Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 70
DAGBÓK
70 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes, Helgafell,
Guðrún Gísladóttir og
Dettifoss koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Andvari og Karilia
koma í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2001.
Númer þriðjudagsins
18. des. er 19285.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðju- og
fimmtudaga kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl . 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl. 10 enska, kl.
10.15 Búnaðarbankinn,
Lance fyrir byrjendur
kl. 11, danskennari Sig-
valdi, kl. 11 enska, kl.
13 bað, vinnustofa,
postulínsmálning.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. All-
ar upplýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna,
kl. 10–17 fótaaðgerð, kl.
10 sund, kl. 13 leirlist,
kl. 14. dans.
Eldri borgarar, Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Munið hátíð-
arstundina að Hlað-
hömrum kl. 14 þriðjud.
18. des., sr. Jón Þor-
steinsson fer með jóla-
hugvekju, kór eldri
borgara, Vorboðarnir,
syngur. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum á fimmtudög-
um kl. 17–19. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014
kl. 13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566 8060 kl.
8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl 14.45 söng-
stund í borðsal með
Jónu Bjarnadóttur.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Á fimmtudag verður
glerútskurður kl. 13.
Áramótadansleikurinn
verður laugardaginn 29.
des. kl. 20.30.
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Happdrætti.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga kl. 10–
13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Þriðju-
dagur: Skák kl. 13, al-
kort fellur niður. Mið-
vikudagur:
Göngu-Hrólfar eru
komnir í jólafrí, ganga
næst 9. janúar frá
Hlemmi kl. 9.45. Söng-
félag FEB, kóræfing kl.
17. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19.15. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum kl.
10–12. Skrifstofan er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði í
Glæsibæ. Uppl. á skrif-
stofu FEB kl. 10–16, s.
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Garðabær. Opið hús í
Kirkjuhvoli í dag kl.
13–16. Spilað og spjall-
að.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–17.30 vinnustofur
opnar, kl. 13. boccia, kl.
13.30 koma Auður Jóns-
dóttir og Einar Már
Guðmundsson og lesa
upp úr nýútkomnum
bókum sínum. Jóla-
stemmning í öllu hús-
inu. Veitingar í veit-
ingabúð Gerðubergs.
Miðvikudaginn 19. des.
kemur Hjördís Geirs-
dóttir í heimsókn kl. 13,
ásamt gömlum og góð-
um félögum, m.a.
„Siffa“, og kynnir og
áritar nýjan geisladisk.
Allir velkomnir.
Fimmtudaginn 20. des.
jólahelgistund kl. 14,
m.a. kemur Þorvaldur
Halldórsson með tón-
listarflutning, söng. Sr.
Miyako Þórðarson túlk-
ar á táknmáli. Umsjón
sr. Hreinn Hjartarsson
og Lilja G. Hallgríms-
dóttir djákni. Á eftir
eru hátíðarveitingar í
veitingabúð. Allir vel-
komnir. Upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
9.05 og 9.50 leikfimi, kl.
9.30 glerlist, kl. 14 fer
þriðjudagsganga frá
Gjábakka, kl. 14 boccia,
kl. 16.20 og kl. 17.15
kínversk leikfimi.
Skötuveisla verður
föstudaginn 21. des. kl.
11.40, vinsamlega pant-
ið í tíma.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga kl. 9.05,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, spænska.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
bænastund. Fótsnyrt-
ing, handsnyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskuður og trémálun,
kl. 10 boccia, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–17 hárgreiðsla,
kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, fyrirbæna-
stund kl. 11, súpa í
Setrinu kl. 12, spil kl.
13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi. kl. 13 spila-
mennska. Fyrirbæna-
stund verður fimmtu-
daginn 20. des. kl. 10.30
í umsjón séra Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests, allir vel-
komnir. Aðventuferð 20.
desember kl. 13. Borg-
arljósin skoðuð, meðal
annars ekið um Graf-
arvog. Heimsókn í Jóla-
húsið á Smiðjuveginum.
Kaffiveitingar í Perl-
unni. Leiðsögumaður
Helga Jörgensen. Allir
velkomnir, takmarkaður
sætafjöldi. Nýtt nám-
skeið í leirmótun hefst
eftir áramót. Leiðbein-
andi Hafdís Benedikts-
dóttir. Kennt verður á
fimmtudögum frá kl.
17–20. Ath. Takmark-
aður fjöldi, skráning í s.
562 7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð, kl.
14 félagsvist.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, kl. 15,
verður farið frá kirkj-
unni með rútu í jóla-
ljósaferð um borgina,
súkkulaði og fleira á
Litlu-Brekku. Upplýs-
ingar veitir Dagbjört í
síma 510 1034.
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum alls
konar notuð frímerki,
innlend og útlend, ný
og gömul, klippt af með
spássíu í kring eða um-
slagið í heilu lagi (best
þannig). Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM&K, Holtavegi
28, Rvík, og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1,
Akureyri.
