Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Útsala hófst í dag kl. 10.00
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
ÖLDUGRANDI - BÍLSKÚR. Glæsileg 3ja herb. íb. a 1. hæð með
sólskála, sérgarði, verönd og heitum potti. Flísar á gólfum. Góðar
innréttingar. Mjög góð staðsetning. Góður 25 fm bílskúr með öllu.
Verð 15,5 millj. 1824
LAMBASTEKKUR - BÍLSKÚR. Fallegt einbýlishús á einni hæð
ásamt sérb. bílskúr. 3 svefnherb. 2 stofur. Parket og viðarklædd
gólf. Frábær staðsetning. Góður garður. Áhv. 8,9 millj. Verð 17,9
millj. 1823
HAMRAHVERFI - ÚTSÝNI. Sérlega glæsilegt og vandað einbýlis-
hús ásamt tvöf. bílskúr og rými á jarðhæð. 5 svefnherbergi.
Góðar stofur með arni. Sólstofa. Massíft parket og marmari á
gólfum. Stórt eldhús með sérlega glæslegri innréttingu og
vönduðum tækjum. Húsið er allt í mjög góðu ástandi, fallegur
garður og útsýni út á sjóinn. Þetta er einstök eign. Allar nánari
uppl. á skrifstofu.
HEILDARTEKJUR A- og B-hluta samstæðu-
reiknings Akureyrarbæjar eru áætlaðar tæpar
7.276 milljónir króna á þessu ári. Þar af eru skatt-
tekjur um 3.215 milljónir króna, framlag jöfnunar-
sjóðs 350 milljónir króna en aðrar tekjur eru um
3.711 milljónir króna. Heildargjöld Akureyrar-
bæjar verða rúmar 7.000 milljónir króna. Fyrri
umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar var
á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. Áætlunin var
sett fram samkvæmt nýjum reglur um reiknings-
skil sveitarfélaga og er Akureyrarbær fyrsta
sveitarfélagið til að leggja fram fullbúna áætlun í
samræmi við hin nýju reikningsskil.
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri greindi frá
því við umræður um fjárhagsáætlunina að gert
væri ráð fyrir framkvæmdum að upphæð um 1,4
milljarðar króna á árinu. Þar af eru framkvæmdir
í A-hlutanum, sem tekur til Fasteigna Akureyr-
arbæjar, Framkvæmdamiðstöðvar, Eignasjóðs
gatna, Húsverndarsjóðs og Menningarsjóðs upp á
971 milljón. Framkvæmdir á vegum B-hlutans,
Félagslegra íbúða, Fráveitu Akureyrar, Strætis-
vagna Akureyrar, dvalarheimila, Framkvæmda-
sjóðs, Norðurorku, Rangárvalla, Bifreiðastæða-
sjóðs, Byggingasjóðs Náttúrufræðistofnunar,
Gjafasjóðs Hlíðar og Skjaldarvíkur og Hafnasam-
lags Norðurlands, nema 415 milljónum króna.
Verulegar gatnaframkvæmdir fyrirhug-
aðar og úrbætur við Brekkuskóla
Ákvarðanir um einstök verkefni verða teknar
milli umræðna um fjárhagsáætlun, en Kristján
Þór sagði að þegar hefðu þó verið teknar ákvarð-
anir eða gerðir samningar og skuldbindingar
vegna margvíslegra framkvæmda í skóla-, menn-
ingar- og íþróttamálum. Þar mætti nefna fram-
kvæmdir við Giljaskóla sem kosta um 200 milljónir
króna, við Amtsbókasafnið að upphæð 150 millj-
ónir króna í ár og fjölnota íþróttahús að upphæð
um 294 milljónir króna. Þá nefndi bæjarstjóri að
uppi væru áform um verulegar framkvæmdir í
gatnagerð bæjarins á árinu og upphaf fram-
kvæmda við úrbætur í húsnæðismálum Brekku-
skóla.
Helstu framkvæmdir á árinu hvað B-hlutann
varðar eru bygging fjögurra nýrra leiguíbúða á
Oddeyri, við fráveitu verður unnið fyrir 103 millj-
ónir króna, hjá Norðurorku verður framkvæmt
fyrir 13, á Rangárvöllum fyrir 15 milljónir og hjá
Hafnasamlaginu fyrir 69 milljónir.
Kristján Þór gat þess að fjárhagur bæjarins
væri afar traustur, geta sveitarfélagsins til fram-
kvæmda væri umtalsverð og þjónustan sem bær-
inn býður upp á fjölbreytt.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Framkvæmdir fyrir
1,4 milljarða króna
BÍLALEIGA Akureyrar tók um ára-
mót í notkun nýtt merki og er jafn-
framt komin með nýtt merki fyrir er-
lenda viðskiptavini sína. Nýja
merkinu er í fyrsta lagi ætlað að
leggja áherslu á að Bílaleiga Akur-
eyrar er hluti af fyrirtækinu Höldi
ehf., sem er móðurfyrirtækið og
stendur á grunni þess. Í öðru lagi er
tekið upp nýtt erlent nafn, EuroRent,
fyrir erlenda viðskiptavini bílaleig-
unnar. Frá sama tíma, eða um nýliðin
áramót, hætti fyrirtækið sem um-
boðsmaður Europcar á Íslandi.
Litirnir í merkinu er valdir með til-
vísun í íslenska náttúru, sem er mesta
aðdráttarafl erlendra ferðamanna til
landsins, blái liturinn táknar himin og
haf, sá hvíti ís og snjó og sá græni
landið í sumarskrúða.
