Morgunblaðið - 20.03.2002, Qupperneq 43
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 43
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í 10
dönsum, með frjálsri aðferð, fór fram
í Íþróttahúsinu við Strandgötu sl.
laugardag. Þessi keppni er frábrugð-
in 5 og 5 dansa keppninni að því leyti
að samanlagður árangur úr suður-
amerísku dönsunum og sígildu sam-
kvæmisdönsunum ræður niðurröðun
para. Því sigrar það par sem er „jafn-
best“ ef svo mætti að orði komast.
Fjöldi þátttakenda í 10 dansa
keppnum er ávallt minni en í 5 og 5
dansa keppnunum sökum þess að
ekki leggja öll danspörin stund á báð-
ar greinar samkvæmisdansins.
Keppt var í 5 flokkum í 10 dansa
keppninni, þar sem yngsti flokkurinn
dansaði þó einungis 8 dansa.
Næsta öruggur sigur
Í yngsta flokknum voru 3 pör skráð
og fóru Björn Ingi og Ásta Björg með
sigur af hólmi. Í mínum huga var það
næsta öruggur sigur. Björn og Ásta
vinna ákaflega vel saman sem par og
nýta fætur mjög vel, þau eru nákvæm
í vinnubrögðum og skila því mjög
áferðarfallegum og áreynslulausum
dansi til áhorfandans. Ég hefði viljað
sjá meiri mjaðmahreyfingar (pelvis-
action) í sömbu og eins mætti skoða
fótavinnu á stöku stað í cha cha.
Björn og Ásta unnu báðar greinarnar
mjög örugglega.
Í öðru sæti voru Eyþór Smári og
Ásrún, sem eru mjög efnilegir dans-
arar. Þau voru að gera margt gott á
laugardaginn, sérstaklega þó í suður-
amerísku dönsunum, sem voru mjög
líflegir. Þau þurfa að nota fætur og
gólf mun betur í sígildu dönsunum,
það myndi skila þeim mun afslapp-
aðri dansstöðu og gera dansinn því
fallegri.
Spennandi keppni í jöfnum hópi
Í flokki Unglingar II F, dönsuðu 6
pör til úrslita og var flokkurinn mjög
spennandi og vel dansaður. Þetta var
án efa jafnasti hópurinn á laugardag-
inn og beindist því athygli margra
sérstaklega að honum.
Sigurvegarar urðu Jónatan Arnar
og Hólmfríður. Þau sigruðu nokkuð
örugglega. Þau fengu 1. sæti í 4 sí-
gildu dansanna og í 2 af þeim suður-
amerísku. Jónatan og Hólmfríður
hafa verið í mikilli uppsveiflu í vetur
og þá sér í lagi í sígildu samkvæm-
isdönsunum og skemmst er að minn-
ast sigurs þeirra í þeim á opnu Kaup-
mannahafnarkeppninni á dögunum.
Jónatan og Hólmfríður dönsuðu vel á
laugardaginn sérstaklega sígildu
dansana, mér fannst þó aðeins vanta
upp á flæðið í Vínarvalsinum. Það var
svona eins og „sweyið“ hjá þeim væri
búið til en kæmi ekki af sjálfu sér. Í
sömbunni mættu þau nota meiri
mjaðmahreyfingar, sem einkenna
sömbuna, með þessu verður sérkenni
dansins augljósara og dansinn fal-
legri. Fótavinna í cha cha og rúmbu
var hins vegar til fyrirmyndar.
Í öðru sæti voru Þorleifur og Ásta.
en þau eru gríðarlega kraftmiklir og
góðir dansarar. Á stundum hefur
krafturinn komið niður á parinu, að
mínu mati. Þá á ég við það að þau hafa
ekki alltaf náð að dansa saman sem
ein heild. Þau eru mun sterkari í suð-
ur-amerísku dönsunum og unnu 3
þeirra á laugardaginn. Mér fannst
Pasóinn þeirra vera mjög góður og
þar njóta kraftar þeirra og tjáning sín
til hins ýtrasta. Þau gerðu það einnig
gott í Kaupmannahöfn á dögunum
unnu til bronsverðlauna í suður-am-
erískum dönsum.
