Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 60
BELTAFLOKKUR Hjálparsveitar skáta í Reykjavík gróf aðra flugvél- arskrúfu úr Eyjafjallajökli um síð- ustu helgi. Var það úr B-17 sprengjuflugvél sem gjarnan er kölluð „Fljúgandi virki“ en hún brotlenti hátt í norðanverðum jökl- inum í aftakaveðri 16. september 1944. Tíu manna áhöfn vélarinnar hafðist við á jöklinum í tvo daga en komst af sjálfsdáðum niður að innsta bæ í Fljótshlíð eftir að hafa vaðið Markarfljót. Á rúmlega þriggja metra dýpi var komið niður á eitt skrúfublaðið og tók fimm klukkustundir að höggva skrúfuna upp úr ísnum. Skrúfublöð- in eru talsvert bogin enda gekk mik- ið á í brotlendingunni. Þetta er önn- ur skrúfa vélarinnar sem næst upp úr jöklinum en í fyrravetur náði sami hópur fyrstu skrúfunni upp. Grófu flug- vélarskrúfu úr jökli Ljósmynd/Árni Alfreðsson MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ERLENDUR Einars- son, sem í rúma þrjá áratugi var forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, SÍS, lést á Landakotsspítala í Reykjavík sl. mánudag. Með honum er genginn einn áhrifamesti for- ystumaður í viðskiptalíf- inu hér á landi á seinni hluta 20. aldarinnar. Erlendur fæddist í Vík í Mýrdal 30. mars árið 1921 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Einar Erlendsson skrifstofumaður og Þor- gerður Jónsdóttir húsfreyja. Eftir skólagöngu í Vík stundaði Erlendur nám við Samvinnuskólann í Reykja- vík 1939 til 1941, var í bankanámi í New York 1944 til 1945, stundaði nám í vátryggingum hjá CIS í Manchester og Lloyds í London árið 1946 og nam við Harvard Business School í Banda- ríkjunum árið 1952. Árin 1936 til 1946 starfaði hann hjá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík og í Landsbanka Íslands. Þá hóf hann störf hjá SÍS þar sem hann vann að stofnun Samvinnutrygginga og varð þar framkvæmdastjóri. Erlendur var ráðinn forstjóri SÍS í ársbyrjun 1955 og gegndi því starfi til hausts 1986 er hann hætti fyrir aldurs sakir. Erlendur gegndi fjölda trúnaðarstarfa í stjórnum félaga á er- lendum vettvangi. Hér heima fyrir var hann stofnandi margra fyrir- tækja og sjóða innan samvinnuhreyfingar- innar. Á meðan hann gegndi starfi forstjóra SÍS var hann stjórnar- formaður Samvinnu- trygginga, Samvinnu- lífeyrissjóðsins, Regins hf., Iceland Seafood í Bandaríkjunum og Iceland Seafood í Bretlandi. Þá beitti hann sér fyrir stofnun Osta- og smjörsölunnar árið 1958, var einn af stofnendum Sam- vinnusparisjóðsins árið 1954, Sam- vinnubankans árið 1962, Samvinnu- sjóðsins árið 1982 og Samvinnuferða. Þá gegndi hann ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Framsóknarflokkinn og sinnti ýmsum öðrum félagsstörfum. Eftirlifandi eiginkona Erlends er Margrét Helgadóttir frá Seglbúðum í Landbroti. Börn þeirra eru Helga, meinatæknir í Reykjavík, Edda, pí- anóleikari í París, og Einar, ljós- myndafræðingur í Reykjavík. Erlendur Einarsson látinn Erlendur Einarsson Í NÝRRI skýrslu heilbrigðisráðu- neytisins er gert ráð fyrir að á ár- unum 2002–2007 verði hjúkrunar- rýmum á landinu fjölgað um 400–450, þar af 350 á höfuðborgarsvæðinu. Lagt er til að þetta verði gert til að mæta mjög brýnni þörf fyrir vistun aldraðra í hjúkrunarrými eins og hún birtist í vistunarskrám. Inni í þessari áætlun eru 92 hjúkrunarrými í Sól- túni í Reykjavík sem þegar hafa ver- ið tekin í notkun. Á sama tímabili er lagt til að dagvistarrýmum verði fjölgað um 135 á landinu öllu. Áætl- aður kostnaður við framkvæmdir og rekstur nýrra hjúkrunar- og dagvist- arrýma á tímabilinu nemur tæpum 6,6 milljörðum króna. „Það er brýn- ast að reyna að vinna að þeim biðlist- um eftir hjúkrunarrými sem eru á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við höfum skoðað ýmsar leiðir, til dæmis hvort Vífilsstaðir henti undir öldrun- arþjónustu en engar ákvarðanir hafa verið teknar.