Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 27
ANTONIO Guterres, forsætisráð-
herra Portúgals, sagði í gær af sér
embætti en um helgina galt flokk-
ur hans, Sósíalistaflokkurinn, af-
hroð í sveitarstjórnarkosningum
þar í landi. „Ég ber ábyrgð á þess-
ari niðurstöðu,“ sagði Guterres á
fréttamannafundi í gær en hann
gekk síðar um daginn á fund Jorge
Sampaio, forseta Portúgals, til að
tilkynna honum formlega um af-
sögn sína.
Niðurstöður kosninganna um
helgina eru þær verstu fyrir sós-
íalista um áratuga skeið. Flokk-
urinn tapaði meirihluta sínum í
höfuðborginni Lissabon, sömuleið-
is í næststærstu borg Portúgal,
Oporto, og borgunum Coimbra og
Faro. Jafnaðarmenn náðu völdum í
öllum þessum borgum en í Set-
ubal, í suðurhluta Portúgal, voru
það kommúnistar sem báru sigur
úr býtum, en þar höfðu sósíalistar
ráðið ríkjum undanfarin sextán ár.
Alls misstu sósíalistar meiri-
hluta í þrjátíu bæjar- og sveit-
arstjórnum, ráða nú aðeins ríkjum
í 98 bæjar- og sveitarstjórnum.
Miðhægri-menn í Jafnaðarmanna-
flokknum hafa hins vegar meiri-
hluta í 144 bæjar- og sveitarstjórn-
um að afstöðnum þessum kosn-
ingum.
Segja fréttaskýrendur að niður-
staðan sé til marks um óánægju
kjósenda með frammistöðu ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum, en
Portúgal hefur þurft að glíma við
niðursveiflu eins og flest önnur
ríki Evrópu. Hefur kaupmáttur
minnkað verulega á undanförnum
mánuðum á sama tíma og verð-
bólga hefur vaxið hratt.
Líklegt að boðað verði
til þingkosninga
Guterres sagði er hann tilkynnti
um afsögn sína að mikilvægt væri
að traust ríkti milli kjósenda og
þeirra sem stýrðu landinu í þeirra
umboði nú þegar veður væru vá-
lynd í alþjóðamálum og blikur á
lofti í efnahagsmálum. Hann
myndi ekki skirrast við að axla
sína ábyrgð á þessum úrslitum og
leggja þannig sín lóð á vogarskál-
arnar í þeim efnum.
Óljóst var í gær hvort boðað
yrði til kosninga eða hvort sósíal-
istar myndu tilnefna nýjan for-
sætisráðherra úr sínum röðum.
Stjórnmálaskýrendur sögðu þó all-
ar líkur á að Sampaio forseti
myndi taka þann kost að slíta
þingi og boða til kosninga en undir
eðlilegum kringumstæðum hefðu
ekki átt að fara fram þingkosn-
ingar í landinu fyrr en árið 2003.
Guterres hefur verið forsætis-
ráðherra síðan 1995. Seinna kjör-
tímabil hans á valdastóli hefur
reynst honum og flokki hans erfitt.
Þannig hafa flokkar stjórnarand-
stöðunnar þrívegis staðið fyrir
vantrauststillögum í þinginu und-
anfarin tvö ár.
Sósíalistar í Portúgal guldu afhroð í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum um helgina
Guterres segir
af sér embætti
Reuters
Antonio Guterres, forsætisráð-
herra Portúgals, er hann
greindi fréttamönnum frá af-
sögn sinni í gær.
Lissabon. AFP, AP.
FLOKKAR mið- og vinstri-
stjórnarinnar í Chile misstu
nauman meirihluta sinn í öld-
ungadeild þingsins í kosning-
um á sunnudag en héldu meiri-
hluta í neðri deildinni.
Niðurstaðan er áfall fyrir
stjórnina og gerir að engu von-
ir hennar um að breyta stjórn-
arskránni frá valdatíma Aug-
ustos Pinochets, fyrrverandi
einræðisherra.
Bandalag hægriflokka, undir
forystu Joaquins Lavins, borg-
arstjóra Santiago, náði naum-
um meirihluta í öldungadeild-
inni með stuðningi smáflokka.
Lavin tapaði naumlega fyrir
sósíalistanum Ricardo Lagos í
forsetakosningum á síðasta ári.
Flokkur Lavins, Óháði lýð-
ræðisflokkurinn, er nú stærsti
flokkur landsins, fékk 25% at-
kvæðanna. Einn stjórnarflokk-
anna, Kristilegir demókratar,
hafði verið stærstur frá því 17
ára valdatíma Pinochets lauk
árið 1990 en fékk nú 19% fylgi.
Kosið í Chile
Hægri-
menn eflast
Santiago. AFP.