Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 16
BJÖRGVIN Njáll Ingólfsson
stjórnarformaður Lífafls sem
hefur aðsetur á Skjaldarvík
norðan Akureyrar segir að
verið sé að skoða stöðu fyr-
irtækisins og hvort unnt verði
að endurreisa það í einhverri
mynd.
Lífafl sér um mælingar á
íbúðar- og iðnaðarhúsnæði
með tilliti til orkumengunar og
gerir starfsfólk að því búnu
ráðstafanir til að draga úr
slíkri mengun sé hún til staðar.
Reksturinn hefur gengið
erfiðlega og voru seglin dregin
saman um áramót og starfs-
fólki fækkað. Nú starfa 5–6
manns hjá fyrirtækinu og
sagði Björgvin Njáll að ekki
mætti líða mjög langur tími
þar til fyrir lægi hvort tækist
að endurreisa félagið því ann-
ars væri hætta á að það missti
frá sér starfsfólkið.
Björgvin Njáll sagði að
nokkrir aðilar hefðu lýst yfir
áhuga á að leggja félaginu til
hlutafé, en nægilegar skuld-
bindingar skort til að unnt
væri að halda áfram. Þá hefðu
fjárfestar einnig lýst yfir að
þeir myndu ekki verða með í
endurreisn félagsins. „Við
munum ljúka þeim verkefnum
fyrir okkar viðskiptavini sem
verið er að vinna að á vegum
fyrirtækisins og gera það eins
vel og við getum. Að því búnu
verður málið sett í salt ein-
hvern tíma á meðan við áttum
okkur á stöðunni,“ sagði
Björgvin Njáll.
Endurreisn
Lífafls
skoðuð
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Framboðslistar við sveitarstjórnarkosningar
í Eyjafjarðarsveit 25. maí 2002
Yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar, 16. maí 2002
Emilía Baldursdóttir • Hörður Adólfsson • Níels Helgason
F-listinn
H
Listi framfarafélags Eyjafjarðarsveitar
1. Hólmgeir Karlsson
2. Jón Jónsson
3. Dýrleif Jónsdóttir
4. Gunnar Valur Eyþórsson
5. Valdimar Gunnarsson
6. Björk Sigurðardóttir
7. Ívar Ragnarsson
8. Hrefna L. Ingólfsdóttir
9. Hreiðar Hreiðarsson
10. Sigurgeir Hreinsson
11. Gunnur Ýr Stefánsdóttir
12. Guðbjörg Huld Grétarsdóttir
13. Gylfi Ketilsson
14. Birgir H. Arason
1. Arnar Árnason
2. Valgerður Jónsdóttir
3. Einar Gíslason
4. Eiríkur Hreiðarsson
5. Reynir Björgvinsson
6. Brynjar Skúlason
7. Rannveig Vernharðsdóttir
8. Eygló Daníelsdóttir
9. Sigurgeir Pálsson
10. María Tryggvadóttir
11. Hörður Guðmundsson
12 Jófríður Traustadóttir
13. Rögnvaldur Guðmundsson
14. Aðalsteinn Hallgrímsson
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur fyrir
sitt leyti samþykkt drög að þjón-
ustusamningi um málefni fatlaðra
milli bæjarins og félagsmálaráðu-
neytisins. Enn er nokkuð í land að
samningar hafi náðst um að Akur-
eyrarbær fari með málefni heilsu-
gæslu og öldrunarþjónustu á vegum
heilbrigðisráðneytisins á grunni
reynslusveitarfélagaverkefnis.
„Ég er ánægður með að sam-
komulag virðist í höfn varðandi mál-
efni fatlaðra. Þetta er mikilvægur
málaflokkur sem hvergi er betur
kominn en í höndum sveitarfé-
lagsins og um það virðist ríkið okk-
ur sammála,“ sagði Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri. Einkum
kvaðst hann ánægður fyrir hönd
notenda þjónustunnar og starfs-
fólks. Samningurinn er til 5 ára og
fallist félagsmálaráðherra á hann
verður hann væntanlega undirritað-
ur innan tíðar.
Ekki ánægð með svör ráðherra
varðandi hjúkrunarrými
Samningar hafa enn ekki tekist
milli Akureyrarbæjar og heilbrigð-
isráðuneytis um rekstur heilsu-
gæslu og öldrunarþjónustu, en síð-
asti samningur rann út um síðustu
áramót. Á fundi bæjarráðs í gær var
lagt fram bréf Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra sem var svar við
nokkrum spurningum bæjarstjóra
varðandi mál í tengslum við vænt-
anlegan samning.
Á fundi bæjarráðs kom fram að
fulltrúar allra stjórnamálaflokka eru
sammála um að svar ráðherra varð-
andi ný hjúkrunarrými væri ekki
viðunandi. Akureyrarbær vill að í
væntanlegum samningi verði tryggð
30 ný hjúkrunarrými á árinu 2004
og sagði Kristján Þór það forsendu
fyrir því að bærinn samþykkti
samning um þjónustu í málefnum
aldraðra.
