Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vorum að fá í sölu
fallega 4ra her-
bergja 115 fm íbúð
á miðhæð í þessu
fallega vel staðsetta
húsi. Sérinngangur,
parket á gólfum,
nýtt eldhús, þak og
lagnir endurnýjað.
Suðursvalir og bíla-
stæði.
Áhv. 6,4 millj. húsbréf. Verð 14,5 millj.
Borgartúni 22
105 Reykjavík
Sími 5-900-800
LYNGHAGI
Edward Lutes, myrti nágranna sína
á þriðjudagskvöldið og hélt síðan til
bæjarins Barnegat og skaut þar
lögreglustjóra sem hafði verið yf-
irmaður Lutes. Hann var fluttur á
sjúkrahús. Lögreglan gat ekki sagt
til um hvers vegna Lutes hefði unn-
ið voðaverkin. Í febrúar sl. myrti
annar fyrrverandi lögregluþjónn í
Dover fjóra menn.
LÖGREGLA í bænum Dover í New
Jersey í Bandaríkjunum fann í gær
lík fyrrverandi lögreglumanns sem
talinn er hafa skotið fimm ná-
granna sína til bana og síðan ekið
til næsta bæjar og skotið og sært yf-
irmann sinn. Hann lagði síðan á
flótta á bíl og sagði lögregla að allt
benti til að hann hefði svipt sig lífi.
Lögreglumaðurinn fyrrverandi,
Myrti fimm
nágranna sína
Dover í New Jersey. AP.
AP
Lögreglumenn í Dover leita á heimili Edwards Lutes í gær.
NORSKI ævintýramaðurinn
Thor Heyerdahl á skammt eftir
ólifað og hefur snúið heim til
Noregs til að eyða síðustu dög-
um sínum í
faðmi fjöl-
skyldunnar.
Þetta sagði
sonur
Heyerdahls
og alnafni í
gær en
Heyerdahl,
sem þekkt-
astur er fyr-
ir Kon Tiki-
leiðangur sinn árið 1947, hefur
undanfarið legið á sjúkrahúsi á
Ítalíu eftir að í ljós kom að
krabbamein, sem hann þjáðist
af í fyrra, hafði tekið sig upp að
nýju. Hefur krabbinn nú
breiðst út og er ólæknandi.
„Þetta er spurning um klukku-
stundir, eða í mesta lagi örfáa
daga,“ sagði Heyerdahl yngri
um föður sinn, sem er 87 ára
gamall.
1.400 dauðs-
föll rakin
til áfengis
REKJA má dauða 1.400 banda-
rískra ungmenna á ári hverju
til áfengisdrykkju, að því er
fram kemur í nýrri rannsókn
vestanhafs. Þá kemur fram að
einn af hverjum fjórum há-
skólanemum, þ.e. fólk í grunn-
námi, í Bandaríkjunum hefur
ekið undir áhrifum áfengis. Er
talið að skýra megi 70 þúsund
kynferðisárásir á ári hverju
með því að árásarmaðurinn hafi
verið undir áhrifum áfengis og
áfengi er einnig nefnt sem
skýring á áverkum um 500 þús-
und ungmenna á ári hverju.
31 kolanámu-
maður fórst
ÞRJÁTÍU og einn fórst og 43
særðust þegar gassprengingar
urðu í tveimur kolanámum í
Jixi-borg í Heilongjiang-ríki í
Norður-Kína á mánudag.
Komu fréttir af þessum slysum
sama dag og yfirvöld í Peking
tilkynntu að þau hygðust loka
þúsundum lítilla kolanáma á
árinu í því skyni að draga til
muna úr afar hárri slysatíðni
meðal kolanámumanna.
Sótt að
Chavez
HUGO Chavez, forseti Venes-
úela, sagði í gær að allsherjar-
verkfall, sem hófst á þriðjudag,
væri ekkert nema samsæri
spilltra ríkisbubba sem hygð-
ust hrekja
forsetann
frá völdum.
Leiðtogar
atvinnurek-
enda og
verka-
manna
sögðust
hins vegar
hafa ákveð-
ið að fram-
lengja verkfallið, sem efnt var
til í því skyni að mótmæla
stefnu stjórnvalda í atvinnu-
málum. Að sögn forsetans hef-
ur verkfallið „nánast lamað“ ol-
íuiðnað Venesúela.
STUTT
Thor
Heyerdahl
helsjúkur
Thor
Heyerhahl
Hugo Chavez
RÚSSNESKA leyniþjónustan, FSB,
greindi frá því í gær, að tekist hefði
að gera að engu tilraun bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, til að kom-
ast að rússneskum hernaðarleyndar-
málum með því að fá á sitt band
starfsmann rússneska varnarmála-
ráðuneytisins. Höfðu rússneska
fréttastofur eftir FSB, að ritari í
bandaríska sendiráðinu í Moskvu
væri yfirmaður í CIA og hefði haft
umsjón með aðgerðunum.
