Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 23 SLEÐADAGAR Sími: 594 6000 Frábært verð kr. 1.000.000 YAMAHA SRX 700 Kæli- og frystiskápar Eldunartæki Þvottavélar og þurrkarar Uppþvottavélar OD DI H F I1 92 7 Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins boðar til aðal- fundar fyrir sjóðfélaga og rétthafa, mið- vikudaginn 10. apríl kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn í Þingsal A á Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kynning ársreiknings. 3. Tryggingafræðileg úttekt. 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins. 5. Kosning stjórnar. 6. Breytingartillögur á samþykktum sjóðsins. 7. Laun stjórnarmanna. 8. Önnur mál. 9. Kjör endurskoðanda. Sjóðfélagar og rétthafar eru hvattir til að mæta. Stjórnin Ármúli 13, 108 Reykjavík sími 515 1500 www.kaupthing.is Aðalfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins – fyrir þína hönd HÁTTSETTUR félagi í al-Qaeda, hryðjuverkasamtökum Osama bin Ladens, hefur verið handtekinn í Súdan. Hann er á lista yfir þá hryðju- verkamenn sem bandarísk yfirvöld leggja mesta áherslu á að handsama vegna meintrar aðildar hans að sprengjuárásum á tvö bandarísk sendiráð í Afríku árið 1998. Bandarískir embættismenn hafa reynt að ná samkomulagi við stjórn Súdans um að al-Qaeda-liðinn, Abu Anas Liby, verði fluttur til Egypta- lands vegna þess að hann er einnig grunaður um að hafa skipulagt til- raun til að myrða Hosni Mubarak, forseta landsins, í júní 1995. Liby er hæstsetti al-Qaeda-liðinn sem handtekinn hefur verið frá því að Bandaríkjastjórn hóf stríðið gegn hryðjuverkastarfsemi. Hann er á lista yfir 22 hryðjuverkamenn sem Banda- ríkjamenn leggja mest kapp á að handtaka og er sá eini í þessum hópi sem hefur náðst. Sendur til Egyptalands? Gefin hefur verið út tilskipun í Bandaríkjunum um handtöku Libys en bandarísk yfirvöld segjast vilja að hann verði sendur til Egyptalands vegna meintrar aðildar hans að sam- særinu um að myrða Mubarak. Þetta mun þó ekki vera eina ástæðan því talið er að Bandaríkjamenn vilji að egypskir embættismenn yfirheyri Liby vegna þess að þeir eru ekki bundnir af sömu reglum og gilda í Bandaríkjunum við yfirheyrslu fanga. Þar sem Liby er hæstsetti al- Qaeda-liðinn sem hefur verið hand- tekinn getur hann veitt mikilvægar upplýsingar um starfsemi samtak- anna sem stóðu fyrir hryðjuverkun- um í Bandaríkjunum 11. september. Lundúnablaðið Sunday Times skýrði fyrst frá handtöku Libys. Blað- ið sagði að hann væri á meðal níu hryðjuverkamanna sem handteknir hefðu verið í Súdan í síðasta mánuði. Embættismenn stað- festu þetta og sögðu að hafnar hefðu verið samningaviðræður við stjórn Súdans vegna málsins. Liby er 37 ára og fæddist í Tripoli í Líbýu. Hann gekk í al-Qaeda fyrir rúmum tíu árum og flúði til Súdans skömmu síðar eftir að Moammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hóf herferð gegn íslömskum öfgamönnum. Liby hefur getið sér orð fyrir mikla þekkingu á tölvum og hátæknibúnaði og fékk fljótt sæti í yfirstjórn al- Qaeda, svokölluðu shura. Hann fór frá Súdan áður en Osama bin Laden fór þaðan til Afganistans árið 1996. Liby dvaldi um tíma í Katar áður en hann hélt til Manchester í Eng- landi. Breska stjórnin veitti honum hæli sem pólitískum flóttamanni eftir að hann hafði látið í ljósi áhyggjur af því að hann myndi sæta of- sóknum ef hann yrði sendur heim. Eftir að Liby var ákærður í New York fyrir tveimur árum í tengslum við sprengju- árásirnar á bandarísku sendiráðin í Kenýa og Tansaníu fóru lög- reglumenn í íbúð hans í Manchester til að handtaka hann, en hann hafði þá flúið. Í íbúðinni fundust þó ýmis gögn sem tengdust hryðjuverkastarfsemi, meðal annars tölvudiskur með 180 síðna handbók fyrir hryðjuverka- menn. Handbókin var lögð fram sem sönnunargagn í réttarhöldum vegna sprengjutilræðisins í bandaríska sendiráðinu í Nairobi sem kostaði 213 manns lífið. Bókinni var skipt í marga kafla og einn þeirra fjallaði um hvern- ig gera ætti sprengjuárásir á sendi- ráð. Talið er að Liby hafi komist til Afg- anistans og aðstoðað við að skipu- leggja mótspyrnu al-Qaeda eftir að Bandaríkjamenn hófu hernaðarað- gerðirnar 7. október. Ekki er vitað hvenær hann fór til Súdans. Tveir fyrrverandi al-Qaeda-liðar, sem báru vitni í réttarhöldunum vegna sprengjutilræðisins í Kenýa, sögðust hafa starfað með Liby. L’Houssiane Kherchtou, sem var í flugskóla í Kenýa árið 1994 til að geta flogið einkaflugvél bin Ladens, kvaðst hafa verið með Liby í Afganistan þar sem þeir hefðu fengið þjálfun í því að fylgjast með hugsanlegum skotmörk- um. Að sögn Kherchtous fór Liby til Nairobi árið 1994 ásamt Ali Mo- hamad, egypskum Bandaríkjamanni sem játaði aðild að skipulagningu sprengjutilræðisins í borginni. Kherchtous kvaðst hafa séð Liby taka myndir af bandaríska sendi- ráðinu og leyft honum að framkalla þær á heimili sínu í Nairobi. Háttsettur al-Qaeda-liði handtekinn í Súdan Er á lista yfir þá 22 hryðjuverkamenn sem bandarísk yfirvöld leggja mesta áherslu á að handsama Washington. The Washington Post. Abu Anas Liby LÁVARÐADEILD breska þingsins hóf í gær umræðu um hvort banna ætti veiðar á ref- um og hérum með hjálp hunda eftir að neðri deildin samþykkti slíkt bann með miklum meiri- hluta atkvæða í fyrradag. Gert var ráð fyrir því að lávarðadeildin myndi greiða at- kvæði um þrjá kosti: að lögun- um yrði ekki breytt, að eftirlitið með veiðunum yrði hert eða að veiðarnar yrðu bannaðar. Margir lávarðar hafa verið andvígir banni við refaveiðum með hundum en þeir eru nú undir miklum þrýstingi að gefa eftir í deilunni eftir að neðri deildin samþykkti slíkt bann með 386 atkvæðum gegn 175. Breska stjórnin hyggst leggja fram formlegt frumvarp um veiðarnar eftir að niður- staða lávarðadeildarinnar ligg- ur fyrir. Lávarðar fjalla um veiðibann London. AFP. Refaveiðar með hundum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.