Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ alt, stofnað 1988. Unglingastarfið hefur verið í algerum forgangi hjá okkur og unglingaflokkarnir hjá okkur eru feiknarlega sterkir og auðvitað stefnum við að því að vera með meistaraflokk í fremstu röð.“ Kjartan tekur undir með Kristni og segist telja að Fjölnir verði næsta stórveldið í knattspyrnu. Bjarni segir að það sem hafi dregið sig inn í íþróttastarfið sé að- allega það að hann sé með börn sem eru í íþróttum og bæði Krist- inn og Kjartan taka undir það: „Já, maður lítur á það sem hálfgerða skyldu að afplána nokkur ár í þessu.“ Aðspurður játar Kristinn að nokkuð hafi verið um að félögin hafi misst góða leikmenn úr yngri flokkum yfir í eldri félögin en það sé þó að mestu liðin tíð. Kjartan segir þetta ekki hafa verið vanda- mál hjá Fylki, Árbærinn sé rótgró- ið hverfi og foreldrar og leikmenn hafa yfirleitt verið ákveðnir í að halda tryggð við félagið. Því sé hins vegar ekki að neita að und- anfarin ár hafi margir bestu strák- arnir í Fylki farið utan til þess að leika knattspyrnu. Góð aðstaða en ekki nógu margir iðkendur Bjarni segir að hjá Ungmenna- félagi Laugdæla séu starfandi nokkrar deildir, s.s. bolta- og skák- deild, fimleika- og frjálsíþrótta- deild auk þess sem Laugdælir hafi lengi átt sterka glímumenn. Hann segir aftur á móti að blakið tilheyri glæstri fortíð og vissulega EKKI vantar íþróttaáhugann hjá þeim bræðrum Kristni, Kjartani og Bjarna Daníelssonum en allir eru þeir formenn hjá íþróttafélögum. Hver í sínu félagi reyndar. Kristinn er formaður knatt- spyrnudeildar Fjölnis í Grafarvogi, Kjartan er formaður knattspyrnu- deildar Fylkis í Árbænum en Bjarni er formaður Ungmenna- félags Laugdæla. Þeir bræður segja ljóst að lítil samstaða sé hjá þeim um stuðning við íþróttafélög. Kristinn segist hafa taugar til Víkings og Vest- mannaeyinga og Kjartan til Vals og Vestmanneyinga og Bjarni til Vals; allir eru þeir aldir upp í Vals- hverfinu en Kristinn þó fæddur í Vestmannaeyjum. „Það hefur aldr- ei hvarflað að mér að halda með Val,“ tekur Kristinn fram. Bræð- urnir segja að tiltölulega lítið sé rætt um íþróttir í fjölskylduboðum. „Það eru svo margir í fjölskyldunni sem hafa engan áhuga á íþróttum. Þannig að við drögum okkur út í horn til þess að tala um fótbolta eða íþróttir. Og ef það er góður leikur í sjónvarpinu er ekki slökkt á því.“ Kjartan segir vera svo langt á milli Fylkis og Fjölnis að lítil hætta sé á að honum og Kristni lendi saman í fótboltanum, meist- araflokkur Fjölnis í knattspyrnu leiki í þriðju deild. „Við höfum hins vegar lent saman í yngri flokk- unum og raunar meistaraflokk- arnir líka á Reykjavíkurmótinu. En það eru auðvitað liðin sem eiga að berjast en ekki formennirnir.“ „Fjölnir er auðvitað ungt félag og heitir reyndar Ungmenna- félagið Fjölnir,“ segir Kristinn, „og það er ekki nema fjórtán ára gam- hafi verið mikil stemmning kring- um það á sínum tíma. „Laugdælir urðu Íslandsmeistarar í blaki 1979 og unnu síðan bæði bikar og Ís- landsmótið árið eftir.“ Bjarni segir alla aðstöðu á Laug- arvatni vera mjög góða: „Það er sérstök íþróttadeild við Mennta- skólann og svo auðvitað Íþrótta- kennaraháskólinn og okkur dreymir því um að Laugarvatn virki sem segull á góða íþrótta- menn. Það er stefnan hjá okkur að leggja verulega áherslu á körfu- boltann, þetta er það fámennt félag að við getum alls ekki verið í öllu. Það er 201 skráður í félagið en það eru ekki nema 250 með fasta bú- setu í sveitarfélaginu. Það er nán- ast hver einasti maður í sveitinni skráður í félagið.