Morgunblaðið - 20.03.2002, Síða 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og allir drengir lék Sádi-
Arabinn Osama bin Laden sér í
fótbolta með strákunum úr hverf-
inu á uppvaxtarárum sínum. Eftir
að öllum ærslum var lokið átti bin
Laden það hins vegar til að skipta
mönnum í lið og spyrja þá spjör-
unum úr til að kanna þekkingu
þeirra á kenningum íslams.
Bin Laden fæddist í Riyadh árið
1957 en ólst hins vegar upp í
borginni Jeddah við Rauðahafið.
Þar minnast menn hans sem ung-
lings sem hafði gaman að því að
stunda útreiðar og fara í veiði-
ferðir, en sem hafði einnig ríka
þörf til að reyna að sannfæra vini
og vandamenn um að stunda trú
sína af meiri innlifun.
Segja menn sem þekktu bin
Laden á unglingsárum hans að
ekkert hafi gefið mönnum vís-
bendingar um að þessi piltur ætti
síðar eftir að verða valdur að
dauða þúsunda manna með
hryðjuverkum víðs vegar um
heiminn, engum þó eins eft-
irminnilegum og árásunum á
Bandaríkin 11. september sl.
Á uppvaxtarárum bin Ladens
var Jeddah aðeins lítill bær í
miðri sandauðninni, alls ólíkur
þeirri ljósaborg sem nú er, en
Jeddah þykir helst minna á
bandaríska stórborg með tilheyr-
andi skyndibitastöðum. Þó blésu
ávallt ólíkir menningarstraumar
um Jeddah, í mun ríkara mæli en
aðrar borgir Sádi-Arabíu, enda
fóru milljónir múslima um borg-
ina ár hvert í pílagrímaför til heil-
ögu borganna, Mekka og Medina.
Bin Laden var eina barn fjórðu
eiginkonu Muhammads bin Lad-
ens, Aliu Ghanem, en hún var sýr-
lensk. Hlýddi drengurinn gjarnan
á föður sinn á kvöldin rekja nauð-
syn þess að lifa í samræmi við þær
ströngu trúarreglur sem menn að-
hyllast í Sádi-Arabíu, fæðing-
arstað spámannsins Múhameðs.
Mislíkaði að karlar
gengju í stuttbuxum
Muhammad bin Laden lést þeg-
ar Osama var aðeins tíu ára og
erfði pilturinn þá fjármuni sem
jafnast á við marga milljarða ís-
lenskra króna. Móðir hans giftist
á ný og þau fluttu í hús í útjaðri
Jeddah í nýju millistéttarhverfi
sem þar var að rísa.
Bin Laden eignaðist hvíta
Chrysler-bifreið er hann komst á
unglingsárin og bauð kunningjum
sínum úr hverfinu gjarnan í bíl-
ferð, að sögn Khaleds Batarfi sem
var nágranni bin Ladens, en er nú
ritstjóri dagblaðsins Al-Madina.
Segir Batarfi að bin Laden hafi
aldrei borið auðæfi sín á torg og
hann reyndi ekki heldur að pre-
dika yfir piltunum sem hann ving-
aðist við. Þvert á móti kaus hann
að reyna að hafa áhrif á menn
með því að sýna gott fordæmi.
„Honum mislíkaði t.d. að karlar
gengju í stuttbuxum,“ segir Bat-
arfi, sem lærði blaðamennsku við
háskólann í Oregon í Bandaríkj-
unum. „Ég man hins vegar ekki til
þess að hann segði okkur að gera
það ekki. Maður fann það bara og
af því að við bárum virðingu fyrir
honum þá vorum við alltaf í síð-
buxum er við spiluðum fótbolta.“
„Þessi maður hefur afar sterka
útgeislun,“ bætir Batarfi við.
„Hluti þess felst í því að hann trú-
ir því sem hann predikar og fram-
kvæmir í samræmi við sannfær-
ingu sína.“
Glaumur og glys
í Líbanon
Batarfi kveðst ekki minnast
þess að bin Laden sýndi stúlkum
neinn áhuga. Í bókinni Bin Laden:
The Man Who Declared War on
America segir höfundurinn, Yoss-
ef Bodansky, hins vegar að fyrir
1975 hafi bin Laden nýtt ferðir til
Líbanon, þar sem menn voru mun
frjálslyndari en í Sádi-Arabíu, til
að sletta úr klaufunum.
Fullyrðir Bodansky jafnvel að
bin Laden hafi í Líbanon verið
hinn mesti drykkjusvelgur og
kvennaflagari.
