Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. RÆÐA Halldórs Ásgríms-sonar utanríkisráðherra íBerlín á fimmtudaginnvar, þar sem hann reifaði mögulega sérlausn fyrir Íslendinga gagnvart sjávarútvegsstefnu Evr- ópusambandsins, og benti á ákveðna leið í því sambandi vekur upp spurn- ingar um hvort ný viðhorf séu að verða til í þessum efnum sem geri aðildarviðræður Íslands og Evrópu- sambandsins að raunhæfari kosti en hingað til hefur verið talið. Býr eitt- hvað að baki sem gerir það að verk- um að sjávarútvegsstefna ESB er ekki lengur sá ókleifi múr sem fyr- irfram þótti koma í veg fyrir að Ís- lendingar hugleiddu aðildarviðræð- ur við Evrópusambandið í nokkurri alvöru? Því er til að svara að samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er ekkert fast í hendi varðandi viðbrögð Evrópusambandsins við hugmynd- um af því tagi sem utanríkisráðherra kynnti á fundinum í Berlín fyrir helgina eða öðrum hugmyndum sem gerðu það að verkum að Íslendingar yrðu undanþegnir sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins í sjávar- útvegsmálum. Hins vegar hefur ítrekað komið fram, bæði nú og áður, skilningur á sérstöðu Íslands í þess- um efnum vegna yfirgnæfandi mik- ilvægis sjávarútvegs fyrir efnahags- líf landsins. Það á þó einkum við um ríkin í norðanverðri Evrópu, ekki síst Þjóðverja, sem sýnt hafa stöðu okkar skilning. Endanlegt svar við spurningunni muni hins vegar aldrei fást fyrr en við látum reyna á hana í viðræðum við Evrópusambandið. Fyrirfram munum við ekki geta fengið svar við því hvort undanþága fáist. Evrópusambandið svari ekki spurningum í viðtengingarhætti, m.a. vegna eðlis þess sem sambands fjölda sjálfstæðra ríkja, og við mun- um aldrei fá svar við því hvort und- anþága fyrir okkur sé möguleg nema í aðildarviðræðum. Það standi upp á okkur að skilgreina hagsmuni okkar í þessum efnum og að leggja þá fram gagnvart Evrópusamband- inu og fyrr en það verði gert fáist ekki endanlegt svar við því hvort sjávarútvegsstefna sambandsins útiloki aðild okkar eða ekki. Vísað til breytinga á landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins Það er engan veginn nýtt að fram komi hugmyndir og fullyrðingar um að sjávarútvegsstefnan sé ekki hindrun í þessum efnum standi vilji Íslendinga til þess að sækja um að- ild. Síðastliðinn áratug hafa alltaf öðru hvoru komið fram raddir þar að lútandi og hefur verið vísað til breyt- inga og þróunar á landbúnaðar- stefnu sambandsins til að mynda hvað landbúnað við heimskautsbaug varðar, en til þess vísaði utanríkis- ráðherra einmitt í erindi sínu í Berl- ín nú, auk þess sem iðulega hefur verið vísað til þess sem þótt hefur koma fram í viðræðum við embætt- ismenn eða stjórnmálamenn í Evr- ópu varðandi möguleika Íslendinga á undanþágu frá sjávarútvegsstefn- unni. Það hefur hins vegar aldrei reynt á það hvað sjávarútvegsstefnan er föst í hendi Evrópusambandsins gagnvart okkur vegna þess að á Ís- landi hefur ekki verið pólitískur vilji til þess að feta sig inn á þá braut að kanna raunverulegan vilja Evrópu- sambandsins í þeim efnum. Í þessu samhengi er hins vegar at- hyglisvert að skoða það sem utanrík- isráðherra sagði að loknum fundinum með utanríkisráð- herra Þjóðverja, Joschka Fischer, á miðvikudaginn