“ Þrír bræður formenn hjá íþróttafélögum Morgunblaðið/Árni Sæberg Bræðurnir Bjarni, Kjartan og Kristinn Daníelssynir. FLESTIR sérfræðingar virðast gera ráð fyrir að verð á hráolíu muni hækka á komandi vikum eða mánuðum. Magnús Ásgeirsson, yf- irmaður innkaupadeildar Olíufé- lagsins/ESSO, segir að þróun heimsmála nú og umhverfi olíu- verðsmyndunar í heiminum virðist um sinn a.m.k. ekki leiða til annars en hækkandi heimsmarkaðsverðs og ekkert virðist geta spornað við þeirri þróun. Á fundi OPEC- ríkjanna á föstudag var samþykkt að framlengja núverandi takmark- anir á framleiðslu á hráolíu. OPEC- löndin framleiða nú um 21,7 millj- ónir tunna af olíu á dag en gætu að óbreyttu aukið framleiðsluna um fimm milljónir til viðbótar. Stefna þeirra er að halda olíuverðinu á bilinu 22 og upp í 28 dali tunnuna. OPEC-ríkin munu funda aftur í júní til þess að taka ákvörðun um fram- leiðsluna á síðari helmingi ársins. Die Welt greinir frá því að samn- ingaviðræður milli Rússa og OPEC- ríkjanna um að Rússar dragi úr út- flutningi sínum á öðrum ársfjórð- ungi hafi farið út um þúfur en það hafi litlu breytt; verðið hafi ekki verið hærra en nú síðasta hálfa ár- ið. Sérfræðingar nefna að eftirspurn eftir olíu fari nú vaxandi, birgðir hafi minnkað og margt bendi til þess að niðursveiflan í efnahagslífi Bandaríkjunum sé á enda. Þá hafi OPEC-ríkin náð að halda sig við þá framleiðslukvóta sem ákveðnir voru; þannig hafi framleiðsla þeirra dregist saman um 440.000 tunnur á dag í febrúar. Síðast en ekki síst, segir Die Welt, óttast menn að stríð milli Bandaríkjanna og Íraks kunni að vera yfirvofandi en það hefði víð- tæk áhrif á olíumarkaðinn. „Ef kæmi til stríðs í Írak myndi heild- arframleiðslan á olíu samstundis dragast saman um 2,5 milljónir tunna á dag. Á sama tíma myndi eftirspurn í Bandaríkjunum aukast verulega. Í síðustu viku keypti Pentagon 1,5 milljónir tunna af flugvélarbensíni sem ýtti undir vangaveltur um að stríð kynni að vera yfirvofandi,“ segir sérfræðing- ur Deutsche Bank. Magnús Ásgeirsson, yfirmaður innkaupadeildar Olíufélagsins, segir þrjár meginástæður vera fyrir verðhækkunum á olíu að undan- förnu. Í fyrsta lagi sé ótti við aukin átök í Miðausturlöndum. Í öðru lagi sé framboð á olíu frá Venesúela til Bandaríkjanna að minnka. „Þeir eru fjórðu stærstu birgjar Banda- ríkjanna og Bandaríkjamarkaður er stærsti olíumarkaður í heimi. Það er órói í Venesúela og andstaða við forseta landsins, sem m.a. hefur orðið til þess að olíuverkamenn hafa hægt á vinnu sinni þannig að fram- leiðslan hefur minnkað.“ Þá segir Magnús að birgðir af öll- um tegundum olíu hafi minnkað verulega í Bandaríkjunum í lok síð- ustu viku. „Samkvæmt tölum, sem birtar voru nú í vikunni, minnkuðu birgðir af hráolíu, bensíni og gas- olíu um 6,6 milljónir tunna í síðustu viku og mun það vera um fjórum sinnum meira en olíukaupmenn höfðu spáð.“ Magnús segir að ljóst sé að OPEC-ríkin muni nú reyna að ná fram hækkun á hráolíuverðinu. Þekkt sé að þau stefni að því að halda hráolíuverðinu á bilinu 22 til 28 dalir en í upphafi þessa árs hafi verðið á hráolíutunnunni verið inn- an við 20 dalir. „Þá virtust OPEC geta sætt sig við að hráolíuverðið yrði um 22 dollarar á tunnu en nú fer það hækkandi. Menn spá því að þau muni ákveða að halda óbreyttri framleiðslu út árið.“ Spá því að olíuverð haldist hátt út árið Aðspurður um horfurnar næstu mánuði segir Magnús að best sé að spá sem fæstu um það. „En í nýj- ustu langtímaspá er gert ráð fyrir að hráolíuverðið haldist í 23 til 24 dölum tunnan út árið og það er nokkur hækkun frá fyrri langtíma- spám.