Í þriðja sæti, fast á hæla Þorleifs
og Ástu, voru Friðrik og Sandra Júl-
ía. Þau voru í 2. sæti í sígildu sam-
kvæmisdönsunum. Þar hefur þeim
farið mikið fram og voru þau t.d. í
fyrsta sæti í Vínarvalsinum. Þau hafa
bætt fótavinnuna hjá sér, sem hefur
skilað sér í mun betri dansstöðu og
betra flæði í dansinum. Með enn
bættri fótavinnu verður spennandi að
sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.
Aukið öryggi og yfirvegun
Í flokki Ungmenna F sigruðu Grét-
ar Ali og Jóhanna Berta örugglega,
þau unnu alla dansana. Þau dönsuðu
mun betur nú en síðast þegar ég sá
þau, mun öruggari í öllu sem þau
gerðu og allt yfirvegaðra, sérstaklega
í sígildu dönsunum, sem mér finnst
vera mun sterkari hjá þeim. Það
gætti svolítils óöryggis í síðustu suð-
ur-amerísku dönsunum t.d. í jive, eins
og þau væru jafnvel orðin þreytt. Ég
á reyndar bágt með að trúa því, en
kann þó vel að vera.
Í öðru sæti voru frændsystkinin
Sigurður Ragnar og Sandra. Þau
hafa einnig sýnt miklar framfarir síð-
an á síðustu keppni. Þau eru sterkari í
suður-amerísku dönsunum, þyrftu
samt sem áður að losa svolítið um
flæðið í líkamanum, eru svolítið stíf á
stundum, en þetta hefur samt verið á
hraðri uppleið. Haldið áfram að laga
fótavinnuna í sígildu dönsunum, það á
eftir að skila sér!
Ísak og Helga Dögg voru eina
skráða parið í flokki áhugamanna og
sigruðu þar af leiðandi mjög örugg-
lega. Ísak og Helga Dögg eru frábær-
ir dansarar og hafa sýnt það og sann-
að að undanförnu að þau eru meðal
þeirra bestu.
Björn og Bergþóra voru einnig
eina skráða parið í flokki fullorðinna.
Þau eru þrautreyndir dansarar og
hafa verið í fremstu röð íslenzkra
dansara í sínum flokki til fjölda ára.
Þau hafa einnig gert það gott á er-
lendri grundu og unnu t.d. til 4. verð-
launa í Kaupmannahafnarkeppninni í
fyrri mánuði. Svo sannarlega góðir
fulltrúar eldri kynslóðarinnar!
Skemmtilegur dagur
Samhliða Íslandsmeistarakeppn-
inni í 10 dönsum var boðið upp á
keppni í dansi með grunnsporum. Sú
keppni gekk vel fyrir sig og var mjög
spennandi og skemmtileg. Þar var
mikill fjöldi keppenda og stóðu þeir
sem með mikilli prýði. Einnig var
boðið upp á meistaramót í Línudöns-
um. Þar fór með sigur af hólmi hóp-
urinn Kid Creole, í öðru sæti var hóp-
urinn Hófarnir frá Skagaströnd og í
því þriðja voru Sjávarperlurnar frá
Grindavík.
Dómarar keppninnar voru 5 og
voru þeir allir af erlendu bergi brotn-
ir. Enn á ný finnst mér þörf að vekja
athygli á því að ekki voru neinir ís-
lenzkir dómarar á gólfinu, sem mér
finnst sem fyrr synd og skömm. Ann-
ars var dagurinn hinn skemmtilegasti
og gekk vel fyrir sig.