Í dag er þriðjudagur 18. desember,
352. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Berið sama hug til allra, hreykið
yður ekki, en haldið yður að
hinum lítilmótlegu. Ætlið yður
ekki hyggna með sjálfum yður.
(Rómv. 12, 17.)
LÁRÉTT:
1 dyr, 8 endurgjald, 9
svara, 10 óhljóð, 11
ástundunarsamur, 13
gremjast, 15 danskrar
eyju, 18 dræsa, 21 auð, 22
óreglu, 23 skattur, 24
óvandvirka.
LÓÐRÉTT:
2 sparsemi, 3 húðin, 4
snaga, 5 önuglyndi, 6
mestur hluti, 7 biða, 12
eyktamark, 14 svifdýrs,
15 sjávardýr, 16 árnar, 17
klunnaleg, 18 jurt, 19
gróðabrall, 20 einkenni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hrafn, 4 bogin, 7 fælin, 8 lalli, 9 dul, 11 rétt, 13
anda, 14 ísnál, 15 fork, 17 týnd, 20 smá, 22 kolan, 23
laufi, 24 norpa, 25 trana.
Lóðrétt: 1 hæfir, 2 atlot, 3 nánd, 4 ball, 5 golan, 6 neita,
10 unnum, 12 tík, 13 alt, 15 fíkin, 16 rílar, 18 ýsuna, 19
deiga, 20 snúa, 21 álft.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
HÓTEL Keflavík hefur bryddaðupp á skemmtilegri nýjung nú
fyrir jólin. Þar er boðin ókeypis gist-
ing gegn því að gestir frá öðrum
byggðarlögum verzli eða kaupi þjón-
ustu í Reykjanesbæ að andvirði
10.800 krónur. Fyrir það fæst frí
gisting eina nótt og svo fleiri nætur
sé verzlað fyrir aðrar 10.800 krónur
og svo framvegis. Það eru margar
góðar verzlanir í Reykjanesbæ og að
mati Víkverja ekki síðri kostur að
kaupa jólagjafirnar þar en á höfuð-
borgarsvæðinu. Eftir því sem Vík-
verji kemst næst er þetta einkafram-
tak hótelstjórans og er það lofsvert
og vel gert vegna þess að aukin
verzlun færist inn í bæinn og skilar
því auknum tekjum bæði til verzlana
og veitingahúsa og bæjarfélagsins
sjálfs.
x x x
VÍKVERJI hefur gaman af göml-um bókum og á fáeinar slíkar.
Ein þeirra heitir hvorki meira né
minna en Bónorðsbréf, ástabréf og
ýmis önnur bréf o. fl., frumsamið og
þýtt hefur Kolbeinn Ungi. Til gam-
ans kemur hér eitt bréfið, en það er
til stúlku sem sýndi manni ástleitni,
en virtist hvarflandi, þegar minnst
varði, fyrir áhrif annarra, sem laum-
uðust inn í ástamál hennar.
„Heilar og sælar.
Ég veit að þér kannist við mig, þó
að við höfum ekki kynst öðru vísi en
á landi draumanna. Ég veitti yður
fyrst eftirtekt, þegar þér genguð á
leið til mín þar sem ég stóð einn á
sléttunum norðan við tjöldin, ný-
genginn úr orustu við heiminn. Augu
yðar glömpuðu og mér virtist andlit
yðar þrungið af hluttekning. Ég var í
hörðu skapi og gat því ekki áttað mig
á því sama augnabliki, sem ég gætti
að yður, og því var tillit mitt til yðar
eins og það var. Þetta augnabliks-
tillit yðar greypti sig svo fast í sálu
mína, að það er þar enn að öllu leyti
eins og það kom frá yður.
Heilsan yðar til mín, þegar þér
sáuð mig í fyrsta sinni eftir rúmt
misseri, er annar aðalþátturinn í
draumalífi okkar. Svo man ég ósköp
vel eftir því, þegar við urðum sam-
ferða úr samsætinu og mörgum öðr-
um smáatvikum, frá því fyrsta til
þess síðasta, sem ég álít best að orða
ekki undir þeim kringumstæðum,
sem nú gilda.
Ég var farinn að fljúga með yður
hærra skýjum himinsins og mat yður
öðrum skýjadísum meiri. Einn af
þeim helstu kostum, sem ég ímynd-
aði mér að þér hefðuð til yðar ágætis,
var sá að þér væruð sjálfstæðar og
leyfðuð engum fjærskyldari yður en
foreldrum þínum og systkinum að
fjalla með yður um slík málefni, sem
hér er um að ræða.
Sé nú draumsjónalíf yðar, sem
þetta snertir, að mestu eða öllu leyti
gengið til grafar, eins og mér virtist
seinast, þegar við sáumst, þá kveð ég
yður með vinsemd og óskum bestu
og þakka yður fyrir það liðna,
Mér er ekki kunnugt tilfinningalíf
yðar, en jafnframt því, sem ég tel
víst, að það sé mannlegt, þá get ég
vel skilið, að einhverntíma kunni
hugur yðar að hvarfla yfir þau spor,
sem þér hafið stigið gagnvart mér í
þessu, og gefa yður andvökuefni. En
hafi mér skjátlast í reikningnum,
þegar ég fann yður síðast, þá verðið
þér ekki ráðalausar að koma til mín
línum, og þá tek ég hugglaður í hönd
hamingjunnar.
