Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 71
DAGBÓK
DÖMU- OG HERRASLOPPAR
GLÆSILEGT ÚRVAL
Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá,
Gullsmiðja Hansínu Jens
Laugaveg 20b v/ Klapparstíg sími 551 8448
Óskum öllum
gleðilegra jóla
Jens Guðjónsson
gullsmiður
og
Hansína Jensdóttir
gullsmiður
LJÓÐABROT
ÚR ELLIKVÆÐI
Æskukostum ellin kann að sóa.
Sanna eg það á sjálfum mér,
sjötugsaldur hálfan ber,
örvasa nú orðinn er;
orkumaður hver svo fer.
Samt er eg einn í sona tölu Nóa.
Hafða eg ungur hárið frítt,
hvirfil prýddi gult og sítt.
Nú er það af hærum hvítt,
sem hittir urningsmóa.
Samt er eg einn í sona tölu Nóa.
Höfuð áður huldi þykkt,
hári er nú í burtu rykkt,
skjól er ei við skjanna tryggt,
skín sem rót í flóa.
Samt er eg einn í sona tölu Nóa.
Forðum nam eg fljótt, sem kaus,
féll mér kenning seint úr haus.
Mjög er eg nú minnislaus.
Mein það vill ei gróa.
Samt er eg einn í sona tölu Nóa.
Ólafur prestur Guðmundsson
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, þriðju-
daginn 18. desember, Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða,
Hjallavegi 15, Ísafirði. Af
því tilefni taka hann og eig-
inkona hans, Hjördís Hjart-
ardóttir, á móti ættingjum
og vinum laugardaginnn 22.
desember kl. 16–19 í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði, 4.
hæð.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, miðviku-
daginn 19. desember, er
fimmtug Gréta Húnfjörð
Sigurðardóttir, skrifstofu-
stjóri starfsmannaráðs
Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, Bröttukinn 8,
Hafnarfirði. Eiginmaður
hennar var Eðvald Vilberg
Marelsson er lést í nóvem-
ber 2000. Hún tekur á móti
ættingjum, vinum og vinnu-
félögum á afmælisdaginn
milli kl. 17 og 19 í Lækjar-
kinn 30, Hafnarfirði.
BANDARÍKJAMENN
halda miklar bridsveislur
þrisvar á ári, sem standa yf-
ir í tæpar tvær vikur í senn.
Nýlega lauk svokölluðum
haustleikum (Fall Nation-
als), sem fóru að þessu sinni
fram í spilaborginni Las
Vegas. Nokkur hópur ís-
lenskra spilara tók þátt í
bridsveislunni í Las Vegas,
án þess þó að setja mark sitt
á hátíðina. En eini atvinnu-
spilari Íslendinga, Hjördís
Eyþórsdóttir, vann sveita-
keppni kvenna í liði með
Carol Simon, Rozanne Poll-
ack og Valerie Westheimer,
sem allt eru þekktar brids-
konur þar vesturfrá.
Norður
♠ Á1052
♥ 854
♦ 87
♣10432
Vestur Austur
♠ D976 ♠ KG843
♥ 962 ♥ D107
♦ 653 ♦ G4
♣K96 ♣G75
Suður
♠ –
♥ ÁKG3
♦ ÁKD1092
♣ÁD8
Mörg mót fara fram á
sama tíma og oft er spilað á
allt að 2.000 borðum í einu!
Spilið að ofan kom upp í svo-
nefndum meistaratvímenn-
ingi – Life Masters Open
Parirs – og auðvitað enduðu
margir í sex tíglum í NS.
Spilarinn Nader Hanna opn-
aði einfaldlega í fyrstu hendi
á sex tíglum og vakti þar
með almenna kátínu við
borð sitt. En ástæðan fyrir
heljarstökkinu var ekki bara
léttleiki tilverunnar, því
Nader taldi víst að makker
myndi svara á tveimur tígl-
um ef hann byrjaði á alkröfu
og þá yrði norður sagnhafi.
Og það fannst Nader hið
versta mál, ekki vegna þess
að hann treysti makker illa,
heldur vildi hann fá útspilið
upp í gafflana.
Góð hugsun, sem bar
ríkulegan ávöxt þegar vest-
ur kom út með lauf upp í
ÁD. Nader drap gosa aust-
urs með drottningu, tók
þrisvar tromp og spilaði svo
laufás og meira laufi. Vestur
átti ekkert svar við því og
gerði sitt besta með því að
spila hjarta, frekar en
spaða, svo sagnhafi fékk
„bara“ tólf slagi.
Vissulega er útspilið
óheppilegt, en þegar betur
er að gáð sést að vestur get-
ur hvergi spilað út án þess
að gefa slemmuna. Tígull
skapar innkomu í borði á
áttuna, sem og spaði, en
hjarta er upp í gaffal og gef-
ur sagnhafa færi á að spila
sér út á laufdrottningu í
endastöðunni og fá þannig
hjálp frá vörninni.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3
Bc5 7. d3 d6 8. c3 O-O 9. Be3
Bb6 10. Bxb6 cxb6 11. He1
Re7 12. Rbd2 Rg6 13. Rf1
Bb7 14. Re3 Dc7 15. Rf5
Had8 16. Rd2 d5 17. Df3 Rf4
18. exd5 R6xd5
19. Dg3 g6 20.
Re4 Kh8 21. Bxd5
gxf5 22. Bxb7
Dxb7 23. Dg5
Úkraínubúarn-
ir Ruslan Ponom-
arjov (2.684) og
Vassily Ivansjúk
munu heyja ein-
vígi um heims-
meistaratitil
FIDE sem fram
fer nú í janúar.
