Morgunblaðið - 11.04.2002, Side 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„HVAÐ ætli Custer hershöfðingi
hafi hugsað er hann gerði sér ljóst að
hann hafði leitt menn sína útí blóð-
bað?“ Eitthvað á þá leið spyr Hal
Moore ofursti (Mel Gibson), sinn
nánasta aðstoðarmann, Plumley lið-
þjálfa (Sam Elliott), undir svipuðum
kringumstæðum í einni blóðidrifn-
ustu orrustu Víetnamstríðsins.
„Custer var skræfa,“ svarar harð-
jaxlinn Plumley að bragði.
Eitthvað á þessa leið eru kald-
hæðnisleg orðaskipti, sem reyndar
eru fágæt í We Were Soldiers, enda
myndin endursögn á slátruninni í Ia
Drang-dalnum, sem fékk á sig við-
urnefnið „Dauðadalur“, eftir þessa
fyrstu stórorrustu milli herjanna.
Bandaríkjamenn höfðu betur í hroða-
legum vopnaviðskiptum þar sem not-
aðar voru þyrlur til að flytja her-
flokka uppá hálendið, og útí dauðann.
Lentu beint í herkví á þriðja þúsund
liðsmanna Viet Cong, en kanar mun
fáliðaðri, eða um 500 liðsmenn Moor-
es ofursta, sem tókst að sjá við VC að
þessu sinni og snúa til baka með slitr-
ur herdeildarinnar. Það heyrði til
undantekninga eins og skráð er á
spjöld sögunnar. Bandaríkjamenn,
sem tóku við þessu ömurlega stríði af
Frökkum, urðu að lokum undan að
láta. Réðu ekki við vopnastreymið frá
Kína og Sovétinu, þó síst af öllu þetta
erfiða og fjandsamlega land og
herskáa íbúa þess þar sem illmögu-
legt var að greina vin frá óvin. Flúðu
að lokum hver um annan þveran en
kommúnistastjórnini í Norður Víet-
nam tókst ætlunarverk sitt og lagði
suðurhluta landsins undir sig. Með
skelfilegum afleiðingum fyrir land og
þjóð þar sem efnahagslegt hrun
fylgdi í kjölfarið og kom landinu og
íbúum þess á heljarþröm hungurs og
vesældar í áratugi.
Í dag eru eðlileg samskipti komin á
milli ríkjanna enda kommúnisminn
nánast útdauður einsog hver önnur
óværa og Kaninn farinn að selja
þessum fyrrverandi fjendum sínum
kók, kamel og allt það, uppá nýtt og
sýna í stríðsmyndum sínum átökin
frá sjónarhóli Víetcong. Sú staðreynd
eykur til muna gildi We Were Sold-
iers, fyrir hinn almenna áhorfanda.
Hér eru þeir sýndir í mannlegu ljósi
sem annar stríðsaðilinn frekar en
hinnn forsmáði, djöfullegi fjandmað-
ur sem við eigum að venjast úr mynd-
um sem gerðar voru nær stríðslok-
unum.
We Were Soldiers hefst í Banda-
ríkjunum skömmu áður en Moore er
sendur með þyrluvætt „riddaralið“
sitt á vígstöðvarnar. Nokkrar lykil-
persónur kynntar til sögunnar, þeim
fylgt eftir og misjöfnum örlögum
þeirra á blóðvellinum. Þetta and-
styggilega stríð sem reis í nýjar geð-
veikislegar hæðir á tímum Lyndons
B. Johnson og lauk í tíð Richards M.
Nixon, skildi djúp spor eftir sig í
þjóðarsálinni. Þeir urðu að sætta sig
við tap og frjálslyndir Bandaríkja-
menn höfðu löngum horn í síðu
stríðsrekstursins. Hér er einnig und-
irstrikað ástandið hjá fjölskyldum
hermannanna á meðan stríðinu
stendur, konu Moore (vel leikin af
Madeleine Stowe), ofbýður vinnu-
brögð herstjórnarinnar sem sendir
út tilkynningar til nánustu aðstand-
enda um fallna hermenn með leigu-
bílum, og tekur sjálf að sér það erfiða
hlutverk. Þannig kemst áhorfandinn
í nánara samband við tifinningalega
þáttinn í djöfulskapnum.
Moore var lánsamur að því leyti að
hann þraukaði og gat hafið að nýju
borgaralegt líf með fjölskyldunni og
skrifað m.a. endurminningar sínar,
sem myndin byggist á. Á hitt er líka
bent að öll stríð taka sinn toll af þeim
sem eftir lifa. Þess bera menn sár til
æviloka. Ekki er farið útí þá smán
hér sem hasshausar, blómabörn og
rauðvínskommar sýndu þeim niður-
brotnu löndum sínum sem komust af,
hafandi brotið það eitt af sér að hlýða
kalli föðurlandsins.
Þó hann sé enginn John Wayne, er
Gibson ábúðarmikill og þokkalega
trúverðugur í aðalhlutverkinu.
Gamli, góði Sam Elliott er búinn að
raka af sér skeggið og galdrar fram
úr pússi sínu leik sem R. Lee Ermey
(Full Metal Jacket), gæti verið stolt-
ur af. Aðrir eru nánast aukapersón-
ur. Kvikmyndataka Semlers er slá-
andi góð, einsog hans er von og vísa,
en leikstjórn Randalls Wallace kem-
ur hvað mest á óvart. Þessi handrits-
höfundur Braveheart stendur sig
giska vel í sínu fyrsta leikstjórnar-
hlutverki. Sýnir vel óreiðuna, skelf-
inguna og þá allsherjarringulreið
sem verður undir ægilegustu vopna-
viðskiptum stríðandi fylkinga; návíg-
inu, jafnt sem þá skelfingu sem styrj-
aldarbrölt verður ætíð fyrir alla þá
sem að því koma á einhvern hátt.
Návígi í Víetnam
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Háskólabíó, Borg-
arbíó Akureyri
Leikstjóri: Randall Wallace. Handrit:
Randall Wallace. Kvikmyndatökustjóri:
Dean Semler. Tónlist: Nick Glennie
Smith. Aðalleikendur: Mel Gibson, Made-
leine Stowe, Greg Kinnear, Sam Elliott,
Chris Klein, Don Duang, Keri Russell,
Barry Pepper. Sýningartími 138 mín.
Icon International/Paramount. Banda-
ríkin 2002.
WE WERE SOLDIERS (VIÐ VORUM HER-
MENN) Sæbjörn Valdimarsson
GEGN ræktun rófna – um boð-
skap og skáldskap nefnist um-
fjöllun Einars Más Guðmunds-
sonar rithöfundar um Halldór
Laxness í Norræna húsinu í
dag kl. 17.15. Þetta er fjórði
fyrirlesturinn sem Vaka-
Helgafell efnir til í tilefni af ald-
arafmæli Halldórs Laxness.
Einar Már
Guðmundsson
Einar Már
ræðir um
Laxness
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face