Heimildarmenn í Moskvu tjáðu
fréttastofunni Interfax, að banda-
ríski sendiráðsritarinn, sem líka var
starfsmaður CIA, væri farinn frá
Moskvu. Bandaríska sendiráðið vildi
ekkert segja um málið. FSB greindi
ekki frá því hvenær umræddir at-
burðir hefðu átt sér stað, en sagði að
CIA hefði verið að reyna að afla ná-
kvæmra upplýsinga um ný vopn,
sem Rússar væru að smíða, og hern-
aðarsamstarf Rússa og fyrrverandi
Sovétlýðvelda.
Sagði FSB ennfremur, að CIA
hefði reynt að fá á sitt band sérfræð-
ing er starfaði í leynilegum deildum í
rússneska varnarmálaráðuneytinu.
FSB hefði snemma skorist í leikinn
og hefði getað fylgst með aðgerðum
CIA-manna og komið í veg fyrir að
alvarlegur brestur yrði í rússneskum
öryggismálum.
Komið upp um
CIA í Rússlandi
Moskvu. AFP, AP.
BANDARÍSKIR embættismenn
viðurkenndu í gær að þeir hefðu
áhyggjur af öryggi Colins Powells,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ef
hann færi á fund Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, í borginni
Ramallah á Vesturbakkanum. Einn
embættismannanna lýsti áformun-
um sem „martröð fyrir lífverði utan-
ríkisráðherrans“.
Powell fer til Jerúsalem í kvöld og
búist er við að hann ræði við Arafat í
höfuðstöðvum palestínska leiðtogans
í Ramallah á næstu dögum. Miklar
skemmdir hafa orðið á byggingunni
vegna sprengjuárása ísraelskra her-
sveita sem hafa setið um hana frá því
að Ísraelsher réðst inn í palestínska
bæi 29. mars.
Sagðir búa sig undir átök
Ísraelskir embættismenn segja að
Arafat sé umkringdur Palestínu-
mönnum sem séu eftirlýstir í Ísrael
fyrir aðild að hryðjuverkum og búi
sig nú undir lokauppgjör við Ísr-
aelsher.
Palestínskur fréttamaður, sem er í
höfuðstöðvum Arafats, segir að „ótta
við dauðann“ setji að öllum í fylgd-
arliði Arafats og þeir búi sig undir að
lenda í átökum við þungvopnaðar
hersveitir Ísraela.
„Við fáum allir dálítið drykkjar-
vatn á hverjum degi en ég hef ekki
getað þvegið andlitið í tíu daga,“
sagði fréttamaðurinn, Rashid Hilal.
„Þegar við vöknum á morgnana höf-
um við aðeins eitt til dægrastytting-
ar: við veltum fyrir okkur hinum
ýmsu möguleikum á því hvernig Ísr-
aelar geti gert árás.“
Bandarískir embættismenn
standa nú frammi fyrir því erfiða
verkefni að gæta öryggis Powells,
tryggja til að mynda að ekki komi til
skotbardaga fyrir slysni, þegar hann
reynir að koma á vopnahléi og fá
Arafat til að binda enda á sjálfs-
morðsárásir Palestínumanna.
Bandarískir embættismenn segja
að hópur lífvarða Powells og Ant-
hony Zinni, sendimaður Bandaríkja-
stjórnar, hafi farið til Ramallah í
fyrradag til að ræða öryggisráðstaf-
anir við Ísraela og lífverði Arafats.
„Þetta er augljóslega martröð fyr-
ir lífverði utanríkisráðherrans og við
vitum ekki enn hvernig staðið verður
að þessu,“ sagði einn bandarísku
heimildarmannanna.
Áform Powells sögð
„hörmuleg mistök“
Embættismennirnir segja að Po-
well myndi taka áhættu með því að
fara inn í höfuðstöðvar Arafats og
hugsanlega verði samið um fundur-
inn verði utandyra. Ísraelar hafa þó
ekki leyft Arafat að fara út úr bygg-
ingunni.
Aðstoðarmaður Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels, lýsti
áformum Powells um að ræða við
Arafat sem „hörmulegum mistök-
um“ en sagði að Ísraelar myndu ekki
reyna að hindra fundinn. „Erlendir
leiðtogar, sem heimsækja Arafat og
rjúfa einangrun hans, ýta undir
hryðjuverk og gera honum kleift að
halda áfram að tala tveim tungum,“
sagði hann.
„Martröð fyrir lífverði
utanríkisráðherrans“
Reuters
Ísraelskur skriðdreki við höfuðstöðvar Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, í borginni Ramallah.
Hafa áhyggjur af
öryggi Colins
Powells fari hann
á fund Arafats í
Ramallah
Jerúsalem. AFP.