Óhætt er að segja
að það komi á
óvart, en leið
þeirra í úrslitin var þyrnum
stráð. Ruslan er 18 ára gam-
all og sá yngsti í skáksög-
unni til að tefla um heims-
meistaratitil. Hæfileikar
hans eru ótvíræðir og skák-
stílnum svipar til Bobbys
Fischers. Í stöðunni hafði
hann svart gegn Sergei
Tivjakov (2618). 23... Rh3+!
24. gxh3 Hg8 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð þolgóð og þrjósk og
berjist fyrir því sem skiptir
ykkur máli. Þið eruð gæfu-
fólk á öllum sviðum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þið eruð eins og fiðrildi, flögr-
ið um á meðal fólks og njótið
þess að sýna ykkur og sjá
aðra. Þið eruð í sönnu jóla-
skapi svo njótið þess bara.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tínið saman það dót sem þið
hafið enga þörf fyrir lengur
og athugið hvort einhver vilji
gera sér það að góðu áður en
þið látið það gossa.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þið hafið lagt hart að ykkur
upp á síðkastið og eigið svo
sannarlega skilið að njóta
góðra tíma og lyfta ykkur
upp. Njótið augnabliksins.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver reynir að setja ykk-
ur stólinn fyrir dyrnar og þið
þurfið að komast að því hvað
fyrir honum vakir. Hafið um-
fram allt stjórn á skapi ykkar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt full ástæða sé til að gera
sér glaðan dag þurfið þið líka
að muna að hóf er best á
hverjum hlut. Farið ekki út
fyrir þau mörk sem þið settuð
ykkur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Veltið því ekki of lengi fyrir
ykkur hvernig þið eigið að
framkvæma hlutina því þið
gætuð orðið of sein. Drífið í
hlutunum og hamrið járnið
meðan það er heitt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hafið þið sett ykkur markmið
verðið þið að standa við þau
hvað sem það kostar því þá
sjáið þið hvers þið eruð
megnug og getið um leið
sannað það fyrir öðrum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þótt í mörg horn sé að líta
verðið þið að gefa ykkur tíma
til að hlusta á kæran vin sé
hann í vanda. Þið gætuð
nefnilega margt lært af
reynslu hans.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hættið að byrgja tilfinning-
arnar inni og talið við ástvini
ykkar um líðan ykkar. Þungu
fargi verður af ykkur létt og
samband ykkar styrkist á all-
an hátt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þið hafið áhyggjur af öllum í
kringum ykkur og þurfið að
verjast því svo ekki dragi úr
ykkur allan mátt. Einbeitið
ykkur að því að dekra við sjálf
ykkur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið eruð skapandi og
skemmtileg og eigið auðvelt
með að kenna öðrum eitt og
annað. Miðlið því sem þið get-
ið til ungu kynslóðarinnar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt í mörg horn sé að líta
þessa dagana er alveg nauð-
synlegt að leyfa sjálfum sér
líka að vera til. Ætlið ykkur
ekki meira en þið komist yfir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRÉTTIR
Í TILEFNI 50 ára afmælis Flug-
björgunarsveitarinnar á síðasta ári
og 40 ára afmælis Vöruflutninga-
miðstöðvarinnar á sama tíma
ákvað Flytjandi að gefa Flugbjörg-
unarsveitinni vöruflutningabíl að
gjöf til aðstoðar við björgunar-
störf. Bíllinn er af tegundinni
Scania 112, 10 hjóla og er árgerð
1987. Bifreiðin er afhent Lávarða-
flokki Flugbjörgunarsveitarinnar
til umsjónar og varðveislu. Láv-
arðaflokkur er flokkur eldri Flug-
björgunarsveitarmanna sem verið
hafa viðloðandi björgunarstörf um
áratuga skeið.
Morgunblaðið/Þorkell
Ágúst Björnsson, Árni Guðjónsson, Vilberg Sigurjónsson, formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar, Grétar Pálsson, Páll H. Halldórsson frá
Flytjanda og Sigurður Sigurðsson.
Flugbjörgunarsveitin
fær bíl að gjöf
KIWANISKLÚBBURINN Sólborg
hefur staðið fyrir sölu á eigin jóla-
kertaskreytingum, leiðiskrossum og
greinum.
Eins og undanfarin ár fer sala á
leiðiskrossum og greinum fram í
Fjarðarkaupum, Hafnarfirði, dag-
ana 20., 21. og 22. desember. Jóla-
kertaskreytingar hafa verið afhent-
ar einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum. Öllum ágóða af sölunni
verður varið til góðgerðarmála.
Selja leiðiskrossa og greinar
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 18. des-
ember, er fimmtugur Skúli
Eggert Sigurz, Melseli 10.
Hann og eiginkona hans,
Ingunn Þóra Jóhannsdótt-
ir, taka á móti gestum í dag,
þriðjudag, í Ými, sal Karla-
kórs Reykjavíkur, að Skóg-
arhlíð 20, kl. 19.30.