var, daginn fyrir flutning erindisins í Berlín. Í frétt Morgun- blaðnu daginn eftir segir Halldór að nokkur tími hafi farið í að útskýra fyrir Fischer hvers vegna Íslending- ar teldu sig ekki geta sótt um aðild að ESB, einkum vegna gildandi sjáv- arútvegsstefnu sambandsins. „Það hafa komið fram þær skoð- anir hér í Þýskalandi að þar sé hægt að leita lausna. En eins og við vitum er það ekki stefna Íslendinga í dag og því tók ég málið ekki upp með þeim hætti,“ segir Halldór síðan. Þessu til viðbótar má einnig nefna að þróunin á hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB hefur verið okkur hallkvæm á þann veg að rétt- indi einstakra ríkja hafa fest í sessi. Því má leiða að því líkum að minna þurfi til nú en áður til að viðurkenna sérstöðu Íslendinga þannig að tryggð verði yfirráð okkar yfir fisk- veiðiauðlindinni við strendur lands- ins um aldur og ævi, sem er það við- mið sem við hljótum að leggja til grundvallar viðræðum. Lausnin, sé hún fyrir hendi, muni ekki felast í því að horfið verði frá sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins í þess- um efnum heldur að við, vegna okk- ar sérstöðu, fáum varanlega undan- þágu frá stefnunni. Raunar telja sumir viðmælenda Morgunblaðsins að mun erfiðara verði að fá undan- þágur varðandi fjárfestingar í sjáv- arútvegi heldur en varðandi sameig- inlega sjávarútvegsstefnuna sem slíka. Af ofangreindum tilvitnuðum orð- um utanríkisráðherra má greinilega ráða að hann telur að það sé flötur á viðræðum við Evrópusambandið sem geti skilað viðunandi niður- stöðu. Í því ljósi ber ef til vill að skilja þær hugmyndir sem hann reifaði á hádegisverðarfundi Deutsche Ge- sellschaft für Auswärtige Politik í Berlín síðastliðinn fimmtudag, dag- inn eftir fundinn með utanríkisráð- herra Þýskalands, en formaður sam- takanna er Hans-Dietrich Genscher, fyrrum utanríkisráðherra Þýska- lands. Í lauslegri endursögn fela hugmyndirnar í sér að sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusam- bandsins sé mótuð á grundvelli sam- eiginlegra fiskistofna þeirra ríkja sem upphaflega stofnuðu Evrópu- sambandið. Íslenskir fiskistofnar séu að langstærstum hluta sérstök auðlind með sama hætti og bresk ol- ía og finnskir skógar til dæmis séu sérstakar auðlindir og taka beri tillit til þessa sérstaka eðlis fiskistofn- anna við Ísland. Það geti ekki gilt það sama um þá og gildi um sameig- inlega fiskistofna við Evrópustrend- ur. Þegar um sameiginlega fiski- stofna sé að ræða sem flakki á milli hafsvæða þurfi hins vegar sameig- inlegar reglur um nýtingu þeirra, því ella myndi verða um ofveiði að ræða. Halldór sagði að til að leysa vanda eins og þennan yrðu menn að sýna hugvitssemi. Slíka hugvitssemi hefðu menn t.a.m. sýnt við mótun landbúnaðarstefnu ESB við síðustu stækkun sambandsins, en í kjölfar hennar náði sambandið einnig til landa við norðurheimskautsbaug. Spurningin væri hins vegar sú hvort Evrópusam- bandið gæti sýnt slíka hugvitssemi einnig við fram- kvæmd hinnar sam- eiginlegu sjávarút- vegsstefnu. „Mér sýnist ljóst af þeim reglum sem um framkvæmd stefnunnar gilda að líta mætti á íslenska efnahagssvæðið sem sérstakt fiskveiðistjórnunar- svæði og að fiskveiðikvótar yrðu ákveðnir á grundvelli fyrri veiði- reynslu og þar