Morgunblaðið - 17.05.2002, Síða 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
þeirri von að víðtækari sátt og var-
anlegri friður náist um sjávarútveg
okkar í framtíðinni.“
Þjóðin á að njóta veiðigjaldsins
Sjávarútvegsráðherra var á fund-
inum spurður að því hvaða skoðun
hann hefði á þeim hugmyndum sem
fram hafa komið um að veiðigjaldinu
yrði ráðstafað heima í héraði, enda
ljóst að gjaldið kæmi einkum niður á
landsbyggðinni. Árni sagði að helstu
rökin fyrir auðlindagjaldinu væru þau
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra telur hugmyndir um að
veiðigjaldi á sjávarútveg verði ráð-
stafað í þeim byggðum þar sem það er
innheimt ekki í anda þeirra raka sem
lögð voru til grundvallar álagningu
gjaldsins. Hann telur eigi að síður að
veiðigjaldið muni verða nýtt til upp-
byggingar á landsbyggðinni. Þetta
kom fram á vorfundi Útflutningsráðs
Samtaka verslunarinnar – FÍS, sem
haldinn var í gær.
Árni rakti á fundinum breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða sem meðal
annars fjölluðu um álagningu veiði-
gjalds. Hann sagði sýnt að lögin hefðu
auknar álögur á útveginn í för með
sér en aftur á móti væri óvíst að veiði-
gjaldið bætti fiskveiðistjórnunina sem
slíka. „Von mín er hins vegar sú að
það íþyngi fyrirtækjum ekki um of, né
setji óraunhæfan hagræðingarþrýst-
ing á þau. Við megum á hinn bóginn
alls ekki gleyma því að með upptöku
veiðigjalds er af minni hálfu og rík-
isstjórnarinnar verið að ganga til
sátta í miklu pólitísku deilumáli í
að þjóðin ætti að fá sjáanlega hlut-
deild í arðinum af auðlindinni. Sér
þætti því einkennilegt ef menn væru
misjafnlega réttháir eftir búsetu þeg-
ar kæmi að skiptingu gjaldsins. Sagði
hann að sér þætti hins vegar skyn-
samlegt að nota auðlindarentuna til
uppbyggingar atvinnulífi á þeim
svæðum þar sem gera mætti ráð fyrir
að yrðu breytingar vegna breytinga í
sjávarútvegi, líkt og endurskoðunar-
nefndin svokallaða lagði til. „Þannig
tel ég nokkuð víst að megnið af veiði-
gjaldinu færi til landsbyggðarinnar.
En fjármunirnir færu þá þangað á
grundvelli þess að við værum að ráð-
stafa þeim sameiginlega og til hags-
bóta fyrir heildina. Það er auðvitað í
þágu heildarinnar að við reynum að
byggja sem flestar byggðir í landinu.
Ég sé ekki ofsjónum yfir því að fjár-
munirnir fari til þessara svæða en ég
tel að það þurfi að vera á grundvelli
hagsmuna heildarinnar, því það er
þjóðin öll sem á auðlindina og hún á
því öll að njóta hennar jafnt.“
Árni var einnig spurður að því á
fundinum hvort ekki mætti búast við
tilfærslum í sjávarútvegi til að komast
hjá því að greiða veiðigjald og arð-
urinn yrði þannig tekinn í gegnum
fiskvinnsluna en ekki útgerðina. Árni
svaraði því til að við gerð frumvarps-
ins hefði mjög verið fjallað um þetta
atriði. Þess vegna væri gjaldstofninn
skilgreindur á sérstakan hátt og þess
vegna færi gjaldið ekki eftir afkomu
einstakra fyrirtækja. Einstök fyrir-
tæki hefðu því ekki hag af því að færa
til kostnað.
Veiðigjaldi á ekki að ráðstafa innan heimabyggðar, segir sjávarútvegsráðherra
Gjaldið verði
nýtt í þágu
heildarinnar
BRESKA neytendablaðið Which?
hefur hvatt fjóra stærstu bankana í
Bretlandi til að hætta að féfletta við-
skiptavini sína með of háum útláns-
vöxtum og of lágum innlánsvöxtum.
Bankarnir fjórir, Barclays, HSBC,
Lloyds TSB og NatWest, eru nær
einráðir á breska markaðnum og hafa
verið gagnrýndir fyrir að bjóða við-
skiptavinum sínum mun lakari kjör
en aðrir. Það geti þeir gert í skjóli
þess að Bretar eru afar tregir til þess
að skipta um banka.
Which? skorar á yfirmenn bank-
anna fjögurra að bjóða fólki allt að
tuttugu sinnum hærri innlánsvexti, að
því er kemur fram á fréttavef BBC.
Vilja neytendasamtökin að innláns-
vextir verði hækkaðir um 0,1 til 2%.
Ennfremur vilja þau að yfirdrátt-
arvextir verði lækkaðir niður í 10% en
þrátt fyrir að hagstæðustu vextir á yf-
irdráttarlánum séu innan við 9% þá
taka stóru bankarnir fjórir allt að tvö-
faldri þeirri upphæð. Samkvæmt út-
reikningum Which? gætu viðskipta-
vinir stóru bankanna sparað sér um
hálfan milljarð punda (66,5 ma.kr.) ár-
lega ef 70% þeirra flyttu viðskipti sín
til eins þeirra sem bjóða hvað bestu
kjörin á yfirdráttarlánum.