Úrslit í Íslandsmeistara-
keppni í 10 dönsum
Unglingar I, F
1. Björn I. Pálss./Ásta B. Magnúsd., GT
2. Eyþór S. Þórbjörnss./Ásrún Ágústsd., GT
3. Fannar H. Rúnarss./Edda G. Gíslad., GT
Unglingar II, F
1. Jónatan A. Örlygss./Hólmfríður
Björnsd., GT
2. Þorleifur Einarss./Ásta Bjarnad., ÍR
3. Friðrik Árnas./Sandra J. Bernburg ÍR
4. Stefán Claessen./María Carrasco ÍR
5. Björn E. Björnss./Herdís H. Arnalds GT
6. Baldur K. Eyjólfss./Anna K.
Vilbergsd., GT
Ungmenni F
1. Grétar A. Khan/Jóhanna B. BernburgÍ R
2. Sigurður R. Arnarss./Sandra Espersen ÍR
3. Davíð M. Steinarss./Sóley Emilsd., GT
4. Björn V. Magnúss./Björg Halldórsd., GT
Áhugamenn F
1. Ísak H. Nguyen/Helga D. Helgad., HV
Fullorðnir F
1. Björn Sveinss./Bergþóra M. Bergþórsd.,
DÍH
Úrslit í grunnsporakeppninni
Börn I, A/D, suður-amerískir dansar
1. Rúnar Sigurðss./Björk Guðmundsd., DÍH
2. Pétur G. Magnúss./Jóna K.
Benediktsd., DÍK
3. Freyþór Össurars./Harpa D.
Hákonard., DÍK
4. Kristján E. Auðunss./Ingibjörg A.
Bergþórsd., GT
5. Agnes Gunnarsd./Lilja G Sigurðard., Ýr
6. Hjalti F. Sigtryggss./Huld Tómasd., GT
Börn I, A/D, sígildir samkvæmisdansar
1. Pétur G. Magnúss./Jóna K.
Benediktsd., DÍK
2. Freyþór Össurars./Harpa D.
Hákonard., DÍK
3. Rúnar Sigurðss./Björk Guðmundsd., DÍH
4. Atli Þ. Einarss./Elísabet Halldórsd., GT
5. Hjalti F. Sigtryggss./Huld Tómasd., GT
6. Kjartan O. Þórss./Kolbrún H.
Gústafsd., GT
Börn I, K, suður-amerískir dansar
1. Alex F. Gunnarss./Vala B. Birgisd., DÍK
2. Davíð Ö. Pálss./Elísabet Jónsd., DÍK
Börn I, K, sígildir samkvæmisdansar
1. Alex F. Gunnarss./Vala B. Birgisd., DÍK
2. Davíð Ö. Pálss./Elísabet Jónsd., DÍK
Börn II, A/D, suður-amerískir dansar
1. Sigurþór Björgvinss./Telma R.
Sigurðard., DÍK
2. Torfi Birningur/Telma Ólafsd., GT
3. Júlí H. Halldórss./Rakel S.Björnsd., GT
4. Ólafur B. Tómass./Telma Ýr
Arnarsd., DÍK
5. Gísli B. Sigurðss./Hidlur Sæmundsd., GT
6. Guðmundur Guðmundss./Ester
Halldórsd., DÍK
Börn II, A/D, sígildir samkvæmisdansar
1. Sigurþór Björgvinss./Telma R.
Sigurðard., DÍK
2. Sigtryggur Haukss./Eyrún Stefánsd., GT
3. Ólafur B. Tómass./Telma Ýr
Arnarsd., DÍK
4. Hörður Ö. Harðars./Guðrún Arnalds., DÍK
5. Júlí H. Halldórss./Rakel S.Björnsd., GT
6. Guðmundur Guðmundss./Ester
Halldórsd., DÍK
Börn II, K, báðar greinar
1. Magnús A. Kjartanss./Ragna B.
Bernburg DÍK
Unglingar I, A/D, suður-amerískir dansar
1. Stefán R. Víglundss./Andrea R.
Víglundsd., Ýr
