Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 41
Á FORELDRAMORGNI í Lang-
holtskirkju fimmtudaginn 21. mars
kl. 10. 30, mun Svala Sigríður
Thomsen djákni, flytja erindi Börn
og áföll – börn og sorg. Á eftir
verða umræður um málefnið. Um-
fjöllun Svölu er liður í fræðslu
Langholtssafnaðar um líðan, við-
brögð og úrræði í áföllum og sorg.
Tilgangurinn með fræðslunni er
að virkja þátttakendur til að þekkja
viðbrögð og mæta börnum sem
hafa orðið fyrir áföllum. Á fræðslu-
morgninum verður fjallað um hinar
margvíslegu tilfinningar og við-
brögð við missi í sínum mörgu
myndum. Má þar nefna missi sem
börn verða fyrir vegna dauðsfalla,
fötlunar og veikinda, en einnig
vegna skilnaðar foreldra.
Fræðslan hefur það markmið að
fyrirbyggja langvinn eftirköst og
ætti að gagnast þeim sem vilja
veita börnum aðstoð þegar lífið er
erfitt.
Fræðslukvöld
– sorg og þunglyndi
FIMMTUDAGINN 21. mars mun
Ný dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, standa fyrir fræðslu-
kvöldi í Safnaðarheimili Háteigs-
kirkju.
Fyrirlesari er Haukur Ingi Jón-
asson, guðfræðingur og sálgreinir,
sem er nýsestur að á Íslandi eftir
margra ára framhaldsnám í einum
virtasta háskóla í New York. Auk
menntunar sinnar í guðfræði og
sálgreiningu hefur Haukur víðtæka
reynslu af kirkjustarfi og sálgæslu,
m.a. í gegn um þjónustu sína á
Landspítalanum í Fossvogi.
Haukur nefnir erindi sitt Sorg og
þunglyndi. Hann mun m.a. fjalla á
aðgengilegan hátt um kenningar
sálgreiningarinnar um sálrænt
þunglyndi sem allar ganga út frá
einhvers konar missi. Skoðaður
verður munurinn á hugsýki og sorg
og ljósi varpað á hugmyndir um
mikilvægi minninganna um látinn
ástvin.
Fyrirlesturinn stendur frá kl.
20–22 og er öllum opinn. Aðgangs-
eyrir er kr. 500.
Ljóðskáld og selló-
kvartett í Neskirkju
LJÓÐSKÁLDIÐ Sigurbjörg Þrast-
ardóttir les úr ljóðum sínum í Nes-
kirkju, miðvikudaginn 20. mars kl.
20 og sellókvartett úr Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna leikur út-
setningar passíusálmalaga. Kvart-
ettinn skipa Páll Einarsson, Sverrir
Teitsson, Fríða Björk Teitsdóttir
og Sif Björnsdóttir Ennfremur
verður lesið úr píslarsögu Krists og
Passíusálmum séra Hallgríms Pét-
urssonar.
Segja má að með þessari dagskrá
séu saga og samtíð leidd fram til
samtals um glímu mannsins við lífið
og tilveruna, böl og þjáningu
heimsins. Kór Neskirkju leiðir söng
undir stjórn organista kirkjunnar,
Reynis Jónassonar. Séra Örn Bárð-
ur Jónsson þjónar fyrir altari.
Kaffisopi og umræður í safn-
aðarheimilinu að guðsþjónustu lok-
inni.
Föstuvaka
í Hallgrímskirkju
Á FÖSTUVÖKU í Hallgrímskirkju í
kvöld kl. 20:00 syngur Kammerkór-
inn Schola cantorum undir stjórn
Harðar Áskelssonar, kantors. Kór-
inn flytur kórverk sem tengd eru
efni föstunnar. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson flytur hugvekju.
Þetta er síðasta föstuvakan að
þessu sinni. Eftir athöfnina í kirkj-
unni verður boðið upp á kaffisopa í
safnaðarsal kirkjunnar.