með verða áfram í höndum Íslendinga,“ sagði Halldór. Hann bætti því að þetta væri hins vegar ekki fullnægjandi því sá möguleiki væri alltaf fyrir hendi að meirihluti ESB-ríkjanna myndi þrýsta á Íslendinga um að a hlut sem aðrir mættu veiða. mín er sú að skilgreina lensku fiskveiðilögsöguna stakt svæði undir reglum s legu sjávarútvegsstefnunn þessu væri ekki verið að r sameiginlegu sjávarútvegss ar heldur verið að framkvæ með hliðsjón af nýjum að þannig að ákvarðanir um náttúruauðlindar í okkar sem önnur aðildarríki E ekki með okkur, yrðu tek landi.“ Sex ríki lögðu grunninn að ESB Í þessu sambandi er ver upp þróun Evrópusamb Uppruna þess má rekja til s Kola- og stálbandalags Evr 1951, en innan vébanda þ Frakkland, Ítalía, Vestu land, Holland, Belgía og borg. Árið 1957 voru síðan samningurinn undirritaðu sáttmáli Efnahagsbandala Utanríkisráðherra setur fram nýjar hu Ekki Íslendi að leit Í Þýskalandi haf það sé hægt að gagnvart same Evrópusamba Íslendinga í da Í samantekt H fram að ýmis m til tíðinda í Evr Sjávarútvegsstefna E möguleg aðild Endurskoðun sameiginlegu sjáv- arútvegsstefnunnar á að ljúka í árslok VERÐMYNDUN Á GRÆNMETI Verðkannanir ASÍ á grænmetihafa verið umfjöllunarefnifjölmiðla undanfarna daga en þar kemur m.a. í ljós að þrátt fyrir að niðurgreiðslur á rafmagni til framleiðenda frá 15. febrúar sl. hækkuðu íslenskar agúrkur í verði um 1,8% fram til 1. mars og lækk- uðu ekki fyrr en farið var að flytja inn hollenskar agúrkur í síðustu viku. Hér er á ferðinni afar ljóst dæmi um það hvernig virk sam- keppni getur haft jákvæð áhrif á verðmyndun neytendum í hag því verðið á íslensku gúrkunum lækk- aði um helming þegar erlendu agúrkurnar komu á markaðinn á hagstæðara verði. En ef litið er yfir verðkönnunina í heild má þó spyrja af hverju breytt- ar forsendur við innflutning á grænmeti hafi ekki haft meiri áhrif en raun ber vitni, því dæmið með agúrkurnar er einungis vísbending um það hvað virk samkeppni á grænmetismarkaði gæti haft í för með sér fyrir íslenska neytendur ef aðhaldi er beitt með markvissum hætti. Einungis átta tegundir grænmetis af sautján höfðu lækkað í verði á tímabilinu júlí 2001 til mars 2002, aðrar höfðu hækkað. Mest lækkaði blaðlaukur, um 51%, en jöklasalat hækkaði mest, um 53%. Þessi mikla hækkun á íssalati er athyglisverð og það hlýtur að vekja undrun að innflytjendur skuli flytja inn jöklasalat í einhverju magni ef kílóverð þarf að vera tæp- lega 500 kr. út úr búð þótt ekki séu lagðir á það neinir tollar. Auðvelt hlýtur að vera að finna aðrar, meira spennandi og ódýrari salattegundir til innflutnings sem neytendur myndu væntanlega taka fegins- hendi sem góðri tilbreytingu. Meðalverð á kúrbít og eggald- inum vekur einnig athygli en kíló- verð á báðum þessum tegundum er skriðið yfir 600 kr. og hefur hækk- að um umtalsvert frá því í júlí í fyrra, kúrbítur um 11% og eggaldin um 23,9%. Kílóverð á erlendum tómötum er hagstætt ef miðað við verð á ís- lenskum tómötum nú, en innflytj- endur virðast þó eiga erfitt með að finna boðlega tómata á þessum tíma árs. Erlendir tómatar í búðum nú eru lélegir þrátt fyrir að hægt sé að finna ágæta tómata á viðráðanlegu verði í grænmetisborðum í ná- grannalöndunum, sem hlýtur að ýta undir þá tilfinningu