Morgunblaðið - 16.01.2002, Side 22

Morgunblaðið - 16.01.2002, Side 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓNÍNA Hilmarsdóttir víóluleikari heldur tónleika sem hefjast kl. 20 í kvöld í Salnum, Tónlistarhúsi Kópa- vogs. Með Jónínu koma fram á tón- leikunum Steinunn Birna Ragnars- dóttir píanóleikari, Ásgerður Júníusdóttir messósópran, Helga Ingólfsdóttir semballeikari og Peter Tompkins óbóleik- ari. Á efnisskránni eru ein- leiksverk og kammerverk fyrir víólu eftir Johann Seb- astian Bach, Henri Vieux- temps, Karólínu Eiríksdótt- ur, Johannes Brahms og Paul Hindemith. Jónína lauk í desember meistaragráðu með áherslu á einleik og kammertónlist frá Sweelinck-tónlistarskólan- um í Amsterdam og var kennari hennar Marjolein Dispa. Jónína hefur á undan- förnum árum komið fram með ýmsum kammerhópum og hljómsveitum hér heima, í Hollandi og Þýskalandi, en tónleik- arnir í Salnum í kvöld eru fyrstu ein- leikstónleikar hennar. Jónína segist hafa sett saman efn- isskrá tónleikanna með það í huga að sýna hinar ýmsu hliðar víólunnar sem hljóðfæris. „Mig langaði til að hafa efnisskrána eins fjölbreytta og hægt væri. Um er að ræða verk frá ýmsum tímum, allt frá barokki til samtímatónsmíða, sem reyna á ólíkar hliðar víólunnar. Við flutning verk- anna hef ég fengið frábært fólk til að vinna með, en þau kalla á ólíkar hljóðfærasamsetningar“. Meðal verkanna eru sónata eftir Bach fyrir víólu og sembal, sónata fyrir víólu og píanó eftir Hindemith og söngverkið Na Carenza eftir Kar- ólínu Eríksdóttur. „Verkið var frum- flutt á alþjóðlegri kventónlistarhátíð í Vínarborg árið 1995, en við Ásgerð- ur Júníusdóttir mezzósópran og Pet- er Tompkins óbóleikari fluttum verk- ið í fyrsta sinn hér á landi í Skálholti í sumar. Verkið er samið við texta kvenkyns trúbadúra frá miðöldum sem austurrísk tónvísindakona, Reg- ina Himmelbauer, hefur verið að rannsaka. Lögin við textana eru glöt- uð og var Karólína meðal þeirra kventónskálda sem leitað hefur verið til um að semja tónlist við textana.“ Jónína bætir því við að verkin á efnisskránni gefi ekki síst innsýn í hvernig skrifað hefur verið fyrir víól- una í gegnum tíðina. „Víólan hefur í gegnum tíðina verið nokkurs konar Öskubuska strengjahljóðfæranna, var áður fyrr mestmegnis í bak- grunni, en með árunum hafa tónskáld farið að treysta henni betur. Bach-sónatan er upphaflega skrifuð fyrir gömbu, en hefur verið um- skrifuð fyrir víólu og er þátt- ur hljóðfærisins því óvenju- lega „vírtúósísk“ eða tæknilega krefjandi fyrir verk frá þessum tíma. Vieux- temps er nítjándu aldar tón- skáld, sem skrifaði heila caprisu fyrir víólu, meðan venjulega þarf að leita í um- skrifun á fiðluverkum til að komast í „glæsiverk“ fyrir víólu frá þessum tíma. Tuttugustu aldar tónskáldið Hindemith skrifaði hins vegar mikið fyrir víólu, skrifaði alls sjö sónötur fyrir víólu, þar af þrjár fyrir víólu og píanó. Verkin eru mjög vel skrifuð með tilliti til eiginleika hljóðfærisins, enda var hann sjálfur víóluleikari og þekkti því hljóðfærið vel,“ segir Jón- ína að lokum. Jónína Hilmarsdóttir víóluleikari (í miðju) ásamt meðflytjendum sínum á tónleikunum í kvöld, þeim Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanóleik- ara og Ásgerði Júníusdóttur mezzósópran. Tónbókmenntir víólunnar í Salnum Morgunblaðið/Ásdís RÚNAR Óskarsson klarinettuleik- ari hefur búið lengi í Hollandi þar sem hann dvaldi við nám og störf. Nú er hann fluttur heim og farinn að sinna íslensku tónlistarlífi. Í kvöld klukkan átta leikur hann í Ými, á tónleikum Myrkra músík- daga, og þar verður ekki bara klarinettan í sviðsljósinu, heldur einnig bassaklarinettan. Með honum á tónleikunum verða Snorri Sigfús Birgisson á píanó, Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Hlín Pétursdóttir sópransöng- kona. Á efnisskránni eru átta verk, þar af verða tvö frumflutt; Sum- arskuggar eftir Elínu Gunnlaugs- dóttur, fyrir klarinettu, sópran og píanó og Tríó eftir Hróðmar Sig- urbjörnsson, fyrir píanó, flautu og bassaklarinettu. Verk Hróðmars var samið fyrir Rúnar og Trio Parlando, sem hann starfaði með í Hollandi. Verk El- ínar er einnig samið fyrir Rúnar. „Ég leik líka annað verk eftir Hróðmar, einleiksverk fyrir klarin- ettu sem hann samdi 1984 þegar hann var enn í námi, að ég held, en mér þykir mjög