Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 19
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar skil-
aði 108,4 milljónum króna hagnaði á
árinu 2001 en til samanburðar nam
hagnaðurinn árið 2000 349,5 milljón-
um króna. Fyrir áætlaða skatta var
tap á árinu 2001 22,7 milljónir sam-
anborið við 513,6 milljóna hagnað ár-
ið áður.
Rekstur Sparisjóðsins styrktist á
árinu, eins og árið 2000, vegna sölu á
eignarhlut Sparisjóðsins í Kaup-
þingi. Í tilkynningu frá Sparisjóðn-
um kemur fram að lakari afkomu á
árinu 2001 megi einkum rekja til
verðfalls á erlendum verðbréfum í
eigu Sparisjóðsins og stóraukins
framlags í afskriftarreikning útlána
sem myndaður er til að mæta útlána-
töpum og ófyrirséðum töpum vegna
útlána og veittra ábyrgða.
Lögð var 561,1 milljón króna á af-
skriftarreikning en endanleg töpuð
útlán voru 376,2 milljónir króna. Af-
skriftarreikningur útlána í árslok
sem hlutfall af útlánum og veittum
ábyrgðum var 2,6% samanborið við
2,0% árið áður.
Sömu reglu er fylgt nú í ársreikn-
ingi Sparisjóðsins og undanfarin ár
að miða við markaðsverð á innlend-
um og erlendum markaðsverðbréf-
um. Arðsemi eigin fjár var 4,7% á
árinu 2001 en 19,6% árið áður. Eig-
infjárhlutfall Sparisjóðsins sam-
kvæmt svokölluðum CAD-reglum
var 11,7% í árslok 2001, en þarf að
lágmarki að vera 8,0%.
Heildarinnlán námu samtals
10.866,3 milljónum króna í lok ársins
og höfðu aukist um 8,9% frá árinu
áður. Heildarinnlán og verðbréf
námu samtals 15.995,3 milljónum
króna í árslok 2001 og höfðu aukist
um 1,0% frá árinu áður. Útlán til við-
skiptamanna voru samtals 22.775,7
milljónir króna í árslok 2001 og var
aukningin 8,9% frá fyrra ári.
Samkvæmt ársreikningi voru
vaxtatekjur Sparisjóðsins alls
4.035,5 milljónir króna á árinu 2001
og jukust um 37,1% frá árinu áður.
Einnig varð hækkun á vaxtagjöldum
milli ára. Voru þau 2.948,0 milljónir
króna á árinu 2001 og jukust um
42,5% frá fyrra ári. Vaxtamunur sem
hlutfall af meðalstöðu vaxtaberandi
eigna var 4,2% á síðastliðnu ári en
var 3,9% árinu áður.
Aðrar rekstrartekjur voru 693,0
milljónum króna og minnkuðu um
29,5% frá árinu 2000. Önnur rekstr-
argjöld námu 1.242,1 milljón króna
og jukust um 4,9% frá árinu áður.
Framlag í afskriftareikning útlána
var 561,1 milljón króna en var 159,6
milljónir króna árið áður.
Í tilkynningu Sparisjóðsins segir
að bæði innlent og alþjóðlegt rekstr-
arumhverfi hafi sett svip á starfsem-
ina á árinu. Rekstur hefðbundinnar
bankaþjónusta var í öllum meginat-
riðum í samræmi við áætlanir en af-
koma hlutdeildar- og dótturfyrir-
tækja var lakari en gert hafði verið
ráð fyrir. Mikil uppbygging hefur átt
sér stað í starfi Sparisjóðsins und-
anfarin ár sem hefur miðast að því að
Sparisjóðurinn geti veitt viðskipta-
vinum alhliða fjármálaþjónustu.
Unnið var að breyttu skipulagi í
reikningshaldi Sparisjóðsins og end-
urskilgreiningu rekstrareininga með
tilheyrandi áherslubreytingu í þjón-
ustu við viðskiptavini.
Hagnaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar 108 milljónir króna
Arðsemi eigin fjár 4,7%
28 +"
28 # 9
1 +"$ +"
: +"$ # 9
; < % =$" = +" >
("
#
(" 9
- =?
$
"
!
!
"!!
#
!
&' (
!"
#$"
$#"
%$&"
%#"
"
$$"
%'&"
$"
$"
#"
$"
( )
* ++, ,
* ++, ,
( )!! !!
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um frávísun á máli Jóhanns Óla Guð-
mundssonar gegn Lyfjaverslun Ís-
lands hf., Aðalsteini Karlssyni og
fleirum, um ógildingu á samningi
Lyfjaverslunar um kaup á A. Karls-
syni hf. frá því í desember 2000. Hér-
aðsdómi er þannig falið að taka kröf-
ur Jóhanns Óla til efnislegrar með-
ferðar.
Þá hefur Hæstiréttur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms í máli Aðalsteins
Karlssonar og Lárusar Blöndal gegn
Jóhanni Óla og Lyfjaverslun Íslands,
Frumaflsmálinu, þar sem fallist var
á kröfur Jóhanns Óla um frávísun á
kröfu Lyfjaverslunar um svonefnda
meðalgönguaðild Lyfjaverslunar.
Þar af leiðandi er ekki lengur krafa
inni í því máli um að Jóhanni Óla
verði gert skylt með dómi að afhenda
hlutabréf að nafnvirði 170 milljónir
króna í Lyfjaverslun, sem hann fékk
afhent sem endurgjald fyrir Frumafl
í júní í fyrra, eins og upphaflega var
gerð krafa um af hálfu stefnenda.
Eftir stendur krafa um ógildingu
samningsins um kaup Lyfjaverslun-
ar á Frumafli og verður hún tekin til
efnislegrar meðferðar í héraðsdómi.
Hins vegar er enn ódæmt um
hvort gagnsök Jóhanns Óla í málinu,
um viðurkenningu á bótaskyldu
Lyfjaverslunar og stefnenda vegna
samningsbrota, fái efnismeðferð en
málflutningur um frávísunarkröfu
stefnenda varðandi gagnsökina hef-
ur enn ekki verið ákveðinn.
Deilurnar innan Lyfjaverslunar Íslands
Frávísun felld úr gildi
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
3. flokkur, 19. mars 2002
Kr. 1.000.000,-
4298H
12590B
25995F
41640E
41722F
52128E
54259B
55626B
56151G
56269B