Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 21
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 21
Fermingarnáttföt
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Náttskyrtur - Sloppar
Mikið úrval
kynning
Fimmtudag og föstudag mun
sérfræðingur Kanebo kynna
spennandi nýjungar og veita
faglega ráðgjöf í
Lyf og heilsu, Kringlunni
TVÖ af þremur brauðum eru léttari
en tilgreint er á umbúðum, sam-
kvæmt frétt frá Neytendasamtökun-
um (NS). Mismunurinn getur verið
allt að fjórðungi, segir ennfremur.
Að auki kemur fram að umbúða-
merkingar séu „ólöglegar“ í nær sjö
af hundraði tilvika. Könnun Neyt-
endasamtakanna á því hvort uppgef-
in þyngd á brauðum og kökum
standist vigt er sú þriðja á árinu og
„að líkindum sú umfangsmesta hér á
landi á síðustu árum,“ segja samtök-
in jafnframt.
„Fyrri kannanir leiddu í ljós að
talsvert vantar upp á að neytendur
fái það sem þeir telja sig vera að
kaupa. Þessi þriðja könnun bendir til
þess að viðkomandi hafi ekki látið
sér fyrri kannanir að kenningu
verða. Þess má geta að þýskar kökur
voru vigtaðar í könnuninni og er
skemmst frá því að segja að þær
stóðust allar mál. Ennfremur er rétt
að geta þess að einn innlendur bak-
ari stóðst prófið án athugasemda.
Kleinur frá Bakaríi H. Sölvadóttur
voru vigtaðar í Samkaupum í Hafn-
arfirði og reyndist hver einasti poki
yfir tilgreindri vigt,“ segja Neyt-
endasamtökin.
Fulltrúar NS fóru í verslanir Ný-
kaups, Nóatúns, Bónuss, Fjarðar-
kaupa, Samkaupa, Krónunnar og
Nettó dagana 20.-25. mars síðastlið-
inn.
Neytendasamtökin segja enn-
fremur að lögmæti umbúða hafi ver-
ið metið með tilliti til tilgreinds
geymsluþols og hvort þyngd væri til-
greind, eins og skylt er samkvæmt
reglugerð. Vigtaðar voru 627 eining-
ar frá innlendum framleiðendum og
að auki voru skoðuð 45 brauð og kök-
ur sem reyndust ekki merktar með
síðasta söludegi og/eða þyngd.
2/3 brauða og kaka létt-
ari en umbúðir segja
Neytendasam-
tökin gera þriðju
skyndikönnunina
á þyngd brauða
!!
"
# $
%
&'%
!"#
$
%
&
!
'
!!
"