Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 60

Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 60
UMRÆÐAN 60 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LJÓST er að íslenskt atvinnulíf hefur mikla þörf fyrir vel menntaða einstaklinga. Íslenskir námsmenn hafa í sí- auknum mæli sótt menntun sína til út- landa. Lánasjóður ís- lenskra námsmanna (LÍN) veitir náms- mönnum erlendis lán vegna skólagjalda til framhaldsháskólanáms. Lán þetta er veitt í ís- lenskum krónum og er nú að hámarki 2.800 þúsund krónur. Náms- menn sem farið hafa til útlanda á síðustu miss- erum hafa ekki farið varhluta af gríð- arlegri lækkun íslensku krónunnar og er nú svo komið að fjölmargir náms- menn hafa orðið fyrir miklum skakka- föllum vegna þessa. Til að gefa raun- hæft yfirlit yfir þá skerðingu sem námsmenn erlendis hafa þurft að taka á sig í kjölfar gengisfalls krón- unnar má setja upp eftirfarandi töflu: Á árunum 1998–1999 var lán vegna skólagjalda veitt í dollurum og var þá að upphæð 33.000 USD. Á árunum 1999–2000 var hins vegar tekið upp á því að fastsetja upphæðina í íslensk- um krónum og var í fyrstu miðað við 2.600 þúsund krónur. Sú upphæð hef- ur árlega verið hækkuð um eitthundr- að þúsund krónur en, eins og sést á yfirlitinu, hefur sú hækkun ekki náð að vega upp á móti því mikla geng- isfalli sem orðið hefur á íslensku krón- unni. Nú er svo komið að upphæðin sem lánað er til hefur rýrnað um fjórðung. Til viðbótar þessu hefur regla sem LÍN hefur stuðst við þegar uppsöfnun skólagjalda er reiknuð út komið illa niður á námsmönnum, því uppsöfnunin á sér stað í erlendri mynt. Þegar uppsöfnun frá árinu áð- ur er reiknuð út hefur gengisfall krónunar því haft þau áhrif að upp- hæðin, sem námsmaðurinn hefur talið sig eiga inni hjá sjóðnum, hefur rýrn- að um sem svarar gengisfalli krón- unnar. Samband íslenskra námsmanna er- lendis (SÍNE) vakti fyrst athygli á málinu sumarið 2001 og leitaði til menntamálaráðherra sem tók erindi SÍNE mjög vel. Ritaði hann í fram- haldi af því stjórn LÍN bréf þar sem þeim tilmælum var beint til stjórnar- innar að hún tæki málið til umfjöll- unar og athugaði hvort milda mætti afleiðingar gjaldmiðilsbreytinga á há- mark lána til skólagjalda. Í því bréfi tiltók ráðherra sérstaklega að höfð skyldi í huga staða þeirra námsmanna sem greiddu há skólagjöld í erlendum gjaldmiðli sl. vetur og gerðu náms- áætlanir með hliðsjón af þeim geng- isforsendum sem þá giltu. Í framhaldi þessara bréfaskrifta lagði meirihluti stjórnar LÍN fram tillögu á fundi stjórnarinnar 30. ágúst sl., sem kom að verulegu leyti til móts við óskir SÍNE þar að lútandi. Þáverandi fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN fagnaði þessari tillögu meirihluta stjórnar Lánasjóðsins. Við umræður lagði fulltrúi SÍNE fram sín sjónarmið um efni tillögunnar og var tillagan þá dregin til baka af formanni stjórnar LÍN, þar sem hann taldi að ekki hefði náðst full sátt um hana. Fulltrúa SÍNE var brugðið, en meirihluti stjórnar LÍN hefur hingað til farið sínu fram án þess að skeyta miklu um afstöðu einstakra fulltrúa náms- mannahreyfinga. Fulltrúi SÍNE lagði nú fram tillögu sem gerði ráð fyrir að farinn yrði sá millivegur að miða við að samanlögð lán til námsmanna vegna skólagjalda skyldu aldrei vera hærri en 33.000 USD eða jafngildi í annarri mynt miðað við gengi 1. júní 2001. Sú tillaga var felld með odda- atkvæði formanns stjórnar. Eftir þessa meðferð sótti SÍNE fund menntamálaráðherra sem taldi málið ekki lengur í sínum höndum og vísaði á meirihluta stjórnar LÍN. Nú- verandi fulltrúi SÍNE lagði því fram þá tillögu á næsta stjórnarfundi LÍN að samþykkt yrði sú tillaga að stjórn LÍN tæki á ný til við að móta tillögu sem ætlað væri að koma til móts við þá námsmenn sem í vanda væru staddir vegna gjaldmiðilsbreytinga. Ekki hlaut tillagan afgreiðslu á þeim fundi, heldur var henni frestað fram á næsta fund. Eftir nokkra umræðu var tillagan síðan felld á þeim fundi. Það er með engu móti réttlætan- legt að námsmenn beri áhættu af skyndilegu frjálsu falli íslensku krón- unnar. Í lögum um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna segir að námslán skuli nægja hverjum námsmanni til að standa straum af náms- og fram- færslukostnaði meðan á námi stendur að teknu tilliti til fjölskyldustærðar námsmanns. Með sinnuleysi sínu eru stjórnvöld hins vegar að koma þeim skilaboðum til námsmanna að alls ótryggt sé að námsmaður muni nokk- urn tíma geta lokið námi sínu, þrátt fyrir að úthlutunarreglur LÍN hafi við upphaf náms ekki gefið tilefni til annars. Í ljósi þess hversu litla upphæð Lánasjóður íslenskra námsmanna þarf að reiða fram til að koma í veg fyrir námslok og fjárhagserfiðleika þeirra námsmanna sem um ræðir, er það með öllu óskiljanlegt að ekki skuli hafa komið til leiðréttingar af hálfu sjóðsins. Um er að ræða útgjöld upp á 15 milljónir á árinu 2001 og annað eins á næsta ári. Þessi upphæð jafn- gildir 0,5% af heildarútlánum sjóðsins á ári hverju. Þrátt fyrir að til breyt- ingar á úthlutunarreglum LÍN þyrfti að koma til þess að leiðréttingin væri möguleg ætti það að vera hægur vandi ef vilji væri fyrir hendi. Gengisáhætta námsmanna Heiður Reynisdóttir Gengismunur Það er með engu móti réttlætanlegt, segja Guðmundur Thorlacius og Heiður Reynisdóttir, að námsmenn beri áhættu af skyndilegu frjálsu falli íslensku krónunnar. Höfundar eru fulltrúar Sambands íslenskra námsmanna erlendis. Guðmundur Thorlacius Skólagjaldalán LÍN árin 1998 - 2002 Ár Upphæð í reglum Gengi Lánsupphæð Dags.gengi 1998 - 1999 (USD) 33.000 USD 71,22 2.350.260 ISK 04.08 1998 1999 - 2000 (ISK) 2.600.000 ISK 73,06 35.587 ISK 03.08 1999 2000 - 2001 2.700.000 ISK 75,6 35.714 ISK 02.06 2000 2001 - 2002 2.800.000 ISK 103,52 27.048 ISK 01.06 2001 Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Bjórglös kr. 1.750 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Laugavegur 68, sími 551 7015. Pils og peysa KVEN- SÍÐBUXUR 3 SKÁLMALENGDIR Bláu húsin við Fákafen. Sími 553 0100. Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.