Morgunblaðið - 11.04.2002, Page 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KÓR Menntaskólans við Hamra-
hlíð undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur heimsótti A-Húnavatns-
sýslu nýlega og hélt tónleika víða
um héraðið. Kórinn söng meðal
annars í Þingeyrakirkju, í Húna-
veri með karlakór Bólstaðarhlíð-
arhrepps og í Blönduóskirkju. Á
mánudaginn tileinkaði kórinn
grunnskólanemum krafta sína og
söng fyrir þau í Blönduóskirkju.
Söngdagskrá kórsins var afar fjöl-
breytt og sniðin að tilefninu
hverju sinni. Austur-Húnvetningar
fjölmenntu á tónleika kórsins og
er óhætt að segja að undirtektir
hafi verið afar góðar. Öguð og
prúðmannleg framkoma vakti at-
hygli hvar sem kórfélagar komu á
ferð sinni um A-Húnavatnssýslu.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Frá tónleikum Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð í Blönduóskirkju.
Vel heppnuð
heimsókn
Blönduós
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
LANDIÐ
ÞAÐ er ekki vorboði Jónasar Hall-
grímssonar sem segir Gylfa Gunn-
arssyni skipstjóra á Þorleifi EA 88
að vorið sé komið í Grímsey, held-
ur er það lundinn, sá sérstaki far-
fugl.
Í ár var það 4. apríl sem Gylfi sá
fyrsta lundann úti fyrir Grímsey.
Gylfi hefur undanfarin tíu ár
skráð hjá sér komutíma lundans
og segir hann vera ótrúlega stund-
vísan fugl, því ekki skeikar komu
hans mikið. Gylfi hefur fyrst séð til
hans 2. apríl og síðast hinn 8. apríl.
Lundinn er skemmtilegur fugl
þar sem hann situr virðulegur með
spekingssvip og ber við himin frá
bjargbrúninni. Áberandi er að nú í
seinni tíð gerir hann sig meira og
meira heimakominn þannig að
segja má að hann velji sér bústað
nánast inni í byggðinni, öllum til
mikillar gleði. Einnig er það mál
manna að mikil fjölgun hafi orðið
síðustu árin á lundanum og það
sama á við um aðra bjargfugla.
Lundinn boðar
vorkomu
Grímsey
Morgunblaðið/Helga Mattína
Mikil fjölgun lunda hefur orðið í Grímsey undanfarin ár.
Í ÞESSARI VIKU verður opnuð
þriðja verslun Blómalagersins hf. –
beint frá bóndanum á landinu og
verður hún í Hólmgarði 2 í Kefla-
vík.
Blómalagerinn opnaði fyrstu
blómabúðina í desember á síðasta
ári í Kópavogi. Í frétt frá fyrirtæk-
inu segir að sú verslun hafi verið
fyrsta lágvöruverslun í blómasölu
sem tekið hefur til starfa hér á
landi. „Með lágvöruverslun er lögð
áhersla á að koma við margvíslegri
hagræðingu í ræktunarstarfinu
sjálfu og dreifingu og sölu
blómanna. Það leiðir til þess að
hægt er að bjóða almenningi fersk
og góð blóm á mun hagstæðara
verði en fólk á að venjast. Nemur
verðlækkun að jafnaði um 50-60%,“
segir ennfremur í frétt Blómalag-
ersins. „Um leið eykur lág-
vöruverslunin viðskiptaveltuna og
tryggir afkomu blómaframleiðenda
betur en ella.“ Blómalagerinn er í
eigu þriggja garðyrkjustöðva. Nýja
verslunin í Keflavík verður í rúm-
góðu og aðgengilegu húsnæði þar
sem fyrir eru ýmsar aðrar verslanir
og þjónustufyrirtæki og næg bíla-
stæði,“ segir í fréttinni.
Ný blómabúð Blómalagersins
Keflavík
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, heimsótti í gær end-
urhæfingarsambýli kristilega
líknarfélagsins Byrgisins í Rock-
ville á Miðnesheiði.
Heimsóknin hófst á móttöku.
Þá var forsetanum boðið til há-
degisverðar í mötuneyti Rock-
ville-búa ásamt öðrum boðs-
gestum, starfsfólki Byrgisins og
skjólstæðingum þess sem eru nú
um 60 talsins.
Að loknum hádegisverði skoð-
aði forsetinn ásamt forstöðumanni
og öðru starfsfólki nýopnaða að-
hlynningardeild Byrgisins. Þá
skoðaði hann aðstöðu til skóla-
halds, en tvisvar í viku kemur
kennari frá Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja og kennir skjólstæðingum
Byrgisins. Sjö þeirra munu þreyta
próf í vor.
Ólafur skoðaði einnig aðstöðu
til íþróttaiðkana sem skjólstæð-
ingar Byrgisins hafa sjálfir byggt
upp og er nú fullbúin tækjum. Þá
var forsetanum sýnd tré- og járn-
smíðaverkstæði þar sem end-
urhæfingarvinna, svokölluð vinnu-
aðlögun, skjólstæðinga fer m.a.
fram. Skjólstæðingar Byrgisins
buðu síðan forsetann velkominn í
vistarverur sínar og sýndu honum
þá aðstöðu sem þar er.
