Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 49 MEÐ bréfi mínu dags. 4. mars sl. beindi ég fyrirspurn til Kaupþings hf. um að fyrirtækið upplýsti mig um hvaða hagsmunir það séu, hagsmun- um einstakra sérlífeyrisþega ofar, sem virðast ráða því hvernig sérlíf- eyrissparnaði þúsunda opinberra starfsmanna og annarra launþega í landinu sé ráðstafað hjá Kaupþingi; og bendi ég í því sambandi á hag- kvæmni þess að opna bundna banka- reikninga í nafni þeirra á meðan ávöxtunin á fjármagnsmarkaðnum er jafn óhagstæð og undanfarin miss- eri. Bréf þetta var ennfremur birt í Morgunblaðinu hinn 6. þ.m. Ennþá hefur mér ekki borist svar Kaupþings hf. Vefst móttakendum bréfsins e.t.v. tunga um tönn? Kannski get ég aðstoðað! Er það ekki þannig að ef fjármála- stofnun, t.d. á borð við Kaupþing hf., ráðstafar uppsafnaðri sérlífeyris- sjóðsinneign launþega eingöngu með því að opna bundna bankareikninga, þótt með góðri ávöxtun sé, fengi stofnunin aðeins smávægilega um- sýsluþóknun hjá viðkomandi banka vegna slíkra viðskipta? En er það hinsvegar ekki þannig, í fyrsta lagi, að ef fjármálastofnun, t.d. á borð við Kaupþing hf., ráðstafar þessu sparifé með því að kaupa verð- bréf verðbréfasjóða í eigu og vörslu hennar og selji viðskiptavinum, „skjólstæðingum“, sínum, getur hún reiknað sér þóknum af þessum við- skiptum? Er það ekki einnig þannig, í öðru lagi, að við viðskipti sem þessi getur fjármálastofnun, t.d. á borð við Kaupþing hf., ennfremur fært sér til tekna gengismun seldra og keyptra verðbréfa? Er það ekki einnig þannig, í þriðja lagi, að við viðskipti sem þessi er við- komandi fjármálastofnun, t.d. á borð við Kaupþing hf., í sjálfsvald sett úr hvaða sjóði eða sjóðum verðbréf skuli keypt í þetta og hitt skiptið, til yf- irfærslu inn á reikning viðkomandi sérlífeyrissjóðshafa; – og getur þar með auðveldlega losað sig við verð- bréf sem stofnunin telur óhagstæð sínum eigum hagsmunum? Og er það ekki ennfremur þannig, í fjórða og síðasta lagi, að þegar við- komandi launþegi lætur af störfum fyrir aldurs sakir og fær inneign sína útborgaða, getur viðkomandi fjár- málastofnun, t.d. á borð við Kaup- þing hf., reiknað sér til tekna þóknun og/eða gengismun að þeim viðskipt- um einnig? Sé svarið við einu eða fleirum af þessum atriðum já er þá ekki um leið fundið svar við fyrirspurn minni, þ.e. hvaða hagsmunir, hagsmunum ein- stakra sérlífeyrisþega ofar, ráða ferðinni við ráðstöfum sparifjár þeirra? Eins og fram kom í fyrsta bréfi mínu hefi ég þegar tekið út sérlífeyr- isinneign mína hjá Kaupþingi og hefi ég því ekki lengur beinna hagsmuna að gæta í þessu máli. Bréf þetta er því fyrst og fremst ritað í þágu þeirra þúsunda ríkisstarfsmanna og ann- arra launþega sem beint og óbeint hafa falið Kaupþingi hf. ráðstöfun á sérlífeyrisinneign sinni. Að lokum þetta. Í ljósi ofanritaðs og með tilvísun til þess að einmitt þessa dagana auglýsir Búnaðarbanki Íslands bundna reikninga, lífeyris- bækur, með 15,67% nafnávöxtun árið 2001, bústólpa, með nafnávöxtun 15,13% árið 2001 og eignalífeyrisbók, óbundinn reikning með 10,93% nafn- ávöxtun árið 2001, væri ekki rétt að Kaupþing hf. kanni meðal „skjól- stæðinga“ sínna hvort þeir vilji láta færa sérlífeyrisinneign sína úr vörslu í einhverjum verðbréfasjóðum og inn á bundna bankareikninga? P.S. Fróðlegt væri að heyra skoð- un Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis- ins, LSR, á þessu máli sem LSR á stóran hlut að, með tilheyrandi mik- illi ábyrgð gagnvart sínum lífeyris- sjóðsþegum. Kannski formaður sjóðsins, Ög- mundur Jónasson alþingismaður, vilji tjá sig um málið, en hann er einn- ig formaður BSRB og ber hann sem slíkur mikla