Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 23
Allt í grænu!
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
17
27
4
04
.
20
02
IKEA er opið:
Virka daga kl. 10-18.30
Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 12-17
KARLSKRONA
18.500 kr.
bast legubekkur
EKKI er hægt að kenna friðargæslu-
liðum frá Hollandi um fjöldamorð
Serba á múslimum í bænum Srebren-
ica í Bosníu-Hersegóvínu í júlí 1995.
Þetta er niðurstaða umfangsmikillar
rannsóknar á tildrögum þess að
Serbar komust upp með að myrða um
7.500 íbúa bæjarins þrátt fyrir að svo
ætti að heita að Srebrenica nyti
verndar hollenskra friðargæslusveita
Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslu rannsóknarmanna, sem
gerð var opinber í gær, eru hollensk
stjórnvöld og yfirmenn hollenska
hersins gagnrýnd, sem og yfirstjórn
SÞ, fyrir að hafa sent út af örkinni
friðargæslusveitir sem ljóst var að
myndu ekki geta sinnt verkefni sínu
sem skyldi. „Mannúðarsjónarmið og
pólitísk metnaðargirni ollu því að
Hollendingar tóku að sér illa ígrund-
aða og nánast vonlausa aðgerð,“
sagði í skýrslunni.
Eru SÞ gagnrýndar fyrir að hafa
ekki skilgreint verkefni friðargæslu-
liðanna nægilega vel, sem varð til
þess í reynd að hendur hermannanna
voru oftast nær bundnar.
Sveitir Mladic bera ábyrgðina
Srebrenica hafði verið lýst „griða-
svæði“ af Sameinuðu þjóðunum árið
1993 og þangað voru sendir hollensk-
ir hermenn til að tryggja frið milli
múslima og Serba í bænum. Verkefni
þeirra var hins vegar vonlítið, her-
mennirnir lentu mitt í víglínu deil-
enda, ef svo má að orði komast, gátu
ekki beitt vopnum sínum nema ráðist
væri beint gegn þeim og máttu síðan
sæta því að deilendur sökuðu þá hvor
um sig um að hygla hinum.
Í skýrslunni, sem unnin var að
beiðni hollenskra stjórnvalda, er
komist að þeirri niðurstöðu að her-
sveitir Bosníu-Serba, sem lutu stjórn
Ratkos Mladic hershöfðingja, beri
fulla ábyrgð á þeim atburðum sem
urðu í Srebrenica.
Eru hollensku friðargæsluliðarnir
hreinsaðir af áburði þess efnis að þeir
hafi aðstoðað Serba við að ná bænum
á sitt vald í júlí 1995. Þeir hafi að vísu
ekki veitt neina mótspyrnu en það
hafi þeim heldur ekki verið heimilt,
skv. fyrirmælum yfirmanna Samein-
uðu þjóðanna, og að auk þess hefði
aðeins verið hægt að verja bæinn
með lofthernaði.
Slíkar aðgerðir hafi háttsettir
fulltrúar Sameinuðu þjóðanna ekki
viljað heimila.
Segir ennfremur í skýrslunni að
hollenskir hermenn hafi vissulega
verið viðstaddir þegar Serbar tóku
bæinn og að þeir hafi gert sér grein
fyrir því að örlög múslimanna voru
óviss. Það þýði hins vegar ekki að
þeir hefðu getað gert sér grein fyrir
því að fjöldamorð yrði framið.
„Það voru eðlileg viðbrögð af hálfu
hollensku hermannanna að fylgjast
með því þegar karlar voru skildir frá
konum og börnum [...] jafnvel þó að
við þessar aðstæður megi líta svo á að
með því hafi hermennirnir verið að
taka þátt í þjóðernishreinsunum,“
segir í skýrslunni.
Rannsókn á tildrögum fjöldamorðanna í Srebrenica 1995
Friðargæsluliðum ekki
kennt um blóðbaðið
Haag. AFP.
Reuters
Hópur Bosníu-múslima sem sluppu lifandi frá Srebrenica í júlí 1995.
Hersveitir Bosníu-Serba myrtu allt að átta þúsund karla í bænum þrátt
fyrir að svo ætti að heita að bærinn nyti verndar Sameinuðu þjóðanna.