Í svari ráðherra kemur fram að
ráðuneytið sé tilbúið til viðræðna
um leið og samningur um heilsu-
gæsluna og öldrunarþjónustuna hef-
ur verið undirritaður. „Þetta er ekki
viðunandi svar, um það eru allir
bæjarráðsmenn sammála,“ sagði
bæjarstjóri. „Við viljum skýr ákvæði
inn í samninginn um hvernig við
ætlum að finna farveg fyrir úrbætur
í málefnum aldraðra og viðbót
hjúkrunarrýma hér á Akureyri.“
Bjartsýnn á jákvæð viðbrögð
Kristján Þór kvaðst bjartsýnn á
jákvæð viðbrögð heilbrigðisráð-
herra, „við þessari sjálfsögðu ósk og
þá einkum í ljósi þess að fyrir
nokkru undirritaði hann viljayfirlýs-
ingu við Reykjavíkurborg um góðar
úrbætur í þessum málaflokki. Fyrst
vilji er fyrir því að gera úrbætur í
Reykjavík hlýtur hann að vera fyrir
hendi líka varðandi Akureyri, en
ástand þessara mála er með svip-
uðum hætti á þessum stöðum“,
sagði Kristján Þór.
Samkomulag hefur náðst um þjónustusamning í málefnum fatlaðra
Bæjarráð vill skýrari svör
varðandi öldrunarmál
um en víst er að það er von Ak-
ureyringa, sem og annarra lands-
manna, enda ekki nema um fimm
vikur í að daginn fari að stytta á
ný.
AKUREYRINGAR brostu sínu
blíðasta í gær og höfðu ærna
ástæðu til. Eftir kuldakast að
undanförnu skein sól í heiði, auk
þess sem hitastigið fór upp í og
yfir 10 gráður. Bæjarbúar nutu
veðurblíðunnar á ýmsan hátt,
bæði við vinnu og leik um allan
bæ. Hvort sumarið er nú loks
komið er ómögulegt að segja til
Morgunblaðið/Kristján
Börnin á leikskólanum Sunnubóli voru að baka sandköku og kunnu vel við sig í blíðunni.
Er sumarið loksins komið?
Fjölskylduhá-
tíð og baráttu-
fundur
SAMFYLKINGIN á Akur-
eyri verður með fjölbreytta
dagskrá um hvítasunnuhelg-
ina.
Kosningahátíð ungs fólks
verður á Ráðhústorgi frá kl.
17 í dag, föstudag. Grillað
verður fyrir gesti og gang-
andi og boðið upp á tónlistar-
atriði. Fundur um menningar-
mál hefst á Café Karólínu kl.
18 sama dag. Á laugardag
verður fjölskylduhátíð á Ráð-
hústorgi og hefst hún kl. 13.
Gönguferð með leiðsögn um
Krossanesborgir verður á
mánudag, 20. maí, og hefst
hún kl. 14, en lagt verður af
stað frá afleggjaranum inn í
borgirnar, skammt sunnan
Lónsár. Genginn verður
stuttur hringur, gamli þjóð-
vegurinn skoðaður sem og
Hunda- og Djáknatjarnir og
fuglalífið auk þess sem mögu-
leikar svæðisins verða reifað-
ir.
Baráttufundur verður í
Ketilhúsinu að kvöldi annars í
hvítasunnu en hann hefst kl.
21. Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar,
flytur ávarp auk frambjóð-
endanna Oktavíu Jóhannes-
dóttur og Hermanns Tómas-
sonar.
Boðið verður upp á tónlist-
aratriði.
Rúna í
Kompunni
RÚNA Þorkelsdóttir opnar sýn-
ingu í Kompunni, Kaupvangs-
stræti á morgun, laugardaginn 18.
maí, kl. 17.
Rúna stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla Íslands og við
Gerrit Rietveld academie Amster-
dam. Undanfarin tuttugu ár hefur
hún verið búsett í Amsterdam og
stundað list sína og síðan 1986 hef-
ur hún einnig starfrækt bókabúð-
ina Boekie Woekie ásamt Jan Voss
og Henriette Van Egten.
Rúna hefur haldið sýningar víða
um heim, m.a. með Dieter Roth-
akademíunni, sem nú sýnir í Ála-
fosshúsunum í Mosfellsbæ.
Rúna Þorkelsdóttir verður við-
stödd opnunina og býður bæjarbúa
og alla aðra landsmenn velkomna.
Fugla-
skoðun
FARIÐ verður í árlega fugla-
skoðunarferð Ferðafélags Ak-
ureyrar á morgun, laugardag-
inn 18. maí, og hefst hún kl. 10,
en ekki 16 eins og misritaðist í
blaðinu í gær.
Fararstjóri er Jón Magnús-
son.
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is