Lifið þér nú heilar og gleðjið yður
við lífið.
Hugur. “
Ætli menn skrifi enn svona bréf?
Er blaðinu dreift –
eða ekki?
ÉG vil spyrjast fyrir um
hvort ekkert sé athugað
hvort Fréttblaðinu sé
dreift eða ekki. Ég bý í
vesturbæ Kópavogs og hér
hefur Fréttablaðið verið
ekki verið borið út svo vik-
um skiptir og virðist ekki
vera dreift hér í vestur-
bænum, a.m.k. ekki að
hluta. Var ég að velta því
fyrir mér hvort auglýsend-
ur í blaðinu gerðu sér grein
fyrir að blaðið er ekki borið
út alls staðar eins og aug-
lýst er.
Persónulega er mér al-
veg sama þótt ég fái ekki
blaðið en var að velta þessu
fyrir mér.
Ein forvitin.
Góð dagskrá
MIG langar að mótmæla
því sem skrifað var í Vel-
vakanda nýlega um lélega
dagskrá sjónvarpsins.
Mér finnst dagskráin
hafa batnað mikið á síðustu
árum og kann vel að meta
gamla góða „Frasier“.
Margrét.
Sendi kveðjur
DAGANA 8.–15. ágúst sl.
fór ég í ferð um landið með
Félagi eldri borgara í
Reykjavík. Vil ég senda
öllum í hópnum, 25 dömum
og 15 körlum, mínar bestu
kveðjur.
María Albertsdóttir.
Tapað/fundið
Gulir hanskar
í óskilum
KONAN sem var svo
elskulega að hjálpa annarri
konu að ýta bíl á Hávalla-
götu gleymdi þykkum, gul-
um leðurhönskum. Upplýs-
ingar í síma 691 8534.
Taska með geisla-
diskum í óskilum
LEÐURTASKA með
geisladiskum fannst við
Langholtsveg. Upplýsing-
ar í síma 581-2082.
Hringur í óskilum
í Árbæjarsafni
HRINGUR fannst við
Kornhúsið á Árbæjarsafni
nýverið. Eigandi vinsam-
lega gefi sig fram á skrif-
stofu safnsins. Sími
577 1111.
Plastpoki með fötum
í óskilum
Á GÖTUNNI fyrir framan
verslunina Skerjaver í Ein-
arsnesi fannst plastpoki
með fötum í seinni partinn
í nóvember. Í honum eru
bæði karlmanns- og kven-
mannsföt. Eigandinn getur
vitjað þeirra í Skerjaveri.
Slönguhringur
týndist
UM síðustu helgi glataðist
svokallaður slönguhringur
í Reykjavík. Gullhringur
með rauðum rúbín. Um er
að ræða ættargrip sem
hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eigandann.
Fundarlaun í boði. Finn-
andi vinsamlegast hafi
samband við Helgu í síma
551 2983 eða 692 9656.
Svala er týnd
SVALA týndist 11. desem-
ber sl. frá Rauðalæk 5.
Svala er rúmlega 1½ árs
grábröndótt læða með
rauða ól og stórar bjöllur.
Við viljum biðja fólk í
hverfinu að vera svo vænt
að athuga bílskúra og
ruslageymslur hjá sér.
Svölu er sárt saknað.
Fundarlaun. Sími 588 1590
og GSM 694 2334.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
GRÉTA Hauksdóttir spyr
hvort fyrsti jólasveinninn
komi ekki aðfaranótt 13.
des. Þessi misskilningur
skýtur upp kolli fyrir
hver jól og stafar af of-
túlkun á vísu Jóhannesar
úr Kötlum:
Þrettándi var Kerta-
sníkir / þá var tíðin köld /
ef ekki kom hann síðastur
/ á aðfangadagskvöld.
Jóhannes orti vísur sín-
ar eftir frásögn í þjóðsög-
um Jóns Árnasonar þar
sem segir að fyrsti jóla-
sveinninn komi 13 dögum
fyrir jól. Það merkir að
hann getur komið ein-
hverntíma frá miðnætti
hinn 12. desember og
jafnvel ekki fyrr en undir
kvöld. Vísu Jóhannesar
er einfaldast að skilja svo
að þá megi vera mjög
hart veður ef Kertasníkir
verður ekki kominn til
byggða að kvöldi að-
fangadags. Það er hins
vegar til marks um að
Strætó og Stöð 2 kunna
ekki að telja þegar þau
létu Stekkjarstaur koma
hinn 11. desember um
daginn.
Árni Björnsson.
Hvenær kemur fyrsti jólasveinninn?
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16