Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 37
FIÐLUSÓNÖTUR Mendels-
sohns heyrast ekki á hverjum degi
og verður að teljast óskiljanlegt
hversu lítið hefur farið
fyrir þessum ágætu
tónverkum. Þeirra er
ekki einu sinni alltaf
getið í uppflettibókum
sem þó teljast áreiðan-
legar.
Nú hefur litið dags-
ins ljós upptaka af öll-
um verkum tónskálds-
ins fyrir fiðlu og píanó
og þar með taldar
fiðlusónöturnar þrjár.
Útgefandi er Naxos en
útgáfan sú hefur gefið
út mjög ódýrar geisla-
plötur um árabil. Út-
gáfunni var fyrst mætt
með tortryggni en
reynslan hefur leitt í
ljóst að upptökur og flutningur tón-
listar er síst lakari en hjá „dýru“ út-
gáfunum. Því hefur fyrirtækið nú
skipað sér í raðir stærstu og virtustu
útgáfufyrirtækja í klassískri tónlist,
djass og hljóðbókum. Það eru tón-
listarmenn sem kalla sig Nomos
Duo sem flytja tónlistina en dúóið
skipa ástralski fiðluleikarinn og
hljómsveitarstjórinn Nicholas Milt-
on og píanóleikarinn Nína Margrét
Grímsdóttir sem okkur Íslendingum
er að sjálfsögðu vel kunn. Milton hef
ég ekki heyrt í áður en Nínu Mar-
gréti minnist ég sérstaklega fyrir
frábæra geislaplötu með píanóverk-
um Páls Ísólfssonar (útg. BIS) sem
var gefinn út í fyrra. Þessi nýi
Mendelssohn-diskur þeirra hefur
hlotið afar lofsamlega dóma í tónlist-
artímaritinu Gramophone (Awards
Issue, nóv. 2001) og verður hér síst
dregið úr þeim ummælum – enda
engin ástæða til.
Fyrsta verkið er F-dúr-sónatan
frá 1838 sem Yehudi Menuhin „upp-
götvaði“ árið 1953, þá orðin 115 ára
gömul. Og tími til kominn finnst
manni. Þetta bráðskemmtilega,
leiftrandi glæsiverk er fullt af minn-
isstæðum stefjum. Flutningur
þeirra Nomos-félaga er kraftmikill
og áræðinn, hraðavalið frísklegt,
leikurinn dýnamískur og tæknin að
öllu leyti óaðfinnanleg (hlustið t.d. á
lokakaflann sem helst minnir á
hvirfilvind!). Þessi glaðlega tónlist
fær hér þann flutning sem henni
sæmir. F-moll-sónatan frá 1823 er
næst í röðinni, miklu alvarlegri að
allri gerð og í raun ótrúlegt að þetta
bitastæða verk skuli koma undan
penna 14 ára unglings. Þeim Milton
og Nínu Margréti tekst að skapa hér
andrúmsloft angurværðar, fiðluleik-
arinn í einmanalegu upphafi fyrsta
kafla sem píanóleikarinn svarar svo
undur blíðlega. Í upphafi millikafl-
ans er þessu svo snúið við, þar hefur
píanistinn framsögu og fiðluleikar-
inn svarar. Þetta er geysilega fal-
lega gert. Yfirbragð hins næstum
„beethovenska“ loka-
kafla er bjartara en
víðs fjarri eru ærsl
lokakafla F-dúr-sónöt-
unnar frá 1838. Og tak-
ið endilega vel eftir
niðurlagi lokakaflans.
Mendelssohn samdi
seinni F-dúr-sónötuna
aðeins ellefu ára að
aldri! Vel getur verið
að rök megi leiða að því
að verkið sé ekki í
sama klassa og hin F-
dúr-sónatan. En gæti
ekki hvaða þroskað
tónskáld sem er verið
fullsæmt af þessari
tónlist? Það er áhuga-
vert að taka eftir því að
hinn ellefu ára gamli Mendelssohn
skuli líkjast svo sjálfum sér að
ómögulegt sé að benda á nokkur
áhrif frá öðrum (sem væri jú afar
eðlilegt) og að hann skuli standa svo
stöðugur með báða fætur í snemm-
rómantíkinni. Þetta er bjart verk og
verulega áhugavert áheyrnar og
skemmtilegt er að veita því athygli
hversu skyldir lokakaflarnir í F-dúr-
sónötunum eru þótt hálft æviskeið
tónskáldsins skilji verkin að. Þau
Nína-Margrét og Milton virðast líka
taka fullt mark á þessari tónlist og
miðla henni til okkar af sannri gleði.
Diskinum lýkur á fimm æfinga-
stykkjum hins barnunga Mendels-
sohns þar sem má heyra hvernig
hann reyndi við ýmis form liðinna
meistara. Suma má vel þekkja og þá
sérstaklega Bach sem guðar á
gluggann í Fúgunum tveimur og
Andante í d-moll.
