Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 65
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 65
AÐVENTU-Kópamessa verður í
Kópavogskirkju fimmtudaginn 20.
desember kl. 20.30. Þar gefst gott
tækifæri til uppbyggilegrar sam-
veru skömmu fyrir jól. Í Kópamess-
um er tónlist og sálmar léttari en í
hefðbundnum guðsþjónustum og
áhersla lögð á virka þátttöku kirkju-
gesta, bæði í söng og öðrum þáttum
helgihaldsins.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Samvera fyrir
syrgjendur
SAMVERA verður í Grensáskirkju
þriðjudaginn 18. desember kl. 20
sérstaklega ætluð þeim sem hafa
misst ástvin og vilja staldra við á að-
ventunni. Þessi tími er oft erfiður
syrgjendum en jólin eru hátíð þar
sem lögð er áhersla á gleði og sam-
veru með fjölskyldunni. Erfitt er að
halda jól í skugga sorgar.
Öll umgjörð jólanna getur minnt á
þann sem er farinn. Það er átak að
syngja jólasálmana í fyrsta skipti
eftir andlát ástvinar þar sem þess-
um tíma tengjast margar minn-
ingar. Í sorginni viljum við benda á
boðskap jóla og aðventu um komu
guðs til okkar og ljósið sem skín í
myrkrinu. Fyrir marga er þetta í
fyrsta skiptið sem farið er í kirkju
eftir jarðarför ástvinar. Það eitt get-
ur verið átak en jafnframt mikil-
vægt skref til að vinna úr sorginni.
Á samverunni syngjum við saman
sálma og jólalög; tvísöng syngja Vil-
borg Sverrisdóttir og Anna Sigríður
Magnúsdóttir, hugvekju flytur sr.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. Þá
verða fluttir ritningarlestrar og
jólasaga lesin.
Sérstök minningarstund er í
samverunni þar sem fólki gefst
kostur á að tendra ljós til minningar
um látinn ástvin. Ásta Haraldsdóttir
og Linda Margrét Sigfúsdóttir flytja
á meðan tónlist á píanó og flautu.
Dagskráin er skipulögð þannig að
hún höfði til allrar fjölskyldunnar.
Börn eru sérstaklega velkomin.
Samveran er öllum opin og allir
velkominr sem finna hjá sér þörf til
að koma. Starfsfólk frá Heima-
hlynningu, Karitas og ýmsum deild-
um Landspítala verða í Grens-
áskirkju.
Eftir samveruna er boðið upp á
veitingar og fólki gefst kostur á að
ræða saman.
Aðventuhelgistund
með Þorvaldi í
Gerðubergi
FELLA- og Hólakirkja í samstarfi
við Félagsmiðstöðina í Gerðubergi
stendur fyrir aðventuhelgistund í
Gerðubergi fimmtudaginn 20. des-
ember nk. kl. 14 (ath. breyttan
tíma). Samstarf Félgsmiðstöðv-
arinnar og kirkjunnar hefur varað
um árabil og á hverjum fimmtudegi
árið um kring er helgistund, bibl-
íulestur og samvera í Gerðubergi kl.
10.30. Djákni og prestar kirkjunnar
hafa séð um stundirnar en starfsfólk
Félagsmiðstöðvarinnar hafa séð um
að gera umhverfið aðlaðandi og
passa upp á að önnur starfsemi sé
ekki í gangi á helgistundartímanum.
Sr. Hreinn Hjartarson og Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni, sjá um
þjónustuna. Sr. Míakó Þórðarson
túlkar á táknmáli.
Hinn landsþekkti Þorvaldur Hall-
dórsson flytur veraldlega og and-
lega tónlist og verður með frásögn
af eigin reynslu.
Eftir stundina verða hátíðarveit-
ingar í Veitingabúð sem er í Fé-
lagsmiðstöðinni Gerðubergi. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni.
