Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 50
MINNINGAR
50 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Jósef Stefánssonfæddist í Hafurs-
staðakoti í Vindhælis-
hreppi 25. júní 1922.
Hann lést á heimili
sínu á Skagaströnd 9.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Stefán Stefáns-
son og Salome Jósefs-
dóttir. Hann var einn
af 12 systkinum. Níu
ára gömlum er hon-
um komið fyrir á Auð-
ólfsstöðum í Langa-
dal þar sem hann elst
upp til 17 ára aldurs.
Hann flytur þá til foreldra sinna
sem bjuggu í Kambakoti í Vind-
hælishreppi. Þaðan flytur hann svo
með móður sinni og systkinum eft-
ir lát föður síns til Skagastrandar
þar sem hann átti heima eftir það.
Árið 1948 kynnist Jósef eftirlif-
andi eiginkonu sinni Ragnheiði Haf-
steinsdóttur, f. 25. nóv. 1925, og
bjuggu þau í Reykholti á Skaga-
strönd allan sinn búskap. Foreldrar
Ragnheiðar voru Hafsteinn Sigur-
bjarnarson og Laufey Jónsdóttir.
Ragnheiður var ein af sjö systrum.
Jósef og Ragnheiður eignuðust
fjögur börn. Þau eru: 1) Stefán, f.
9.9. 1950, maki Sig-
ríður Gestsdóttir.
Þeirra börn eru Guð-
mundur Henrý, Jósef
Ægir, Jón Örn, maki
Þórdís Björnsdóttir,
og Ragnheiður Erla.
2) Rúnar, f. 29.8.
1951, maki Súsanna
Þórhallsdóttir. Þeirra
dætur eru Ragnheið-
ur Ásta, Salome Ýr og
Anna Dúna. 3) Jón
Gunnar, f. 7.2. 1953,
maki Ásta Helgadótt-
ir. Dætur hans eru
Arna Guðrún, maki
Siggeir Vilhjálmsson, Aðalbjörg
Birna og Laufey. 4) Líney, f. 28.2.
1955, maki Sveinn Ingi Grímsson.
Þeirra börn eru Þorlákur Sigurður,
maki Rakel Tryggvadóttir, dóttir
hans er Eva Líney; Ólína Laufey,
maki Andrés Páll Júlíusson, og
Friðþór Norðkvist.
Jósef starfaði mest við sjó-
mennsku, ýmist á vertíðum fyrir
sunnan eða á bátum frá Skaga-
strönd og var einnig í útgerð til
margra ára.
Útför Jósefs fór fram frá Hóla-
neskirkju á Skagaströnd 17. des-
ember.
Hjartans besti pabbi minn. Nú
þegar þú ert farinn í ferðina löngu þá
er allt svo tómt og óraunverulegt, því
mér fannst þú yrðir alltaf hér og þó
svo Óli Guðlaugs segði mér og sýndi í
draumi að nú væri hann að sækja þig
og þið ætluðuð í ferðalag, þá hélt ég
að það yrði ekki alveg strax, en ég er
svo ánægð að þú skyldir fá að kveðja,
eiginlega í faðmi mömmu. Þú hefðir
ekki óskað þér neins betra. Það er
svo margs að minnast og yndislegri
pabba hefði ég ekki getað óskað mér,
þú varst svo mikill vinur okkar allra.
Allir veiðitúrarnir sem við fórum í
saman, sem þér leiddist ekki að fara
í. Ekki var ég gömul þegar ég fékk að
fara í fyrsta gæsatúrinn með þér og
Kalla á gamla Willy’s jeppanum fram
í Langadal, þá var vel veitt. Ég man
líka silungstúrana í heiðinni með þér,
Inga og Lalla sem þá var bara patti
og aldrei varstu ánægðari en í slíkum
ferðum. Það eru minningar sem við
geymum öll í hjarta okkar.
Síðustu árin sáu allir hvað þú varst
ríkur að eiga hana mömmu sem gerði
allt til að þér liði sem best þegar þú
fórst að gefa eftir. Hún stóð við hlið
þér eins og klettur sama hvað amaði
að. Alltaf gastu treyst á hana og hún
er mikil hetja í mínum augum.
Börnin mín eiga öll miklar og góð-
ar minningar um heimsins besta afa
sem þau voru svo lánsöm að þekkja
svo lengi og náið. Þú kenndir þeim
öllum að fara með veiðistangir og að
beita þeim rétt. Þetta var þér og
þeim ómetanlegt, enda áttu allir að
kunna á græjurnar og passa þær.
