Morgunblaðið - 11.04.2002, Page 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 59
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Stökktu til
Costa del Sol
28. apríl í 24 nætur
frá kr. 49.863
Verð kr. 49.863
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 51.345.
Verð kr. 59.950
M.v. 2 í íbúð, 28. apríl, 24 nætur.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 62.950.
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa
del Sol þann 28. apríl í 24 nætur. Vorin eru
yndislegur tími á Costa del Sol, frábært verðurfar og hér getur þú notið
veðurblíðu og einstakra aðstæðna á kjörum sem aldrei hafa sést fyrr. Þú bókar
núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig
og tilkynnum þér hvað þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu 19 sætin
FIMMTUDAGSTILBOÐ
PRI 443185/443089
Stærðir 26-39
Litur: Rauður
Verð áður 5.995
Verð nú 2.995
SAB 6446
Stærðir 28-35
Litur: Svartur
Verð áður 2.995
Verð nú 1.995
BARNASANDALAR
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
UNGIR jafnaðarmenn boða til
fundaherferðar um menntamál. Í
dag, fimmtudaginn 11. apríl, kl.
20.30–22 í Húsi málarans, verður
fyrsti fundurinn og verður fjallað um
stöðu og framtíð menntamála á Ís-
landi.
Markmið fundaherferðarinnar er
að skapa umræðu um ástand
menntamála. Fjallað verður m.a.
um: Er þjóðinni hagkvæmt að
mennta sig? Er skynsamlegt að
stytta framhaldsskólanám úr 4 árum
niður í 3 ár? Þessum spurningum og
fleirum verður leitast við að svara.
Framsögumenn eru: Bryndís Ís-
fold Hlöðversdóttir, stjórnmála-
fræðinemi, Svanfríður Jónasdóttir,
alþingismaður, Ásbjörn Þór Ás-
björnsson, formaður félags fram-
haldsskólanema, Snorri Kristjáns-
son stjórnmálafræðingur og Run-
ólfur Ágústsson, rektor Háskólans á
Bifröst. Fundarstjóri er Bryndís Ís-
fold Hlöðversdóttir.
Annar fundur verður haldinn mið-
vikudaginn 17. apríl kl. 12.15–13.15 í
Odda, stofu 101. Fyrirlesari verður
Sveinn Agnarsson, sérfræðingur hjá
Hagfræðistofnun. Fundarstjóri
verður Ágúst Ólafur Ágústsson, for-
maður Ungra jafnaðarmanna.
Þriðji fundurinn verður haldinn
laugardaginn 20. apríl kl. 15–17 í
Húsi málarans. Framsögumenn
verða Þorvarður Tjörvi Ólafsson,
fyrrverandi formaður Stúdentaráðs
HÍ, Gylfi Magnússon, dósent við Við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-
lands, Jónína Brynjólfsdóttir, for-
maður Iðnnemasambandsins od
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir frá
Ungum jafnaðarmönnum. Fundar-
stjóri: Hinrik Már Ásgeirsson, gjald-
keri Ungra jafnaðarmanna.
Allir eru velkomnir á fundina, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Ungir jafn-
aðarmenn
funda um
menntamál
NÝLEGA undirrituðu Garð-
yrkjuskólinn, Ísgraf ehf. og Loft-
myndir ehf. samstarfssamning um
kennslu og rannsóknir byggða á
gögnum og gagnagrunni fyrirtækj-
anna sem þau heimila skólanum að
nota sér að endurgjaldslausu.
Einnig var samþykkt verkáætlun
um ýmis verkefni tengd uppsetn-
ingu og notkun búnaðarins við
kennslu og endurmenntun. Samn-
ingurinn er tvískiptur, annars-
vegar afnot af loftmynda- og hæð-
arlínugagnagrunni Loftmynda ehf.
sem í dag þekur 60% af öllu Ís-
landi. Hinsvegar veitir samning-
urinn skólanum aðgang að hug-
búnaði frá Bentley og InterGraph
til stafrænnar vinnslu á land-
fræðilegum gagnasöfnum. Þessi
stuðningur fyrirtækjanna mun fela
í sér gjörbreytingu á kennslu-
möguleikum skólans í stafrænni
kortatækni sem mun, ekki síst,
gagnast vel í endurmennt-
unarnámskeiðum skólans og reglu-
legu námi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Frá undirritun samningsins, frá vinstri: Karl Arnar Arnarsson frá Ís-
graf, Sveinn Aðalsteinsson skólameistari og Jón Heiðar Ríkharðsson.
