Morgunblaðið - 18.12.2001, Side 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
þær þrí- og fjórraddað að sögn
Johns. Hefðbundin jólalög eru á
söngskránni og má heyra hjá
þeim Bjart er yfir Betlehem og Þá
nýfæddur Jesús auk jólalaga á
KLINGJANDI barnaraddir utan
við heimili fólks á aðventunni er
líklega eitthvað sem flestir tengja
við útlönd en ekki íslensku jólin.
Nú bregður hins vegar svo við að
hópur stúlkna úr Kópavogi hefur
tekið upp á því að syngja jólin inn
fyrir utan híbýli fólks á höfuð-
borgarsvæðinu í þeim tilgangi að
styrkja langveik börn.
Stjórnandi hópsins er John
Gear, tónmenntakennari í Smára-
skóla í Kópavogi, en stúlkurnar
syngja í einum kóra hans, Kamm-
erkór Smáraskóla. „Þetta er hefð
á Englandi og ég fékk þessa hug-
mynd fyrir tveimur árum,“ segir
John, en hann er enskur að upp-
runa. „Við gerðum þetta þá og
svo ákvað ég að gera þetta aftur
núna, en í fyrra var ég ekki á
landinu.“
Í sönghópnum eru 15 stúlkur á
aldrinum 11–12 ára og syngja
borð við Sankta Lucia. Fyrra
söngkvöldið var í gær en ef eft-
irspurnin er nægileg mun hóp-
urinn endurtaka leikinn í kvöld.
Með þessu vill hópurinn styrkja
langveik börn og geta þeir sem
hafa áhuga á að fá fagran jóla-
söng utan við heimili sitt hringt í
John, en söngurinn kostar 1.000
krónur.
Morgunblaðið/Þorkell
Tærar stúlknaraddir í Kammerkór Smáraskóla gleðja tónlistarunn-
endur á aðventunni. Fjölskyldan á Bústaðavegi 99 naut tónlistar-
flutningsins í dyragættinni heima, eins og glöggt má sjá.
Englakór
við hús-
dyrnar
NOKKRIR grunnskólakennarar
hafa krafið sveitarfélögin um launa-
greiðslur í samræmi við þá viðbót-
arsamninga sem þeir höfðu áður en
launakerfi grunnskólakennara var
breytt 1. ágúst sl. Þetta hefur leitt til
þess að launanefnd sveitarfélaganna
hefur enn ekki samþykkt kjara-
samning sem nefndin gerði við Fé-
lag tónlistarskólakennara 27. nóv-
ember sl. Launanefndin óttast að
ákvæði samningsins, um að allir
samningar um viðbótarkjör sem
sveitarfélögin hafa gert við tónlist-
arskólakennara falli brott, haldi
ekki.
Eftir að kjarasamningurinn við
tónlistarskólakennara var undirrit-
aður frestuðu kennarar verkfalli til
14. desember. Launanefnd sveitar-
félaganna tók samninginn til um-
fjöllunar á fundi 5. desember, en
frestaði afgreiðslu hans. Nýr fundur
hefur enn ekki verið boðaður í
nefndinni. Þegar ljóst var að sveit-
arfélögin myndu ekki ljúka af-
greiðslu samningsins við tónlistar-
skólakennara fyrir 14. desember
ákváðu þau að framlengja frestun á
verkfalli til 4. janúar nk. Ef það hefði
ekki verið gert hefði verkfallið hafist
að nýju í gær þrátt fyrir að tónlistar-
skólakennarar samþykktu kjara-
samninginn með um 80% atkvæða.
Lögmaður KÍ
undirbýr málsókn
Sigurður Óli Kolbeinsson, lög-
fræðingur Sambands íslenskra
sveitarfélaga, sagði að ástæðan fyrir
því að launanefndin hefði ekki enn
afgreitt kjarasamninginn væri sú að
sveitarfélögin óttuðust að yfirlýsing
samningsaðila um viðbótarkjör
stæðist ekki.
Í þessari yfirlýsingu segir: „For-
sendur kjarasamnings þessa eru að
þær ákvarðanir sem teknar hafa
verið um viðbótarkjör, yfirborganir
og hvers kyns álagsgreiðslur á
grundvelli launatengds kjarasamn-
ings haldist óbreyttar til og með 31.
desember 2001 og falli úr gildi án
sérstakrar uppsagnar við fulla gild-
istöku á kjarasamningi þessum, þ.e.
frá og með 1. janúar 2002.“
Sigurður Óli sagði að eftir að
launanefndin og tónlistarskólakenn-
arar undirrituðu kjarasamninginn
hefði Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga borist vitneskja um að lögmað-
ur Kennarasambands Íslands hefði
ritað nokkrum sveitarfélögum bréf
fyrir hönd nokkurra grunnskóla-
kennara sem krefðust þess að halda
þeim viðbótargreiðslum sem þeir
höfðu áður en launakerfisbreyting
grunnskólakennarasamningsins tók
gildi 1. ágúst sl. Hann sagði að ætlun
þeirra væri að höfða mál fyrir dóm-
stólum til að fá þessar greiðslur við-
urkenndar. Hann sagði að þetta
þýddi að verulegur vafi léki á því að
forsendur samnings tónlistarskóla-
kennara um viðbótarkjör stæðust.
Við þessar aðstæður treystu sveit-
arfélögin sér ekki að samþykkja
samninginn.