“ Skýrslan hefur þegar verið kynnt í ríkisstjórn og verður væntanlega tekin fyrir á Alþingi á næstunni. Sköpuð verði skilyrði til að fólk geti búið lengur heima Í skýrslunni kemur fram að verði unnt að efla þjónustu við aldraða ut- an stofnana og skapa á þann hátt skilyrði til þess að fólk geti búið leng- ur heima, megi gera ráð fyrir að á tímabilinu 2008–2010 verði nægilegt að taka í notkun 20–30 ný hjúkrunar- rými árlega. Í áætluninni er að auki gert ráð fyrir endurnýjun og endur- bótum á eldri hjúkrunarheimilunum. Stefnt er að því að ekki hærra hlutfall en 25% þeirra sem eru 80 ára og eldri séu vistaðir á öldrunarstofnunum, sem er þó hærra hlutfall en hjá flest- um nágrannaþjóðunum. Þá segir í skýrslunni að eitt stærsta vandamál Landspítala – há- skólasjúkrahúss sé að hjúkrunar- sjúklingar vistast oft of lengi á dýr- ustu og sérhæfðustu deildum sjúkra- húsanna vegna þess að ekki eru til staðar viðeigandi úrbætur fyrir þá. Því sé skjótra úrlausna þörf til að tryggja eðlilega tilfærslu sjúklinga innan heilbrigðiskerfisins. Áætlun um uppbyggingu öldrunarþjónustu næstu sex árin Gert ráð fyrir 400–450 nýjum hjúkrunarrýmum  Vantar/6 TF-SÝN, flugvél Landhelgisgæsl- unnar, fór í gær í eftirlits- og ís- könnunarflug úti fyrir Vest- fjörðum og Norðurlandi. Með í för var ljósmyndari Morgunblaðsins og nokkrir landfræðinemar á lokaári sem gerðu ýmsar athug- anir. Flugstjóri var Sigurjón Sverrisson. Þéttleiki ísbrúnarinnar var mikill norðvestur af landinu en minnkaði eftir því sem austar dró. Ísbrúnin var næst landi norð- vestur af Kögri á Ströndum, 28 sjómílur. Skyggni var með besta móti en ekki sá þó fyrir endann á hafísnum sem teygði kaldar krumlur sínar langt yfir Græn- landssundið. Landhelgisgæslu- menn sáu þrjá borgarísjaka en engum sögum fór af ísbjörnum. Morgunblaðið/Golli Hafís svo langt sem augað eygir GERT er ráð fyrir að hagvöxtur fari aftur af stað á næsta ári og gott jafnvægi verði komið á í þjóðarbú- skapnum í heild, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar. Samkvæmt mati Þjóðhagsstofn- unar eru horfur á að landsfram- leiðslan dragist saman um ½% á árinu 2002, en áætlað er að hag- vöxtur 2001 hafi verið 3%. Sam- dráttur í framleiðslu kemur fram í auknu atvinnuleysi og er gert ráð fyrir að atvinnuleysi verði 2,3% að meðaltali í ár en það var 1,4% í fyrra. Katrín Ólafsdóttir, forstöðumaður þjóðhagsspár hjá Þjóðhagsstofnun, segir að aðlögun að nýju jafnvægi hafi hafist á fyrri hluta árs 2001, haldi áfram á þessu ári og vænt- anlega taki hagvöxtur við sér að nýju þegar komi fram á næsta ár. Að sögn Katrínar Ólafsdóttur hef- ur aðlögunin gerst hraðar en gert hafði verið ráð fyrir. Það birtist best í því að viðskiptahallinn fari úr um 10% af landsframleiðslu í um 4,5%, sem sé mjög mikil breyting á einu ári. Þjóðhagsstofnun geri ráð fyrir að viðskiptahallinn verði enn minni á líðandi ári eða um 2% af lands- framleiðslu, sem séu líka góðar fréttir. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann eykst enn og er áætlað að hann aukist í ár en gangi það eftir verður það áttunda árið í röð sem kaupmáttur eykst. Áætlað er að innflutningur hafi minnkað um tæp 8% 2001 og líkur eru á að hann minnki um 3 til 4% í ár. Hins vegar jókst útflutningur um 7½% í fyrra og horfur eru á að hann aukist um 2% í ár. Samkvæmt spánni eru vísbend- ingar um að verðbólga minnki á næstu mánuðum. Þjóðhagsstofnun spáir að verðlag hækki um 2,6% á árinu og um 5,2% milli áranna 2001 og 2002. Ný þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar Aukinn kaup- máttur áttunda árið í röð  Horfur/26 Fékk hurðarhún í gegnum handlegginn DRENGUR á þrettánda ári, sem dvaldist ásamt skólafélögum í skóla- búðum að Reykjum í Hrútafirði, fékk hurðarhún í gegnum handlegginn og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús í Reykjavík í gær. Lögreglan á Blönduósi fékk tilkynningu um slysið laust fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. Þegar hún kom á staðinn var þegar kominn sjúkrabíll á vettvang. Hurð- arhúnninn fór, samkvæmt upplýsing- um lögreglu, inn um olnbogabót og í gegnum handlegginn. Drengurinn var í skólabúðunum ásamt skólafélög- um úr skóla í Reykjavík. Ekki er vitað um tildrög slyssins. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.