Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 67
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
● ●
● ●
● !"#$
# ● #% &&
● ' (# ) ' &*+*,
Gjafapakkning
Vantar þig gjöf?
• Gefðu þá Trind
gjafapakkninguna
(3 tegundir í boði)
• Tilboðsverð
• Með Trind næst
árangur
Fæst í apótekum og snyrtivöruverslunum um allt land
Ath. naglalökk frá Trind fást í tveimur stærðum
Allar leiðbeiningar á íslensku
Fást í apótekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt.
Me
ð
næ
rðu
ára
ngr
i
Með því að nota TRIND naglanæringuna færðu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
handáburðurinn
með Duo-liposomes.
Ný tækni í framleiðslu
húðsnyrtivara, fallegri,
teygjanlegri, þéttari húð.
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA
=
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317 - www.trind.com
Frábærar vörur á frábæru verði.
Gerið verðsamanburð.
Nýjung
Ný
ju
ng
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á
með spaða frá
Nýjar handsnyrtivörur frá
Ekki síður fyrir táneglur.
er í forystu við framleislu á
handsnyrtivörum. Íslenskar leiðbeiningar.
Nýtt
Nail Balsam (naglanæring)
Nærir og styrki neglurnar,
viðheldur og eykur rakann á milli
naglalaganna.
Cuticle Balsam (naglabandanæring)
Nærir og græðir.
Nýtt
Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er
samanstendur af litakremi og geli sem
blandast saman, allt í einum pakka.
Mjög auðveldur í notkun. Fæst í
þremur litum og gefur frábæran
árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
Þýskar förðunarvörur
GUÐBJÖRG Guðmundsdóttir var
valin heimaþjónustustarfsmaður
ársins 2001 hjá Félagsþjónustunni
í Reykjavík fimmtudaginn 13. des-
ember sl. Er það í fyrsta skipti í
sögu Félagsþjónustunnar sem
þessi viðurkenning er veitt, sam-
kvæmt því sem fram kemur í
fréttatilkynningu frá Félagsþjón-
ustunni.
Guðbjörg starfar hjá Félags-
þjónustunni í Hraunbæ 103, félags-
og þjónustumiðstöð. Hefur hún
starfað óslitið við heimaþjónustu í
22 ár. „Guðbjörg er framúrskar-
andi starfsmaður sem vinnur sitt
starf af samviskusemi og prúð-
mennsku. Hún hefur hlotið virð-
ingu frá notendum heimaþjónust-
unnar, ekki síst vegna þess hversu
samskipti hennar eru byggð á
mannkærleika, umhyggju og hlýju.
Hlaut Guðbjörg 100 þúsund
króna peningaverðlaun. Fimmtán
starfsmenn utan Guðbjargar voru
tilnefndir til verðlaunanna. Það
voru: Sólveig Jónsdóttir, Guðrún
Jóhannsdóttir, Guðný Maríus-
dóttir, Guðveig Sigfúsdóttir, Arn-
dís Ögn Guðmundsdóttir, Lilja
Ingjaldsdóttir, Elsa Olsen, Helga
Þórey Jónasdóttir, Stella Jóhanns-
dóttir, Erla Helgadóttir, Guðbjörg
Halldórsdóttir, Hólmfríður Hólm-
grímsdóttir, Elsa Jónsdóttir, Ragn-
heiður Gestsdóttir og Jóhanna
Thorarensen. Í þeirra hönd komu
leikhúsmiðar auk þess sem allir
fengu rós,“ segir í frétt frá Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkur.
Guðbjörg Guðmundsdóttir og Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri.
Heimaþjónustu-
starfsmaður ársins
Rangt nafn
Í blaðinu á laugardag, í frétt á
landsíðu, var farið rangt með nafn
Önnu S. Björnsdóttur í fyrirsögn.
Beðist er velvirðingar á því.
LEIÐRÉTT
HEILSUSTOFNUN NLFÍ í
Hveragerði býður upp á vikudvöl
með námskeiði gegn reykingum og
hafa mörg slík námskeið verið haldin
þar á liðnum árum. Sýnt hefur verið
fram á að hreyfing, fræðsla, umræð-
ur, slökun og útivist hjálpa mikið.
Næsta námskeið verður haldið dag-
ana 6. til 13. janúar, segir í frétt frá
Heilsustofnun NLFÍ.
Námskeið gegn
reykingum
UM helgina voru 11
ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur, sex
fyrir akstur gegn
rauðu ljósi og 13 um að
hafa ekki virt stöðvunarskyldu.
Umferð var mikil á föstudag en
gekk að mestu vel fyrir sig. Nokkr-
um var bent á að nota lögleg stæði og
að nota handfrjálsan búnað fyrir far-
síma við aksturinn.
Á laugardag var mjög mikil um-
ferð og gekk hægt, veður var gott og
mikið fjölmenni bæði á Laugavegi og
í Kringlunni.
Aðfaranótt sunnudags var ekið á
hest á Þingvallavegi skammt frá
Seljabrekku. Hesturinn drapst og
bifreiðin var fjarlægð af vettvangi
með dráttarbifreið.
Síðdegis á föstudag var tilkynnt
um þjófnað á verðmætri fartölvu úr
fyrirtæki í Múlahverfi. Þá var til-
kynnt um þjófnað úr verslun í Aust-
urbænum. Þar var einnig stolið dýrri
fartölvu.
