Morgunblaðið - 20.03.2002, Qupperneq 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKR og Keflavík unnu
oddaleikina / B2
Houllier kom, sá og sigraði / B2
4 SÍÐUR
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
„Skaginn skorar“
frá atvinnumála-
nefnd á Akranesi.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í
dag fylgir auglýs-
ingablaðið
„Í snertingu við
þig og þína“ frá
Símanum.
Blaðinu verður
dreift á höfuð-
borgarsvæðinu.
RANNSÓKNARNEFND flugslysa,
RNF, gerir athugasemdir við ýmis-
legt sem lýtur að viðbúnaði og verk-
lagi við björgunaraðgerðir á Reykja-
víkurflugvelli. Nefndin telur á hinn
bóginn að ekki þurfi að rannsaka að
nýju björgunarþátt flugslyssins þeg-
ar flugvélin TF-GTI fórst í Skerja-
firði 7. ágúst 2000 og að mati nefnd-
arinnar hefðu viðbragðsaðilar
naumast getað staðið betur að því að
auka möguleika hinna slösuðu til að
komast af.
Samgönguráðherra beindi tilmæl-
um til RNF í ágúst 2001 um að
nefndin skoðaði frekar björgunar-
þátt slyssins. Tveir sérfræðingar
voru kallaðir til af nefndinni sam-
kvæmt ábendingu landlæknis, lækn-
arnir Jón Baldursson og Sigurður Á.
Kristinsson. Við skoðun nefndarinn-
ar komu fram vísbendingar um
nauðsyn á úrbótum á viðbúnaði og
verklagi á Reykjavíkurflugvelli og
gerði nefndin eftirfarandi athuga-
semdir:
Í fyrsta lagi að þjónustusamning-
ur milli Flugmálastjórnar og
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
taki ekki til reksturs köfunarþjón-
ustu en á síðustu árum hafi orðið
þrjú banaslys orðið við flugvöllinn á
12 ára tímabili þar sem flugvélar
hafa lent í sjónum.
Í öðru lagi styður RNF mat þeirra
sérfræðinga sem fengnir voru nefnd-
inni til aðstoðar, að þyrla Landhelg-
isgæslunnar hefði ekki breytt neinu
um afdrif hinna slösuðu. Þyrlan hefði
á hinn bóginn átt að vera sett strax í
viðbragðsstöðu.
Endurskoða þarf neyðaráætlun
fyrir Reykjavíkurflugvöll
Þá gerir RNF athugasemd við að
gátlistar Flugmálastjórnar hafa ekki
verið uppfærðir í samræmi við þjón-
ustusamning Flugmálastjórnar við
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
RNF telur þörf á endurskipulagn-
ingu neyðaráætlunar fyrir Reykja-
víkurflugvöll þar sem m.a. verði farið
yfir forgangsröðun á útkallslistum
og verklagsreglur varðandi boðun
viðbragðsaðila gerðar markvissari.
Að lokum leggur RNF áherslu á
að stærri björgunarbáturinn á
Reykjavíkurflugvelli verði endur-
nýjaður sem fyrst en þegar slysið
varð var hann ónothæfur.
Samgönguráðuneytið hefur ritað
Flugmálastjórn bréf og farið fram á
að neyðaráætlun fyrir Reykjavíkur-
flugvöll og samstarfssamningur við
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
verði endurskoðuð með tilliti til
ábendinga RNF. Ráðuneytið hefur
einnig ritað Landhelgisgæslunni og
yfirstjórn leitar og björgunar á haf-
inu og við strendur Íslands bréf, þar
sem vakin er athygli á athugasemd-
um RNF.
Telur ekki þurfa að rannsaka á ný björgunarþátt flugslyssins í Skerjafirði
Athugasemdir lúta að
viðbúnaði og verklagi
SKÚFENDUR sjást nú á Tjörninni í
Reykjavík, en endur þessar eru far-
fuglar og því líklega fyrstu farfugl-
arnir sem svamla um Tjörnina
þetta vorið. Skúfönd er náskyld
duggönd og er oft kölluð litla dugg-
önd. Mývatn er kjörlendi hennar
hér og koma þær hingað til lands
eftir vetrardvöl á hlýrri slóðum í
lok mars og fram í miðjan apríl.
Skúfendurnar á Tjörninni eru því á
hárréttum tíma og eiga félagar
þeirra væntanlega eftir að fylgja í
kjölfarið á næstu dögum og vikum.
Ljósmynd/Högni Brekason
Hér sést skúfandarsteggur nálgast kollu varfærnislega eins og sönnum „herrasteggi“ sæmir.
Buslandi skúfendur
KJELL Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, og Davíð Oddsson,
forsætisráðherra ræddu stöðu Evr-
ópuumræðunnar á Íslandi í símtali í
fyrradag.
Hafði Bondevik hringt í Davíð í til-
efni af fréttum í norskum fjölmiðlum
af skoðanakönnun sem gerð var fyrir
Samtök iðnaðarins en 91% þeirra
sem svöruðu vildu að íslensk stjórn-
völd hæfu aðildarviðræður við Evr-
ópusambandið til að ganga úr
skugga um hvað Íslandi stendur til
boða við aðild. 51% var hlynnt því að
ganga í sambandið.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Davíð að Bondevik hafi hringt í
sig í kjölfar misvísandi frétta í
norskum fjölmiðlum af skoðana-
könnuninni. Í norsku blöðunum hafi
lengi farið lítið fyrir Evrópuumræðu
en nú bærust fregnir af því að Ísland
væri á fleygiferð inn í Evrópusam-
bandið.
