Morgunblaðið - 13.02.2002, Síða 38
FRÉTTIR
38 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Eru mann-
réttindi
trúarbrögð?
FIMMTUDAGINN 14. febrúar nk.
kl. 20 mun Svanborg Sigmarsdóttir,
stjórnmálafræðingur, halda fyrir-
lestur á sameiginlegum fundi Fé-
lags stjórnmálafræðinga og Mann-
réttindaskrifstofu Íslands. Fundur-
inn verður haldinn á 4. hæð í
Reykjavíkurakademíunni, Hring-
braut 121, Reykjavík.
„Á undanförnum 20 árum hafa
stuðningsmenn mannréttinda í
heiminum unnið merka áfangasigra.
Einn sá stærsti er að svo til allir
taka því sem gefnu að mannréttindi
séu til og því hafa deilur um réttindi
manna frekar snúist um hver þau
eigi að vera en hvort þau séu yf-
irleitt til. Einn hópur manna hefur
skorið sig úr í þessu tilviki, en það
eru þeir sem leggja stund á stjórn-
málakenningar.
Í fyrirlestri sínum mun Svanborg
skoða afstöðu þessara fræðimanna,
leggja mat á gagnrýni þeirra á
kenningaleysi mannréttinda og
velta upp þeirri spurningu, hvort
það skipti einhverju máli að ekki
virðist hægt að sanna tilvist þeirra.
Ennfremur mun Svanborg fjalla um
þann mun, sem verði að vera á al-
gildum mannréttindum annars veg-
ar og mannréttindum sem háð eru
stjórnmálalegum ákvörðunum hins-
vegar. Loks mun hún spyrja hvort
mannréttindamál á Vesturlöndum
séu farin að hafa slæm áhrif á al-
menn stjórnmál.
Svanborg Sigmarsdóttir hefur
undanfarin ár stunda doktorsnám
við háskólann í Essex í Bretlandi.
Hún er nú stundakennari við Há-
skóla Íslands þar sem hún er með
fyrirlestra um mannréttindakenn-
ingar.
Fundurinn er öllum opinn og er
allt áhugafólk um mannréttindi
hvatt til mæta og taka þátt í um-
ræðunum,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þorrablót Vals
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Valur
heldur sitt árlega þorrablót í hátíð-
arsal Vals á Hlíðarenda föstudaginn
16. febrúar.
Blótið hefst með fordrykk kl. 19.
Miðaverð er 3.000 kr. Á dagskrá
verður meðal annars skemmtiatriði,
uppboð, ræðumaður kvöldsins,
fjöldasöngur og tónlistaratriði.
Miðasala fer fram í afgreiðslu
íþróttahúss Vals við Hlíðarenda.
Konur í krists-
hlutverkum í
kvikmyndum
ARNFRÍÐUR Guðmundsdóttir,
lektor við guðfræðideild, verður
með rabb á vegum Rannsóknastofu
í kvennafræðum næstkomandi
fimmtudag, 14. febrúar, í Norræna
húsinu kl. 12–13. Umræðuefnið er
konur í kristshlutverkum í kvik-
myndum.
„Í þessu rabbi verður fjallað um
einkenni kristsgervinga og tekin
dæmi af þekktum kvenpersónum í
tveimur nýlegum myndum, þeim
systur Helen í Dead Man Walking
og Bess í Breaking the Waves, en
báðar hafa þær oft verið nefndar
sem dæmi um kristsgervinga.
Færð verða rök fyrir því að systur
Helen megi réttilega kalla krists-
gerving, á meðan réttara væri að
tala um Bess sem neikvæðan
kristsgerving, sem gerir tilkall til
samanburðar við frásögn guð-
spjallanna en felur í sér andhverfu
við frelsunar- og kærleiksboðskap
Krists. Bess er holdgerving hefð-
bundinna hugmynda um fórnareðli
kvenna. Í Breaking the Waves er
fyrirmyndin af hinni fórnfúsu konu
upphafin, en þar koma einnig vel
fram þau skaðlegu áhrif sem kraf-
an um sjálfsfórn kvenna hefur oft
haft í för með sér,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Kjaradeilur
framtíð-
arinnar
UNGIR jafnaðarmenn efna til
fundar um kjaradeilur í vinnu-
markaðsskipan framtíðarinnar
fimmtudaginn 14. febrúar á ann-
arri hæð í Húsi málarans og hefst
hann klukkan 20.00. Umræðan
mun m.a. snúast um áhrif verk-
falla, hvort verkföll séu úrelt og
hvort aðrar og vænlegri leiðir séu
til að skapa þrýsting á lausn
harðra kjaradeilna. Fundarstjóri
verður Björgvin G. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Samfylkingar-
innar.
Frummælendur verða þeir Sig-
urður Bessason, formaður verka-
lýðsfélagsins Eflingar, Ari Ed-
wald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, og Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson, lektor í viðskipta-
fræði við Háskóla Íslands.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Múrverk — flísalagnir
Múrarameistarar geta bætt við sig
verkefnum.
Uppl. í símum 894 4556 og 891 9458.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði
til leigu
Höfum til leigu ýmsar gerðir og stærðir
af skrifstofu- og verslunarhúsnæði
í Reykjavík.
Allar upplýsingar veittar á skrifstofu
Eyktar í síma 595 4400.
Eykt ehf., Lynghálsi 4.