Ölvaður og blóðugur
á gangbraut
Á föstudagskvöld var tilkynnt um
að ekið hefði verið á mann á gatna-
mótum Miklubrautar og Reykjahlíð-
ar. Þarna var komið að liggjandi
manni á gangbraut á vinstri akrein
Miklubrautar til vesturs. Hann var
ölvaður og blóðugur og vissi ekki
hvað hafði gerst. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild þar
sem í ljós kom að maðurinn var ein-
ungis með skrámur og ekkert benti
til umferðarslyss.
Ölvun var í meðallagi í miðborg-
inni aðfaranótt laugardags, ástand
þokkalegt og unglingar undir 16 ára
ekki áberandi. Fjórir voru handtekn-
ir vegna ýmissa mála sem gerðust
utandyra og færðir í fangamóttöku.
Ein líkamsárás var á Ingólfstorgi
og manni ekið á slysadeild en árás-
armaður fannst ekki. Einn var tekin
fyrir ölvun við akstur og tvær bif-
reiðar kyrrsettar þar sem ökumenn
voru undir mörkum. Um kl. 5 um
morguninn voru nálægt 50–100
manns í miðborginni.
Deilur um laun
Mikill erill var hjá lögreglu þessa
nótt vegna ölvaðra manna víða um
borgina bæði utan dyra og innan.
Sem dæmi um þetta er að starfsmað-
ur veitingahúss í miðborginni
hringdi og bað um aðstoð vegna
slagsmála. Þegar lögreglan kom á
vettvang kom í ljós að þarna voru
starfsmenn að deila vegna launa-
mála. Komið var á sáttum í bili.
Á laugardag var tilkynnt um inn-
brot í sumarhús við Hafravatn. Þar
hafði m.a. verið stolið verðmætum
málverkum.
Aðfaranótt sunnudags var mikil
ölvun í miðborginni en ástandið að
öðru leyti þokkalegt og unglingar
undir 16 ára aldri ekki áberandi.
Fimm voru handteknir og fluttir í
fangamóttöku. Tveir voru handtekn-
ir vegna líkamsmeiðinga, fjórir
vegna ölvunar og einn vegna
óspekta. Lögreglan flutti þrjá á
slysadeild.
Nokkur erill var vegna ölvunar á
öðrum stöðum en þó minni en nóttina
áður.
Þá var tilkynnt um innbrot í
geymslu í Breiðholti. Þar var stolið
fjórum hjólbörðum og álfelgum.
Féll fram af svölum
Klukkan 1.45 var tilkynnt um há-
vaða á stigagangi í húsi í Yrsufelli.
Er lögregla kom á vettvang hafði
maður fallið fram af svölum á 2. hæð,
um 4–5m fall. Var hann fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild með tals-
verða áverka á höfði. Málið er í rann-
sókn og ekki ljóst hvernig þetta
gerðist.
Nokkru síðar var tilkynnt um mik-
inn reyk úr porti við Laugaveg.
Þarna hafði verið kveikt í ruslatunn-
um í portinu. Starfsmenn veitinga-
hússins Kaffis Listar voru búnir að
slökkva er lögreglan kom á vettvang.
Engar skemmdir urðu nema á tunn-
unum.
Þá var tilkynnt um innbrot og
þjófnað úr bifreið í Foldahverfi. Stol-
ið var geisladiskum, seðlaveski með
reiðufé og greiðslukorti. Búið var að
taka peninga út á kortið.
Nokkur innbrot voru í bifreiðar
um helgina. Aðallega var stolið
geisladiskum.
Aðfaranótt mánudags var tilkynnt
um innbrot í fyrirtæki í Höfðahverfi.
Þar var stolið einhverju af tækjum.
Dagbók lögreglunnar/14.–17. desember
Sáttum komið á í launadeilu – í bili
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að ákeyrslum á kyrrstæðar
bifreiðir nýlega þar sem tjónvaldar
yfirgáfu vettvang án þess að til-
kynna tjón sem þeir ollu.
14. desember á milli kl. 19.10 og 23
var ekið á vinstra afturhorn bifreið-
arinnar SL-308, sem er grá Subaru
fólksbifreið, sem lagt var á bifreiða-
stæði við Íslandsbanka í Lækjar-
götu.
16. desember, á milli kl. 14 og 15,
var ekið á vinstra frambretti bifreið-
arinnar ZZ-950, sem er grá VW Golf-
fólksbifreið, sem lagt var á horni
Grettisgötu og Klapparstígs.
Tjónvaldar og/eða vitni eru beðin
um að hafa samband við umferðar-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum
STARFSMANNAFÉLAG ríkis-
stofnana og Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar halda sameigin-
legt jólaball fyrir félagsmenn á Hótel
Sögu, Súlnasal laugardaginn 29. des-
ember kl. 13–15. Hljómsveit hússins
mun spila fyrir dansi, jólasveinar
koma í heimsókn og boðið verður
upp á veitingar. Miðasala verður á
skrifstofum félaganna frá 19. desem-
ber Grettisgötu 89, 3. hæð. Miðaverð
er 400 kr. fyrir bæði börn og full-
orðna, segir í fréttatilkynningu.
Sameiginlegt
jólaball
FASTEIGNIR mbl.is