Eins og fram hefur komið ber
engan skugga á þennan framúrskar-
andi flutning Nicholas Milton og
Nínu Margrétar Grímsdóttur.
Hljóðritunin er einnig fyrsta flokks,
dýnamísk og með hæfilegan endur-
óm.
Jólavertíð plötuáhugamanna hef-
ur verið gjöful í ár og enn hækkar
staðallinn með þessum sérstaklega
notalega diski.
Valdemar Pálsson
Leiftrandi
flutningur
TÓNLIST
Geislaplötur
Felix Mendelssohn-Bartholdy: Fiðlusón-
ata í F-dúr (1838), Fiðlusónata í f-moll
op. 4 (1823), Fiðlusónata í F-dúr (1820),
Satz í g-moll, Andante í d-moll, Fúga í d-
moll, Fúga í c-moll og Allegro í C-dúr.
Flytjendur: Nomos Duo (Nicholas Milton
(fiðla) og Nína Margrét Grímsdóttir (pí-
anó)). Hljóðritun: Halldór Víkingsson,
janúar 1998. Heildarlengd: 67’03. Útgef-
andi: Naxos 8.554725.
MENDELSSOHN
Nína Margrét
Grímsdóttir
LÁNIÐ virðist leika við Baker-fjöl-
skylduna. Búa vel í góðu hverfi, börn-
in, Ruby (Sobieski), 16 ára, bráðklár
myndarstúlka og hinn 11 ára Rhett,
virðast hafa flest sem þau geta óskað
sér. Þá dynur ógæfan yfir. Foreldr-
arnir farast í bílslysi og skyndilega eru
þau munaðarlaus, komin í fóstur hjá
gömlum vinum foreldranna, Glass-
hjónunum (Skarsgård og Lane).
Í fyrstunni virðist þetta góður kost-
ur, úr því sem komið er. Glass-hjónin
búa í glæsivillu á Malibu-ströndinni
og virðist fátt skorta á yfirborðinu.
Með hverjum deginum sem líður sér
Ruby betur og betur að ástæður
hjónanna til þess að búa þeim systk-
inum nýtt heimili, er ekki mannkær-
leiki heldur úthugsuð leið til að forða
þeim frá gjaldþroti; Ruby kemst að
því að foreldrar þeirra hafa skilið eftir
sig 4 milljónir dala.
Margþvælt efni í ófrumlegum bún-
ingi, álíka gegnsæjum og hugtakið
sem nafn myndarinnar vísar til.
Lengi vel ganga hlutirnir bærilega
fyrir sig, áhorfandinn er ekki alveg
með það á hreinu hvort systkinin hafi
lent í illmennahöndum eður ei. Eftir
því sem á líður seinni helminginn
verður það æ ljósara og framvindan
verður ótrúlega heimskuleg og fyr-
irsjáanleg. Fundur Terrys við banka-
stjórann, læknaleyfismissir frúarinn-
ar, aðeins tvö dæmi um afleitlega
skrifuð burðaratriði. Höfundunum
tekst ekki að vinna úr því sem lagt er
upp með í byrjun og útkoman auð-
gleymd og ómerkileg. Handritið vont,
götótt og gegnsætt, leikstjórn nýlið-
ans Daniels Sackhrem hvorki fugl né
fiskur. Ljósustu punktarnir sálarlaus
glæsivillan sem skapar óaðfinnanleg-
an ramma um atburðina og íbúana,
góð tónlist Christophers Young og
nokkuð magnaður leikur Sobieski og
hins margsjóaða Skarsgårds.
Gegnsæ
flétta
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Stjörnubíó
Leikstjóri: Daniel Sackheim. Handritshöf-
undur: John O’Shea. Tónskáld: Christo-
pher Young. Kvikmyndatökustjóri: Alan
Kivilo. Aðalleikendur: Leelee Sobieski,
Stellan Skarsgård, Diane Lane, Trevor
Morgan, Bruce Dern. Sýningartími 105
mín. Bandarísk. Columbia. 2001.
GLASS HOUSE (GLERHÚSIÐ) Sæbjörn Valdimarsson
KOMDU BÍLNUM
Í HÁTÍÐARSKAP
PLASTIKOTE
úðalakk í miklu úrvali
t.d. gull-, kopar- og
silfurlakk.
25% afsláttur
CRAFTSMAN
hágæðaverkfærasett,
144 hlutir
Verð áður
Tilboðsverð
30.941 kr.
23.590 kr.
DRAPER verkfærasett, 52 hlutir
Verð áður Tilboðsverð
18.964 kr. 12.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
13.627 kr. 8.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
13.160 kr. 6.990 kr.
HELLA
HELLA ljóskastari
Tilboðin gilda til 31. des.
á meðan birgðir endast.
Einnig 25% afsláttur
af GSM fylgihlutum
METABO
höggborvél 560W
Verð áður Tilboðsverð
14.091 kr. 8.990 kr.
DRAPER
handkastarar 6V,
2 stærðir
Verð áður Tilboðsverð
5.799 kr. 3.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
6.601 kr. 4.990 kr.