“ Inntur eftir stefnu Rússa segir Magnús að Rússar, sem eru annar eða þriðji stærsti framleiðandinn, hafi verið OPEC-ríkjunum mjög erfiðir. „Þeir þurfa á því að halda að selja olíu úr landi til að afla sér gjaldeyris. Ekki er alveg ljóst hver stefna Rússa verður en ýmislegt bendir til að þeir muni halda olíu- framleiðslu sinni óbreyttri næstu vikur og mánuði, fram á mitt ár, en þó hafa þeir ekki viljað staðfesta neitt enn en svo virðist sem þeir séu ekki tilbúnir að láta undan þrýstingi OPEC.“ Aðspurður um áhrif á olíuverð hér á landi segir Magnús að allur þessi mánuður eigi eftir að hafa sitt að segja. Í raun viti menn ekki hver staðan verður fyrr en að loknum fundi OPEC-ríkjanna. „Horfur í þróun heimsmarkaðsverðs næstu daga,“ segir Magnús, „eru hins veg- ar einungis upp á við og ýmiss kon- ar utanaðkomandi spenna dregur verulega úr væntingum fjölmargra um að stöðugleiki náist í olíuverði til lengri tíma.“ Heimsmarkaðsverð á olíu fer hækkandi Mikill titringur á olíumarkaði GÍSLI Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi, telur að ná megi fram hagræð- ingu og sparnaði með því að flytja frystan fisk frá Vesturlandi og jafn- vel Norðurlandi vestra út frá Grund- artanga frekar en frá Reykjavík og Hafnarfirði auk þess sem spara megi tíma með því að landa á Akranesi. Gísli Gíslason segir að unnið hafi verið að því að markaðssetja Akra- nes sem heppilegan valkost varðandi löndun á fiski og Grundartanga sem valkost varðandi útflutning á fryst- um fiski. Rætt hafi verið við for- svarsmenn Eimskips vegna þessa en útflutningur frá Grundartanga gæti haft verulegan sparnað í för með sér fyrir útflytjendur á Vesturlandi og hugsanlega einnig á Norðurlandi vestra. Til þessa hefur heimafloti Skaga- manna fyrst og fremst landað á Akranesi, en Gísli Gíslason segir að hægt sé að gera löndun á Akranesi og útflutning frá Grundartanga að mjög áhugaverðum og spennandi kosti fyrir aðra. Hafnarstjórum og útgerðarmönnum hafi verið send kynning á hugmyndinni og í liðinni viku hafi t.d. ísfisktogarinn Kaldbak- ur EA landað á Akranesi en síðan hafi verið ekið með afla og áhöfn norður. Gísli Gíslason segir að aðstaða til löndunar sé mjög góð á Akranesi og löndun eigi að geta tekið mjög skamman tíma auk þess sem öll al- menn þjónusta fyrir skip sé á staðn- um. Með útflutningi frá Grundar- tanga ætti því ekki aðeins að nást fram sparnaður og hagræðing hjá útflytjendum á Vesturlandi og Norð- urlandi vestra vegna styttri aksturs heldur gætu aðrir séð hagræðingu í því að landa frystum fiski á Akranesi og flytja út frá Grundartanga. Frystur fiskur fluttur frá Grundartanga? GÆSLUVARÐHALD yfir konu á sextugsaldri og karli á fimmtugs- aldri, sem sætt hafa gæslu vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi fyrir rúmri viku, hefur verið fram- lengt um þrjár vikur eða til 10. apríl nk. Parið var í íbúð hins látna er lög- regla kom á vettvang aðfaranótt sunnudagsins 10. mars sl. Var parinu sleppt eftir yfirheyrslur en það handtekið á ný er í ljós kom við krufningu að maðurinn var með inn- vortis áverka. Bæði voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19. mars en í fyrra- dag var gæsluvarðhald konunnar framlengt og í gærmorgun fram- lengdi Héraðsdómur Reykjaness varðhald mannsins einnig. Gæsluvarð- hald framlengt ANNA Bretaprinsesssa kemur til Íslands næsta sumar í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Ís- lands. Heimsóknin stendur yfir dag- ana 4.–7. júlí næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands kemur fram að heim- sóknin hefst í Reykjavík þar sem hún mun hún skoða sögustaði og náttúruperlur í nágrenni höfuðborg- arinnar. Síðan liggur leið norður í land þar sem forseti Íslands og Anna prinsessa munu sækja Landsmót hestamanna á Vindheimamelum, en prinsessan er kunn fyrir áhuga sinn á hestum og hestaíþróttum. Anna Breta- prinsessa til Íslands ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.