ábyrgð gagnvart hags- munum félagsmanna þess. TORBEN FRIÐRIKSSON, fv. ríkisbókari. Enn fyrirspurn til forráða- manna Kaupþings hf. Frá Torben Friðrikssyni: J. RÚNAR Magnússon orkuverk- fræðingur ritar bréfkorn í Morgun- blaðið 13. mars sl., þar sem hann ger- ir athugasemdir við skrif mín. Ég hef svo sem ekkert við það að athuga að menn taki upp hanskann fyrir Stefán Jón, líkt og J. Rúnar Magnússon gerir. Hinsvegar þykir mér miður þegar mér eru gerðar upp skoðanir og mér borið á brýn að boða stöðnun. Hvergi setti ég fram nokkra stefnu eða skoðun á menntamálum í bréfi mínu. Ég er ekki í framboði né held ég úti heimasíðu til að boða nokkra stefnu. Þvert á móti er ég sammála J. Rúnari Magnússyni um að efla og auka beri menntun í landinu. Hvern- ig er hægt að vera á móti slíku? Ég hinsvegar er á móti ábyrgðar- lausu tali um skuldsetningu. Skrif Stefáns Jóns voru vissulega háleit en um leið ábyrgðarlaus. Það er ábyrgðarhlutur þegar stjórnmála- maður boðar fjárútlát án þess að huga að því að greiða þurfi lán sem tekin eru. J. Rúnar Magnússon tek- ur síðan að sér að skýra út fyrir mér með föðurlegum hætti hverskonar störfum menntað fólk sinnir. Reikn- ar einnig út hagkvæmni virkjunar í fáeinum línum. Gæti ég með sama hætti vænt J. Rúnar Magnússon um yfirlæti en látum það á milli hluta liggja. STEINÞÓR JÓNSSON, bakari, Hléskógum 18, Reykjavík. Furðuleg gagnrýni orkuverk- fræðings Frá Steinþóri Jónssyni: Vorum að taka upp nýjar vörur Freemans - Bæjarhrauni 14 - s: 565 3900 - www.freemans.is Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Tölvu- bókhald Markmiðið með þessu 96 kennslustunda námi er að þjálfa nemendur fyrir víðtæk tölvubókhaldsstörf í atvinnulífinu. Kennt er á “Navision Financials” með viðbótarlausnum sem skiptast niður í eftirfarandi námsgreinar: Nemendur sem sækja námið þurfa að hafa haldgóða tölvuþekkingu og skilning á bókhaldi. Boðið er upp á bæði morgun- og kvöldnámskeið sem hefjast 11. og 20. apríl. Upplýsingar og innritun: 544 4500 og á www.ntv.is Grunnkerfi (6) Fjárhagsbókhald og launakerfi (36) Sölu- og viðskiptamannakerfi (24) Birgða,- innkaupa- og tollakerfi (30) Verklegar æfingar (kennslustundir í sviga): Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is n t v . is nt v. is n tv .i s Navision Financials Nýja Moisture Surge Extra eða Light frá Clinique fyrir andlit og Moisture Surge Eye Gel fyrir augu gefa húðinni heilbrigðara og frísklegra útlit. Rakastig húðarinnar hækkar óðfluga. Rakatap af völdum sólar og umhverfisáhrifa er bætt. Húðin fær allan þann raka sem hún þarfnast. Moisture Surge sefar, sléttar og mýkir og deyfir fíngerðar þurrklínur. Eins og vænn sopi af vatni fyrir þann sem þyrstir. Hjálp til handa þyrstri húð Nýjar vörur sem slökkva þorstann Moisture Surge Extra 30 ml. 2.664 Moisture Surge Extra 50 ml. 3.755 Moisture Surge Light 30 ml. 2.664 Moisture Surge Light 50 ml. 3.755 Moisture Surge Eye Gel 15 ml. 3.028 Clinique 100% ilmefnalaust www.clinique.com 100% ilmefnalaust Ráðgjafar Clinique verða í Lyf & heilsu: Miðvikudag: Austurveri og Kringlu. Fimmtudag: Melhaga og Mjódd. Föstudag: Hamraborg og Austurstræti. Laugardag: Á Selfossi. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm þann 10. apríl í heilar 4 vikur. Vorin eru fegursti tími ársins á Spáni, og hér getur þú notið veðurblíðu og einstakra aðstæðna á kjörum sem aldrei hafa sést fyrr. Þú bókar núna og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu sætin Vorið á Benidorm 10. apríl í 4 vikur frá kr. 39.863 Verð kr. 39.863 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í íbúð, 10. apríl, 4 vikur. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.