Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 27 Háskóli Íslands, aðalbygging Sýning og fyr- irlestur um Vict- or Hugo hefst kl. 17 á degi franskr- ar tungu og til minningar um tveggja aldar af- mæli Victors Hugo. Sýninin hefst á málstefnu Torfa Tulinius sem ber nafnið „Um Victor Hugo og Frakkland 19. aldar“. Fyrirlesturinn er haldinn á frönsku og íslensku. Það er Alliance française, franska sendiráðið, Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur og Háskóli Íslands sem standa fyrir sýningunni. Sögufélagshúsið í Fischersundi Félag íslenskra fræða heldur rann- sóknakvöld kl. 20.30. Inga Huld Há- konardóttir mun fjalla um konur á Hólastað og í Skagafjarðarhéraði á miðöldum, jafnt helgar meyjar sem veraldlegar frúr, og segja frá ýms- um munum og textum sem þeim tengjast. Í erindinu tvinnast saman listasaga, kvennasaga og kristni- saga. Inga Huld Hákonardóttir er sagn- fræðingur sem undanfarin ár hefur einkum fengist við að draga fram sögu kvenna og kristni. Hún var m.a. ráðgjafi við útgáfu Kristni á Ís- landi sem út kom árið 2000. Goethe-Zentrum, Laugavegi 18 Þýska kvikmyndin „Der Krieger und die Kaiserin“ frá árinu 2000 verður sýnd kl. 20.30. Leikstjórinn er Tom Tykwer. Líkt og „Lola rennt“ fjallar þessi mynd um þá spurningu hvort líf okkar ráðist af forsjón eða tilviljunum. Sissí og Bodo, sem bæði eru einmana og hleypa öðru fólki lítið að sér, kynn- ast í bílslysi þar sem Bodo bjargar lífi Sissíar en lætur sig síðan hverfa. Sissí hefur þá leit að honum. Þetta er kvikmynd um ástina með frum- spekilegum söguþræði, sem gerist í fæðingarborg leikstjórans, Wupper- tal. Myndin hlaut silfurverðlaun Þýsku kvikmyndaverðlaunanna 2001. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Victor Hugo TRIO Romance heldur tónleika í Tíbrá tónleikaröð Salarins í Kópa- vogi og hefjast þeir kl. 20 í kvöld. Tríóið er skipað hjónunum og flautu- leikurunum Guðrúnu S. Birgisdóttur og Martial Nardeau og píanóleikar- anum Peter Máté. Á efnisskrá kvöldsins eru verk eft- ir Franz Doppler, Ferruccio Busoni, Dmitri Shostakovitch, Petr Eben, Grigoras Dinicu, Jules Dem- ersseman og Félix Charles Berthél- emy. John Clinton var írskur að ætt og uppruna. Flutt verður eftir hann Grand trio nr. 2 í A-dúr. Clinton var mikilhæfur flautuleikari í London á fyrri hluta 19. aldar og einn sá fyrsti sem notaði nýjungar Böhm-flaut- unnar þar um slóðir. Ungversk fant- asía Op. 35 nefnist verk eftir Doppl- er bræðurna sem tríóið flytur, en þeir bræður sömdu í sameiningu fjölda tvíleiksverka fyrir flautur. Eftir Ferruccio Busoni verður flutt Duo, en hann var aðeins fjórtán ára gamall þegar hann samdi þetta verk. Shostakovitch kom tvisvar að leik- ritinu um Lér konung eftir Shake- speare og verður tónleikagestum boðið að hlýða á Dúett úr samnefndri kvikmyndatónlist. Eftir Petr Eben verður flutt smáverkið Skissa fyrir C.B. Uppstaða verksins er tékk- neska þjóðlagið um borgarhlið Pode- brady. Þá er komið að flutningi skemmtiverksins Hora staccato eftir Dinicu í útgáfu Ervin Monroe og að lokum Grand duo úr óperunni Vil- hjálmur Tell eftir Rossini. Að þess- ari útgáfu koma tveir aðrir höfund- ar: Demmersmann og Berthélemy. Á þessu ári eru tuttugu ár liðin frá því þau Martial og Guðrún hófu tón- listarflutning hér á landi og æ síðan hefur flautudúóið skipað verulegan sess í tónlistarflutningi þeirra. Mörg af virtustu tónskáldum okkar hafa samið fyrir þau tónverk sem þau hafa flutt hér heima og erlendis. Þau hafa leikið tvíleikskonserta, m.a. með Kammersveit Reykjavíkur, Sin- fóníuhljómsviet Íslands og Orquesta del Estado de Mexico. Á yngri árum unnu þau til verðlauna í París sem dúó. Saman hafa þau einnig tekist á við barokkflautuleik eftir því sem að- stæður hafa leyft, gefið út hljóm- diska og haldið fjölda barnatónleika. Þau hafa bæði starfað við Tónlistar- skóla Kópavogs frá árinu 1982 og Martial er nú einnig fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Árið 1995 hófu þau samstarf við Peter Máté píanóleikara sem Trio Rom- ance. Tríóið hefur leikið tónleika í Amsterdam, París, Prag, Ljubljana, Vín og San Fransisco og einnig mörgum minni borgum erlendis. Meðal viðfangsefna þeirra hefur ver- ið að grafa upp, með aðstoð erlendra bókasafna, gleymd tónverk fyrir þessa hljóðfæraskipan og er verk Johns Clintons eitt þeirra. Á síðasta ári voru gerðar upptök- ur hjá ungverska útvarpinu sem væntanlega verða gefnar út á þessu ári. Flautan í for- grunni í Salnum Morgunblaðið/Golli Trio Romance: Peter Máté, Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau. Rá›gjafar frá fyrirtækjalausnum Símans ver›a á sta›num og a›sto›a vi› uppsetningu á GSM-símum, t.d. fyrir GPRS og WAP, og svara spurningum flátttakenda. Kynntar ver›a farsímalausnir sem auka verulega notagildi farsíma; n‡jungar sem gera fyrirtækjum kleift a› auka hagræ›i í rekstri og styrkja samskiptanet sín, bæ›i innbyr›is og gagnvart vi›skiptavinum. Einnig ver›a kynntar framtí›arhorfur farsíma- og fjarskiptamála, án fless a› kafa djúpt í tæknilegar undirstö›ur fleirra. Hægt er a› skrá sig á siminn.is e›a senda póst á netfang: radstefna@siminn.is. Einnig er hægt a› hringja í síma 800 4000. Skráningar flurfa a› hafa borist fyrir hádegi 20. mars. Enginn a›gangseyrir.NONN I O G M A N N I I Y D D A • N M 0 5 8 1 8 • s ia .i s Ferskir straumar í GSM- samskiptum fyrirtækja Morgunrá›stefna á vegum Símans 21. mars 2002 kl. 8.00 – 11.00 í Smárabíói. Skráning ásamt ferskum og orkuríkum morgunver›i Óskar Jósefsson, forstjóri Símans, setur rá›stefnuna Centrex: N‡ tækifæri. Gu›mundur Stefán Björnsson tæknifræ›ingur hjá Símanum Gestafyrirlesari Kaffihlé Bo›i – N‡ lei› til samskipta. Björn Jónsson framkvæmdastjóri hjá Grunni Value added services in the mobile world. Eric Figueras sérfræ›ingur hjá Símanum 8.00 - 9.00: 9.00 - 9.15: 9.15 - 9.45: 9.45 - 10.00: 10.00 - 10.20: 10.20 - 10.40: 10.40 - 11.00: Rá›stefnustjóri: Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri marka›s- og sölusvi›s Símans. Dagskrá:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.