Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 25
ÞAÐ var gríðarleg stemmning í
þéttsetinni Laugardalshöll á laugar-
dag, þegar Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, West End Int-
ernational hópurinn,
söngflokkurinn
Elektravox, að viðbætt-
um þremur íslenskum
karlsöngvurum og
rokksveit fluttu lög úr
smiðju hljómsveitar-
innar Queen.
Það skal viðurkennt
að undirrituð hafði uppi
nokkrar efasemdir fyr-
ir tónleikana um að
verkefnið væri viðráð-
anlegt; – ekki nokkur
núlifandi söngvari færi
í spor Freddys Merc-
urys og vafasamt væri
að sinfónísk útfærsla
myndi bæta nokkru við þá eðalmúsík
sem gert hefur Queen að klassískri
hljómsveit.
Það kom þó á daginn að efasemdir
voru að mestu ástæðulausar. Fjórir
söngvarar West End hópsins skiptu
með sér söngnum, þau Hazel Fern-
andes, Sally Ann Triplett, James
Graeme og Dean Collinson. Ekkert
þeirra líktist Freddy Mercury tiltak-
anlega í söngnum, enda kannski
hvorki til þess ætlast, né hægt að
ætlast til þess af þeim. Hazel, Sally
Ann og Dean reyndust afburða-
söngvarar, hvert með sinn karakter
og stíl, öll góð. James Graeme stóðst
þeim því miður ekki snúning; röddin
þreytt og lúin og hann sjálfsagt bú-
inn með sitt besta. Allt er þetta
menntað og þrautreynt fólk í söng-
leikjabransanum, með margs konar
verðlaun og viðurkenningar upp á
vasann. Stúlkurnar þrjár í Elektra-
vox, Louise Marshall, Shena
McSween og Veronica Hart eru ekki
síðri fagmenn og firnagóðir söng-
fuglar og nutu á tónleikunum dyggr-
ar aðstoðar Braga Þórs Valssonar,
Eyjólfs Kristjánssonar og Gunnars
Ben. sem allir eru þekktir að söng-
fimi. Hrynsveitin, skipuð þeim Ey-
þóri Gunnarssyni og Kjartani Valdi-
marssyni á hljómborð, Guðmundi
Péturssyni og Evarð Lárussyni á
gítara, Richard Korn á bassa og
Gunnlaugi Briem á trommur var
feiknargóð, en það hefði mátt magna
hana betur upp, sérstaklega tromm-
urnar, sem hurfu stundum óþarflega
illa í sinfónískan flauminn.
Útsetningar Martins Yates reynd-
ust afbragðs góðar og þar var fetað
gott jafnvægi milli rokksveitarinnar
og hinnar sinfónísku og svo söngsins.
Þó voru þar atriði sem erfitt var að
skilja, eins og það hvers vegna horn-
in voru látin yfirtaka besta partinn af
snilldarlegu gítarsólói Brians May
gítarleikara Queen undir lok lagsins
Bohemian Rhapsody. Það var eins
og jörðin gleypti það og lagið missti
svolítið af karakter sínum fyrir vikið.
Annars er óhætt að segja að Yates
hafi verið tónsmíðunum trúr og ein-
mitt frekar en hitt leyft karakter
hvers lags fyrir sig að njóta sín. Það
sem síst gekk voru bakraddirnar.
Aðalsmerki hljóm-
sveitarinnar Queen og
eitt af hennar góðu sér-
kennum voru framúr-
skarandi raddanir
hljómsveitarmeðlima.
Eins og með rödd
Freddys Mercurys
verður þetta ekki svo
létt leikið eftir. Og þótt
bakraddahópurinn hafi
verið góður, þá náði
hann engan vegin
sannfærandi Queen
svip á því. Það er held-
ur ekkert áhlaupaverk;
ætli Queen sitji ekki á
toppnum – með Bítlun-
um – í þeirri kúnst að
radda vel. Þetta kom í ljós strax í
öðru lagi, You’re my Best Friend, af
plötunni Night at the Opera og var
áberandi í öllum þeim lögum þar sem
Queen tókst best upp í bakraddalist-
inni sem hljómsveitin var búin að
þróa nánast til fullkomnunar strax á
þriðju plötu sinni, Sheer Heart
Attack frá 1974 í lögum eins og Kill-
er Queen sem einnig var flutt á tón-
leikunum.