Samstarfssamningur um
kennslu og rannsóknir
SMIÐJA verður haldin af Ungum
vinstri grænum á efri hæðinni í Húsi
málarans laugardaginn 13. apríl kl.
14–16.
Ungir vinstri grænir vilja leggja
sitt af mörkum til að skýra inntak
andstöðunnar og eðli hnattvæðing-
arinnar með því að boða til smiðju
um efnið: „Um hvað snýst andstaðan
við alþjóðavæðinguna?“
Erindi halda: Einar Ólafsson
skáld, Lilja Hjartardóttir stjórn-
málafræðingur og Stefán Pálsson
sagnfræðingur. Fyrirspurnir og um-
ræður. Fundarstjóri er Drífa Snæ-
dal, segir í fréttatilkynningu.
Funda um
hnattvæðingu
STJÓRN Bandalags íslenskra lista-
manna stendur fyrir opnu málþingi
um menningarhlutverk RÚV, Ríkis-
útvarps – sjónvarps, í íslensku sam-
félagi í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu, 14. apríl kl. 13.
Tinna Gunnlaugsdóttir, forseti
BÍL, setur málþingið. Tómas Ingi
Olrich, menntamálaráðherra, flytur
ávarp. Erindi halda: John Barsby,
forseti breska blaðamannasam-
bandsins, Jón Ásgeir Sigurðsson,
formaður starfsmannasambands
RÚV, Steinunn Sigurðardóttir, rit-
höfundur, Hörður Áskelsson, tónlist-
armaður, Þorvaldur Þorsteinsson,
myndlistarmaður og rithöfundur og
Friðrik Þór Friðriksson, kvik-
myndagerðarmaður. Pallborðsum-
ræður verða með þátttöku gesta úr
sal. Þór Magnússon kynnir stofnun
samtakanna.
Hægt er að skrá sig í samtökin á
staðnum, segir í fréttatilkynningu.
Málþing um
menningar-
hlutverk RÚV
MÁLSTOFA um skipulag við
Reykjavíkurhöfn verður haldin í
dag, fimmtudaginn 11. apríl, kl.
16–17.30 í húsi verkfræðideildar
við Hjarðarhaga 2–6, stofu 158, á
vegum umhverfis- og byggingar-
verkfræðiskorar HÍ og Borgar-
fræðaseturs.
Tilefnið er að nýlega fór fram
samkeppni um skipulag við höfn-
ina vegna áforma um byggingu
ráðstefnu- og tónlistarhúss. Önn-
ur samkeppni um slippsvæðið er
nú í undirbúningi. Þetta tvennt
ásamt hugmyndum um framtíðar-
stöðu gamla miðbæjarins og sam-
spil hans við höfnina verður tekið
til umræðu á málstofunni.
Frummælendur eru: Árni Þór
Sigurðsson, formaður skipulags-
nefndar Reykjavíkur, Jónas El-
íasson prófessor, Sigurður Bjarni
Gíslason stúdent, Þorsteinn Þor-
steinsson aðjúnkt og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi.
Fundarstjóri er Trausti Valsson
prófessor. Fundurinn er öllum op-
inn, segir í fréttatilkynningu.
Málstofa um skipulag
við Reykjavíkurhöfn
BORGARBYGGÐARLISTI er bor-
inn fram af óháðum kjósendum,
Samfylkingunni og Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði, fyrir sveit-
arstjórnarkosningar í Borgarbyggð
árið 2002. Listann skipa eftirtaldir
einstaklingar:
Finnbogi Rögnvaldsson jarðfræð-
ingur, Borgarnesi, Ásþór Ragnars-
son sálfræðingur, Borgarnesi, Sóley
Sigurþórsdóttir kennari, Tungulæk,
Brynjólfur Guðmundsson bóndi,
Hlöðutúni, Guðrún Vala Elísdóttir
mannfræðingur, Borgarnesi,
Tryggvi Gunnarsson rafvirkjameist-
ari, Borgarnesi, Ása Björk Stefáns-
dóttir kennari, Bifröst, Einar Eyj-
ólfsson nemi, Bifröst, Jóhanna
Björnsdóttir verslunarmaður, Borg-
arnesi, Örn Einarsson bæjarfulltrúi,
Miðgarði, Anna Einarsdóttir skrif-
stofumaður, Kárastöðum, Ragnheið-
ur Einarsdóttir bóndi, Álftárósi,
Kristmar J. Ólafsson bæjarfulltrúi,
Borgarnesi, Elín B. Magnúsdóttir,
forstöðumaður DAB, Borgarnesi,
Kristberg Jónsson veitingamaður,
Langholti, Guðbrandur Brynjólfsson
bæjarfulltrúi, Brúarlandi, Guðrún
Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar,
Borgarnesi, og Sveinn G. Hálfdán-
arson, formaður verkalýðsfélags,
Borgarnesi.
