Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hljóð-
einangrandi mottur
2
2
Sími 525 3000 • www.husa.is
2.790 kr. m
undir flísar og parket
Verð áður: 3.980 kr. m
Ráðstefna um björgun og leit á hafi
Nýjasta tæknin
verður kynnt
YFIRSTJÓRN leitarog björgunar á haf-inu og við strendur
landsins ákvað nýlega að
halda ráðstefnu um fyrir-
komulag og framtíð sjó-
björgunar sem ber yfir-
skriftina „Ný tækni – aukið
öryggi“. Til ráðstefnunnar
er boðið öllum sem málið
varðar, en skrásetning fer
fram hjá Landhelgisgæslu
Íslands. Ráðstefnan fer
fram föstudaginn 22. mars
í flugskýli Landhelgisgæsl-
unnar á Reykjavíkurflug-
velli og stendur frá kl. 13 til
17. Hafsteinn Hafsteins-
son, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar, er formaður yf-
irstjórnarinnar.
– Hver er þessi yfir-
stjórn?
„Yfirstjórn leitar og björgunar á
hafinu og við strendur landsins,
starfar samkvæmt reglum sem
dómsmálaráðuneytið gaf út árið
1990. Tilgangur reglnanna er að
koma á samræmdri yfirstjórn leit-
ar- og björgunarstarfs við strend-
ur landsins og á hafsvæðinu um-
hverfis landið í samræmi við
alþjóðasamning um leit og björgun
á hafinu frá 27. apríl 1979. Yfir-
stjórnin er skipuð þremur fulltrú-
um tilnefndum af Landhelgisgæsl-
unni, Landssímanum og Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, en þeir
eru Gunnar Tómasson, Magnús
Waage og undirritaður.“
– Hvert er megininntak ráð-
stefnunnar?
„Kjörorð ráðstefnunar er „Ný
tækni – aukið öryggi“. Áhersla
verður lögð á að kynna nýjustu
tækni við leit og björgun á hafinu
og við strendur landsins. Rætt
verður um tilkynningarskyldu ís-
lenskra skipa, fjareftirlit og hvern-
ig megi á öruggastan hátt skipu-
leggja sjóbjörgun.“
– Hver eru markmið ráðstefn-
unnar?
„Landhelgisgæslan hefur yfir
að ráða þremur varðskipum,
tveimur þyrlum og flugvél. Lögð
er áhersla á að hafa útkallstíma
þessara tækja sem stystan.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
er með 24 stunda vakt allan ársins
hring. Starfsmenn Landhelgis-
gæslunnar búa yfir víðtækri
reynslu í björgunarstörfum.
Stjórnstöðin er auk þess að vera
sjóbjörgunarstöð, fiskveiði- og
fjareftirlitsstöð þar sem fylgst er
með staðsetningu íslenskra og er-
lendra skipa í gegnum efnahags-
lögsöguna og móttökustöð tilkynn-
inga skipa sem koma til landsins
vegna Schengen. Stjórnstöðin not-
ar björgunarforrit frá bandarísku
strandgæslunni. Landhelgisgæsl-
an hefur samstarfssamning við
Varnarliðið meðal annars um leit
og björgun en varnarliðið hefur
verið ómetanlegt í samvinnu við
Landhelgisgæsluna í björgunar-
málum og er skemmst að minnast
frábærrar frammistöðu þess er
skipverja af Svanborgu SH var
bjargað við Svörtuloft
7. desember 2001. Gott
samstarf er milli Flug-
málastjórnar og Land-
helgisgæslunnar í
björgunarstörfum.
Landhelgisgæslan hefur einnig
samning um leit og björgun við
danska sjóherinn. Slysavarna-
félagið Landsbjörg hefur yfir að
ráða vel þjálfuðum björgunar-
sveitum um land allt, björgunar-
skipum og góðu starfsfólki. Slysa-
varnafélagið Landsbjörg rekur
tilkynningarskyldu íslenskra
skipa. Landssíminn rekur strand-
stöðvar sem eru mikilvægur
hlekkur í leit og björgun á hafinu.
Allir þessir aðilar hafa unnið sam-
eiginlega við sjóbjörgun undanfar-
in ár. Markmið ráðstefnunar er að
sameina þau öfl sem vinna að sjó-
björgun svo að árangur verði eins
góður og mögulegt er. Það er mik-
ilsvert að hagsmunaaðilar í sjávar-
útvegi, útgerðarmenn og sjómenn,
kynni sér sem best fyrirkomulag
björgunar og nýjustu tækni í þeim
efnum. Mikilsvert er að útgerðar-
menn og sjómenn hafi góða yfir-
sýn yfir þessi mál og að bátar
þeirra og skip séu búin eins örugg-
um fjarskipta- og björgunarbúnaði
og mögulegt er á hverjum tíma.“
– Hverjir tala og um hvað?