Kópamessa
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga
um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30.
Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og
fyrirbænastund kl. 12 í kirkjunni. Umsjón
Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur hádegisverður
að stundinni lokinni. Samvera foreldra
ungra barna kl. 14–16 í neðri safnaðarsal.
12 spora starf kl. 19 í kirkjunni.
Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl.
17.
Dómkirkjan. Imbrudagar á vetri miðviku-
dag kl. 8 árdegis og föstudag kl. 8 árdegis.
Messa, altarisganga, bæn fyrir friði. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili eftir stundina. Aðventu-
stund syrgjenda kl. 20.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í
dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17.
Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr
1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sig-
rúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin
og alltaf hægt að bætast í hópinn. Ung-
lingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt
starf fyrir unglinga í umsjón Gunnfríðar og
Jóhönnu.
Laugarneskirkja. TTT-krakkar mæta kl. 16
til æfinga fyrir helgileik á aðfangadag.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 20.30. Lof-
gjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórs-
son leiðir söng og lofgjörð við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Sóknarprestur flyt-
ur guðs orð og bæn.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara, kl.
16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir fé-
lagar velkomnir. Foreldramorgunn miðviku-
dag kl. 10–12. Jólagleði. Umsjón Elínborg
Lárusdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag, þriðjudag, kl. 12 í kapellu safn-
aðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkj-
unnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til
þátttöku.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum hans.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil
og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað
gott með kaffinu.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstundir kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjall-
að. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt
kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í Kirkju-
hvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK.
Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æskulýðs-
starf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu
104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 18. Opið hús kl. 17–18.30 fyrir 7–9
ára. Kl. 20–22 æskulýðsfélag yngri félaga.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12.
Keflavíkurkirkja. Bjarmi, samtök um sorg
og sorgarferli á Suðurnesjum, boðar til
fundar í Kirkjulundi kl. 20. Bragi Skúlason,
sjúkrahúsprestur, flytur erindi sem hann
nefnir: Eftirvænting og kvíði á aðventu.
Borgarneskirkja. TTT, tíu til tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í
Hrakhólum í kvöld kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Félag eldri borgara í Kópavogi
Það mættu 23 pör til leiks þriðju-
daginn 11. desember og urðu eftir-
talin pör efst í N/S:
Hannes Ingibergss. – Magnús Halldórss.254
Einar Einarsson – Hörður Davíðsson 47
Ólafur Ingimundars. – Jón Pálmason 46
Hæsta skor í A/V:
Hreinn Hjartarson – Ragnar Björnss. 261
Guðm. Þórðarson – Magnús Þorsteinss. 243
Einar Markússon – Steinþór Árnason 236
Sl. föstudag mættu svo 18 pör og
þá urðu úrslit þessi:
Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 251
Páll Hannesson – Kári Sigurjónss. 242
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 240
Hæsta skor í A/V:
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 64
Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnss. 256
Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 235
Síðasta spilakvöld ársins er í dag,
þriðjudag. Afhent verða verðlaun og
boðið upp á kaffi. Spilamennskan
hefst á nýja árinu 8. janúar.
Gleðileg jól.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ
9 pör mættu til leiks 13. des. Spil-
aður var Mitchell 15 spil.
Lokastaðan:
N-S riðill:
Ellert Björnsson – Steingrímur Jónsson 70
Björg Þórarinsdóttir – Edda Svavarsd. 67
Lilja Kristjánsd. – Hlynur Vigfússon 60
A-V riðill:
Anna Dýrfjörð – Ólafur Þórfinsen 76
Þórir Jóhannsson – Eiríkur Eiðsson 74
Ragnheiður Bragad. – Ásta Ástþórsd. 62
Efsta par í hvorum riðli fékk
gjafakort í Bridsbúð BSÍ.
