Morgunblaðið - 16.01.2002, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.01.2002, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 45 DAGBÓK Útsala Kringlunni sími 588 4848. Nýjar vörur byrjaðar að koma Gott verð - verið velkomin Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Iðni þín og vandvirkni skila þér árangri. Þú veist að það kostar vinnu að gera hugmyndir að veruleika. Þú munt hafa marga valkosti á árinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú stendur óvenjufast á þínu en finnur þó til sam- kenndar heima fyrir. Njóttu þess að vera með ástvinum þínum og lífs þíns eins og það er nú. Naut (20. apríl - 20. maí)  Viðskiptasamningar og allt sem lýtur að kaupum og sölu ætti að ganga vel í dag. Velgengni í viðskiptum velt- ur ekki síst á tímasetning- unni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn hentar vel til að vinna þig í álit í vinnunni. Samningar sem þú gerir í dag geta fært þér hagnað í framtíðinni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur mikla þolinmæði og samúð með öðrum. Þú finnur hvað það getur verið gefandi að sýna öðrum hlý- hug og góðvild. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Aðstoð maka eða einhvers annars mun færa þér meiri sálarró. Stundum gerum við okkur ekki grein fyrir ótta okkar fyrr en hann er horf- inn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vinur þinn hefur hvetjandi áhrif á þig. Þú sérð að sönn gjafmildi felst í því að gefa það sem þörf er fyrir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Dagurinn hentar vel til við- skiptasamninga, kaupa og sölu. Vertu opinn fyrir nýj- um viðskiptavinum og leið- um til að auka fjölbreytni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Áætlanir þínar um frekara framhalds- eða starfsnám lofa góðu. Þetta er góður tími til að fá áætlanir þínar samþykktar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Samskipti við fjölskylduna eru mjög gefandi í dag. Vel- vild einhvers utanaðkom- andi veitir þér tækifæri til að eiga góðar stundir með ástvinum þínum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Hæfni þín til að ná til fjöldans er sérstaklega mikil í dag. Hamingja þín og bjartsýni gera þetta auðvelt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú færð tækifæri til að auka tekjur þínar í núverandi starfi eða í nýju starfi. Það tengist lögfræði, læknis- fræði, ferðalögum eða skóla- starfi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ástin getur fengið hjarta þitt til að slá hraðar í dag. Einhver (þú veist ekki endi- lega hver) stenst ekki mátið og daðrar svolítið við þig. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 16. janúar, er áttræð Maren Níelsdóttir Kiernan, Súlu- nesi 7, Garðabæ (búsett hjá dóttur sinni). SLEMMUSPIL úr sjöundu umferð Reykjavíkurmótsins varð tilefni til stórviðburða á mörgum borðum: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ Á864 ♥ KDG1086 ♦ – ♣K108 Vestur Austur ♠ G ♠ D72 ♥ 5 ♥ 97432 ♦ KD10963 ♦ – ♣D6432 ♣ÁG975 Suður ♠ K10953 ♥ Á ♦ ÁG87542 ♣– Hinn rétti áfangastaður NS er sex spaðar, en þangað liggja margar leiðir og mis- jafnar. Til að byrja með er álitamál hvort suður eigi að opna á tígli eða spaða. Vissu- lega er hin almenna regla sú að vekja á lengri lit, en stað- reyndin er sú, að oft er erfitt að sýna fimm-spila hálit síð- ar í sögnum ef opnað er á láglit. Flestir vöktu þó á ein- um tígli. Þar með hafði vestur ekki ástæðu til að blanda sér í sagnir og norður svaraði með einu hjarta. Nú gæti komið til greina að stökkva í tvo spaða í sterku-lauf-kerfi, þar sem tígulopnun er tak- mörkuð við 15 háspila- punkta, en í Standard er nóg að segja einn spaða. Norður gæti krafið í geim með fjórða litnum, sagt tvö lauf, og þá kemur loks að því að suður geri tilraun til að lýsa skiptingunni. En hvaða sögn er best? Tveir til þrír spaðar koma til greina, eða jafnvel fjórir tíglar. Feðgarnir Hjalti Elíasson og Eiríkur Hjaltason fóru þessa leið gegn Birni Eysteinssyni og Guðmundi Sv. Her- mannssyni. Reyndar doblaði Guðmundur tveggja laufa gervisögnina og það kom AV inn í sagnir: Vestur Norður Austur Suður Björn Eiríkur Guðm. Hjalti – – – 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 lauf Dobl 4 tíglar 5 lauf 6 spaðar Pass Pass Pass Guðmundur bjóst alveg eins við laufeyðu í blindum og vildi því ekki dobla slemmuna til útspils, enda þarf tvo slagi til að hnekkja hálfslemmu. En það voru ekki allir svo varkárir, því slemman var dobluð á sex borðum og redobluð á tveimur. Þar sem spilið var redoblað kom vestur út með lauf og báðir sagnhafar hittu á réttu trompíferðina og tóku alla slagina og 2.740 fyrir spilið. Aðeins tígull út heldur sagnhafa örugglega í tólf slögum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT Úr Flateyjarrímu …Boðar féllu, brimin slitu barminn landa. Víkurhellu lýðir litu í löðri standa. Ekki að síður ákefð gekk