Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 21
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
60 ára frábær reynsla.
Öflug vörn í vetur
freyðivítamín
Með gæðaöryggi
29 tegundir af
vítamínum,
steinefnum og Rautt
Panax Ginseng.
Omega 3 6 9 Jurtalýsi
Talið gott fyrir hjarta-
og æðakerfið.
Smyr liðina.
Opti L Zinc
Öflugt
gæðasink
Sólhattur
Gott fyrir
ónæmiskerfið?
Acidophilus
Fyrir
meltinguna
og maga
Megrun
vatnslosun,
brennsla
Lið-a-mót
Tvöfalt
sterkara
Borgarnesapótek
FRÍHÖFNIN
Apótek
Suðurnesja
(Keflavík)
LIÐ-A-MÓT
FRÁ
FRÍHÖFNIN
Tvöfalt sterkara
Þetta eina sanna
Með gæðaöryggi
HÓLMABORG SU 11 kom til Eski-
fjarðar með fullfermi af loðnu í
gær kvöldi. Þetta er engin nýlunda,
en þegar þessu magni hefur verið
landað þá er heildarafli skipsins á
vetrarvertíð ( frá áramótum ) orðin
rúm 51 þúsund tonn sem er lang-
mesti afli sem eitt skip hefur land-
að á einni loðnuvertíð hér á landi.
Miðað við að Hólmaborgin hafi
fengið greiddar um 8.000 krónur
að meðaltali fyrir hvert loðnutonn
er aflaverðmæti skipsins þessar 11
vikur yfir 400 milljónir króna.
Af þessu tilefni tóku forsvars-
menn Hraðfrystihúss Eskifjarðar
hf. á móti skipinu og afhentu áhöfn
veglega tertu.
Hólmaborgin er með langmestan
afla allra loðnuskipa á yfirstand-
andi vertíð samkvæmt upplýsing-
um á heimasíðu Samtaka fisk-
vinnslunnar. Ekkert annað skip er
komið yfir 40.000 tonn en mörg eru
komin yfir 30.000 tonn. Víkingur
AK var kominn með tæplega
34.000 tonn á mánudag samkvæmt
upplýsingum Samtaka fisk-
vinnslustöðva. Börkur NK var með
33.400 tonn, Sigurður VE 33.400,
Faxi RE og Örn KE voru með um
33.000, Jón Kjartansson með
32.500 og Júpíter ÞH með 32.250
tonn. Ingunn AK var með 31.800
tonn og Guðmundur Ólafur ÓF
með 31.100 tonn. Öll eiga þessi skip
eitthvað eftir af kvóta, Víkingur
mest eða 15.600 tonn en minnst á
Faxi eftir, 671 tonn.
Afar góð loðnuveiði hefur verið
suður af Malarrifi síðustu sólar-
hringa. Skipin staldra stutt við á
miðunum enda fljót að fylla sig.
Mikill afli hefur því borizt á land og
í gærmorgun voru eftir um 139.000
tonn af leyfilegum kvóta íslenzku
skipanna. Mestu hefur verið landað
Í Vestmannaeyjum, 93 þúsund
tonnum, en þar eru tvær verk-
smiðjur. Á Eskifirði hefur verið
landað 80 þúsund tonnum, rúmlega
75 þúsund tonnum á Seyðisfirði,
tæplega 72 þúsund tonnum í Nes-
kaupstað og 55 þúsund tonnum í
Grindavík, en á þessum stöðum er
aðeins ein verksmiðja.
Hólmaborg yfir 50.000 tonn
Aflaverðmætið
komið yfir 400
milljónir króna
frá áramótum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Hólmaborgin frá Eskifirði með fullfermi á landleið. Hún er langaflahæsta loðnuskipið á yfirstandandi vertíð.
VÍSIR hf. í Grindavík og tengd fé-
lög eiga nú fjóra fiskmarkaði, Fisk-
markað Grindavíkur, sem reyndar
er rekinn af Fiskmarkaði Suður-
nesja, Fiskmarkaðinn á Djúpavogi,
á Þingeyri og Húsavík, en sá síðast-
nefndi var stofnaður við kaup Vísis
á stórum hlut í Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur.
Hver sem er getur stofnað fisk-
markað og í raun þarf ekki annað en
stofna hlutafélag og fá samþykki
Fiskistofu fyrir því húsnæði, sem
nota á undir starfsemina. Síðan þarf
tengingu inná sölukerfi Íslands-
markaðar sem sér um hina eigin-
legu sölu og uppboðsmeðferð þar
sem kaupendur leggja inn ábyrgðir
til kaupanna. Áður voru tvö fyrir-
tæki með svipuð kerfi en nú er að-
eins eitt starfandi eftir sameiningu
þeirra.
Seljum eingöngu á eigin mörkuðum
„Við seljum okkar fisk eingöngu á
okkar mörkuðum og samrekum
markaðina þannig að það er bara
einn uppboðshaldari fyrir þá alla, en
starfsfólkið á viðkomandi stöðum,
tekur fiskinn inn í hús, merkir, rað-
ar upp og tekur ísprufur og vigtar,“
segir Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis.
