Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 51
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir innsæi og skiln-
ingi og átt auðvelt með að
ávinna þér traust.
Það er kominn tími
á breytingar í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag ættirðu að setja sjálfan
þig í forgang. Það er ekki eig-
ingirni því þú þarft að end-
urhlaða batteríin fyrir árið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Mars er í merki þínu og það
gerir þig mjög kraftmikinn.
Þú ættir þó að hvíla þig og
fara þér hægt því það hentar
þér best.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú nýtur þess að ræða vonir
þínar og framtíðardrauma við
vin þinn. Viðbrögð hans við
áætlunum þínum geta orðið
þér mikil hvatning.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður hugsanlega beðinn
um að gera eitthvað sem mun
vekja á þér athygli. Hikaðu
ekki við að taka á þig aukna
ábyrgð því þú munt standa
undir henni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hugmyndir um að víkka sjón-
deildarhringinn með ferða-
lögum eða framhaldsmennt-
un eru góðir kostir. Vertu
hugrakkur og ævintýragjarn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn hentar vel til að
huga að skuldum, reikning-
um, tryggingamálum og því
sem viðkemur erfða- og fast-
eignamálum. Þú þarft að
huga að þessum málum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver náinn þér getur
kennt þér eitthvað mikilvægt
um sjálfan þig í dag. Slakaðu
á, þessi einstaklingur vill þér
aðeins það besta og þú átt eft-
ir að þakka honum fyrir
ábendinguna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fylgdu hugboði þínu og
komdu skipulagi á atvinnu-
og einkalíf þitt. Hreinsaðu út
úr skápum, raðaðu í hillur og
losaðu þig við það sem þú ert
hættur að nota.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skipuleggðu boð eða veislu.
Þú hefur ríka þörf fyrir að
skemmta þér og vera með
öðrum. Láttu verða af því.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir að kaupa eitthvað
nýtt til heimilisins eða gera
eitthvað til að lyfta þér upp.
Það veitir þér ánægju að eiga
fallegt heimili og góða fjöl-
skyldu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Settu þig í samband við
systkini þín eða aðra ættingja
og segðu þeim hve miklu máli
þau skipta þig. Við látum allt
of oft hjá líða að segja þessa
hluti hreint út.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vertu óhræddur við að fram-
kvæma snjallar fjáröflunar-
hugmyndir þínar. Þú munt
sjá að hæfileiki þinn til að láta
þig dreyma getur skilað ríku-
legum árangri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20.
mars, er fimmtugur Konráð
Þórisson fiskifræðingur,
Blesugróf 17, Reykjavík.
Hann heldur upp á afmælið
með eiginkonu sinni, Mar-
gréti Auðunsdóttur, síðar á
árinu. Þau hjónin ætla því að
forðast höfuðborgina í dag.
70 ÁRA afmæli. Í dag, miðvikudaginn 20. mars, er sjö-tugur Haukur Gíslason, hárskeri, Garðavík 3, Borg-
arnesi. Eiginkona hans, Hanna Þ. Samúelsdóttir, verður sjö-
tug nk. föstudag 22. mars. Í tilefni þessa taka þau á móti
ættingjum og vinum laugardaginn 23. mars kl. 15-18 í Fé-
lagsbæ, Borgarnesi.
LJÓÐABROT
PASSÍUSÁLMUR NR. 51
Á Valhúsahæðinni
er verið að krossfesta mann.
Og fólkið kaupir sér far
með strætisvagninum
til þess að horfa á hann.
Það er sólskin og hiti,
og sjórinn er sléttur og blár.
Þetta er laglegur maður
með mikið enni
og mógult hár.
Og stúlka með sægræn augu
segir við mig:
Skyldi manninum ekki leiðast
að láta krossfesta sig?
Steinn Steinarr
1. d4 e6 2. Rf3 c5 3. c3 Rf6 4.
Bg5 b6 5. e3 Be7 6. Rbd2
Bb7 7. Bd3 h6 8. Bh4
cxd4 9. exd4 Rh5 10. Bg3
Rxg3 11. hxg3 d6 12. De2
Rd7 13. O-O-O Dc7 14.
Kb1 a6 15. Hc1 b5 16. g4
g5 17. Re4 Bxe4 18. Bxe4
d5 19. Bd3 Df4 20. g3
Dd6 21. Hh3 Kf8 22. Re5
Bf6 23. f4 Kg7 24. Hch1
Haf8
Staðan kom upp á
Reykjavíkurskákmótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Björn Þorfinnsson
(2279) hafði hvítt gegn
Ingólfi Gíslasyni
(1790). 25. Hxh6! Hfg8 Ekki
gekk upp að leika 25... Hxh6
þar sem eftir 26. Hxh6 Kxh6
27. Dh2+ mátar hvítur í
næsta leik. 26. Hxh8 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hvað er öruggur trompslag-
ur í vörn? Ásinn er vissulega
öruggur slagur, svo og KD
og DG10. En hvað með
109xxx?
Norður
♠ DG
♥ Á10742
♦ DG62
♣Á5
Vestur Austur
♠ -- ♠ 109653
♥ KG863 ♥ 9
♦ 10975 ♦ Á843
♣G873 ♣D102
Suður
♠ ÁK8742
♥ D5
♦ K
♣K964
Suður spilar sex spaða og
vestur kemur út með tígul.
Austur tekur á ásinn og spil-
ar trompi um hæl, gjörsam-
lega áhyggjulaus. En fær
austur örugglega slag á
tromp?
