Morgunblaðið - 18.12.2001, Síða 28
Áskorun Arafats um
vopnahlé hafnað
AP
Yasser Arafat á fundi með leiðtogum araba í Ísrael í gær.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, skoraði í fyrrakvöld á palest-
ínskar hreyfingar að hætta öllum
sprengju- og skotárásum á Ísraela
en áskoruninni var fálega tekið í Ísr-
ael. Þrjár palestínskar hreyfingar,
sem hafa staðið fyrir árásum á Ísr-
aela, sögðust ekki ætla að verða við
áskoruninni.
„Enginn hefur rétt til að svipta
palestínsku þjóðina eðlilegum rétti
til sjálfsvarnar,“ sagði Abu Imad,
talsmaður hreyfingarinnar Íslamskt
Jihad.
Sagði hann í gær að leiðtogar Ísr-
aels hefðu kosið að líta framhjá þeim
árangri sem hann hefði þegar náð í
þeirri viðleitni að sporna við ódæð-
isverkum öfgahópa.
Hvetur Ísraela til að hefja
friðarviðræður að nýju
Arafat sagði í sjónvarpsávarpi á
sunnudagskvöld að palestínsku
hreyfingarnar yrðu að hætta öllum
„sjálfsmorðsárásum, vopnaðri bar-
áttu og hryðjuverkastarfsemi“.
Hann sagði stjórn Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels, nota árás-
irnar sem tylliástæðu til að „heyja
grimmilegt stríð gegn palestínsku
þjóðinni“ og hvatti Ísraela til að
hefja friðarviðræður að nýju.
Eru þetta skýrustu tilmæli Ara-
fats til þessa um vopnahlé. Talsmað-
ur Hamas-hreyfingarinnar sagði að í
orðum Arafats fælist áskorun um að
Palestínumenn hættu uppreisninni,
sem staðið hefur í fjórtán mánuði, og
sagði það ekki koma til greina fyrr
en Ísraelar hættu árásum sínum og
flyttu hersveitir sínar af palestínsk-
um landsvæðum.
Hamas og Íslamskt Jihad hafa
staðið fyrir meira en þrjátíu sjálfs-
morðsárásum í Ísrael á fimmtán
mánuðum. Þriðja palestínska hreyf-
ingin, PFLP, sem hefur gert
sprengju- og skotárásir á Ísraela,
hafnaði einnig áskoruninni.
Shimon Peres segir Arafat
að láta verkin tala
Shimon Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði að stjórnin ætti að gefa
Arafat nokkurra daga frest til að
sýna að honum væri alvara og koma
á vopnahléi. Talsmaður Sharons
sagði að orðin ein dygðu ekki og Ara-
fat yrði að fylgja þeim eftir í verki og
handtaka Palestínumenn sem sakað-
ir eru um árásir á Ísraela. Talsmaður
George W. Bush Bandaríkjaforseta
tók í sama streng en sagði áskorun
Arafats vera „til bóta“.
Nær allir fjölmiðlarnir í Ísrael
höfnuðu áskorun Arafats. Dagblaðið
Yediot Aharonot lýsti henni sem
„þvaðri“ og sagði að sprengju hefði
verið skotið á gyðingabyggð á Gaza-
svæðinu skömmu eftir að Arafat
flutti ræðuna.
Jerúsalem. AFP, AP.
ERLENT
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ANNAÐ heimsþing Sameinuðu
þjóðanna gegn kynlífsþrælkun
barna hófst í Yokohama í Japan í
gær. Að sögn Carol Bellamy, for-
stöðumanns Barnahjálpar SÞ
(UNICEF), er meginviðfangsefni
þingsins að meta hvernig unnt sé
að frelsa þær milljónir barna, sem
talið er að séu hnepptar í viðjar
hins alþjóðlega kynlífsiðnaðar, og
hvernig hægt sé að refsa hinum
ábyrgu.