vænt um þetta verk, því ég spilaði það á lokapróf- inu mínu í Amsterdam. Ég leik líka annað einleiksverk fyrir bassa- klarinettu eftir Elínu; verkið heitir Rún, en hún samdi það fyrir mig árið 1999. Ég verð svo með einn standard fyrir klarinettuna, Þrjú verk eftir Ígor Stravinskíj; Sónötu fyrir klarinettu eftir Edison Den- issov; verk sem ég hef aldrei spilað áður, en fann í einhverri bókabúð, og komst að því að það er töluvert mikið spilað. Ég verð líka með einn standard fyrir bassaklarinettuna, Monolog eftir Isang Yun, verk sem allir bassaklarinettuleikarar þurfa að spila einhvern tíma. Síðasta verkið er Dúó fyrir einleiksbassa- klarinettu eftir Theo Loevendie.“ Rúnar segir það hluta af því að vera virkur tónlistarmaður að láta tónskáld semja fyrir sig. „Það er mikilvægt að spila gamla tónlist líka, en bassaklarinettan er nýtt hljóðfæri, kannski 40–50 ár síðan farið var að semja fyrir hana af einhverjum krafti. Ég held að það sé bara mitt hlutverk sem flytj- anda að taka þátt í nýsköpun, það er ekki spurning. Tónskáld eru oft mjög viljug að semja fyrir ákveðna tónlistarmenn, og tónlistarmenn eru þá líka viljugri til að flytja verk þeirra. Ég vona bara að tón- skáld mæti á tónleikana mína og það er aldrei að vita nema eitthvað gott komi út úr því.“ Rúnar segir íslensku tónlistina ekkert frábrugðna því sem tón- skáld eru að semja erlendis. Það sem muni meira séu hljóðfæraleik- ararnir sjálfir. Í útlöndum hafi tón- skáld fleiri flytjendur að hlusta á, og að því leyti fleiri fyrirmyndir en hér, þar sem klarinettuleikararnir séu færri. Rúnar flutti heim til Ís- lands í haust og byrjaði á því að fara í verkfall. „Ég var hins vegar hissa á því að ég gat strax fengið nóg að gera og ég er jafnvel að kenna meira en hollt er fyrir hljóð- færaleikara. En vinnutími tónlist- arkennara er orðinn þannig að við vinnum bara eftir hádegi og á þeim tíma nenni ég hvort eð er ekkert að æfa mig. Ég vakna klukkan átta og er búinn að æfa mig í þrjá til fjóra tíma áður en kennslan hefst. En á móti kemur að maður er ekki kominn heim úr kennslunni fyrr en sjö, átta á kvöldin.“ Rúnar Óskarsson á Myrkum músíkdögum Brýnt að fá tónskáld til að semja fyrir sig Morgunblaðið/Kristinn Hróðmar Sigurbjörnsson tónskáld, Snorri Sigfús Birgisson píanóleik- ari, Hlín Pétursdóttir söngkona, Rúnar Óskarsson með bassaklarin- ettuna og Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld. ÆFINGAR á leikritinu Jón Oddur og Jón Bjarni eru hafnar. Leikritið er byggt á sögu Guðrúnar Helga- dóttur og er frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins áætluð 3. mars. Leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson en fjórir drengir fara með hlutverk bræðranna. Helstu leikendur eru Anna Krist- ín Arngrímsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Halldóra Björns- dóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Linda Ás- geirsdóttir, Margrét Guðmunds- dóttir, Randver Þorláksson, Sigríð- ur Þorvaldsdóttir, Sigurður Sigurjónsson. Drengir: Alexander Briem, Andri Már Birgisson, Áslákur Ingv- arsson, Benedikt Clausen, Daði Már Guðmundsson, Guðmundur Fel- ixson, Matthías Sigurbjörnsson og Sigurbjartur Atlason. Tónlistina samdi Vilhjálmur Guðjónsson. Leikmynd og búninga gerði Axel Hallkell. Morgunblaðið/Ásdís Frá fyrsta samlestri leikritsins um bræðurna Jón Odd og Jón Bjarna. Æfingar hafnar á Jóni Oddi og Jóni Bjarna Tregahornið er eftir Gyrði Elías- son, með mynd- skreytingum eftir Bernd Koberling. Tregahornið kom út hjá Máli og menningu 1993 og nú hef- ur þýski lista- maðurinn og Ís- landsvinurinn Bernd Koberling myndskreytt bók- ina. Hún kom fyrst út í Þýskalandi en hún er gefin út í samvinnu við Kleinheinrich-forlagið í Münster í Þýskalandi. Tregahornið er þriðja ís- lenska bókin sem Koberling mynd- skreytir en áður hefur hann mynd- skreytt verk Snorra Hjartarsonar og Baldurs Óskarssonar. Í lok bókarinnar er að finna hug- leiðingu um myndlist Koberlings eft- ir Aðalstein Ingólfsson. Útgáfa bókarinnar er í tengslum við sýningu á verkum Bernds Ko- berlings sem nú stendur yfir í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 124 bls. Kápumynd er hluti af vatnslitaverki eftir Bernd Koberling. Verð: 4.990 kr. Smásögur Gyrðir Elíasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.