meðal neytenda að innbyrðis samkeppni á milli ein- stakra innflytjenda grænmetis hér sé ekki nægilega virk til að koma almenningi til góða. Íslenskir neytendur hafa um ára- bil þurft að sætta sig við ótrúlegar verðsveiflur á grænmeti þar sem mjög margir ólíkir þættir, sumir árstíðabundnir og aðrir ekki, hafa gert verðmyndun svo flókna að fæstir hafa sett sig inn í hana. Af- leiðingin er sú að grafið hefur verið undan tilfinningu neytenda fyrir því hvað sé sanngjarnt verð fyrir þessi mikilvægu matvæli. Könnun á borð við þá sem ASÍ hefur nú fram- kvæmt er vissulega allra góðra gjalda verð, en hefði þurft að vera mun ítarlegri. Æskilegt hefði verið að sjá samanburð á verði grænmet- is hér og í öðrum löndum og jafn- framt er nauðsynlegt að gera ís- lenskum neytendum kleift að átta sig á því hvernig sjálf verðmynd- unin á sér stað nú þegar tollar hafa verið afnumdir af öllum nema þremur tegundum. Eftir umræðu á borð við þá sem varð í fyrra er sam- keppnisráð gerði alvarlegar athuga- semdir við fyrirtæki á grænmet- ismarkaði eru neytendur eðlilega tortryggnir. Það er því nauðsynlegt að sýna neytendum með ljósum og skiljanlegum hætti hverjir standa sig best í hagstæðum innkaupum á grænmeti til landsins og hvaða að- ilar á smásölumarkaði skila tolla- lækkunum best til neytenda. HÖFÐINGLEG GJÖF Öryrkjabandalagi Íslands hlotnað-ist ómetanleg gjöf fyrir stuttu. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að Ólafur Gísli Björnsson inn- heimtumaður, sem lést í Reykjavík 15. janúar síðastliðinn, hefði arfleitt bandalagið að öllum sínum eignum – 36 milljónum króna í reiðufé og þremur íbúðum – en samtals er gjöf- in metin á um 60 milljónir króna. Það er ekki fátítt að góðhjartaðir einstaklingar leggi góðum málstað lið með fjárveitingum. Algengast er að þar sé um að ræða þekkt stór- eignafólk sem með kaupsýslu hefur hlotnast töluverður auður. Það er hins vegar sjaldgæfara, og í raun ein- stakt, að einstaklingur sem átt hefur við erfiða fötlun að stríða og beitt hefur sjálfan sig hörðu til að afkasta sínu dagsverki hafi svigrúm til þess að gefa slíkar gjafir. Það á hins vegar við um Ólaf Gísla heitinn sem í tugi ára vann starf sitt af mikilli elju og atorku með það markmið að gefa eig- ur sínar og sjóði Öryrkjabandalag- inu. Enginn, nema systkini hans, vissu af fyrirætlunum hans. Þau segja að hann hafi talið sig tilheyra hópi ör- yrkja og viljað gera sitt til að styrkja bandalagið. Gjöf hans segir ef til vill sitt um það hvernig öryrkjar skynja stöðu sína, nauðsyn þeirra til að njóta styrks hver frá öðrum og sýna samstöðu. Haft var eftir Garðari Sverrissyni, formanni Öryrkjabandalagsins, í blaðinu í gær að aðalstjórn þess hefði sett hljóða þegar greint var frá tíð- indunum í síðustu viku og hann skorti orð til þess að lýsa þakklæti bandalagsins. Það er auðvelt að taka undir þau orð en sá hugur sem býr að baki gjöfinni og umfangi hennar er í raun ævintýri líkastur. Gjöfin sýnir ennfremur að enn í dag, á tímum efnishyggju sem flestir keppast við að taka þátt í, eru til ein- staklingar sem skera sig úr fjöldan- um. Einstaklingar sem lifa sparlega og jafnvel meinlætalífi sjálfir en gleðjast við að gefa og gera öðrum gott.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.