Morgunblaðið - 13.02.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐRÚN Jónsdóttir
arkitekt og varaborgar-
fulltrúi hefur ákveðið
að gefa kost á sér í
skoðanakönnun kjör-
dæmissambanda fram-
sóknarmanna í Reykja-
vík fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor.
Hún býður sig fram í 1.
eða 2. sæti Framsókn-
arflokksins á framboðs-
lista Reykjavíkurlist-
ans.
Guðrún er fædd 20.
mars 1935. Hún hefur
verið varaborgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans frá
árinu 1994 og verið í
forsvari fyrir menningarmálanefnd
borgarinnar. Guðrún hefur einnig
starfað mikið að skipulagsmálum
Reykjavíkurborgar
um langt árabil. Hún
átti sæti í skipulags-
nefnd Reykjavíkur
frá árinu 1990- 1998.
Þá veitti hún Borg-
arskipulagi Reykja-
víkur forstöðu á ár-
unum 1979–1984.
Guðrún beitti sér
sem formaður Torfu-
samtakanna fyrir
verndun Bernhöft-
storfunnar.
Guðrún rekur
teiknistofu í Reykja-
vík og hefur gert um
langt árabil. Hún er
um þessar mundir
formaður Byggingarfélagsins Bú-
manna hsf. sem byggir húsnæði
fyrir 50 ára og eldri.
Guðrún býður sig
fram í 1. eða 2. sæti
Guðrún
Jónsdóttir
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær
að fela stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar
h.f. að vinna áfram að undirbúningi byggingar
íþrótta- og sýningarhallar við hlið Laugardals-
hallar. Á fundi borgarráðs voru kynntar til-
lögur að hönnun, framkvæmd, fjármögnun og
rekstri á 5.130 fermetra aðalbyggingu ásamt
1.240 fermetra frambyggingu og 860 fermetra
tengibyggingu og hljóðar kostnaðaráætlun upp
á 1.150 milljónir króna.
Íþrótta- og sýningarhöllin er áformuð sem
nýbygging sem tengd er við Laugardalshöll að
austan. Byggingin mun nýtast bæði sem innan-
húsaðstaða til æfinga og keppni í frjálsum
íþróttum og sem sýningahöll. Stofnað hefur
verið hlutafélagið Íþrótta- og sýningarhöllin hf.
um þessa framkvæmd og er hlutafélagið í eigu
Reykjavíkurborgar og Samtaka iðnaðarins.
Þau mannvirki sem áformað er að byggja
skiptast í 5 hluta. Í fyrsta lagi er það 5.130 fer-
metra aðalbygging með færanlegum hlaupa-
bautum og frjálsíþróttaaðstöðu og gólfi fyrir
sýningar. Í öðru lagi 1.240 fermetra frambygg-
ing sem tengir saman framhliðar Laugardals-
hallar og Íþrótta- og sýningarhallarinnar þann-
ig að góð aðkoma sé að báðum byggingunum. Í
þriðja lagi er um að ræða tengibyggingu milli
mannvirkjanna og búningsaðstöðu fyrir
íþrótta- og sýningarhöllina, alls 860 fermetra.
Í fjórða lagi verður byggð 800 fermetra
geymsla fyrir bæði mannvirkin þar sem m.a.
má geyma hlaupabrautir, íþróttabúnað og sýn-
ingakerfi. Í fimmta lagi er síðan um að ræða
ný bílastæði og frágang lóðar, en gert er ráð
fyrir stækkun lóðar úr u.þ.b. 23.000 fermetrum
í 29,6 þúsund fermetra og að byggð verði 420
bílastæði sem ná yfir 14.830 fermetra. Það er
Teiknistofan ehf. við Ármúla sem hefur hannað
bygginguna.
Ný höll fyrir sýningar og
frjálsar íþróttir
Tölvumynd/Landmat
Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri Íþrótta- og sýningarhöll við hlið Laugardalshallar.
STJÓRN Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, FÍA, kom saman
til fundar í gær og sendi frá sér
ályktun í kjölfarið þar sem nið-
urstaðan í máli Árna G. Sigurðs-
sonar flugmanns er hörmuð og
hún sögð fráleit. Trúnaðarbrestur
milli FÍA og Þengils Oddssonar
fluglæknis sé enn til staðar og mál
flugmannsins enn óleyst.
Stjórn FÍA ítrekar um leið fyrri
ályktun frá 18. desember sl. þar
sem þess var m.a. krafist að Þengli
yrði vikið úr starfi vegna „ítrek-
aðrar valdníðslu“ gagnvart flug-
manninum í tengslum við útgáfu
og endurnýjun heilbrigðisvottorðs
hans og flugskírteinis. Í ályktun-
inni sem samþykkt var í gær seg-
ir:
„Nú hefur stjórnsýslunefnd
skipuð tveimur virtum lögmönnum
og landlækni, staðfest í einu og
öllu sjónarmið stjórnar FÍA. Þá
hefur samgönguráðherra áminnt
Flugmálastjórn og flugmálastjóri
áminnt trúnaðarlækni stofnunar-
innar og aðra þá starfsmenn sem
að máli flugmannsins komu. Með
þessu og endurráðningu trúnaðar-
læknisins telur flugmálastjóri sig
hafa leyst málið og því sér þar
með lokið af hans hálfu.
Þessa niðurstöðu telur stjórn
FÍA fráleita. Eftir stendur að
trúnaðarbresturinn er enn til stað-
ar og mál flugmannsins sem á var
brotið óleyst.
Stjórn FÍA harmar að málið hafi
ekki verið leyst í heild sinni, í sam-
starfi allra aðila þess.“
Stjórn FÍA ályktar
um mál flug-
mannsins
Niðurstað-
an fráleit
og málið
enn óleyst
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á fundi
í gærmorgun að fresta inntökupróf-
um í læknadeild um eitt ár í sam-
ræmi við samþykkt stjórnar lækna-
deildar frá því á mánudag.