Borgarbyggð-
arlistinn birtur
HROSSARÆKTARSAMTÖK Suð-
urlands í samvinnu við Bs. Suður-
lands hafa ákveðið að endurvekja
stóðhestasýningu í Gunnarsholti nú
laugardaginn 4. maí. Reiknað er með
að dómstörfum ljúki á einum degi,
föstudaginn 3. maí, í hefðbundnum
aldursflokkum (4, 5 og 6 vetra og
eldri hestar). Einnig gefst fólki kost-
ur á að koma með ungfola til um-
sagnar. Skráningar þurfa að hafa
borist til Bs. Suðurlands í síðasta
lagi mánudaginn 29. apríl. Skráning-
argjald er 6.500 kr. á hest, segir í
fréttatilkynningu.
Héraðssýning
stóðhesta í
Gunnarsholti
RÁÐSTEFNA um þjóðlendur og úr-
skurði óbyggðanefndar verður hald-
in á vegum Lagastofnunar Háskóla
Íslands föstudaginn 12. apríl kl. 14–
17.30 í A-sal Hótels Sögu.
Fundarstjóri verður Björg Thor-
arensen, prófessor við lagadeild HÍ.
Páll Sigurðsson, prófessor og deild-
arforseti lagadeildar, setur ráðstefn-
una. Erindi halda: Eiríkur Tómasson
prófessor, Ragnar Árnason prófess-
or, Þorgeir Örlygsson ráðuneytis-
stjóri, Ólafur Sigurgeirsson hæsta-
réttarlögmaður, Ólafur Björnsson
hæstaréttarlögmaður. Aðgangur er
ókeypis. Úrskurði óbyggðanefndar
má nálgast á heimasíðu nefndarinn-
ar, www.obyggd.stjr.is.
Ráðstefna um
þjóðlendur og
úrskurði
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla
Íslands heldur fund um siðfræði
stríðs, í dag, fimmtudaginn 11. apríl,
kl. 20 í Borgarleikhúsinu. Fundurinn
er haldinn í tilefni þeirra miklu átaka
sem nú eiga sér stað í heiminum.
Framsögu halda: Þorsteinn Gylfa-
son, prófessor í heimspeki, og Karl
Th. Birgisson, blaðamaður. Þeir
fjalla um kenningar um siðfræði
stríðs og taka dæmi úr samtímanum.
Eftir framsögur verða umræður.
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur ókeypis, segir í fréttatil-
kynningu.
Funda um
siðfræði stríðs
JAFNRÉTTISÁTAK Háskóla Ís-
lands og Jafnréttisstofu í samvinnu
við Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands, heilbrigðisdeild Háskólans
á Akureyri og Landspítala – há-
skólasjúkrahús, kynnir: Hvatn-
ingarátak í framhaldsskólum sem
miðar að því að fjölga karlnemend-
um í hjúkrunarfræði á háskólastigi.
Í apríl og október 2002 verða
haldnar sérstakar kynningar í öllum
framhaldsskólum landsins annars
vegar um nám í hjúkrunarfræði og
hins vegar störf hjúkrunarfræðings-
ins. Megin markmið hvatningar-
átaksins er að karlnemendur í
hjúkrunarfræði og útskrifaðir
karlhjúkrunarfræðingar geti orðið
yngri karlnemendum í framhalds-
skólum hvatning til að velja fagið
sem námsbraut á efri stigum mennt-
unar sinnar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Vilja fleiri karl-
menn í hjúkrun