Börn og áföll –
börn og sorg
Morgunblaðið/Jim Smart
Langholtskirkja
Kirkjustarf aldraðra. Samkirkjuleg föstu-
guðsþjónusta í Hvítasunnukirkjunni Fíla-
delfíu, Hátúni 2, Reykjavík fimmtudaginn
21. mars 2002 kl. 14:00. Vörður L.
Traustason forstöðumaður í Fíladelfíu
stjórnar. Sr. Halldór S. Gröndal prédikar. Sr.
Miyako Þórðarson túlkar á táknmáli. Ritn-
ingarlestra lesa fulltrúar frá Ellimálaráði,
Fríkirkjunni og Óháða söfnuðinum. Kór fé-
lags eldri borgara í Reykjavík syngur og leið-
ir almennan söng undir stjórn Kristínar S.
Pjetursdóttur. Einsöngur: Geir Jón Þóris-
son. Organisti: Daníel Jónasson. Guðsþjón-
ustunni verður útvarpað á Lindinni FM
102,9. Kaffiveitingar í safnaðarsal eftir
guðsþjónustuna. Mætum öll og tökum þátt
í föstuguðsþjónustu aldraðra. Föstuguðs-
þjónustan er samstarfsverkefni Ellimála-
ráðs Reykjavíkurprófastsdæma, Hvíta-
sunnukirkjunnar, Óháða safnaðarins og
Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag
kl. 13. Handavinna, spil, föndur og gam-
anmál.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12.
Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur,
bænastund, kaffiveitingar og samræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára
börn kl. 16. Starf fyrir 11-12 ára börn kl.
17.30. Föstustund kl. 20. Schola cantorum
syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson flytur hugvekju.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á neðri
hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir
eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir
kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur.
Kórinn er ætlaður börnum úr 1.-3. bekk.
Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 und-
ir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætl-
aður börnum úr 4.-6. bekk. Kvöldbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Heilsuhópurinn kemur
saman kl. 11-12 í Litla sal. Spjallað yfir kaffi-
bolla. Heilsupistill, létt hreyfing og slökun.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12-
12.30. Orgelleikur og sálmasöngur. Stund-
ina annast sóknarprestur, djákni og organ-
isti. Fyrirbænaefnum má koma til sóknar-
prests og djákna í síma 520-1300.
Kærleiksmáltíð kl. 12.30. Matarmikil súpa,
salat og brauð kr. 500. Samvera eldri borg-
ara kl. 13-16. Kaffi og smákökur. Söngstund
með Jóni Stefánssyni. Tekið í spil, málað á
dúka og keramik í stóra sal.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-
7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10-
15.30 ætlaður börnum í 1.-4. bekk. Æfing
kl. 18 fyrir fermingarbörn pálmasunnudags.
Börn mæti með forsjáraðila. Unglingakvöld
Laugarneskirkju og Þróttheima fellur niður
vegna árshátíðar Laugalækjarskóla. (Sjá
síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í 2.
bekk velkomin. Föstuguðsþjónusta kl. 20.
Ljóðskáldið Sigurbjörg Þrastardóttir les úr
ljóðum sínum. Sellókvartett úr sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna leikur útsetningar
passíusálmslaga. Kvartettinn skipa Páll
Einarsson, Sverrir Teitsson, Fríða Björk
Teitsdóttir og Sif Björnsdóttir. Lesið úr písl-
arsögunni og passíusálmunum. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Molasopi
og spjall á eftir.
Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20.30.
39. passíusálmur. Þóra K. Árnadóttir, guð-
fræðinemi. Biblíulestur og kaffi eftir
messu.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
spil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöldmál-
tíð. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eft-
ir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða
frá kl. 13-16. Kirkjuprakkarar kl. 17-18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára
börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl.
17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
Unglingastarf KFUM&K Digraneskirkju kl.
20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára kl. 16.30-17.30. Kirkju-
krakkar í Rimaskóla fyrir börn 7-9 ára kl.
17.30-18.30. KFUK Unglingadeild kl.
