Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ljóstíra, 4 vangi, 7 naut,
8 skáru, 9 viðkvæm, 11
ögn, 13 fall, 14 hafna, 15
þarmur, 17 geð, 20 fjalls-
brún, 22 kirtill, 23 rýma,
24 myrkvi, 25 venja.
LÓÐRÉTT:
1 varkár, 2 gubbaðir, 3
lengdareining, 4 sorg, 5
sumir, 6 gyðja, 10 þjálf-
un, 12 greinir, 13 mann,
15 málms, 16 þekja, 18
máttum til, 19 toga, 20
geðvonska, 21 lýsis-
dreggjar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 koppalogn, 8 kaggi, 9 tefja, 10 sel, 11 rolla, 13
annað, 15 leggs, 18 stáls, 21 enn, 22 ómaði, 23 Ævars, 24
hafurtask.
Lóðrétt: 2 orgel, 3 peisa, 4 litla, 5 gæfan, 6 skar, 7 sauð,
12 lag, 14 nót, 15 ljót, 16 glata, 17 seinu, 18 snætt, 19 ár-
ans, 20 sess.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Goða-
foss kemur og fer í dag.
Mánafoss og Dornum
koma í dag. Arnarfell,
Hjalteyrin og Venus
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fór frá
Straumsvík í gær.
Barði, Arnar og Sævik-
ing komu í gær. Dorn-
um og Vasily Zaytsev
koma í dag.
Fréttir
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl 9
vinnustofa og jóga, kl 10
boccia, kl 13 vinnustofa,
myndmennt og bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð, kl. 13 glerlist, kl.
14 dans. Félagsvist á
morgun kl. 13.30.
Harmónikkuball kl. 16.
Ragnar Leví spilar á
nikkuna. Kaffi og með-
læti. Skáning í síma
568 5052. Allir velkomn-
ir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga á föstudögum kl.
11. Kóræfingar hjá Vor-
boðum, kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
á sunnudögum kl. 11.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Kennsla í Línudansi
byrjar í Damos mánud.
15. apríl kl. 20.
Ferð verður á Sæ-
dýrasafnið í Höfnum og
til Keflavíkur 16. apríl,
lagt af stað kl. 13 frá
Damos. Skráning í s.
586 8014 e.h.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 handavinnu-
stofan opin, kl. 9.30
danskennsla, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ, í dag kl. 9
vinnustofa, kl. 9.45
boccia, kl. 13. postulíns-
málun, málun og ker-
amik, kl. 19.30 vorfagn-
aður í Kirkjuhvoli á
vegum Oddfellow.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt í
Bæjarútgerð kl 10–
11.30, glerskurður kl.
13. Kvöldvaka Lions kl
20, skemmtiatriði, kaffi-
hlaðborð, dansað til kl.
23. Á morgun föstudag
myndlist og brids kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Brids fyrir byrj-
endur kl. 19.30.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði í
Glæsibæ, félagsheimili
Félags eldri borgara,
söng- og gamanleikinn
„Í lífsins ólgusjó“, minn-
ingar frá árum síld-
arævintýranna og „Fugl
í búri“, dramatískan
gamanleik. Næstu sýn-
ingar: Síðasta sýning
föstudaginn 12. apríl,
miðapantanir í símum
8 2111 og 568 9082,
einnig eru miðar seldir
við innganginn. Heilsa
og hamingja laugardag-
inn 13. apríl nk. kl.
13.30 í Ásgarði,
Glæsibæ. Hóprann-
sóknir á vegum Hjarta-
verndar. Vilmundur
Guðnason forstöðu-
læknir Hjartaverndar.
Fræðslunefnd FEB
hvetur fólk til að mæta
og kynna sér málefnin.
Á eftir hverju erindi
gefst tækifæri til spurn-
inga og umræðna.
Söguslóðir á Snæfells-
nesi og þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull, 3 daga
ferð 6.–8. maí. Gisting á
Snjófelli á Arnarstapa,
leiðsögn Valgarð Run-
ólfsson. Skráning hafin
á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í síma 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi, kl.
15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30, leiðbeinandi
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari. Helgi-
stund kl. 10.30, umsjón
Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni. Frá hádegi
vinnustofur og spilasal-
ur opin. Fimmtudaginn
18. apríl kl. 13.15, fé-
lagvist í samstarfi við
Hólabrekkuskóla, allir
velkomnir.
Veitingar í veitingabúð.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9 handavinna, kl.
9.05 og kl. 9.50 leikfimi,
kl. 9.30 klippimyndir, kl.
15 rammavefnaður, kl.
13 gler og postulín, kl.
16.20 kínversk leikfimi,
kl. 17 myndlist, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13 brids og glerlist,
kl. 13–16 handavinnu-
stofan opin, leiðbeinandi
á staðnum, kl. 17 línu-
dans.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15
leirmunanámskeið. Fé-
lagsstarfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing.
Föstudaginn 12. apríl
kl. 14.30 dansað við
lagaval Sigvalda.