2. Matthías Sigurðss./Sandra
Gunnarsd., DÍK
3. Sigurður Brynjólfss./Rakel
Magnúsd., DÍK
4. Haraldur Ö. Harðars./Áslaug
Daníelsd., Ýr
5. Jón G. Guðmundss./Þórunn A.
Ólafsd., DÍK
6. Árný Daníelsd./Karen Axelsd., Ýr
Unglingar I, A/D, sígildir samkvæmisdans-
ar
1. Jón G. Guðmundss./Þórunn A.
Ólafsd., DÍK
2. Sigurður Brynjólfss./Rakel
Magnúsd., DÍK
3. Haraldur Ö.Harðars./Áslaug Daníelsd., Ýr
4. Stefán R. Víglundss./Andrea R.
Víglundsd., Ýr
5. Matthías Sigurðss./Sandra
Gunnarsd., DÍK
Unglingar I, K, suður-amerískir dansar
1. Haukur F. Hafsteinss./Hanna R.
Ólad., HV
2. Jón E. Gottskálkss./Elín H. Jónsd., ÍR
3. Karl Bernburg/Helga S. Guðjónsd., ÍR
4. Valdimar Kristinss./Rakel
Guðmundsd., ÍR
5. Aðalsteinn Kjartanss./Erla B.
Kristjánsd., ÍR
6. Arnar M Einarss./Helena Jónsd., DÍK
7. Adam E. Bauer/Þóra B. Sigurðard., GT
Unglingar I, K, sígildir samkvæmisdansar
1. Haukur F. Hafsteinss./Hanna R.
Ólad., HV
2. Karl Bernburg/Helga S. Guðjónsd., ÍR
3. Valdimar Kristinss./Rakel
Guðmundsd., ÍR
4. Arnar M. Einarss./Helena Jónsd., DÍK
5. Aðalsteinn Kjartanss./Erla B.
Kristjánsd., Í R
6. Adam E. Bauer/Þóra B. Sigurðard., GT
Unglingar II, A/D, suður-amerískir dansar
1. Theódór Kjartanss./Thelma D., Ægisd., Ýr
2. Erlingur Einarss./Edda B. Jónsd., GT
3. Atli B. Gústafss./Iðunn Jónasard., GT
4. Anita T. Helgad./Ragnheiður Árnad., Ýr
5. Kristín Ýr Sigurðard/Helga Reynisd., Ýr
6. Garðar Arnars/Halla Guðfinnsd., Ýr
Unglingar II, A/D, sígildir samkvæmisdans-
ar
1. Andri Kristinss./Elín R. Elíasd., GT
2. Anita T. Helgad./Ragnheiður Árnad., Ýr
Unglingar II K, báðar greinar
1. Pétur Kristjánss./Ása K. Jónsd., Ír
Ungmenni A/D, suður-amerískir dansar
1. Sandra S. Guðfinnsd./Silja Þorsteinsd., Ýr
2. Andrés Andréss./Berglind Svavarsd., Ýr
3. Sara B. Magnúsd./Birna R. Björnsd., DÍH
4. Oddný S. Davíðsd./Elísabet Ýr
Norðdahl GT
Ungmenni A/D, sígildir samkvæmisdansar
1. Sandra S. Guðfinnsd./Silja Þorsteinsd., Ýr
2. Oddný S. Davíðsd./Elísabet Ýr
Norðdahl GT
Björn Ingi og Ásta Björg unnu til
gullverðlauna í flokki Unglingar I.
Grétar Ali og Jóhanna Berta sigruðu örugglega í
flokkinum Ungmenni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Friðrik og Sandra Júlía í syngjandi sveiflu.
Fjölbreytni
og fjölhæfni á
dansgólfinu
DANS
Íþróttahúsinu við Strandgötu
í Hafnarfirði
Haldið laugardaginn 16. mars.
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
Jóhann Gunnar Arnarsson.