„Ég sagði honum að þetta væri
misskilningur, það hefði komið ein
skoðanakönnun sem mikið hefði ver-
ið gert úr af tilteknum samtökum
hér og stærsta spurningin þar hefði
verið almenn spurning sem menn
hefðu nú gert ráð fyrir að allir gætu
svarað játandi. En spurningin um
aðild hefði ekki verið gerð með raun-
verulegum fórnarkostnaði inni í
spurningunni, eins og væri auðvitað
nauðsynlegt til að fá almennilega
niðurstöðu. Því það er 99% þekkt
hvað út úr samningum við Evrópu-
sambandið kemur. Það er alltaf látið
að því liggja að út úr því kæmu ný og
ókönnuð svör sem er reginmisskiln-
ingur. Flestir þeir sem halda hinu
gagnstæða fram vita miklu betur.
Ég sagði honum að það væri engin
breyting á stefnu íslenskra stjórn-
valda og ekki fyrirsjáanlegt að Ís-
land færi að sækja um aðild að Evr-
ópusambandinu næstu 5 eða 10
árin,“ sagði Davíð en hann telur að
Bondevik hefði verið ánægður með
þau svör sem hann fékk.
Nánar spurður um hvort ekki hafi
verið rétt spurt í skoðanakönnuninni
svaraði Davíð að þegar spurt væri
um þetta efni yrði að spyrja þannig
að gagn væri af niðurstöðunum.
Spyrja þyrfti hvaða fórnarkostnað
menn væru tilbúnir til að sætta sig
við. Reynsla annarra þjóða, t.a.m.
Norðmanna, sýndi að fjöldi þeirra
sem hafi verið fylgjandi inngöngu í
ESB hafi iðulegu lækkað um 15–20%
þegar niðurstaða aðildarviðræðna
við ESB lægi fyrir. Samkvæmt því
yrði stuðningur við aðild hér á landi
um 20–30% að loknum viðræðum.
Spurður um hvort þátttakendur í
skoðanakönnuninni hafi ekki haft
nægjanlegt vit á málefninu til að
svara spurningunni af þekkingu
sagðist Davíð ekki gera ráð fyrir því
þar sem svo mikill munur reyndist
vera á þeim sem vildu hefja viðræð-
ur og þeim sem vildu ganga inn í
sambandið. Langflestum virtist vera
óljóst hvað hér væri á ferðinni. Ekki
mætti taka niðurstöður skoðana-
könnunarinnar of hátíðlega.
Davíð Oddsson ræddi við Kjell Magne
Bondevik í tilefni skoðanakönnunar
Engar breyt-
ingar á stefnu
stjórnvalda
LÖGREGLAN í Breiðholti hafði í
gærmorgun uppi á peningaskáp sem
var stolið úr verslun Samkaupa í
Vesturbergi með einstaklega bí-
ræfnum hætti síðdegis á sunnudag.
Tveir piltar fjarlægðu peningaskáp-
inn, sem vegur um 100 kíló, á af-
greiðslutíma verslunarinnar og óku
með hann á brott. Skápurinn er
býsna þungur en væntanlega hafa
hjólin sem eru undir skápnum auð-
veldað verkið.
Enginn varð var við þjófana sem
lögreglu þykir með talsverðum ólík-
indum. Jafnan er mikil umferð um
bifreiðastæðið við verslunina en að
auki snýr fjöldi íbúða að versluninni
þar sem piltarnir fóru út með skáp-
inn.
Þrátt fyrir fáar vísbendingar í
upphafi komst lögregla fljótlega á
sporið. Fyrir hádegi í gærmorgun
voru tveir piltar, 16 og 17 ára gamlir,
handteknir og gengust þeir við
þjófnaðinum. Vísuðu þeir lögreglu á
skápinn sem þeir höfðu brotið upp og
stolið úr honum 170.000 krónum en
skilið eftir greiðslukortanótur og
ávísanir. Á tæplega tveimur sólar-
hringum höfðu þeir eytt fénu að
mestu.
Bíræfinn
þjófnaður
upplýstur
Morgunblaðið/Júlíus
Þorfinnur Finnsson varðstjóri
og Jóhannes Viggósson.
HAGKAUP hafa flutt inn tolla-
lausar agúrkur frá Hollandi, en
sala þeirra hefst í dag og er um
20% verðlækkun frá fyrra verði að
ræða.
Finnur Árnason, framkvæmda-
stjóri Hagkaupa, segir að inn-
flutningurinn hafi verið ákveðinn
til að sjá á hvaða verði þessar
tollalausu agúrkur fengjust og
ljóst væri að miðað við sömu
álagningu væri hægt að bjóða þær
á um 20% lægra verði en hægt
hafi verið fram til þessa. Kílóið
kostar nú 149 krónur en var 189
krónur.
Hagkaup lækka
agúrkuverð um 20%