Rjómapönnukökur með
kaffinu, allir velkomnir.
Tískusýning verður
föstud. 19. apríl kl. 14.
Sýndur verður dömu-
fatnaður í vor- og sum-
arlínunni. Kynnir Arn-
þrúður Karlsdóttir. Að
lokinni sýningu verður
dansað við lagaval Sig-
valda. Kaffiveitingar,
allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaumur
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og
frjálst spil, kl. 14. leik-
fimi.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60, kaffi kl. 16.
Fundur í umsjá Lilju
Kristjánsdóttur. Allar
konur velkomnar.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105. Kl. 13–16
prjónað fyrir hjálp-
arþurfi erlendis. Efni á
staðnum. Allir velkomn-
ir.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Í dag er fimmtudagur 11. apríl,
101. dagur ársins 2002. Leonis-
dagur. Orð dagsins: Fyrirætlanir
hjartans eru á mannsins valdi, en
svar tungunnar kemur frá Drottni.
(Orðskv. 16, 1.)
Fyrirspurn til
ríkisstjórnarinnar
vegna villimennsk-
unnar í Ísrael
ER ekki kominn tími til að
Íslendingar, sem löngum
hafa verið uppburðarlitlir
nafnleysingjar í alþjóða-
málum, sýni nú sjálfstætt
frumkvæði á þeim vett-
vangi, og lýsi Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels,
hryðjuverkamann, sekan
um glæpi gegn mannkyni,
og krefjist þess jafnframt
að hann verði dreginn fyrir
Haag-dómstólinn ásamt
ríkisstjórn Ísraels.
Kveðja,
Björn Baldursson
lögfræðingur.
Þvottavél fyrir
hreinan þvott
ÉG keypti þvottavél frá
Heklu í desember árið
2000. Hálfu ári síðar bilaði
vélin svo að ég hringdi í
Heklu og skýrði þeim frá
biluninni og þeir sendu
mér viðgerðarmann. Þegar
búið var að gera við vélina
var mér gert að greiða
7.000 kr. fyrir viðgerðina.
Ég benti honum vinsam-
lega á að vélin væri í
ábyrgð og hann rauk út í
fússi og sagði mér að hafa
samband við yfirmann fyr-
irtækisins sem ég gerði. Þá
var mér tjáð að það hefði
fundist vottur af sandi í
vélinni og það væri minn
skaði. Ég benti honum á að
oft væri einhver sandur
sem hluti af óhreinindum í
fötum barna sem væru úti
að leika sér og þannig hefði
það komist í vélina, en vélin
ætti jafnframt að þola það
þar sem þetta tæki væri til
þess að þvo óhreinar flíkur.
Þá tjáði þessi maður mér
að þær þvottavélar sem
þeir selja væru ekki til þess
að þvo óhreinan þvott og ef
ég ætlaði að nota vélina þá
ætti ég fyrst að þvo þvott-
inn í höndunum og síðan
gæti ég notað vélina. Ég
hafði greinilega gleymt að
lesa smáa letrið þegar ég
keypti vélina. Ég er ekki
búin að greiða reikninginn,
en þeir hjá Heklu eru búnir
að senda hann í innheimtu.
Ég mæli með því að fólk
spyrjist fyrir um þau heim-
ilistæki sem það hyggst
kaupa áður en fest eru
kaup á þeim.
Linda Maria Beller,
Hólabergi 62, 111 Rvík.
Tapað/fundið
Gullhálsmen
tapaðist
GULLHÁLSMEN með
rauðum stórum steini tap-
aðist seinni part síðasta
sumars eða í byrjun
haustsins. Ef einhver veit
um afdrif hálsmensins, vin-
samlegast hafið samband í
síma 554-5744 eða 696-
9982.
Úlpa tekin
í misgripum
KONAN sem tók gula úlpu
með hettu í misgripum í
Langholtskirkju á tónleik-
um hjá Svarfdælingum
laugardaginn 6. apríl sl. er
vinsamlegast beðin að hafa
samband við Sólveigu í
síma 868-8556.
Canon-myndavél
í óskilum
NÝLEG Canon-myndavél
fannst á föstudaginn langa
í Sæviðarsundi. Í vélinni er
átekin filma. Eigandi getur
haft samband í síma 695-
3088.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
ÞAR sem Víkverji er búsettur erbýsna vindasamt en heimili
hans er byggt á litlu útnesi við höf-
uðborgina. Lítið skjól er þar jafnan
að fá nema þá fyrir logninu. Þetta
finnst Víkverja mikill kostur enda
alinn upp við hressandi sjávargolu
og líður alls ekki vel í ládeyðunni
inn til landsins. Telur sjávarloftið
heilnæmara og hefur haldið því
fram að þeir sem alast upp á logn-
sælum stöðum séu ekki eins vel í
stakk búnir til að takast á við mót-
vinda lífsins.
