Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 50

Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 50
DAGBÓK 50 MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Hvar fást styttur lagaðar? GETUR einhver sagt mér hvar ég get látið laga leir- styttur eftir Guðmund frá Miðdal og lagað eða límt hausa á Bing og Gröndal- styttur? Vinsamlega hafið samband við Ástu í síma 553-8237. Sala varnarliðseigna MIG langar að vita hvort hér sé til ríkisfyrirtæki sem heitir Sala varnarliðseigna og forstjóri þess sé borgar- fulltrúi, mjög áhugasamur um sölu bæjar- og ríkis- eigna, m.a. Perlunnar. Er þetta ekki löngu úrelt fyr- irtæki sem kaupmenn gætu tekið að sér að reka eða er mikill gróði af því? Mættum við sjá reikninga þess birta eins og reikninga Perlunn- ar? H.J. Óviðeigandi auglýsing ÉG vil lýsa yfir hneykslan minni á auglýsingu frá und- irfataversluninni Cos sem birtist í Dagskrárblaðinu í síðustu viku. Í auglýsing- unni er kona í ögrandi „tig- er“-fatnaði sem á að höfða til kynhvatar fólks. Þarna er verið að gera fermingar- stúlkuna að kyntákni. Ég skil ekki hvernig verslun- inni Cos dettur í hug að bjóða fólki upp á svona sví- virðilegar auglýsingar. Mér finnst að undirfataverslanir verði að gera sér grein fyrir að þær eru ekki ofarlega á lista þegar fermingargjöf er valin. Hvað eiga ungar fermingarstúlkur að hugsa þegar þær sjá svona aug- lýsingar? Og af hverju er fullvaxin kona látin vera á mynd þar sem verið er að höfða til ungra fermingar- stúlkna? Aðalheiður Þórisdóttir, kt: 090578-5299. Sérstakur sími óskast AF SÉRSTÖKUM ástæð- um óska ég eftir Panasonic GSM-sími ABG 450. Sím- anum þarf ekki að fylgja batterí. Þessi sími er gömul týpa og er ófáanlegur í verslunum. Eins er ég að safna postulínsdúkkum og vil gjarnan komast í samband við aðila sem safnar þeim líka með möguleg skipti í huga. Þeir sem gætu að- stoðað mig hafi samband í síma 551-8727. Fyrirspurn AF HVERJU er hætt að selja góðu súrmjólkina frá Neskaupstað hér á höfuð- borgarsvæðinu sem fékkst í Bónus? Ég er mjög ósátt við að fá hana ekki lengur. Súr- mjólkin sem fæst í verslun- um er mjög misjöfn, stund- um er hún lapþunn og með aukabragði. Ein ósátt. Tapað/fundið Nokia 5110 týndist NOKIA 5110 GSM-sími tapaðist í miðbæ Reykja- víkur aðfaranótt 17. mars. Hann er með glæra fram- hlið og var í rauðu hulstri. Heiðarlegur finnandi vin- samlegast hafi samband í Pálínu í síma 551-5261 eða 898-5282. Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA með Toyota-lykli og húslyklum fannst á Vallabraut á Sel- tjarnarnesi í gær. Upplýs- ingar í síma 894-3349. Kvenleðurkápa tekin í misgripum SVÖRT kvenmannsleður- kápa með áklemmdum loð- kraga var tekin af Kaffi- barnum aðfaranótt laugar- dagsins 9. mars. Kápan var gjöf og er eigandanum mjög kær. Sá sem veit hvar hún er niðurkomin er beð- inn um að skila henni á Kaffibarinn eða að hringja í síma 849-3294. Dýrahald Læðu vantar nýtt heimili VEGNA ofnæmis á heimili okkar þurfum við að gefa frá okkur yndislega læðu. Hún er grá með hvítan háls og trýni og snoppufríð. Hún er 4 ára, kassavön, mjög blíð og góð. Ef þú/þið getið gefið henni gott heimili haf- ið þá samband í s. 557 9701 eða 694 8149 Anna. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... ÉG ÞOLI ekki þessa auglýsingu,sagði kunningjakona Víkverja á dögunum. Vísaði hún til auglýsingar um matarolíu sem sýnd hefur verið í sjónvarpi. Þar er kona með barn á brjósti og er sagt í auglýsingunni að við þurfum ekki meira. „Það er komið fram við neytendur eins og þeir séu fífl,“ sagði kunningjakonan ennfrem- ur og var henni mikið niðri fyrir. Konan sagði öllum ljóst að ungbarn á brjósti þyrfti ekki annað og meira en móðurmjólkina, það væri mikið rétt. En hvað væri verið að meina með því að segja að við þyrftum ekki meira. Dugar matarolían þá fyrir okkur hin? Eða eigum við líka að fá brjóstamjólk eingöngu? Hvernig á að skilja þetta? Víkverji hefur séð umrædda aug- lýsingu en ekki farið út í viðlíka hug- leiðingar og kunningjakonan. Hann getur þó alveg tekið undir að þarna er settur fram einhver boðskapur sem virðist óljós. Sýnir þessi auglýsing, rétt eins og auglýsing á dögunum þar sem vísað var til veikindadaga þegar fjallað var um sjónvarpsdagskrá, að hér verður að fara