Inntökupróf verða því haldin vorið
2003 en ekki nú í vor eins og til
stóð. Í samþykkt stjórnar lækna-
deildar segir m.a. að nokkur gagn-
rýni hafi komið fram frá ákveðnum
hópi stúdenta þar sem því væri
haldið fram að inntökuprófin væru
lítt undirbúin og að reglum varð-
andi þau hafi verið breytt eftir að
þær voru settar. „Þessu hefur verið
alfarið hafnað af hálfu Háskóla Ís-
lands og af Félagi læknanema,“
segir í samþykktinni.
„Nær allir aðilar sem hafa tjáð
sig um inntökuprófin, nemendur
sem kennarar og stjórnendur fram-
haldsskóla, telja þau stórt skref
fram á við. Samning prófsins er í
fullum gangi í samstarfi við kennara
framhaldsskólanna og var áætlað að
því yrði að fullu lokið í maí 2002.“
Á árlegum fundi með stjórnend-
um framhaldsskóla á mánudag kom
fram að framhaldsskólarnir hefðu
ekki náð að aðlagast breyttum að-
stæðum nægjanlega vel og kom
fram ósk um að inntökuprófunum
yrði frestað.
Stefán B. Sigurðsson, varaforseti
læknadeildar, segir að rök stjórn-
enda framhaldsskólanna hafi vegið
það þungt að ákveðið hafi verið að
fallast á þau og fresta inntökupróf-
unum. „Það er skilyrði fyrir góðu
inntökuprófi að eiga gott samstarf
við framhaldsskólana,“ segir Stefán.
Prófað úr ólesnu efni
í desember 2002
Stefán segir að í desember 2002
verði því samkeppnispróf sam-
kvæmt venju, en þó verði ekki próf-
að úr sama námsefni og áður í sam-
ræmi við ákvörðun þar að lútandi.
Prófað verði úr nýju efni, auk óles-
ins efnis, þ.e. almennri þekkingu,
siðferðilegum álitamálum o.s.frv., en
einkunn úr ólesnu efni mun gilda
allt að 30% af aðaleinkunn haust-
misseris. „Þetta verður hluti sam-
keppnisprófanna þannig að inntöku-
prófin verða tekin upp í tveimur
áföngum í stað eins,“ segir Stefán.
Gísli E. Haraldsson, formaður
Félags læknanema, segist sáttur við
frestunina enda muni læknanemum
gefast meiri tími til að knýja á um
lagfæringar í tengslum við prófunin.
„Læknadeild hafði lýst því yfir að
ekki yrðu haldin sjúkrapróf í nýju
inntökuprófunum, sem er rangt að
okkar mati og á því vildum við fá
leiðréttingu. Þá er ekki ljóst hvern-
ig próftökugjöldum verður háttað.
Þessi frestun gefur okkur því tíma
til að vinna betur í þessum málum,“
segir Gísli.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, for-
maður Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands, telur þetta skynsamlega
ákvörðun hjá Háskólaráði og að hún
hljóti að vera í góðri sátt við stúd-
enta. „Ég held að inntökuprófin
verði betri að ári þegar þessi tími
fæst til að undirbúa prófin,“ segir
hann.
Inntökuprófum í lækna-
deild frestað til 2003
Stúdentar og stjórnendur
framhaldsskóla vildu frestun
SÍÐASTLIÐINN mánudag mátti
sjá á fréttavef mbl.is nýja gerð
auglýsinga sem renna inn á skjá
notenda. Þessi auglýsing er sam-
starfsverkefni Sjóvár-Almennra,
fyrirtækisins Adlib og mbl.is og
er nýjung í auglýsingabirtingum.
„Við erum alltaf opnir fyrir því
að reyna nýjar gerðir auglýsinga
á mbl.is, sem gera Netið að eft-
irsóttari auglýsingamiðli,“ sagði
Hallgrímur Jónasson hjá netaug-
lýsingasviði mbl.is.
Áreiti auglýsingarinnar er stillt
í hóf með því að birta hana ein-
ungis einu sinni hverjum notanda
mbl.is. Auk þess getur notandinn
á öllum tímum lokað henni, slökkt
á tónlistinni sem fylgir eða farið
inná heimasíðu Sjóvár-Almennra
og fræðst nánar um Stofn.
„Auglýsingin hefur gefið okkur
mun meiri umferð inn á vef Sjó-
vár en aðrar netauglýsingar sem
við höfum birt,“ segir Vilhjálmur
Alvar vefstjóri Sjóvár-Almennra.
„Nokkuð hefur verið rætt um
misgóðan árangur auglýsinga á
Netinu. Ef eitthvað er þá afsann-
ar þessi auglýsing þá skoðun.“
Það var fyrirtækið Adlib sem
gerði auglýsinguna, en hún er
unnin upp úr nýjustu auglýsinga-
herferð Sjóvár-Almennra.
Ný gerð aug-
lýsinga á mbl.is
ÞAÐ skal áréttað vegna fréttar í
blaðinu sl. föstudag af umræðum í
borgarstjórn um veggskreytingar í
Árbæjarskóla að fram kom á borg-
arstjórnarfundinum sl. fimmtudags-
kvöld að Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri vissi ekki um að til
stæði að brjóta niður vegg með lista-
verki Veturliða Gunnarssonar.
Ákvörðun um það hefði verið tekin
án hennar vitundar og án þess að
borgarráði hefði verið gert viðvart.
Biðst blaðið velvirðingar á þessu
ranghermi.
Án vitundar
borgarstjóra
♦ ♦ ♦