Elsku pabbi minn, ég veit að þín
var beðið með eftirvæntingu hinum
megin, Ninna og Óli, Kalli, Þórður,
Nonni frændi og Bergur sem fóru á
undan, það er örugglega kátt og mik-
ið rætt um veiði. Mín trú segir mér
að við munum hittast aftur og þú eig-
ir eftir að taka á móti okkur öllum
þegar okkar tími hér er liðinn. Ég
elska þig og virði, þú gafst mér svo
margt. Ég veit að þú munt vaka yfir
elsku mömmu og gefa henni styrk,
hún hefur misst svo mikið.
Guð taki þig í sinn náðarfaðm og
vaki yfir sálu þinni.
Ástarkveðja frá mér.
Þín dóttir,
Líney.
Elsku afi minn. Mér þykir svo sárt
að hugsa til þess að þú sért farinn úr
þessum heimi, ég veit samt að nú líð-
ur þér vel og hefur nú örugglega
ekkert lítið að gera. Mér finnst best
að hugsa um að núna sért þú að rúnta
með Ninnu og Óla, í Blöndu með
Benna eða uppi á fjöllum á veiðum
með öllum hinum vinum þínum. Ég
mun hugsa til þín með söknuði þegar
ég fer að veiða næstu sumur og
hugsa til allra veiðitúranna sem við
fórum saman í Hrafnána þegar ég
var lítil og hversu stoltur þú varst
alltaf þegar ég veiddi fisk eða fann
stóra ánamaðka.
Ég man ennþá eftir því þegar ég,
þú og Salóme fórum í berjamó með
10–20 lítra fötu og ætluðum að fylla
hana af berjum, en þegar hún var
hálfnuð gáfumst ég og Salóme upp,
fylltum krukkurnar okkar og átum
fullt af berjum og að sjálfsögðu þótt-
ist þú ekki taka eftir neinu þó svo að
minnkaði í fötunni, svona góður
varstu alltaf við okkur. Ég á eftir að
sakna þess að sitja inni í eldhúsi með
þér og borða rúsínur og spila marías
og rommý, eins og við gerðum svo oft
þegar við hittumst.
Elsku afi minn, ég á eftir að sakna
þín svo mikið.
Minning þín mun lifa sem ljós í
hjarta mér.
Þín
Ólína Laufey.
Jósef, mágur minn, er fallinn frá.
Hann var orðinn aldraður maður en
aldrei í mínum augum.
Jobbi var mikill náttúruunnandi
og jafnan uppi um fjöll og firnindi.
Varla leið sá dagur að hann væri ekki
einhvers staðar úti í náttúrunni full-
ur af veiðihug. Það voru ófáar veiði-
ferðirnar sem ég fór í fylgd með hon-
um og öðru góðu fólki í gamla daga.
Lengst af var Jobbi sjómaður,
grenjaskytta, mikill laxveiðimaður,
rjúpnaskytta, stundum vann hann
við beitingar og í ellinni tíndi hann
ber af miklum hug og gaf vinum og
vandamönnum um allt land.
Jobbi var giftur systur minni,
Bibbu, og bjuggu þau allan sinn bú-
skap í húsi foreldra minna þar sem
þau keyptu sér íbúð. Þau eignuðust
fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur.
Þegar ég svo eignaðist son minn, Að-
alstein, árið 1959 bættist fimmta
barnið við hjá Bibbu og Jobba, því
samgangur var mikill og góður. Að-
alsteinn á yndislegar minningar frá
þeim tíma. Allt sem Jobbi gerði fyrir
börnin sín gerði hann líka fyrir Alla,
sem hann kallaði Hlunk, og Hlunk-
inn tók hann með sér í ótaldar veiði-
ferðir inn í Blöndu og ýmis veiðivötn.
Heima hjá þeim hjónum var oft
glatt á hjalla og jafnan spilað á spil
upp á hvern dag. Ekki setti Jobbi
fyrir sig að spila við lítinn gutta.
Hann kenndi Aðalsteini að halda á
fyrstu spilunum og má segja að hann
hafi ekki sleppt þeim síðan. Og Jobbi
var vinmargur maður. Á heimilinu
var því stöðugur gestagangur og
aldrei lét Bibba nokkurn mann fara
svangan frá garði.
Ég á Jobba svo ótal margt að
þakka frá því ég var heima og ein
með son minn í átta ár. Stuðningur
hans við drenginn var mér mikils
virði og þegar Aðalsteinn var fimm
ára spurði hann mig hvort pabbi sinn
væri svona eins og Jobbi – og hefði
greinilega ekki haft mikið á móti því.
Ekki naut ég aðstoðar Bibbu og
Jobba síður eftir að ég flutti suður.
Skólinn var varla búinn á vorin þegar
Aðalsteinn var kominn norður til
dvalar hjá þeim. Á unglingsárunum
útvegaði Jobbi honum svo sumar-
vinnu þar á Skagaströnd. Alltaf var
svo sjálfsagt að gera allt fyrir Alla,
rétt eins og hann væri einn úr
hópnum hans, enda voru Jósefssynir
og sonur minn oft kallaðir Jobbar-
arnir.