Þegar borgarastríð braust út í
Líbanon í apríl 1975 héldu æðstu-
prestarnir í Sádi-Arabíu því fram
að Guð væri að refsa íbúum Líb-
anons vegna þess að þeir hefðu
leyft sér að spilla ungum múslim-
um, nokkuð sem bin Laden tók
mjög til sín að sögn Bodanskys.
Og hinn ungi bin Laden fékk
tækifæri til að sýna fylgispekt
sína við íslam snemma á níunda
áratugnum þegar hann hélt til
Afganistans – eins og þúsundir
annarra trúbræðra hans – til að
berjast í heilögu stríði gegn Sov-
étmönnum sem ráðist höfðu inn í
landið árið 1979. Sá bin Laden
einkum um að tryggja bardaga-
mönnum búnað og þjálfun.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu voru
fyrir sitt leyti afar ánægð að einn
landa þeirra beitti sér svo mjög í
stríðinu gegn Sovétmönnum og
tóku því fljótlega að styrkja starf-
semi hans fjárhagslega, rétt eins
og stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Pakistanar. „Hann gaf gott for-
dæmi. Við vildum fleiri eins og
hann,“ segir Turki prins sem var
yfirmaður sádi-arabísku leyni-
þjónustunnar frá 1977 þar til í
fyrra.
Öllu þessu lýsti bin Laden svo
fyrir vinum og vandamönnum þá
hann heimsótti fósturjörð sína,
Sádi-Arabíu. Afrek hans í Afgan-
istan öfluðu honum virðingar
meðal kunningjanna heima í Jedd-
ah, sem hann ella hefði ekki notið
sökum þess að hann var eiginlega
hálfgert örverpi meðal 54 systk-
ina.
Blikur voru hins vegar á lofti
og bin Laden fannst vestræn áhrif
vera farin að setja einum of mik-
inn svip á uppvaxtarborg sína,
Jeddah.
Hóf hann baráttu sína gegn
Bandaríkjunum og stjórnvöldum í
heimalandi sínu eftir að Sádi-
Arabar buðu Bandaríkjastjórn að
flytja hermenn til landsins í því
skyni að verjast hugsanlegri inn-
rás Íraka snemma á síðasta ára-
tug síðustu aldar.
Reyndi að uppfræða
jafnaldra sína um íslam
Osama bin Laden hafði snemma sterka útgeislun
Jeddah. AP.
AP
Á uppvaxtarárum Osama bin Ladens var Jeddah lítil borg í sandauðninni
en minnir nú helst á bandaríska stórborg með tilheyrandi úrvali skyndi-
bitastaða. Talið er að hann hafi í æsku spilað fótbolta með vinum sínum á
þeim slóðum, þar sem þessi McDonalds-veitingastaður stendur nú.
’ Við vildum fleirieins og hann ‘
EFASEMDIR ein-
kenna afstöðu Palest-
ínumanna til þeirra
friðarumleitana sem nú
virðast komnar í gang í
Mið-Austurlöndum
fyrir milligöngu
Bandaríkjastjórnar.
Segir Svala Jónsdóttir,
sem starfar á vegum
Hjálparstofnunar
kirkjunnar í Jerúsal-
em, að Palestínumenn
hafi einfaldlega ekki
mikla trú á raunveru-
legum friðarvilja Ariels
Sharons, forsætisráð-
herra Ísraels, og leyfi
sér því ekki að binda of
miklar vonir við frumkvæði Banda-
ríkjamanna.
Svala var að koma frá borginni
Ramallah á Vesturbakkanum þegar
Morgunblaðið náði tali af henni í
gær. Hafði hún þar verið viðstödd
minningargöngu um ítalskan frétta-
ljósmyndara, Raffaele Ciriello, sem
féll í aðgerðum Ísraelshers í Qadd-
ura-flóttamannabúðunum í síðustu
viku.
Jafnframt hafði hún skoðað
skemmdir sem aðgerð-
ir hersins á undanförn-
um dögum hafa valdið í
flóttamannabúðum
Palestínumanna í út-
jaðri Ramallah.
„Skemmdirnar eru um-
talsverðar,“ sagði hún.
„Ísraelsher gróf í sund-
ur vegi, vatnslínur, raf-
magnslínur og símalín-
ur og það var einmitt
verið að vinna að við-
gerðum þegar við vor-
um þarna í dag [í gær].