Víkverji hefur þó látið vindinn
eða öllu heldur fylgifiska hans fara
ofurlítið í taugarnar á sér undanfar-
ið. Þannig háttar til að fyrir utan
svefnherbergisglugga Víkverja eru
tvær myndarlegar fánastangir sem
tilheyra tveimur fyrirtækjum sem
flagga fánum sínum allan sólar-
hringinn. Það er í sjálfu sér gott og
blessað nema að sá sem dró fánana
að húni hefur látið undir höfuð
leggjast að vefja línunni utan um
stangirnar eins og Víkverja var
kennt að gera í skátunum forðum
daga. Afleiðingin er sú að þegar
vindurinn blæs hressilega smellur
ótt og títt í stöngunum og berast
smellirnir hátt og skýrt inn um op-
inn svefnherbergisglugga Víkverja.
Hefur þetta haldið vöku fyrir Vík-
verja sem hefur neyðst til að loka
glugganum og fara þannig á mis við
heilnæma sjávarloftið. Víkverji hef-
ur nefnt þetta við fulltrúa a.m.k.
annars fyrirtækisins en það virðist
ekki hafa skilað sér. Eina nóttina
gekk þetta svo langt að Víkverji fór
sjálfur á stjá og ætlaði að bæta úr
en gafst fljótlega upp. Víkverja leið
enda hálfkjánalega þar sem hann
bjástraði við fánastangirnar en svo
vill til að þær standa við fjölfarna
umferðargötu.
Víkverji þykist viss um að smellir
frá fánastöngum valdi fleirum ama
og beinir því til þeirra sem draga
fána að húni að vefja línunni utan
um stöngina eftir að fáninn er kom-
inn á sinn stað. Slíkt er ekki mikil
fyrirhöfn og Víkverji myndi a.m.k.
sofa betur.
x x x
VÍKVERJI verður alltaf dálítiðleiður þegar hann sér unglinga
reykja. Hann hugsar með vorkunn
til þessara krakka sem eru að
rembast við að venja sig á að
reykja, en eiga svo eftir að leggja
mikið á sig til að venja sig af þess-
um ósið.
Fyrir skömmu átti Víkverji leið í
fatahreinsun. Við hliðina á henni
var sjoppa og fyrir utan hana voru
krakkar sem sumir hverjir voru að
reykja. Þegar Víkverji var að stíga
inn í efnalaugina vék ungur dreng-
ur sér að honum og sagði: „Ertu til í
að kaupa sígarettur fyrir vin minn!“
Víkverji sagði að hann væri svo
sannarlega ekki tilbúinn til að
stuðla að þessum „vinargreiða“
enda væri það lögbrot.
Að undanförnu hefur heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkurborgar fylgt fast
eftir ákvæðum laga sem banna að
unglingum sé selt tóbak. Það er
gleðilegt ef þetta framtak hefur
skilað þeim árangri að börn fá al-
mennt ekki að kaupa tóbak.
Margir hafa séð ástæðu til að
gagnrýna hertari tóbakslög. Vík-
verji er ekki í þeirra hópi. Eftir að
hafa dvalist á Spáni um skeið og
kynnst þar þeim forréttindum sem
reykingafólk býr við fagnar hann
því að geta farið á veitingahús á Ís-
landi og borðað mat án þess að
þurfa að anda að sér tóbaksreyk.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
STEFÁN Jón fer mikið í
grein í Morgunblaðinu
hinn 5. apríl sl. um stefnu
Sjálfstæðismanna fyrir
kosningarnar í vor.
Þar segir hann meðal
annars, Sjálfstæðismenn
ætla að eyða biðlistum eftir
hjúkrunarrými fyrir eldri
borgara, síðan segir hann
þetta stóra loforð er gefið
með vondri samvisku: Hver
sá sem stjórnar borginni
mun ekki efna þetta loforð.
Stefán er þarna að gefa R-
listanum einkunn. R-listinn
sagði fyrir kosningarnar
1994 að R-listinn ætlaði að
eyða biðlistum eftir hjúkr-
unarheimilum eldri borg-
ara. Hvernig fór ?
Enn heldur Stefán Jón
áfram og segir, og hvað
með þetta loforð: Við ætl-
um að leysa húsnæð-
isvanda þeirra fjölskyldna
sem eru á biðlista eftir fé-
lagslegu húsnæði. Kannast
Stefán ekki við þetta loforð
sem R-listinn gaf 1994 ? Og
hvað með loforð R-listans
frá 1994 um að öll börn frá
eins árs aldri fái leik-
skólapláss á kjör-
tímabilinu? Það verður
fróðlegt að sjá kosningalof-
orð R-listans þegar hann
kemur en ég hef heyrt því
fleygt að hann sé ekki
væntanlegur fyrr en þegar
mánuður er til kosninga.
Það skal tekið fram að ár-
töl geta verið önnur, t.a.m.
1998 en ef ég man rétt voru
loforðin mjög lík árin1994
og 1998.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni 10a, Rvík.
Ostbiti Stefáns Jóns Hafsteins