Fulltrúar samningsaðila og ríkis-
sáttasemjari ætla að funda um málið
á morgun. Fyrirhugað hafði verið að
greiða laun til kennara eftir nýja
samningnum fyrir jól, en flest bend-
ir til að það verði ekki hægt.
Grunnskólakennarar undirbúa málsókn á hendur sveitarfélögum
Sveitarfélögin fresta
samþykkt samnings
Óttast að ákvæði í samningi við
tónlistarskólakennara haldi ekki
$
HAFNARFJÖRÐUR ætlar eitt
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
að hækka útsvarsprósentu á næsta
ári. Mörg sveitarfélög á landsbyggð-
inni ætla einnig að nýta sér heimild til
að hækka útsvar um 0,33%, en meðal
þeirra eru flest af stærri sveitarfélög-
um á landsbyggðinni.
Frestur til að tilkynna breytingar á
útsvarsprósentu rann út sl. laugar-
dag. Ekki var hægt í gær að fá upp-
lýsingar frá fjármálaráðuneytinu um
hvaða sveitarfélög ætluðu að breyta
útsvarsprósentu. Eftir að ákvarðanir
sveitarfélaganna um útsvar liggja
fyrir er staðgreiðsluprósenta reiknuð.
Hún var 38,76% á þessu ári en verður
heldur lægri á næsta ári. Alþingi sam-
þykkti að lækka tekjuskattsprósentu
fyrir árið 2002 um 0,33%, en jafn-
framt fengu sveitarfélögin heimild til
að hækka útsvar. Hámarks útsvars-
prósenta á næsta ári verður 13,03%,
en var 12,7% á síðasta ári. Eftir að
stjórnvöld ákváðu að auka svigrúm
sveitarfélaganna til álagningar út-
svars lýstu stjórnendur Reykjavíkur-
borgar því yfir að útsvar borgarinnar
yrði ekki hækkað. Flest sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu munu hafa tekið
sömu afstöðu.
Hafnarfjörður er eina sveitarfélag-
ið á höfuðborgarsvæðinu sem ákveðið
hefur að nýta sér heimild til að hækka
útsvar í 13,03%. Mörg sveitarfélög á
landsbyggðinni hafa tekið sömu af-
stöðu. Þannig hækkar útsvar á Ak-
ureyri, Akranesi, í Borgarbyggð, á
Ísafirði, í Höfn í Hornafirði, Fjarða-
byggð og Árborg svo dæmi sé tekið.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ákvað
hins vegar að hækka ekki útsvar.
Landsbyggðin og Hafn-
arfjörður hækka útsvar
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
ákært rúmlega þrítuga konu
fyrir hættulega líkamsárás, en
hún er sökuð um að hafa stungið
eiginmann sinn fimm sinnum
með hnífi sama dag og þau
gengu í hjónaband.
Hnífsstungurnar voru þó ekki
ýkja djúpar og maðurinn mun
ekki hafa verið í bráðri lífshættu
af völdum árásarinnar en þar
sem hnífur telst hættulegt áhald
telst vera um sérstaklega
hættulega líkamsárás að ræða.
Stakk eigin-
manninn á
brúðkaups-
daginn
ENDURTAKA þurfti aðalmeðferð
yfir tvítugum Portúgala sem ákærð-
ur er fyrir innflutning á rúmlega
2.500 e-töflum þar sem bilun í seg-
ulbandstækjum í einum dómsal Hér-
aðsdóms Reykjavíkur varð til þess
að nánast ekkert af því sem fram fór
við aðalmeðferðina skilaði sér inn á
segulbönd.
Dómarar nota upptökur af réttar-
höldum þegar þeir leggja dóm á mál.
Ef brýna nauðsyn ber til eða ef mál-
um er áfrýjað er allt það sem fram
fer við réttarhöldin vélritað. Þar sem
ekkert var á segulböndunum þurftu
dómari, sækjandi, sakborningur,
dómtúlkur og ritari dómara að end-
urtaka aðalmeðferðina sem hafði
farið fram í síðustu viku. Dóms er að
vænta í málinu á morgun.
Þess má geta að skömmu áður en
fyrri aðalmeðferðin átti að fara fram
var henni frestað þar sem í ljós kom
að dómarinn sem átti að dæma í mál-
inu hafði áður úrskurðað manninn í
gæsluvarðhald.
Aðalmeð-
ferð end-
urtekin
LÍTIL sem engin von virðist vera til
þess að fá innfluttar rjúpur frá Nor-
egi. Nánari athugun á birgðum þar
ytra hefur leitt í ljós að skortur er á
rjúpum í Noregi. Búr ehf. hafði feng-
ið leyfi til innflutnings á rjúpum frá
Grænlandi en þar var engar rjúpur
að hafa og beindu menn því sjónum
að Noregi en þar reyndist ástandið
síst betra. Sigurður Á. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Búrs, segir að í
ljósi þessara úrslita málsins sé fátt
hægt að aðhafast.
Rjúpa ekki
flutt inn frá
Noregi
LÖGREGLAN í Reykjavík leitaði í
gærkvöld manns sem stal útstilling-
arkassa með gullhringum úr gull-
smíðastofu við Laugaveg í Reykjavík
um klukkan sex í gær. Þjófurinn vatt
sér inn í búðina, tók kassann og hljóp
síðan á brott. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík er ekki vitað um verð-
mæti þýfisins. Málið er í rannsókn.
Maðurinn var ekki grímuklæddur
og gat eigandinn gefið lögreglunni
greinargóða lýsingu á honum.
Stal
gullhringum
♦ ♦ ♦