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
TILKYNNINGAR
Holtsgötu 7, 101 Reykjavík, auglýsir pláss
laus til umsóknar í yngri barna deild sem
verður opnuð 7. janúar 2002. Innritun í
Listakoti og í s. 551 3836 þriðjud. 18/12 frá
kl. 10 til 17 og miðvikud. 19/12 frá kl. 10 til
17. Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Útskrift haustannar 2001
verður í Fella- og Hólakirkju, Hólabergi 88,
föstudaginn 21. desember kl. 14.00.
Allir nemendur dag- og kvöldskóla, er lokið
hafa eftirtöldum prófum, eiga að koma þá og
taka á móti prófskírteinum.
Um er að ræða nemendur er lokið hafa:
● Stúdentsprófi
● Sjúkraliðaprófi
● Verslunarprófi
● Snyrtifræði
● Húsasmíði
● Rafvirkjun
Eldri útskriftarárgangar, foreldrar, aðrir ættingj-
ar, svo og velunnarar skólans, eru velkomnir
á útskriftina.
Skólameistari.
Auglýsing um skipulag í Kópavogi
Aðalskipulag Kópavogs
2000—2012
Tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2000—2012
auglýsist hér með skv. 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Tillagan sem nær til lögsagnarumdæmis Kópa-
vogs er sett fram í greinargerð, þéttbýlisupp-
drætti í mælikvarða 1:10.000, sveitarfélagsupp-
drætti í mælikvarða 1:50.000 auk skýringarupp-
drátta í mælikvarða 1:10.000 þar sem fjallað
er um samgöngur, opin svæði og breytingar
frá núgildandi aðalskipulagi.
Tillagan verður til sýnis á Bæjarskipulagi Kópa-
vogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 8:30 til 16:00
alla virka daga frá 19. desember 2001 til 24.
janúar 2002. Skriflegar athugasemdir og
ábendingar skulu hafa borist Bæjarskipulagi
eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 7. febrúar
2002.
Tillagan verður jafnframt til sýnis í Smáralind.
Hægt verður að nálgast texta greinargerðar
aðalskipulagsins á heimasíðu Kópavogs,
www.kopavogur.is, frá og með 19. desember
2001.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Vakin er sérstök athygli á því að auglýsing
þessi birtist í Morgunblaðinu sunnudaginn
16. desember sl., en er nú endurbirt vegna
villu í dagsetningu. Villan varðaði lengd
á kynningartíma ofangreindrar tillögu.
Kynningartímanum lýkur 24. janúar 2002
en ekki 24. febrúar eins og þá var sagt.
Athugasemdafrestur er sem fyrr kl. 15.00
hinn 7. febrúar 2002.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
101 Reykjavík
Íbúð til leigu — þrír mánuðir
Glæsileg 117 fm íbúð til leigu í þrjá mánuði
frá u.þ.b. 15. janúar til 15. apríl. Fallegt útsýni,
næg bílastæði, stutt í miðbæinn.
Leigist fyrirtæki/einstaklingi á kr. 90 þúsund
á mánuði. Reyklausir eingöngu.
Áhugasamir hringi í síma 864 5866 eða 552 5143.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
ÝMISLEGT
Jól í Metró
Jólagjafir fyrir:
✭ Handlagna
Verkfæratöskur, skrúfjárna-, sporjárna- og út-
skurðarsett.
✭ Potteigandann
Ryksugur sem ekki þurfa rafhlöður, fljótandi
glasabakkar.
✭ Jólabörnin
Jólaskraut í miklu úrvali, seríur úti og inni, greni-
greinar, dansandi jólasveinar og snjókarlar.
Ljósaslöngur í metratali og í settum, krossar,
stjörnur, jólatré og bjöllur.
Metró,
Skeifunni 7, s. 525 0800.
Opið alla daga til kl. 19.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
EDDA 60011211919 I Jf.
Hamar 6001121819 I Jf.
I.O.O.F.Rb.4 151121888½.Jv.
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 18212188
E.T.II, Jv.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is