Morgunblaðið - 16.01.2002, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 43
Útsalan
Mörkinni 3
hefst
18.janúar
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
Lagersala á Fiskislóð 73
(úti á Granda), 101 Reykjavík.
Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00
Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00
Föstudaga kl. 14:00 til 18:00
Laugardaga kl. 12:00 til 16:00
Outlet
Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!!
Opnunartími:
Það er gaman að læra...
...þegar námið er skemmtilegt!
Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína með því að
læra að nota tölvutæknina við gerð auglýsinga,
kynningarefnis og bæklinga.
- Síðdegisnámskeið 29. jan. til 14. maí
- Kvöld- og helgarnámskeið 19. jan. til 18. mars
Auglýsingatækni
156 kennslustundir.
204 kennslustundir.
Nám fyrir þá sem vilja læra að útbúa skemmtilegar
gagnagrunnstengdar vefsíður. Kennd er grafísk hönnum
með Photoshop og Freehand. Ennfremur læra nemendur
HTML forritun, hreyfimyndagerð með Flash, UltraDev sem
er gagnagrunnshluti Dreamweaver o. fl.
- Morgunnámskeið 28. jan. til 30. maí
- Síðdegisnámskeið 29. jan. til 31. maí
- Kvöld- og helgarnámskeið 28. jan. til 29. apríl
Vefsíðugerð
96 kennslustundir.
Nám sem hentar þeim sem vilja öðlast djúpa þekkingu og ná
góðum tökum á myndvinnslu með Photoshop. Náminu lýkur
með alþjóðlegu prófi sem gefur gráðuna: Adobe Certified
Photoshop Expert
- Síðdegisnámskeið 3. apríl til 29. maí
- Kvöld- og helgarnámskeið 31. jan. til 7. mars
Photoshop ACE
4 grafísk námskeið hjá NTV
Upplýsingar og
innritun í símum:
544 4500, 555 4980
og á www.ntv.is
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
180 kennslustundir.
Spennandi námskeið fyrir þá sem vilja eða eiga að vinna við
teikningar, t.d. húsa- eða innréttingateikningar og þrívídd.
Nemendur öðlast haldgóða þekkingu og skilning á þessu
sviði.
- Kvöld- og helgarnámskeið 29. jan. til 16. apríl
AutoCad & 3D Studio Max
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Kaðlapeysa 3.600 900
Síð jakkapeysa 3.900 1.900
Leðurjakki 8.900 3.900
Úlpa m/loðkraga 5.800 2.700
Stretsskyrta 3.900 1.500
Síð túnika m/kraga 3.900 1.900
Pils 3.400 1.700
Dömubuxur 4.300 1.900
Herrapeysa 5.800 1.900
Herrablazerjakki 6.500 2.900
Herrabuxur 4.900 1.900
og margt margt fleira
TVEIR FYRIR EINN
50-70% afsláttur
Greitt er fyrir dýrari flíkina
ÚT er komið 2.–3. tölublað tíma-
ritsins Glettings 2001. Undirtitill
ritsins að þessu sinni er Kára-
hnjúkablað.
Í því er að finna fjölbreytt efni
um athafnasvæði hinnar fyrirhug-
uðu Kárahnjúkavirkjunar, nátt-
úrufar þess, nýtingu og verndun.
Auk þess greinar um virkjunartil-
högun, viðhorf Austfirðinga til um-
ræddrar virkjunar, þjóðgarða o.fl.
Blaðið er skreytt litprentuðum ljós-
myndum og kortum, 100 bls. að
stærð.