Yfir 3.000 manns taka þátt í
störfum þingsins: fulltrúar 132
þjóðríkja, 21 stofnunar SÞ og 148
óháðra samtaka. Auk þess taka
þátt 90 fulltrúar ungu kynslóð-
arinnar. Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra sækir ráðstefn-
una fyrir Íslands hönd.
Vandinn talinn vera
afar umfangsmikill
Þrátt fyrir að erfitt sé að henda
reiður á umfangi kynlífsþrælkunar
barna í heiminum er ljóst að vand-
inn er gríðarlegur. Samkvæmt
nýrri skýrslu UNICEF, sem unn-
in var fyrir þingið, fer hinn al-
þjóðlegi kynlífsiðnaður vaxandi og
er yfir ein milljón barna hneppt í
kynlífsþrælkun á hverju ári. Í
skýrslunni eru fátækt, kynjamis-
rétti, stríð, skipulögð glæpastarf-
semi, hefðir og hjátrú, auk fíkni-
efnasölu nefnd meðal orsakaþátta
kynferðislegrar misnotkunar á
börnum.
Tækniframfarir
auðvelda starfsemina
„Kynlífsþrælkun og kynferðis-
leg misnotkun barna eru ekkert
minna en tegund hryðjuverka,
sem eyðileggja líf og framtíð ung-
menna og mega ekki líðast leng-
ur,“ sagði Carol Bellamy í ávarpi
við upphaf þingsins. Hún sagði
það fyrst og fremst hvíla á stjórn-
völdum í ríkjum heims að leysa
vandann og hvatti þau til að taka í
gildi löggjöf sem verndaði börn
gegn misnotkun og kvæði á um
hertar refsingar yfir kynferðis-
brotamönnum.
Erfitt verk fyrir höndum
En Bellamy varaði jafnframt við
því að erfitt verk væri fyrir hönd-
um. Meðal annars hefðu tækni-
framfarir átt þátt í því að auðvelda
starfsemi alþjóðlegra klám- og
vændishringa og finna þyrfti leiðir
til að bregðast við því.
Silvía Svíadrottning, sem var
heiðursforseti fyrsta heimsþings
SÞ gegn kynlífsþrælkun barna í
Stokkhólmi árið 1996, sagði við
setningu þingsins í Yokohama í
gær að yfir 100 vefsíður með
barnaklámi væru opnaðar á degi
hverjum og hvatti til þess að
spornað yrði gegn þessari þróun.
Líkti hún kynlífsþrælkun barna
við „glæpi gegn mannkyninu“.
Hvílir á ríkjum heims
að taka á vandanum
Tókýó, Yokohama. AFP, AP.
!"# $%& ' (
" )*+ !( (%*#% , (*,( ' &
% ''" -./01(*,( ' +
%(" ) ))*+ !("# *'(%( !)#!2
3$4)(# (%(5( * )' * !
(*,( ' (3*'%% (4 *'&3'%
$!*
% !(*
, $
64) '( '6
0
7( ' !*
,4)
8(!
''6 !*
.$ $
*
8! $
%$!
8!
(+
9!*
/4(
:
( !
3 $ *4)(%(#
% (4 *'& '*+ !( (
%;'- <-
-
)
-
%
=
%
-
>
+
?
=
%
)
%
.
%
/
#
%
-
>
@%
;<<
=>?
><<
@A?
@<< @<< @<<
=? >? @B
Annað heimsþing Sameinuðu þjóðanna gegn
kynlífsþrælkun barna hafið í Japan
AP
SORPHREINSUNARMENN í Aþenu eru í verkfalli og ástandið í borginni
vægast sagt að verða mjög alvarlegt. Hér reyna vegfarendur að komast
framhjá ruslinu, sem kastað hefur verið á gangstétt skammt frá kjötmark-
aðinum, þar á meðal kjöti og beinum af sláturdýrum.
Aþena í rusli
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.