varlega og það sem getur átt að vera fyndið eða frumlegt í auglýsingaframleiðslu er það ekki alltaf. x x x AUGLÝSINGAGERÐ er vanda-verk. Tilgangur auglýsinga er að vekja athygli okkar á hinu og þessu sem við verðum að eignast, gera eða hvað það nú er. Til þess þarf að beita sem flestum brögðum og frumlegheit- um. Yfirleitt er þetta til friðs og aug- lýsingar meiða alla jafna engan. Það sem Víkverja finnst oftlega hvimleitt í auglýsingu er að tilgreina ekki verð. Það hefur að vísu farið batnandi upp á síðkastið og hvetur Víkverji auglýs- endur til að nefna verð undantekn- ingalaust. Ef verðskrá er of flókin má bara tilgreina verðdæmi og láta þess getið að þar sé margt fleira í boði. En nóg um það í bili og út í aðra sálma. x x x FYRST við nefnum sálma er ekkiúr vegi að minnast á fermingar. Þær standa nú sem hæst og mikið til- stand víða. Fram kom í sjónvarps- fréttum á dögunum að fermingar geta kostað fjölskyldurnar nærri 200 þús- und krónur. Víkverja finnst þetta nokkuð glannaleg upphæð. Hún er þó kannski raunhæf ef vel er í lagt, ef margir eru boðnir og veitingar eru ekki skornar við nögl. Hver vill líka skera við nögl þegar menn ætla að gera sér glaðan dag? Hins vegar ætti að vera hægt að beita útsjónarsemi og hagkvæmni við þessi veisluhöld og gjafastúss og þá er Víkverji nokkuð viss um að lækka má útgjöldin. Ferm- ing er jafnan mikill viðburður í lífi unglings og fjölskyldunnar og því til- efni til að staldra við og vega og meta hver sé tilgangur lífsins og hvert stefna skuli. Það er hluti fermingar- undirbúningsins og þarf ekki að gleymast í veisluhöldunum. x x x FRÉTT um líflegan fasteigna-markað á Egilsstöðum og eftir- spurn eftir húsnæði þar vakti athygli Víkverja. Mikið hefur nefnilega verið rætt um fólksflótta frá landsbyggð- inni en svo er að sjá að menn vilji alls ekki fara frá Egilsstöðum. Víkverji skilur það mæta vel enda var hann kúasmali á Héraði og hefur síðan kunnað vel við sig eystra. Honum koma þessar fréttir því ekki á óvart. ÞAÐ er alltaf verið að tala um hvað kirkjurnar séu illa sóttar af fólki en ég verð alltaf jafn undr- andi þegar ég kem í djass-messu í Laugarnes- kirkju því þar er alltaf fullt út úr dyrum og varla hægt að fá sæti. Í þessum djassmessum er tónlistin frábær, flytj- endur í hæsta gæðaflokki og söngur fallegur. Presturinn er einstakur og hefur gott lag á því að hafa þetta á léttu nót- unum. Maður er svo glað- ur þegar maður gengur út frá þessum sam- komum. Vil ég koma á fram- færi þakklæti mínu fyrir djass-messurnar. Margrét. Frábærar djassmessur 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 hógvært, 8 blómum, 9 glatar, 10 dveljast, 11 fjaðrir, 13 líkamshlutum, 15 hárs, 18 dufts, 21 kvendýr, 22 digra, 23 ósléttur, 24 venslafólk. LÓÐRÉTT: :2 affermið, 3 trylltur, 4 hljóðfærið, 5 les, 6 hrör- legt hús, 7 stirð af elli, 12 sár, 14 spíra, 15 ræma, 16 þamba, 17 staut, 18 skips, 19 skil eftir, 20 korna. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gjökt, 4 bylur, 7 linum, 8 rígur, 9 arð, 11 urra, 13 hrun, 14 fýsir, 15 karl, 17 ótal, 20 hik, 22 pútur, 23 Japan, 24 rómar, 25 riðla. Lóðrétt: 1 guldu, 2 ösnur, 3 tíma, 4 borð, 5 lýgur, 6 rýr- an, 10 rosti, 12 afl, 13 hró, 15 kopar, 16 ritum, 18 tapið, 19 linna, 20 hrár, 21 kjör. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Helgafell væntanlegt og út fer Vædderen. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag fer Selfoss frá Staumsvík. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Sam- eiginleg föstuguðsþjón- usta Reykjavík- urprófastsdæmis er í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2, fimmtudaginn 21. mars kl. 14. Rútuferð frá Afla- granda 40 kl. 13.30. Að- stoð við skattaframtal verður veitt fimmtudag- inn 21. mars. Skráning í afgreiðslu eða í síma 562 2571. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13– 16 vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga föstudaga kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboð- um, í Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþrótta- húsinu kl. 11 á sunnu- dögum. Uppl. hjá Svan- hildi, s. 586 8014 kl. 13–16. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- og handa- vinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrj- endur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Í dag, línudans kl. 11, myndlist og pílukast kl. 13.30. Að- alfundur félagsins fimmtudaginn 21. mars, kl. 14. Venjuleg aðal- fundarstörf. Eldri Þrestir syngja og kaffi- veitingar. Dansleikur 22. mars kl. 20.30. Capri Tríóið leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Mið- vikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Söngfélag FEB kóræfing kl. 17. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15. Brids fyrir byrjendur kl. 19.30. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag kl. 9–16.30 vinnu- stofur opnar. Frá há- degi spilasalur opinn. Aðstoð við skattframtöl í allan dag. Veitingar í veitingabúð. Á morgun kl. 13.15 félagsvist í samstarfi við Hóla- brekkuskóla. Stjórnandi Eiríkur Sigfússon. Allir velkomnir. Allar uppl. um starfsemina á staðn- um og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 11 hæg leikfimi, kl. 13 félagsvist FEBK og glerlist, kl. 15.15 söngur, Guðrún Lilja mætir með gít- arinn. Kl. 15–16 viðtals- tími FEBK, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Söngstund, sem er samstarfsverkefni Kársnesprestakalls og Gjábakka, verður fimmtudaginn 21. mars kl. 14. Þorvaldur Hall- dórsson syngur þekkt dægurlög. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró- leg stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Föstu- daginn 22. mars munu Gleðigjafarnir syngja kl. 14–15. Síðan hefst tískusýning á vegum Debenhams. Anna og Erla, stílistar Deben- hams, verða með ráð- gjöf og kynna það nýj- asta í tískunni. Fólk úr félagsstarfinu sýnir fatnað. Vöfflukaffi. Allir velkomnir. Hraunbær 105. Kl. 9 opin vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur- klippimyndir, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðgerð, hársnyrting. Hæðargarður 31. Á fimmtudag kl. 15 kynna Lyf og heilsa lyfja- skömmtun. Kaffi og meðlæti í boði Lyfja og heilsu. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, ætla að hittast á morg- un, fimmtudaginn 21. mars, kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð verður keila, spjallað og heitt á könnunni. Allir vel- komnir. Uppl. veitir Þráinn Hafsteinsson í síma 545 4500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13– 14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Föstud. 22. mars kl. 13.30 kynna Lyf og heilsa lyfjaskömmtun. Kaffi og meðlæti í boði Lyfja og heilsu. Dansað í kaffitímanum við lagaval Halldóru. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaum- ur, kl. 12.30 versl- unarferð, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing. Kvöld- skemmtun verður fimmtudaginn 21. mars kl. 18. Matur, söngur, gleði, gaman. Skráning í síma 561 0300. Bústaðakirkja, starf aldraðra. Spilað, föndr- að, helgistund og gáta. Glæðurnar koma í heim- sókn og syngja. Þeir sem vilja láta sækja sig skrá sig hjá kirkjuverði í síma 553-8500 eða Sig- rúnu síma 864-1448. Kvenfélagið Aldan. Munið góugleðina í kvöld, miðvikudaginn 20. mars kl. 20 í Borg- artúni 18, 3. hæð. Sjáumst. Félag kennara á eft- irlaunum. Skákæfing FKE í Kennarahúsinu við Laufásveg hefst kl. 14 í dag, miðvikudaginn 20. mars. Fundur í Bók- menntahópi FKE hefst í Kennarahúsinu við Laufásveg kl. 14 fimtu- daginn 21. mars. Guðrún Helgadóttir rithöfundur verður gestur fundarins. Söngæfing EKKÓ kórs- ins hefst í tón- menntastofu Austurbæj- arskóla kl. 16 fimmtudaginn 21. mars. Háteigskirkja. Eldri borgarar. Bingó á morg- un í Setrinu kl. 14. Húnakórinn heldur vor- tónleika í Seltjarnar- neskirkju fimmtudaginn 21. mars kl. 20. Stjórn- andi er Elín Ósk Ósk- arsdóttir, píanóleik ann- ast Hólmfríður Sigurðardóttir. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú í kvöld kl. 20 á lesstofu Bóka- safns Kópavogs. Verið er að lesa verk Halldórs K. Laxness og undirbúa dgskrá úr verkum hans í vor. Allir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs. Aðalfundur verður fimmtud. 21. mars. kl. 20.30 í Hamraborg 10. Venjuleg aðalfund- arstörf, önnur mál. Í dag er miðvikudagur 20. mars, 79. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Því að ekki er til gott tré, er beri slæman ávöxt, né heldur slæmt tré, er beri góðan ávöxt. (Lúk. 6,43.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.