Meðal greinahöfunda í Glettingi
eru eftirtaldir: Helgi Hallgrímsson,
Skarphéðinn G. Þórisson, Páll Páls-
son, Ingibjörg Kaldal, Oddur Sig-
urðsson, Skúli Víkingsson, Jórunn
Harðardóttir, Hafdís E. Jónsdóttir,
Áslaug Geirsdóttir, Inga Dagmar
Karlsdóttir, Hilmar J. Malmquist,
Nele Lienhoop, Guðríður Þorvarð-
ardóttir, Björn Stefánsson, Sigurð-
ur St. Arnalds, Ragnheiður Ólafs-
dóttir, Halldóra Hreggviðsdóttir,
Stefán Benediktsson, Skúli Björn
Gunnarsson, Sigurjón Bjarnason,
Helgi Valtýsson, Gunnar Hersveinn
og Sigvarður Einarsson.
Blaðið verður til sölu í helstu
bókabúðum landsins, segir í frétta-
tilkynningu, og kostar kr. 1.000.
Glettingur
helgaður
Kárahnjúkum
GITTE Lassen heldur fyrirlestur
fimmtudaginn 17. janúar klukkan
19. Hún fjallar um hvernig hægt er
að sigrast á hræðslu sem kemur í
veg fyrir að fólk lifi lífinu sem það
dreymir um.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og er hann haldinn í Heilsuhvoli,
Flókagötu 65, Reykjavík. Aðgangs-
eyrir 1.500 kr., segir í fréttatilkynn-
ingu.
Að sigrast
á hræðslu
SÁLFRÆÐISTÖÐIN verður með
námskeið í sjálfsstyrkingu fimmtu-
daginn 24. og föstudaginn 25. janúar
kl. 20–22.30 og laugardaginn 26. jan-
úar kl. 9–16.
Hvert námskeið er um 15 kennslu-
stundir og byggist á aðferðum sem
hafa reynst vel til að efla sjálfsstyrk
fólks.
Höfundar námskeiðs og leiðbein-
endur eru sálfræðingarnir Álfheiður
Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal,
segir í fréttatilkynningu.
Sjálfsstyrking-
arnámskeið
KYNNING verður í Sjálfboðamið-
stöð Rauða krossins, Hverfisgötu
105, á verkefnum sem sjálfboðaliðar
Rauða krossins inna af hendi. Meg-
intilgangur kynningarinnar er að
afla sjálfboðaliða á öllum aldri í 4–10
tíma á mánuði til þeirra verkefna
sem unnin eru í þágu mannúðar,
enda er sjálfboðastarf undirstaða
Rauða kross hreyfingarinnar hér á
landi sem um heim allan.
Dæmi um verkefni í höndum sjálf-
boðaliða eru: heimsóknarþjónusta,
sölubúðir, skyndihjálp, símaviðtöl,
átak gegn ofbeldi, handverk, átaks-
verkefni o.fl. Þeir sem vilja vita
meira um framlag sjálfboðaliða
Rauða krossins til samfélagsins eru
velkomnir á kynningarfundinn, segir
í fréttatilkynningu.
Kynning á
sjálfboðastarfi
Rauða krossins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Sigurði P.
Sigmundssyni, formanni Framsókn-
arfélags Hafnarfjarðar:
,,Af gefnu tilefni vil ég lýsa því yfir
að grein mín í Morgunblaðinu 4. jan-
úar sl. um svokallað Norðurbakka-
mál og viðtöl í öðrum fjölmiðlum í
framhaldi af henni voru alfarið á
mína ábyrgð og endurspegla ekki
endilega skoðanir stjórnar Fram-
sóknarfélags Hafnarfjarðar. Norð-
urbakkamálið hafði ekki verið rætt í
stjórn félagsins og var ég því ein-
ungis að lýsa mínum persónulegu
viðhorfum til málsins.
Í ljósi þeirra skýringa sem ég hef
síðan fengið um þetta mál og í þeirri
trú að fyllri skýringar muni koma
fram um ýmis skipulagsatriði og
kostnað sem nú er óljós, lýsi ég yfir
fullum stuðningi við Þorstein Njáls-
son, bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, og meirihlutasamstarf
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.“
Yfirlýsing