„Fenginn verður fyrirlesari frá
Alþjóðasiglingamálastofnuninni,
IMO. Hann mun fjalla um sjó-
björgun almennt og fyrirkomulag
hennar í öðrum löndum. Jón Birg-
ir Jónsson, ráðuneytisstjóri í sam-
gönguráðuneytinu, nefnir fyrir-
lestur sinn „Stjórn leitar og
björgunar á Íslandi“. Gylfi Geirs-
son, forstöðumaður fjarskipta- og
upplýsingatæknisviðs Landhelgis-
gæslunnar, ræðir um framtíðar-
sýn í sjóbjörgun. Loftur Jónasson
frá Landssímanum nefnir fyrir-
lestur sinn „Sjálfvirkt tilkynning-
arkerfi“. Jón Gunnarsson, formað-
ur Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, flytur erindið „Öryggi á
sjó og landi.“ Einnig verður hags-
munaaðilum í sjávarút-
vegi gefinn kostur á að
flytja erindi, en upplýs-
ingar um efni þeirra
liggja ekki fyrir.“
– Hverjum er ráð-
stefnan ætluð?
„Hún er ætluð öllum þeim sem
koma nálægt sjóbjörgun, hvort
sem það eru opinberir starfsmenn,
starfsmenn eða sjálfboðaliðar í
björgunarsveitum, hagsmunaaðil-
ar eða aðrir sem áhuga hafa. Al-
menningur sem getur eitthvað
lagt til málanna er velkominn á
ráðstefnuna og aðrir sem vilja
fylgjast með hvað þar fer fram.“
Hafsteinn Hafsteinsson
Hafsteinn Hafsteinsson fædd-
ist í Reykjavík 3. desember 1939.
Lauk lagaprófi frá HÍ 1966, var
lögreglustjóri í Bolungarvík og
sveitarstjóri frá 1966–68. Fram-
haldsnám í sjórétti við London
University 1968–69 og lögfræð-
ingur Gæslunnar 1969–74 og
blaðafulltrúi hennar í 50 mílna
þorskastríðinu. Hann er hæsta-
réttarlögmaður og löggiltur nið-
urjöfnunarmaður sjótjóna. Rak
eigin lögmannsstofu frá 1969
þar til hann var skipaður for-
stjóri Landhelgisgæslunnar í
september 1993. Börn hans eru
Gunnar Viðar, Hrund, Auður og
Edda.
…að árangur
verði eins
góður og…
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur falið samkeppnisráði
að taka afstöðu til þess hvort
ástæða sé til að beita 19. gr. sam-
keppnislaga vegna þeirra viðskipta-
hindrana sem Norðurljós hf., sem
rekur m.a. Stöð 2 og Sýn, telja að
felist í lögum um Ríkisútvarpið.
Norðurljós kærðu ákvörðun sam-
keppnisráðs frá 4. desember 2001
þar sem ráðið komst að þeirri nið-
urstöðu að ekki væru lagaskilyrði
til íhlutunar í málinu vegna erindis
Norðurljósa um samkeppnisstöðu
leyfisbundins útvarpsrekstrar
gagnvart Ríkisútvarpinu. Kröfðust
Norðurljós að ákvörðun samkeppn-
isráðs yrði felld úr gildi.
Málavextir eru þeir að Norður-
ljós beindu því til Samkeppnisstofn-
unar í október 1999 að taka þegar
til skoðunar starfsemi Ríkisút-
varpsins og kanna hvort hún fengi
samrýmst reglum samkeppnisrétt-
ar. Komst samkeppnisráð að þeirri
niðurstöðu að ekki væru lagaskil-
yrði til íhlutunar í málinu.
Ekki ríkisstyrkur heldur
ólögmæt viðskiptahindrun
Töldu Norðurljós að samkeppn-
isráð hefði komið sér hjá því að
taka efnislega á erindinu með því að
telja að málið heyrði undir Eftirlits-
stofnun EFTA. Erindið hefði fyrst
og fremst lotið að þeirri ójöfnu
samkeppni sem ljósvakamiðlar hér
á landi yrðu að þola vegna lögboð-
ins útvarpsgjalds til Ríkisútvarps-
ins og því innheimtuhagræði sem
því væri búið í lögum. Í þessu hag-
ræði fælist ekki ríkisstyrkur heldur
ólögmæt viðskiptahindrun og tekju-
leg forgjöf sem ætti sér ekki sam-
svörun í samkeppnisrekstri hér á
landi.
Kvörtun Norðurljósa vegna Ríkisútvarpsins
Samkeppnisráð taki
afstöðu til málsins
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur skipað Einar Kr.
Guðfinnsson alþingismann formann
Ferðamálaráðs
Íslands. Hann
tekur við for-
mennskunni af
Tómasi Inga Ol-
rich menntamála-
ráðherra.
Einar Kr. Guð-
finnsson hefur
einnig verið skip-
aður fulltrúi sam-
gönguráðherra í
Markaðsráði ferðaþjónustunnar og
tilnefndur af Íslands hálfu í Vestnor-
rænu ferðamálanefndina.
Nýr for-
maður Ferða-
málaráðs
Einar Kr.
Guðfinnsson
♦ ♦ ♦