heimasíðu Hönnunar:
http://www.honnun.is
Skipulagsstofnun hefur leitað um-
sagnar Mýrdalshrepps, Skaftár-
hrepps, Byggðastofnunar, Heilbrigð-
iseftirliti Suðurlands, iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytisins, Landgræðslu
ríkisins, Náttúruverndar ríkisins og
Óbyggðanefndar.
Athugasemdir skulu vera skrifleg-
ar og berast eigi síðar en 2. janúar
2002 til Skipulagsstofnunar. Þar fást
ennfremur nánari upplýsingar um
mat á umhverfisáhrifum.
Stefnt er að því að ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar um tillögu fram-
kvæmdaraðila að matsáætlun muni
liggja fyrir 11. janúar 2002.
Tillaga að
matsáætlun
vegna vik-
urnáms
Vík
♦ ♦ ♦
UNDANFARNAR vikur hafa
starfsmenn Búðahrepps unnið að
breytingum á tankbíl sem Slökkvilið
Fáskrúðsfjarðar festi kaup á frá Ol-
íudreifingu. Bifreiðin er af gerðinni
MAN, árgerð 1982, lítið ekin og með
14000 lítra tank.
Að sögn slökkviliðsstjóra Steins
Jónassonar, sem séð hefur um breyt-
ingarnar á bílnum ásamt Björgvin
Baldurssyni verkstjóra Búðahrepps
og starfsmönnum hans, er tankbif-
reiðin kærkomin viðbót við bílakost
slökkviliðsins, sem fyrir á MAN-
tækjabíl árgerð 1992 og kanadískan
Chevrolet sem enn er í góðu ástandi
þrátt fyrir háan aldur, en hann er af
árgerð 1944.
Viðbót við
bílakost
slökkviliðsins
Fáskrúðsfjörður
ÍSLENSKA gámafélagið hefur
tekið að sér að sjá um sorphirðu í
Stykkishólmi frá og með 1. nóv-
ember sl. Í framhaldi af því mun
losun sorps komast í fastari
skorður. Fljótlega verður tekin í
notkun ný gámastöð við flugvöll-
inn fyrir ofan Stykkishólm.
Ýmsilegt er hægt að gera til að
minnka sorp sem frá almenningi
kemur. Eitt ráðið er að flokka
sorpið og taka frá lífrænan úr-
gang og gera úr honum moltu
sem skilar sér fljótt út í umhverf-
ið aftur sem mold.
Íslenska gámafélagið færði leik-
skólanum í Stykkishólmi nýlega
fyrsta safnkassann fyrir lífrænan
úrgang til moltugerðar. Þor-
grímur Kristinsson starfsmaður
fyrirtæksins útskýrði fyrir krökk-
unum hvaða þýðingu það hefur
fyrir framtíðina að flokka sorp og
minnka urðun á sorpi. Moltugerð
flýtir fyrir hringrás náttúrunnar.
Fram kom hjá Þorgrími að
hægt sé að minnka heimilissorp
um 30% að þyngd með því að taka
frá lífrænan úrgang og setja í
safnkassa. Með því að minnka úr-
ganginn sparast miklir fjármunir.
Það kostar 3,30 kr. að urða hvert
kíló heimilissorps frá íbúum
Stykkishólms að Fíflholtum og er
aksturskostnaður þar til viðbótar.
Á mánuði falla til í Stykkishólmi
um 12–15 tonn af heimilissorpi og
ef allir íbúar bæjarsins tækju frá
lífrænan úrgang sparaðist flutn-
ingur á 3–5 tonnum á hverjum
mánuði og í peningum fyrir bæj-
arfélagið yfir einni milljón á ári.
Það er því til mikils að vinna og
gott að fá yngstu kynslóðina til
liðs.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þorgrímur Kristinsson, starfsmaður Íslenska gámafélagsins, afhendir
Sigrúnu Þórsteinsdóttur nýtískulegan safnkassa fyrir lífrænan úrgang.
Þær fylgjast vel með, þær Sunna Þórey, Klara Sól og Camilla.
Leikskólinn fær
safnkassa fyrir
lífrænan úrgang
Stykkishólmur
ÞAÐ var jólalegt um að litast í mat-
sal skólans á Laugalandi í Holtum á
sunnudaginn var. Boðið var til dag-
skrár undir yfirskriftinni „Suður-
land á aðventu“ og kom fjöldi manns
til að fylgjast með og njóta hennar.
Var salurinn þéttskipaður sölu-
borðum með ýmiss konar varningi,
einkum listmunum en einnig jóla-
bakkelsi, bókum, handavinnu o.fl.
Flestir seljendanna eru úr héraðinu
en þarna mátti líka sjá fólk víðs-
vegar að af Suðurlandi.
Fjöldi skemmtiatriða gladdi augu
og eyru gesta og má þar nefna
harmoníkuleik félaga úr Harmon-
íkufélagi Rangæinga og söng hóps
sem kallar sig Veirurnar við undir-
leik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur pí-
anóleikara. Kveikt var á jólatré á lóð
hússins og jólasveinar komu og
dönsuðu og sungu með stórum hópi
barna og fullorðinna við undirleik
Grétars Geirssonar harmoníkuleik-
ara. Leikfélag Rangæinga sýndi
stutt atriði úr leikritinu Emil í Katt-
holti sem til stendur að frumsýna í
febrúar. Bjarni Harðarson, blaða-
maður og sagnagrúskari, kynnti ný-
útkomna bók sína, „Landið, fólkið
og þjóðtrúin“, um yfirskilvitleg
pláss í Árnessýslu og að lokum tóku
þeir lagið Gísli Stefánsson frá Hellu
og Guðmundur Sigurðsson úr
Njarðvík við undirleik Inga Heið-
mars Jónssonar.
Að sögn Elísabetar Jóhannsdótt-
ur standa hún, Ásta Begga Ólafs-
dóttir og Jón Þórðarson fyrir dag-
skrá þessari. Tilgangurinn er
aðallega sá að koma á framfæri
þeirri list sem unnið er að hér á
Suðurlandi, bæði handverki, söng-,
leik- og frásagnarlist. Vildi Elísabet
koma á framfæri þakklæti til þátt-
takenda, gesta og ekki síst sveitar-
félagsins fyrir stuðninginn við að
hrinda þessari hugmynd í fram-
kvæmd.
Suður-
land á
aðventu
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Fullur salur söluborða með ýmiss konar varningi á Laugalandi í Holtum.
Hella