19.30-21. Æskulýðsfélag Engjaskóla fyrir
börn 8.-9. bekk kl. 20-22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Opið
hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Litlir lærisveinar í Lindaskóla kl. 17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum
í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheimilinu
Borgum. Starf með 10-12 ára börnum (TTT)
á sama stað kl. 17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið
á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma
567 0110.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-
16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti
Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtu-
dögum kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 13:00. Helgistund, spil og
kaffiveitingar.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága-
fellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15-
14.30. Foreldramorgnar í safnaðarheimili
frá kl. 10-12.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði.
Allir aldurshópar. Umsjón Ásta Sigurðar-
dóttir, cand. theol. Æfing kórs Keflavíkur-
kirkju frá kl. 19.30-22.30. Stjórnandi Há-
kon Leifsson. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl.
19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Sjá: Kefla-
víkurkirkja.is
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera á
morgun, fimmtudag kl. 19. Fyrirbænaefn-
um er hægt að koma áleiðis að morgni
fimmtudagsins milli kl. 10 og 12 í síma
421-5013. Sóknarprestur.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum. Kl. 20 opið hús í
KFUM&K húsinu fyrir unglinga í 8.-10. bekk.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund
kl. 20. Allir velkomnir.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt
ungt fólk velkomið.
Fíladelfía. Létt máltíð á vægu verði kl. 18.
Kl. 19 er kennsla og þá er skipt niður í deild-
ir. Það er krakkaklúbbur fyrir krakka 3-12
ára, unglingafræðsla fyrir 13-15 ára,
fræðsla fyrir ungt fólk á aldrinum 16-20 ára.
Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til
skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitn-
isburðarstundir. Það eru allir hjartanlega
velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Opið hús, kaffi og spjall. TTT-starf kl. 17 í
safnaðarheimili. Biblíulestur kl. 20.30. Sr.
Guðmundur Guðmundsson. Hjónanám-
skeið kl. 20.30 í safnaðarheimili.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Org-
elleikur, altarissakramenti og fyrirbæn.
Léttur hádegisverður á vægu verði.
Kristniboðssalurinn Háaleitisbraut 58.
Fjáröflunarsamkoma Kristniboðsfélags
kvenna kl. 20:30. Happdrætti. Haraldur Jó-
hannsson talar. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
=. . 3
'
3
+' # -
I,)( <;<)
%0'% % % &$1%
% %&3'J
% %:F(
1%%-% %01&&'
' '4 3 6 %7 3
- '4 3 45%01&&'
1''4 3 ;%8&% 01&&'
'4 '4 3 6 & % 01&&'
:%%:3:%%:%%:(
" # -
)I))7K
<
-':%&>E
9 % #
.& ) +
& (+ & ) 5 11
'1 )&3 01&&'
% ' 4 # 01&&' -% 1/0 3
- % $1 01&&' )&3;)&3 3
1/0-% 3
4 #- '-% 3
.'#&3I -% 3(
& . 3 '
3
+ '
-)9 +)<)
# %%
)%%0%=D
#$% #(
)%-%# 01&&'
5 4-%# 01&&'
5 %-%# 01&&'
)0
#-%# 01&&'
1 0 3
) 0 01&&'
:%%:3:%%:%%:(
* ;,.9
<
4 % / %/ ' &%'
%' '
&' '/'' /% >:
)# '
*& &'
' 7 % -
!
+& 7 % )) 11
%' % /0 01&&' '$1 3 %0 3
8&% ' /0 3 ) 6/0 01&&'
% /0 3 %)(00
F %;(*'' 3 % & ' 01&&'
:%%:3%%%:(
=. %
3
++-
'
5*5))6)
' #
8 : . +
-
+ /
# :&'
'
' +
*$-1 01&&' *$4 # 3
*'%-1 01&&'
&&%)(+ :
' -1 01&&' ) % & '' %0% 3
6'%-1 3
1-1 3 - % 1 01&&'
-1*$ 3
:%%::%%:%%:
3:%%:%%:%%:(