LÓÐIR
Byggingalóð
til sölu
Vorum að fá í einkasölu góða fjölbýlis-
húsalóð undir 18 íbúðir. Allar nánari
upplýsingar veitir Bárður Tryggvason
á Valhöll fasteignasölu.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Kirkjustígur 1, þingl. eig. Ingvi Rafn Guðmundsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, mánudaginn 18. febrúar 2002 kl. 13.00.
Suðurgata 46, þingl. eig. Rósa Jónsdóttir og Jósteinn Snorrason,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf., Sandblástur og málmhúðun
hf. og sýslumaðurinn á Siglufirði, mánudaginn 18. febrúar 2002
kl. 13.10.
Þormóðsgata 23, efri hæð, þingl. eig. Sigrún Ingólfsdóttir, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður Norðurlands, mánudaginn 18. febrúar 2002 kl.
13.20.
Vanefndaruppboð:
Hverfisgata 17, n.h., þingl. eig. Óli Brynjar Sverrisson, gerðarbeiðend-
ur Bifreiðar & landbúnaðarvélar hf., Lífeyrissjóður Norðurlands
og sýslumaðurinn á Siglufirði, mánudaginn 18. febrúar 2002 kl.
13.35.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
12. febrúar 2002.
Guðgeir Eyjólfsson.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Hús til sölu
Tilboð óskast í íbúðarhús á Breiðumýri (Lækn-
ishúsið), Reykjadal, S-Þing. Húsið er byggt
1944, steinsteypt á tveimur hæðum, samtals
259 m² auk 25 m² áfasts bílskúrs. Húsið þarfn-
ast viðgerðar. Áskilinn er réttur til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð-
um skal skila á skrifstofu Reykdælahrepps,
Kjarna, 650 Laugar, eigi síðar en 28. febrúar
2002.
Upplýsingar veittar í síma 464 3322, milli kl.
10 og 12 og 13 og 16.
Oddviti.
TILKYNNINGAR
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25.
gr. Skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint
deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á bæj-
arskrifstofu Borgarbyggðar frá
14. febrúar 2002 til 15. mars 2002.
Athugasemdum skal skila inn fyrir
2. apríl 2002 og skulu þær vera
skriflegar.
Borgarnesi, 4. febrúar 2002.
Bæjarverkfræðingur
Borgarbyggðar.
Tillaga að breytingu á
Svæðisskipulagi sveitarfé-
laganna norðan Skarðs-
heiðar 1997—2017
Hvammur í Skorradal
Sveitarstjórn Skorradalshrepps auglýsir skv.
2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi
sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997—
2017. Gerð er tillaga um breytingu á landnotk-
un þannig að svæði fyrir sumarbústaðabyggð
breytist í svæði fyrir frístundabyggð (23 lóðir,
17,5 ha). Sveitarstjórn bætir það tjón sem ein-
stakir aðilar kunna að verða fyrir við breyting-
una. Tillagan hefur verið send sveitarstjórn
Borgarfjarðarsveitar til kynningar. Tillagan
verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu
til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna
geta snúið sér til oddvita Skorradalshrepps,
Grund.
Deiliskipulag: Hvammsskógur, Skorradal
Sveitarstjórn Skorradalshrepps samþykkti
þann 1. febrúar sl. tillögu að deiliskipulagi
Hvammsskóga, sem er frístundasvæði í landi
Hvamms í Skorradal Tillagan var auglýst þann
17. nóvember og og lá frammi til kynningar
til 19. desember sl. Frestur til að skila athuga-
semdum rann út 2. janúar sl. og barst engin
athugasemd innan þess tíma. Ein athugasemd
barst eftir auglýstan frest. Sveitarstjórn hefur
afgreitt athugasemdina. Vegna athugasemdar-
innar var gerð sú breyting á skipulagstillögunni
að byggingarreitur á skógræktarsvæði var
felldur brott og skógræktarlóð og tvær frí-
stundalóðir einnig felldar brott.
Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofn-
un til athugunar sem mun gera athugasemdir
ef form- og/eða efnisgallar eru á því. Deiliskipu-
lagið hlýtur gildi við auglýsingu í B-deild
Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um deiliskipu-
lagið og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið
sér til skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps, Ólafs
Guðmundssonar, Hrossholti.
Grund, 8. febrúar 2002.
Oddviti Skorradalshrepps.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 1822138 9.0.*
GLITNIR 6002021319 I
I.O.O.F. 7 1822137½ FI.
I.O.O.F. 9 1822137½ ÞB.K
HELGAFELL 6002021319 IV/V
Frl.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Samkoma í Kristniboðssaln-
um í kvöld kl. 20:30. Jónas
Þórisson segir frá nýlegri ferð til
Eþíópíu. Kristín Bjarnadóttir flyt-
ur hugleiðingu. Allir hjartanlega
velkomnir.
sik.is.
Myndasýning í FÍ-salnum mið-
vikud. 13. febrúar 2002 kl. 20.30.
Gísli Már Gíslason fjallar um
Þjórsárver og Ína Gísladóttir
um Austfirði, einkum Gerpis-
svæðið. Allir velkomnir, kaffi-
veitingar í hléi, verð 500. Félagar
fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Sunnudagur 17. febrúar.
Bláfjöll — Grindaskörð, 3—4
klst. ganga. Fararstjóri Björn
Finnson. www.fi.is, textavarp
RUV bls. 619.