LÍNUR eru farnar að skýrast
varðandi fyrirhugað námskeið
danska reiðsnillingsins Bents
Branderups sem haldið verður 13.
og 14. apríl. Ljóst er nú að að nám-
skeiðið verður haldið í Reiðhöllinni
í Víðidal en ekki í Hafnarfirði eins
og upphaflega stóð til.
Þá hefur aðgangseyrir fyrir þá
sem taka þátt í námskeiðinu sem
áhorfendur verið ákveðið krónur 12
þúsund en skuldlausir félagsmenn í
Félagi tamningnamanna fá 2.000
króna afslátt. Áhorfendur einskorð-
ast þó ekki við félagsmenn í FT en
sala aðgöngumiða hefst föstudag-
inn 22. mars nk. í versluninni
Ástund og gildir þar hið forn-
kveðna að „fyrstir koma fyrstir fá“.
Tekið er fram að takmarka verði
fjölda þátttakenda vegna stærðar
fyrirlestrasalar.
Að loknu námskeiði verður boðið
upp á málþing um reiðmennsku þar
sem knaparnir sem taka þátt í
sýnikennslunni verða allir í salnum
með hesta sína og áhorfendum
verður gefinn kostur á að beina til
þeirra spurningum sem væntanlega
verður svarað í orðum og gerðum
með hestinum.
Nú er komið á hreint hvaða
hesta knaparnir í sýnikennslunni
mæta með og er þar fyrstan og
fremstan að telja Sigurbjörn Bárð-
arson sem mætir með Markús frá
Langholtsparti. Benedikt Líndal
mætir með Glitfaxa frá Kílhrauni.
Reynir Aðalsteinsson mætir með
Leikni frá Sigmundarstöðum og
Eyjólfur Ísólfsson mætir með Rás
frá Ragnheiðarstöðum en þessir
fjórir eru tamningameistarar og
reiðkennarar með A-réttindi sem
er æðsta gráða í þeim efnum.
Anton Páll Níelsson mætir með
Skugga frá Víðinesi, Atli Guð-
mundsson mætir með Breka frá
Hjalla, Einar Öder Magnússon
mætir með Fald frá Syðri-Gróf og
Olil Amble mætir með Suðra frá
Holtsmúla. Þessi fjögur eru öll svo-
kallaðir þjálfarar og með B-reið-
kennararéttindi.
Auk verklegrar sýnikennslu
verða fyrirlestrar í veitingasal reið-
hallarinnar þar sem allir þátttak-
endur koma saman. Áhugi fyrir
þessu námskeiði virðist mikill af
viðbrögðum að dæma enda líklegt
að hér geti verið um tímamóta-
viðburð að ræða á sviði íslenskrar
hestamennsku. Í fréttatilkynningu
frá Félagi tamningmanna segir að
þarna verði unnið með hátæknilega
reiðlist og má ætla að þarna geti að
líta æfingar sem sjaldan eða aldrei
hafi sést fyrr á íslenskri grund.
Námskeiðið hjá Bent
Branderup í apríl
Verkleg
sýni-
kennsla,
fyrirlestur
og málþing
Í HESTAÞÆTTI síðasta miðviku-
dag var sagt frá ýmsum breytingum
á reglum varðandi kynbótadóma á
hrossum og sagt að nýjar reglur
giltu um sýningu fets í kynbótadómi.
Byggðist fréttin á grein í fréttabréfi
Félags tamningmanna sem því mið-
ur reyndist ekki trygg heimild þar
sem birtar voru reglur sem giltu í
upphafi þegar byrjað var að sýna fet
í dómi. Hið rétta í málinu er að ekki
er um neitt nýtt að ræða hvað varðar
sýningu fets í kynbótadómi, með öðr-
um orðum að allt er nákvæmlega
eins og það var í fyrra. Allar reglur
varðandi kynbótasýningar eru að-
gengilegar á vef Bændasamtakanna
bondi.is.
Leiðrétting
Ekkert nýtt í
sýningu fets
♦ ♦ ♦