Svo virðist vera við fyrstu
sýn, en lítum betur á. Sagn-
hafi tekur á DG í tígli og
hendir hjarta og laufi heima.
Trompar því næst tígul. Þá
spilar hann hjarta á ásinn og
stingur hjarta, en austur
hendir laufi. Laufkóngur og
ás eru næst lagðir inn á bók
og síðan er hjarta spilað úr
borði í þessari stöðu:
Norður
♠ D
♥ 1074
♦ --
♣--
Vestur Austur
♠ -- ♠ 10965
♥ KG ♥ --
♦ -- ♦ --
♣G8 ♣--
Suður
♠ ÁK8
♥ --
♦ --
♣6
Það ber ekki á öðru en að
trompslagur austurs sé horf-
inn. Ef hann stingur með ní-
unni, yfirtrompar sagnhafi,
trompar lauf með drottningu
og fær tvo síðustu slagina á
Á8 með trompbragði.
Já, það er fátt öruggt í
þessum heimi.
Með morgunkaffinu
Ég hætti að hafa
áhuga á stjórn-
málum þegar það
rann upp fyrir
mér að minn
flokkur tapaði
alltaf, sama hver
hann var.
Pennavinir í Japan. Þeir
sem hafa áhuga á að eignast
japanska pennavini sem
skrifa á ensku geta sent
nöfn sín og heimilisföng til:
International
Pen Friend Club,
c/o Kiyohisa Fukuda,
124 Nishihirajima,
Okayama,
709-0633,
Japan.
AKIKO, sem er 25 ára
gömul frá Japan, óskar eftir
íslenskum pennavini.
Áhugamál hennar eru bréfa-
skriftir, kvikmyndir, köfun
og eldamennska. Hún skrif-
ar á ensku.
Akiko Ikeda,
234Gou K2Tou
2Gou 3 Ban
1Choume I segaoka
Fukuyama-Shi,
Hiroshima 721-0915,
Japan.
JOSÉ, sem er 75 ára gam-
all Spánverji, óskar eftir ís-
lenskum pennavini. Áhuga-
mál hans er að safna og
skiptast á notuðum símkort-
um.
José Bermejo,
Paseo de Hériz 19,
20008 San Sebastian,
Spain.
WILL, sem er 10 ára
bandarískur drengur, og er
að læra um Ísland, óskar
eftir að skrifast á við ís-
lenskan dreng á svipuðu
reki.
Will Hoover,
681 W. Louther St.
Carlisle PA,
USA 17103.
Pennavinir
Ég vil þakka öllum þeim, sem glöddu mig á
85 ára afmæli mínu þann 27. febrúar sl.
Margrét Sigurjónsdóttir,
Vesturgötu 22.
BÆNDAFERÐIR
Símanúmer okkar eru: 533 1335 og 588 6506
BÆNDAFERÐIR ehf., Byggðarenda 2
Laus sæti eru enn í eftirtaldar
Bændaferðir árið 2002.
VOR 1 Ulm - Riva við Gardavatn - Svartiskógur
12. til 22. apríl – 4 sæti
SUMAR 1 Alsace í Frakklandi - Sviss - Riva við
Gardavatn - Tyról í Austurríki - Svartiskógur
3. til 16. júní - 12 sæti
SUMAR 4 Austurríki - Ungverjaland - Tékkland -
Þýskaland 10. til 23. júní - 8 sæti
SUMAR 6 Berlín og Pólland 14. til 27. júní (3 nætur í Berlín) -
7 sæti
SUMAR 7 Austurríki (Týról) Riva og Lugano í Sviss
24. júní til 7. júlí 8 - sæti
SUMAR 9 sama áætlun og í SUMAR 7 19. ágúst til
1. sept. 14 - sæti
SUMAR 10 Austurríki - Ungverjaland - Tékkland -
Þýskasland 26. ágúst til 8. sept. 6 - sæti
SUMAR 11 Austurríki (Týról) - Sviss - Svartiskógur
26. ágúst til 8. sept. - 14 sæti
SUMAR 12 Salzborg - Portoroz - Brixen í S-Tyról
7. til 21. júlí 6 - sæti
HAUST 2 Þýskaland – Riva við Gardavatn 15. til 25. okt. -
17 sæti
HAUST 3 Rín og Mosel í Þýskalandi 27. okt. til 3. nóv. -
32 sæti
Í eftirtöldum ferðum eru biðlistar:
VOR 2, SUMAR 2, 3, 8 OG HAUST 1
Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í okkar Bændaferðum í ár
þá er um að gera að hafa samband sem allra fyrst.
Enn einu sinni viljum við hjá Bændaferðum minna á að
“Úrvals bændaferðir” eru okkur óviðkomandi, við
leggjum ekki til fararstjóra eða höfum nokkurn
skapaðan hlut að gera með þær ferðir.
Hverfisgötu 78, sími 552 8980 Opið frá kl. 11–18
Verslunin hættir
Verðhrun
Allt á
að seljast
FRÉTTIR
AÐFARANÓTT síðastliðins
sunnudags, hinn 17. mars, laust
fyrir kl. 3 varð karlmaður fyrir
slysi þar sem hann var staddur í
Austurstræti á móts við Subway
og meiddist á fæti. Ekki er ljóst
hvort þarna var um umferðarslys
að ræða eða ekki.
Þeir sem urðu vitni að um-
ræddu atviki eru beðnir að hafa
samband við lögregluna í Reykja-
vík.
Lýst eftir vitnum