Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 26
LISTIR
26 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Norræna leiklistar-
sambandsins hefur samþykkt að
færeyska leikskáldið Jóanes Niel-
sen hljóti Norrænu leikskáldaverð-
launin árið 2002 fyrir leikrit sitt
Eitur nakað land Weekend?
Í rökstuðningi segir: „Leikritið
er lagt upp sem fjölskyldudrama úr
samtímanum, en þróast þannig að
úr verður fremur verk sem gerist á
lokuðu geðsjúkrahúsi þar sem að-
alpersónan, Jóhanna, er sýnd innan
um aðra sjúklinga á deildinni.
Styrkur höfundar liggur meðal
annars í samþættingu fyndni og
trega svo úr verður gamansamur
og frumlegur sviðstexti sem kemur
á óvart og opnar hugi okkar.
Verkið er skrifað á fljótandi og
frjálslegan hátt, á afar fögru mynd-
máli og hefur áhrifamiklar einræð-
ur, sem sýnir að höfundurinn er
ákaflega gott skáld, með tilfinningu
fyrir því tragikómíska og lýsir fólki
af mikilli samúð. Innan verksins er
einnig rúm fyrir vænan skammt af
færeyskri sjálfsgagnrýni og lýsingu
á sjálfsfyrirlitningu; höfundurinn
veigrar sér heldur ekki við að
leggja fram gagnrýni fyrir hönd
fyrrum nýlendu. Innflytjenda- og
flóttamannavandamálin ber þannig
á góma, en í miðju atburða-
rásarinnar stendur persóna Jó-
hönnu með ástarþörf sína beislaða.
Mannúðleg, áhrifamikil og gam-
ansöm lýsing.“
Önnur leikskáld sem voru til-
nefnd eru Niels Frederik Dahl fyrir
Som torden, Morti Vitzki fyrir
Menneskesönnen, Anna Blom fyrir
Masjävlar, Kristian Smeds fyrir
Alltmer mörknar huset, Villads
Villadsen fyrir Quasapis sidste dag
og Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir fyrir Hægan Elektra.
Norrænu leikskáldaverðlaunin 2002
Í fyrsta
sinn til
Færeyja
Jóanes Nielsen leikskáld
í Færeyjum.
Ljósmynd/Jens Kr.Vang
LJÓSVÖRP nefnist sýning Þor-
steins Helgasonar sem nú stendur
yfir í baksalnum í Galleríi Fold,
Rauðarárstíg 14–16.
Þorsteinn er arkitekt að mennt.
Hann útskrifaðist frá Arkitekta-
skólanum í Kaupmannahöfn árið
1988. Hann stundaði myndlist-
arnám við Myndlistarskólann í
Reykjavík 1993–96 og var gesta-
nemi í Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1996–97. Þetta er þriðja
einkasýning Þorsteins, en hann hef-
ur einnig tekið þátt í samsýningum.
Þorsteinn rekur teiknistofuna
Arcus í samvinnu við aðra.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10–18, laugardaga til 17 og
sunnudaga frá kl. 14–17.
Sýningunni lýkur 21. apríl.
Þorsteinn Helgason við eitt verka sinna í Galleríi Fold.
Þorsteinn sýnir í Fold
LISTMÁLARARNIR Kristín
Geirsdóttir og Benedikt Gunnarsson
eru nýir staðarlistamenn í Skálholti
og munu verk þeirra verða sýnd
næstu mánuðina í Skálholtsskóla.
Kristín ríður á vaðið og var sýning
hennar opnuð við upphaf Kyrrðar-
daganna, sem haldnir voru í Skál-
holti í dymbilviku. Sýningin, sem
nefnist Tákn litanna, mun standa
fram í júnílok en þá tekur Benedikt
við.
Kristín Geirsdóttir hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt í
samsýningum listamanna víða um
lönd. Fyrir rúmu ári sýndi hún verk
sín í Hallgrímskirkju og eru nokkur
þessara verka á sýningunni.
Leifur Breiðfjörð, Anna Torfa-
dóttir og Þorgerður Sigurðardóttir
hafa verið staðarlistamenn undan-
farin ár og var það að frumkvæði dr.
Péturs Péturssonar þáverandi rekt-
ors. Fyrrverandi staðarlistamenn
eru til ráðgjafar um val nýrra stað-
arlistamanna.
Verk eftir Kristínu Geirsdóttur sem nú er staðarlistamaður Skálholts.
Nýir staðarlistamenn
bætast við í Skálholti