„Síðan er ákveðið hvað af fisk-
inum fari beint í vinnslu og hvað fari
á markað. Við seljum einnig fisk
fyrir aðra á mörkuðunum okkar
nema í Grindavík. Það gerum við
meðal annars til að eiga betri kost á
því að kaupa fisk af öðrum en okkar
eigin bátum. Þetta hefur gengið
mjög vel á Djúpavogi og aðstaðan á
Húsavík verður ekki síðri. Þar er
allt til alls.
Við kaupum fisk á öðrum mörk-
uðum líka. Þegar okkar maður er á
markaði, er hann annars vegar að
verja okkar fisk. Hann kaupir hann
ef verðið fer ekki nógu hátt, og
kaupir auk þess fisk af öðrum mörk-
uðum, ef verðið er okkur hagstætt,
enda selja allir fiskmarkaðarnir á
einu uppboði í einu tölvukerfi eins
og áður sagði. Þetta hefur reynzt
okkur mjög vel enda höfum við gert
þetta í áratug.
Daglegt reikningsdæmi
Það er daglegt reikningsdæmi
hvað borgar sig að taka inn í hús til
vinnslu, bæði stærð og tegund.
Staðan getur svo verið sú, að þegar
einhver önnur vinnsla býður hærra í
fiskinn, en við getum keypt hann á
til vinnslu, þá seljum við þann fisk
og kaupum annan, sem hentar betur
fyrir okkur. Á undanförnum árum
hefur um helmingur aflans verið
seldur á mörkuðunum okkar, karf-
inn, ýsan, langan og stundum keilan.
Þorskinn höfum við tekið í vinnsl-
una hjá okkur. Við kaupum svo
þorsk fyrir sömu upphæð og við
fáum fyrir annan fisk til vinnslu hjá
okkur. Staðan getur líka verið sú
með keiluna, að við séum í vafa um
það hvort það borgar sig fyrir okkur
að vinna hana. Hún fer þá á uppboð,
ef hún fer ekki hærra en í 80 krónur
á kílóið, kaupum við hana og
vinnum, fari hún á 100 krónur, lát-
um við hana frá okkur.
Þegar maður er með eigin fisk-
markað, verður þetta miklu ódýrara
vegna þess að við getum betur sam-
nýtt fólkið. Aflanum er þá landað og
teknar ísprufur og gengið frá hon-
um. Svo liggur það bara fyrir að
meta hvort það borgar sig að taka
hann inn í húsið eða ekki. Kostnaður
vegna þessa verður þá miklu minni
en það sem er á hinum mörkuðun-
um, sem taka 3 til 5% og þess vegna
er auðveldara að spá svona í málin.
Nú er staðan sú, að Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur vinnur ýsu í bita, en
við höfum ekki unnið ýsu áður. FH
getur keypt ýsuna á mörkuðum fyr-
ir 170–180 krónur kílóið. Markaðs-
ástæður geta svo verið þannig yfir
háveturinn að ýsan selst á yfir 300
krónur. Þá seljum við hana og tök-
um annað inn í staðinn.
Hægt að fara ýmsar leiðir
Við tökum því ekki fisk inn til
vinnslu á of háu verði. Við getum
reyndar keypt þorsk á háu verði, ef
við seljum hitt á háu verði þegar
fisk vantar í vinnlsuna. Það er hægt
að fara ýmsar leiðir til að velja fisk-
tegundir í vinnsluna. Sumir fara þá
leið að skipta öðrum tegundum í
þorsk á kvótamörkuðunum og beita
svo skipunum í þorsk, en þetta er
líka hægt að gera á fiskmörkuðun-
um með því að selja annað en þorsk-
inn og verja fénu, sem fyrir það fæst
til að kaupa þorsk,“ segir Pétur H.
Pálsson.
Vísir rekur fjóra
fiskmarkaði
„Mun ódýrari kostur að vera
með eigin fiskmarkaði“
Siglingastofnun
kaupir LiSA-
vefstjórnarkerfi
SIGLINGASTOFNUN Íslands
og hugbúnaðarfyrirtækið Innn
hf. hafa undirritað verksamning
vegna forritunar og uppsetning-
ar á nýjum vef stofnunarinnar.
Innn mun annast almenna ráð-
gjöf varðandi skipulag og upp-
setningu vefjarins, greiningar-
vinnu og hönnun á viðmóti hans.
Vefsvæðið byggist á vefstjórn-
arkerfinu LiSA 3.2. til að sinna
daglegri umsjón vefjarins en
Innn hefur margra ára reynslu í
framleiðslu og þróun á kerfinu.
Aðalmarkmið með nýja vef-
svæðinu er að bæta aðgengi við-
skiptavina og samstarfsaðila
stofnunarinnar að vefnum en
hlutverk vefjarins er það að auð-
velda verkefnavinnu á vefnum
og nýta vefinn sem upplýsinga-
veitu. Samningurinn gerir ráð
fyrir ákveðnum LiSA-viðbótar-
einingum til þess að gera vef-
svæðið ennþá öflugra. Auk
fréttakerfisins sem fylgir LiSA
mun stofnunin nota póstlista,
leitarkerfi og birtingastjórnun,
ásamt því að keyra innranet á
sama LiSA-kerfinu og ytranet-
ið. Einnig mun Innn hanna svo-
kallað extranet fyrir stofnunina
og verður þá hægt að bjóða upp
á læst svæði sem viðskiptavinir
og samstarfsaðilar Siglinga-
málastofnunar geta nýtt sér.