Síðan eyðilögðu þeir
æskulýðsmiðstöð sem
þarna er og heilsu-
gæslustöð þar rétt hjá
er einnig talsvert skemmd.“
Fyrri heimsóknir
Zinnis skilað litlu
Svala sagði að herinn hefði nú
dregið sig frá Ramallah en að hann
hefði ekki farið langt, einungis til
varðstöðva sinna í útjaðri borgarinn-
ar. Þau hefðu einmitt lent í töfum við
eina slíka er þau yfirgáfu Ramallah
og héldu aftur til Jerúsalem.
Svala sagði að þó að Ísraelsher
hefði nú dregið sig frá Betlehem og
Anthony Zinni, sérlegur sáttasemj-
ari Bandaríkjastjórnar, væri kominn
til Mið-Austurlanda væru Palestínu-
menn áfram svartsýnir á stöðuna.
„Zinni hefur auðvitað komið hingað
áður og það gerðist ekkert þá. Menn
búast alveg eins við því að Ísraelsher
snúi aftur.“
Boltinn nú
hjá Arafat?
Benti hún á að Palestínumenn
hefðu mátt þola hersetu Ísraela í
áratugi og enginn reiknaði því með
að ástandið tæki einfaldlega stakka-
skiptum á einum degi. Flestir
reyndu auðvitað að halda í vonina en
menn væru hins vegar afar van-
trúaðir á að Sharon vilji í raun og
veru ná fram friði. Aðgerðir hersins í
síðustu viku – mestu hernaðarað-
gerðir þeirra um áratuga skeið –
gæfu mönnum það ekki til kynna.
Sharon og Dick Cheney, varafor-
seti Bandaríkjanna, sögðu í gær að
boltinn væri nú hjá Yasser Arafat,
forseta heimastjórnar Palestínu-
manna. Hann yrði að svara eftirgjöf
Ísraelsstjórnar með því að fyrir-
skipa algert vopnahlé í sínum röð-
um.
Sagði Svala að slíkar yfirlýsingar
féllu sjálfsagt misjafnlega í kramið.
Um helgina hefðu Palestínumenn jú
enn verið að grafa fórnarlömb hern-
aðaraðgerða Ísraela. „Mörgum
finnst það kaldhæðnislegt af Ísr-
aelum að ráðast af svona mikilli
hörku inn á heimastjórnarsvæðin,
eins og þeir gerðu í síðustu viku,
drepa fullt af fólki, handtaka þús-
undir manna og eyðileggja mann-
virki, en koma svo nokkrum dögum
síðan og segja að nú sé það Arafats
að taka til hendinni,“ sagði hún.
Reuters
Frá minningarathöfn sem haldin var í gær um ítalskan ljósmyndara,
Raffaele Ciriello, en hann féll í aðgerðum Ísraelshers í síðustu viku.
Svala
Jónsdóttir
Palestínumenn binda ekki miklar vonir við frumkvæði Bandaríkjamanna
Setja mikinn
fyrirvara
við friðar-
vilja Ísraela
ÓÞEKKTIR menn komust í
gærmorgun undan eftir að hafa
rænt þremur milljónum dollara
í reiðufé, eða 300 milljónum
króna, úr brynvörðum bíl við
Heathrow-flugvöll í Lundúnum.
Þjófarnir, tveir karlmenn, lík-
lega á þrítugsaldri, fóru inn á af-
girt svæði þar sem flugvélum er
lagt og ógnuðu bílstjóra pen-
ingaflutningabílsins með hnífi
rétt eftir að peningarnir voru
fluttir frá borði þotu South Afr-
ican Airways. Þeir þvinguðu bíl-
stjórann til að aka sér til Cran-
ford, um þrjá kílómetra frá
flugvellinum, þar sem þeir tóku
peningana úr bílnum og fluttu
yfir í annan bíl sem þeir síðan
óku á brott.
Bílstjórann sakaði ekki og
hringdi hann í lögreglu um kl.
hálfátta í gærmorgun.
Talsmaður lögreglu sagði í
gær að talið væri að ræningjarn-
ir hefðu komist undan með um
þrjár milljónir dollara, eða tæp-
ar 300 milljónir króna.
Þetta er í annað skiptið á
rúmum mánuði sem stórrán er
framið á Heathrow-flugvelli.
Ríkisstjórn Bretlands fyrirskip-
aði rannsókn á öryggi og eftirliti
á vellinum í febrúarmánuði eftir
að tveir karlmenn höfðu rænt
peningaflutningabíl og haft á
brott með sér 6,5 milljónir doll-
ara, um 650 milljónir króna.
Einn karlmaður hefur verið
handtekinn í tengslum við það
rán.
Annað
stórrán
á Heath-
row
London. AFP.