Bresku bank-
arnir hætti að
féfletta við-
skiptavini sína
hafi á tveimur árum fallið úr 150
milljörðum sænskra króna í 60 millj-
arða, eða úr um 1.350 milljörðum ís-
lenskra króna í um 540 milljarða. Þá
hafi persónulegar eigur hans minnk-
að úr 8 milljörðum sænskra króna í að
hámarki 6 milljarða. Það svarar til
lækkunar úr um 72 milljörðum ís-
lenskra króna í um 54 milljarða.
Veldi sem grundað er á eldspýtum
Í frétt BT segir að grunninn að
ríkidæmi Jan Stenbecks megi rekja
til eins mesta fjármálahneykslis Evr-
ópu. Faðir hans, Hugo Stenbeck, hafi
SÆNSKI milljarðamæringurinn,
fjarskipta- og fjölmiðlakóngurinn Jan
Stenbeck, hefur tapað miklu fjár-
magni upp á síðkastið. Stenbeck, sem
oft er líkt við Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, stofnaði m.a. sjónvarps-
stöðvarnar TV3 og TV4, símafyrir-
tækið Tele2 og dagblaðakeðjuna
Metro International, sem dreift er
ókeypis.
Greint var frá erfiðleikum Sten-
becks í frétt á vefsíðu Berlingske Tid-
ende í gær. Í fréttinni segir að hægt
sé að setja verðmiða á erfiðleikana.
Markaðsvirði fyrirtækja Stenbecks
verið einn af þeim lögfræðingum sem
unnið hafi að því að ganga frá búi
sænska eldspýtnakóngsins Kreuger,
sem í kringum 1930 réð yfir um 60%
af eldspýtnaframleiðslunni í heimin-
um.
Kreuger skaut sig þegar í ljós kom
að veldi hans byggðist á mjög svo
hugmyndaríkum bókhaldsaðferðum.
Hugo Stenbeck keypti nokkur af
þeim fyrirtækjum sem Kreuger
skildi eftir sig, aðallega í stál- og
timburiðnaði.
Jan Stenbeck tók við stjórn fjöl-
skyldufyrirtækisins árið 1975. Árið
1987 hóf hann að fjárfesta í fjölmiðla-
geiranum er hann stofnaði sjónvarps-
stöðina TV3. Á næstu árum stofnaði
hann fleiri sjónvarpsstöðvar auk þess
sem hann hóf samkeppni á fjarskipta-
markaði við símafyrirtækið Telia,
sem hafði haft einokun á því sviði.
Metro-dagblöðin eru svo það nýjasta
sem Jan Stenbeck hefur tekið sér fyr-
ir hendur.
Í frétt BT segir að þeir sem keppi
við Stenbeck viti, að þó hann eigi í erf-
iðleikum nú þá sé það einmitt á slík-
um stundum sem hann þrífist allra
best.
Erfiðleikar hjá sænskum fjölmiðlakóngi
FLUGFÉLAGIÐ EasyJet hefur yf-
irtekið flugfélagið Go, en bæði teljast
þessi flugfélög vera lágfargjaldaflug-
félög. Með þessari yfirtöku er Easy-
Jet orðið stærsta félagið á þessum
markaði og hefur þar með skákað
Ryanair úr fyrsta sæti. EasyJet hefur
fleiri flugfélög í sigtinu og er eitt
þeirra Deutsche BA, sem er í eigu
British Airways.
Go er félag sem var skilið frá Brit-
ish Airways og selt stjórnendum og
stofnanafjárfestum í fyrra. Helstu
stjórnendur Go munu hagnast vel á
sölunni, en framkvæmdastjórinn,
Barbara Cassani, er engu að síður
ósátt við söluna og telur að betri kost-
ur hefði verið að fara með fyrirtækið í
frumútboð. Þá hefði fyrirtækið haldið
sjálfstæði sínu og nafni, en Go-nafnið
hverfur við sameininguna.
Mikill vöxtur hefur verið hjá lágfar-
gjaldaflugfélögum að undanförnu.
Frá mars í fyrra til jafnlengdar í ár
flutti Go 4,27 milljónir farþega, sem
er 55% aukning frá sama tímabili ári
áður. EasyJet flutti 8,25 milljónir far-
þega á sama tímabili og Ryanair 11,09
milljónir.
EasyJet
kaupir Go
♦ ♦ ♦
Afl kaupir í Þor-
móði ramma-
Sæbergi
AFL fjárfestingarfélag hf. seldi í
gær 11,9 milljónir króna að nafnverði
hlutafjár í Granda hf. á verðinu 5,7.
Söluverðið var því um 68 milljónir
króna. Sama dag keypti Afl hlutafé í
Þormóði ramma-Sæbergi hf. fyrir
svipaða fjárhæð. Nafnverð hlutafjár-
ins var 16,4 milljónir og verðið 4,15.
Eignarhlutur Afls í Granda eftir
viðskiptin nemur 4.248.546 krónum
að nafnverði, sem er um 0,3% hluta-
fjár félagsins. Eignarhlutur Afls í
Þormóði ramma-Sæbergi eftir þau
viðskipti er 258.411.388 krónur að
nafnverði, sem er um 19,9% af heild-
arhlutafénu. Frá þessu var greint í
flöggunum á Verðbréfaþingi Íslands
í gær.
Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnar-
formaður Afls, er varamaður í stjórn
Þormóðs ramma-Sæbergs hf.
♦ ♦ ♦