fyrir allra brysti, fús var lýðr á ferju hlekk, í Flatey lysti. Höfðum segl í hálfu tré í höstu leiði. Borða skeglan bylgjur sté. Var beitt á Eiði. Ægir þókti andarhár og ýfa gráði. Landið sókti lindarmár og lending náði. … Faxið rauk, en stafur stóð, svo steyptist öfga. Efldi slauk í Ýmis blóði, afnám höfga. – – – Magnús prestur Ólafsson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. f3 e5 7. Rb3 Be7 8. Be3 O-O 9. Dd2 a5 10. Bb5 Ra7 11. Be2 Be6 12. Hd1 Rc8 13. Dc1 Rb6 14. O-O Rc4 15. Bxc4 Bxc4 16. Hf2 h6 17. Rd2 Be6 18. a4 Dc8 19. Rf1 Dc6 20. Rg3 Hfd8 21. Hfd2 d5 22. exd5 Rxd5 23. Rxd5 Hxd5 24. Hxd5 Bxd5 25. b3 Be6 26. c4 Hd8 27. Hxd8+ Bxd8 28. Dd2 Dd7 29. De2 f5 30. Bf2 Bc7 31. Rf1 Kf7 32. h3 Dd6 33. Dc2 Dd7 34. De2 Kf6 35. Bh4+ g5 36. Bf2 Dd6 37. g4 Bb6 38. Rg3 Staðan kom upp í fyrstu skák einvígis Hannesar Hlífar Stefánssonar (2604) og Nigels Shorts (2663). Í fyrstu þrem einvígisskák- unum fékk Hannes 1½ vinning en hefði átt að fá a.m.k. 2 vinninga mið- að við stöðurn- ar sem hann fékk. Svona er alltaf auðvelt að segja en stærsti munur- inn á þeim góðu og bestu er að þeir síðar- nefndu nýta að jafnaði færi sín til hins ýtrasta. Hannes hafði svart og í stað 38... Bxf2+? hefði hann átt sigurvæn- lega stöðu eftir 38... e4! 39. Kg2 [ 39. Db2+ Kf7 40. Rh5 Bxf2+ og svartur vinnur; 39. Rh5+ Kg6 40. fxe4 fxg4 41. hxg4 Bxf2+ 42. Dxf2 Bxg4 og svartur vinnur.] 39... Bxf2 40. Dxf2 exf3+! 41. Dxf3 Dc6! og svartur stendur með pálm- ann í höndunum. Í fram- haldinu á svartur ekki ann- ars úrkosta en að þráskáka. 39. Kxf2 Db6+ 40. Kg2 Dxb3 41. Rh5+ Kg6 42. Dxe5 Dc2+ 43. Kg1 Dc1+ 44. Kg2 Dc2+ og jafntefli sami. Skák Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 50 Ára afmæli. Í dag,miðvikudaginn 16. janúar, er fimmtugur Björn Bjarndal Jónsson, fram- kvæmdastjóri Suðurlands- skóga og formaður UMFÍ, Víðivöllum 1, Selfossi. Björn verður að heiman í dag, en hann og eiginkona hans, Jóhanna Róbertsdótt- ir, munu taka á móti ætt- ingjum og vinum í Þrasta- skógi 26. júlí nk. í tilefni fimmtugsafmæla sinna. 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 16. janúar, er sextugur Jakob Matthíasson, Hlaðbrekku 4, Kópavogi. Eiginkona hans er Matthildur Ágústsdóttir. Í tilefni afmælisins taka þau á móti ættingjum og vinum í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð, milli kl. 16 og 19 laugardaginn 19. janúar. Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 8. janúar mættu 22 pör í Mitchell tvímenninginn og voru spiluð 27 spil. Lokastaðan í N/S: Lárus Hermannss. - Sigurður Karlsson 62 Ingibjörg Halldórsd. - Sigríður Pálsd. 251 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 247 Hæsta skor í A/V: Anna Jónsd. - Sigurrós Sigurðard. 243 Heiður Gestsd. - Þorsteinn Sveinsson 242 Hreinn Hjartarson - Ragnar Björnsson 230 Mjög góð þátttaka var 11. janúar en þá mættu 25 pör til leiks. Loka- staðan í N/S: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 383 Magnús Oddsson - Guðjón Kristjánss. 346 Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 338 Hæsta skor í A/V: Jóhanna Gunnlaugsd. - Garðar Sigurðss. 364 Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 349 Helga Helgad. - Sigrún Pálsd. 330 Meðalskor á þriðjudag var 216 en 312 á föstudag. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Svæðismót á Reykjanesi Svæðismót Bridssambands Reykjaness í sveitakeppni fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn- arfirði helgina 19. og 20. jan. nk. og hefst kl. 11 f.h. Spilað er um þátttökurétt í und- ankeppni Íslandsmótsins. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til Kjartans í síma 421 2287 eða Sigur- jóns í síma 898 0970. Keppnisgjald er kr. 15.000 á sveit. Eldri borgarar í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids (tvímenning) á 5 borðum í Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50, tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum. Spilað var þann 8. janúar og efst- ir voru: Árni Bjarnas. – Þorvaldur Guðmundss. 103 Kjartan Elíasson – Guðni Ólafsson 94 Sveinn Jónsson – Jón Kristinsson 88 Kristján Jónsson – Sverrir Gunnarsson 85 11. janúar. Ásgeir Sölvason – Einar Sveinsson 92 Árni Bjarnason – Guðvarður Elíasson 91 Sigurlín Ágústdóttir – Guðm. Guðmunds.84 Guðni Ólafsson – Kjartan Eliasson 77 Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tví- menning á þrettán borðum í Gull- smára mánudaginn 14. janúar sl. Miðlungur 264. Beztum árangri náðu: MS Sverrir Gunnarss. og Einar Markúss. 313 Unnur Jónsd. og Jónas Jónss. 311 Heiður Gestsd. og Þórhallur Árnas. 293 AV Helga Helgad. og Þórhildur Magnúsd. 298 Kristjana Halldórsd. og Eggert Kristjss. 295 Sigurþór Halldórss. og Viðar Jónss. 293 – Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 alla mánudaga og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45 á há- degi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.