Heimsókn forsetans lauk á því
að safnast var saman í sal þar
sem Guðmundur Jónsson for-
stöðumaður kynnti starfsemi
Byrgisins og forsetinn ávarpaði
viðstadda.
Forseta-
heimsókn
í Byrgið
Morgunblaðið/Þorkell
Ólafur Ragnar heimsótti í skoðunarferð sinni íþróttahúsið sem búið er
tækjum sem að stórum hluta eru smíðuð af skjólstæðingum Byrgisins.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, kynnti Ólafi Ragnari
Grímssyni starfsemi endurhæfingarsambýlisins í Rockville.
Rockville
Á FUNDI bæjarráðs Reykjanes-
bæjar í síðustu viku var samþykkt
að fela Viðari Má Aðalsteinssyni,
forstöðumanni umhverfis- og
tæknisviðs, að ganga til samninga
við Parket og gólf ehf. vegna end-
urnýjunar á gólfefni A-salar
íþróttahússins við Sunnubraut.
Viðar segir að vonast sé til að
framkvæmdir við nýja parketgólfið
geti hafist strax er skóla lýkur í
vor og gólfið verði því fullklárað
fyrir haustið.
Viðar lagði fyrir bæjarráðið
skýrslu um framkvæmdirnar og
niðurstöður úr kynningarferð
hans, Ellerts Eiríkssonar bæjar-
stjóra og Stefán Bjarkasonar
íþrótta- og tómstundafulltrúa til
bandaríska fyrirtækisins Connor í
Chicago. „Þetta var lokaskýrslan á
löngu ferli,“ segir Viðar. „Við höf-
um skoðað mikið og kannað ýmsa
möguleika. Síðan varð niðurstaðan
sú að skoða þessi bandarísku gólf.“
Connor sérhæfir sig í gólfum
fyrir íþróttahús af öllum stærðum
og gerðum. Viðar segir að þeir
leggi um 700 gólf víðsvegar um
heiminn árlega. „Þeir eru nýlega
farnir að herja á Evrópumarkað
og verður gólfið hjá okkur eitt
fyrsta sinnar tegundar í Evrópu.“
Parketið mýkra
en dúkurinn
Núna er dúkur á gólfinu í
íþróttahúsinu við Sunnubraut. Ell-
ert Eiríksson bæjarstjóri segir ít-
arlega skoðun hafa farið fram á
aðferðum við að skipta úr núver-
andi dúkklæðningu í parketgólf.
„En við teljum þetta parketgólf
besta kostinn,“ segir Ellert. „Það
er í hæsta gæðaflokki, ódýrara og
framkvæmdunum fylgir mun
minna rask, en ef hefðbundnar
leiðir hefðu verið valdar. Upphaf-
lega tillagan var að brjóta upp
gólfið og lækka það um 24 senti-
metra. Þess þarf nú ekki.“
Eftir kynningu á mörgum ólíku
efnum varð ákveðið gólfefni fyrir
valinu sem uppfyllir alla þá staðla
sem krafist er af Alþjóðakörfuk-
nattleikssambandinu. „Parketið
hefur ákveðna mýkt fram yfir dúk-
inn, sem er nauðsynleg fyrir
íþróttamennina vegna álags á lík-
amann,“ útskýrir Viðar. „Þeir fá
öll högg í fæturna og líkamann en
parketið hefur hins vegar þann
eiginleika að það tekur upp um
helminginn af högginu.“
Viðar segir að gólf Connor sé
þróað í samstarfi við íþróttalækna
og aðra sérfræðinga. „Meiðslatíðni
er miklu meiri hjá okkur en t.d. í
Njarðvík þar sem er parket.“
Viðar segir að gert sé ráð fyrir
að framkvæmdirnar í heild kosti
um 18–19 milljónir, sem sé veru-
lega undir fyrstu kostnaðaráætl-
unum.
Íþróttahúsið við Sunnubraut er
heimavöllur körfuknattleiksliðs
Keflavíkur. Þar er einnig „heima-
völlur“ fjölda skólabarna á degi
hverjum. „Við teljum okkur vera
að gera góða hluti með þessu,“
segir Viðar. „Það eru allir mjög
kátir með þetta, sérstaklega
„NBA“-deildin okkar. Svo er
Keflavík vagga körfuboltans og því
dugar ekkert nema það besta.“
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga
Parketgólf á íþrótta-
húsið fyrir haustið
Keflavík
STJÓRNARFUNDUR Alþýðusam-
bands Austurlands haldinn þriðju-
daginn 9. apríl 2002 lýsir fullum
stuðningi við aðgerðir ASÍ og SGS í
verðlagsmálum.
Í frétt frá ASA segir: „Stjórnin
telur hagsmunum launþega best
borgið með ströngu og virku eftirliti
með verðlagi. Stjórnin leggur einnig
þunga áherslu á að þessari baráttu
lýkur ekki 15. maí nk. Stjórn ASA
hvetur önnur launþegasamtök til að
koma til liðs við ASÍ og SGS í barátt-
unni gegn verðbólgu.“
Styðja aðgerðir í
verðlagsmálum