Nýtt merki
Bílaleiga Akureyrar
VERNHARÐ Þorleifsson júdómaður var kjörinn
íþróttamaður KA árið 2001 og fór útnefningin fram á
hinum árlega KA-degi í KA-heimilinu sl. laugardag.
Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem Vernharð er
útnefndur íþróttamaður félagsins en hann varð í öðru
sæti í kjörinu fyrir árið 2000.
Þá var Vernharð útnefndur íþróttamaður Akureyrar
árið 2001 á dögunum. Í öðru sæti í kjöri KA varð hand-
knattleiksmaðurinn ungi Arnór Atlason og í þriðja sæti
knattspyrnumaðurinn Dean Martin.
KA heldur KA-daginn hátíðlegan í janúar ár hvert, í
tengslum við afmæli félagsins en KA átti 74 ára afmæli
þann 8. janúar sl. Yngri flokkar félagsins léku tvo leiki
í handbolta á KA-deginum, sem báðir unnust. Þá var
boðið upp á ýmis atriði á vegum deilda félagsins og
kaffiveitingar í lok dagsins.
Morgunblaðið/Kristján
Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA, t.h., Vernharð Þorleifsson, íþróttamaður KA, Soffía Pálsdóttir,
kona Dean Martins, með Geir, son þeirra, í fanginu, og Arnór Atlason.
Vernharð íþróttamaður KA
AÐALFUNDUR Kaupfélags Þing-
eyinga fyrir árið 2000 var haldinn um
helgina. Þar var m.a. kjörin ný
stjórn, en í henni sitja Hreiðar
Karlsson og Tryggvi Finnsson á
Húsavík og Kristján Kárason á Ket-
ilsstöðum á Tjörnesi.
Aðalfundur fyrir árið 2001 verður
væntanlega haldinn í vor, apríl eða
maí.
Fram kom á fundinum að búið er
að gera upp við kröfuhafa sam-
kvæmt samkomulagi sem gert var
þegar KÞ komst í greiðsluþrot vorið
1999. Endanlegt uppgjör liggur þó
ekki fyrir þar sem enn á eftir að inn-
heimta nokkuð af kröfum KÞ.
Meirihluti fundarmanna sam-
þykkti á fundinum að óska eftir því
við stjórn Kaupfélags Eyfirðinga að
kaupfélögin tvö, þ.e. KEA – sam-
vinnufélag og KÞ, verði sameinuð og
skoðað hvaða ávinningur yrði af
slíku fyrir félagsmenn KÞ ef af yrði.
Kaupfélag Þingeyinga er elsta kaup-
félag landsins, rétt að verða 120 ára
gamalt. Þá var á fundinum samþykkt
tillaga um að kanna möguleika á að
koma upp Samvinnusafni á Húsavík í
samstarfi við Samband íslenskra
samvinnufélaga.
Aðalfundur KÞ
fyrir árið 2000
Vilja sam-
einingu við
KEA-sam-
vinnufélag
NÓTASKIPIÐ Þórður Jónasson EA hefur legið við
bryggju á Akureyri frá síðustu loðnuvertíð og er alls
óvíst hver framtíð skipsins verður. Skipið er í eigu SR-
mjöls en fyrirtækið, sem átti 40% hlut í útgerð Valtýs
Þorsteinssonar ehf., eignaðist hin 60% um mitt síðasta
ár.
Björn Kristinsson hjá SR-mjöli sagði alls óvíst um
framhaldið en að skipið væri allt eins til sölu og þá án
kvóta. Skipið er með 1,803% af loðnukvótanum og eitt-
hvað af bolfiskkvóta. Björn sagði skipið í góðu lagi og
tilbúið til veiða ef til þess kæmi og að allt væri opið í þeim
efnum. „Það er hins vegar komið svo mikið af stórum og
öflugum skipum að það er ekki víst að það sé lengur þörf
fyrir þessa minni báta.“
Þórður Jónasson ber um 700 tonn af loðnu og skipið er
því með allra minnstu nótaskipum landsins. Skipið er um
450 brúttótonn, smíðað í Noregi 1964 en lengt 1973 og
1986 og yfirbyggt 1978.
Morgunblaðið/Kristján
Nótaskipið Þórður Jónasson EA á rauðu ljósi við
Torfunefsbryggju á Akureyri.
Óvissa um fram-
tíð skipsins
Nótaskipið Þórður Jónasson EA bundið við bryggju á Akureyri
TÓLF umsóknir bárust um
stöðu leikhússtjóra hjá Leik-
félagi Akureyrar, en frestur til
að sækja um stöðuna rann út í
liðinni viku.
Þeir sem sóttu um eru
Bjarni Ingvarsson, Björn
Gunnlaugsson, Gunnar Gunn-
steinsson, Halldór E. Laxness,
Hrafnhildur Hafberg, Jakob
S. Jónsson, Magnús Geir
Þórðarson, Sigurður Þ. Lín-
dal, Stefán Sturla Sigurjóns-
son, Valgeir Skagfjörð, Þor-
steinn Bachmann auk þess
sem einn óskaði nafnleyndar.
Leikhúsráð skipar í stöðuna
og er ráðgert að niðurstaða
liggi fyrir í byrjun febrúar.
Sigurður Hróarsson núver-
andi leikhússtjóri LA lætur af
störfum næsta haust, en þá
lýkur samningi hans við félag-
ið. Ráðgert er að nýr leikhús-
stjóri komi til starfa við hlið
hans frá 1. mars næstkomandi.
Leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar
Tólf
sóttu um
stöðuna
♦ ♦ ♦