Lögin sem Yates útsetti voru
prýðilega valin og gáfu góða yfirsýn
yfir feril Queen, þekkt lög og minna
þekkt. Þó hefði mátt sleppa lagi úr
kvikmyndinni um Hvell-Geira sem
einhvern veginn passaði ekki inní.
Fyrir hlé voru best heppnuðu lög-
in Fat Bottomed Girls, Radio Ga Ga
og Killer Queen og Don’t Stop me
Now sem Dean Collinson söng feikn-
arvel. Eftir hlé tók Sally Ann salinn
með trompi í laginu Somebody to
Love. Það magnaðist upp gríðarleg
stemmning í höllinni eftir því sem á
leið tónleikana; We Will Rock You og
Crazy Little Thing Called Love voru
mögnuð í flutningi listamannanna og
Hazel fór á kostum í laginu Save Me
og söng svo undurfallega með svartri
sólrödd sinni að Freddy Mercury
hefði trúlega hreinlega öfundað hana
af. Lagið Who Wants to Live For-
ever var feiknar vel sungið af Dean
og Sally Ann, og í tveimur síðustu
lögunum, Bohemian Rhapsody og
We are the Champions var allt orðið
funheitt í salnum. Óhemju fagnaðar-
læti brutust út þegar tónleikagest-
unum var boðið að syngja með og
klappa og óhætt er að fullyrða að
sjaldan hefur gestum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar verið jafn vel skemmt.
Þrátt fyrir þá hnökra sem nefndir
hafa verið er ekki hægt að segja ann-
að en að tónleikar Sinfóníunnar og
West End hópsins í Laugardalshöll
hafi verið vel heppnaðir. Þar skiptir
mestu að lög hljómsveitarinnar
Queen eru bara svo góð. Góðar út-
setningar spilltu ekki, hvað þá fag-
mannlegur og góður söngur. Hlutur
Sinfóníuhljómsveitarinnar og hryn-
sveitarinnar var mikill og hljóm-
sveitarstjórinn David Charles Abell
hélt öllu saman með dúndurmúsík-
alskri stjórn. Hann hafði tónlistina í
hendi sér og það skipti miklu máli.
Sú stemmning sem magnaðist upp í
salnum var mikilfengleg og tónleika-
gestir hurfu á braut með söng á vör
og obbolítið rokk í hjarta.
Queen – rokkdrottning
í sinfónískum kjól
TÓNLIST
Laugardalshöll
Sinfóníuhljómsveit Íslands, hrynsveit,
West End hópurinn, sönghópurinn
Elektravox að viðbættum þremur ís-
lenskum karlsöngvurum fluttu lög eftir
hljómsveitina Queen í útsetningum eftir
Martin Yates, David Charles Abell stjórn-
aði. Laugardag kl. 15.00.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Bergþóra Jónsdóttir
Martin Yates
STÓRSVEIT Reykjavíkur efnir til
tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld kl.
21. „Sú hugmynd hefur verið á lofti
um hríð að koma á „klúbbtónleikum“
stórsveitarinnar með reglulegu
millibili,“ segir Sigurður Flosason
einn úr hljómsveitaráhöfninni.
„Markmiðið er að ná mannskapn-
um saman undir óformlegri kring-
umstæðum en á hefðbundnum tón-
leikum og spila tónlist sem meðlimir
þekkja vel og geta flutt með lág-
marks undirbúningi og fáum æfing-
um. Þetta er því fyrsta skref stór-
sveitarinnar í skipulagðri „spila-
reynslusöfnun“ og til þess gert að
skemmta meðlimum og áheyrendum
í senn.“
Að þessu sinni verður flutt tónlist
eftir ýmsa af helstu stórsveitatón-
smiðum sögunnar.
Klúbbtónleikar
Stórsveitarinnar