Í 53 ár hafa Bibba systir og Jobbi
gengið saman í gegnum lífið. Nú
verða straumhvörf og ég bið Guð að
gefa henni styrk til að takast á við
breytta tíma.
Blessuð sé minning Jósefs Stef-
ánssonar.
Áslaug Hafsteinsdóttir.
Oft er það nú þannig, þegar mann-
eskja manni nákomin fellur frá, að
hugurinn stekkur af stað inn í heim
minninganna. Skýr myndbrot sem
tengjast hinum látna skjóta upp koll-
inum og tilfinningar skekjast til.
Þannig varð mér við, er í eyra mitt
var hvíslað fréttum af andláti Jobba.
„Gamli veiðihöfðinginn“ hafði lagst
til hvílu og hinn „slyngi sláttumaður“
læddist að honum í svefni svo und-
ankomu varð ekki auðið. En hvernig
á ég að lýsa Jobba? Hvernig á ég að
lýsa manni sem hafði afar mikil áhrif
á bernsku- og unglingsár mín? Ég
gæti byrjað á því að segja að á
bernskuárum mínum ávarpaði hann
mig yfirleitt með gælunafninu
„hlunkur“ en í kjölfarið fylgdi síðan
glott og gjallandi hlátur. Jobbi var
nefnilega umfram allt afar skemmti-
legur maður. Það var gaman að
heyra hann segja sögur og hann
kunni líka vel að hlusta. Hann hafði
skemmtilegan talanda og var mjög
hláturmildur. Veiðiskapur var
áhugamál hans númer eitt. Hann var
refaskytta til margra ára og voru
þær ófáar sögurnar sem hann sagði
af viðskiptum sínum við tófurnar.
Hann bar mikla virðingu fyrir klók-
indum þeirra og hörku. Á sínum
yngri árum stundaði hann sjósókn og
var í útgerð. Sjórinn var honum hug-
leikinn og hann fylgdist alla tíð vel
með öllu sem honum viðkom,
kannski sérstaklega af því að synir
hans þrír lögðu allir stund á sjó-
mennsku. Annar veiðiskapur eins og
fuglaskytterí og silungsveiði var líka
í hávegum hafður, enda var stans-
laust verið að skipuleggja veiðitúra
upp á Skagaheiði. Sem unglingur
varð ég þess aðnjótandi á hverju
sumri að búa á heimili Jobba. Þar
hafði ég ómælda gleði af því að hrær-
ast í heimi veiðitúra og veiðisagna.
Annað sem veitti mér ekki minni
gleði var spilamennskan. Jobbi var
slyngur spilamaður og skemmti sér
vel við spilaborðið. Hann hafði á orði
að „pikket“ væri mesta tveggja
manna spil sem fundið hefði verið
upp. Við spiluðum það mikið og
stundum einnig Kanasta.
Kæri Jobbi, ég vil þakka fyrir að
hafa fengið að kynnast þér, og mín
kæra Bibba, ég vil votta þér mína
dýpstu samúð.
Aðalsteinn Jörgensen.
JÓSEF
STEFÁNSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
!
"
%
6
5
6
%/&5
4.$.0%0
# 0&$.
!-
#$%&'
#
+ (
3
.
,**
5
7 -,
&$*+ 4*
* *
*
$
* *
@
1 -,
,*
5
))$
G
))$
$ $
' -,
.
+*+4*5
A
) 7
$) $
7
%
86
@B
6
&1.> 0)**
/ ,)5
6**
*
.* -,
0
.*
1 *
&*0
1 *
.*$0
# '*
1 -,
4.*&-0
0 *
&$*0.
5
= H -,
-0
0 * 600
,**$ -,
/%
0 * 4%
,* -,
# *
&$*+ 4*
,**$
/+$.
.
% 4 /-05
/
) 7
$)$
7
3
6
%/&$*-
+,*-
.
$**
$/
.%5
<
1
-,
3&- -,
3,
,* * 0-
.$ -,
3&-0
,* * 4%
0)0*- -,
'0
,* * 4.
0 *
*-,
#+ *
,* -, -0
0** *
+*+4*
.
+*+*+4*5
A
)
7
$)$
7
6
5
B9B
6
)')$
@% $
CI
%*%5
=
-, * 0 *
5
*-,
-0
# '*
-, -, */
6$
,*
*
-, * @ -0
.* -,
#
-, * &'
-,
-,
-, * .*$0
' -,
@ .$0
-, -, (
3 $* *
.
+*+4*5
A
) 7
$)$
7
" %
1
=6 96
B6
B *
'
&*+ 4* -, 0**
3,
0** *
--*H
0** -,
.$
.0 *
&*+ 4*
.0 *
3,-'
3$% -,
0**
3 $* *5