Morgunblaðið - 17.05.2002, Qupperneq 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ tap stjórnarflokkanna í
kosningunum í Hollandi og sigur
flokks hægrimannsins Pim Fortuyns
er þáttur í þróun sem á sér stað í allri
Evrópu, að sögn stjórnmálaskýr-
enda. Hefðbundnum sjónarmiðum
mið- og vinstriflokka er víða hafnað
og nýir hægriflokkar leggja áherslu
á innflytjendamál og glæpatíðni.
Kjósendur nýju hægriflokkanna
koma að miklu leyti úr röðum inn-
fæddra verkamanna sem finnst að
hefðbundnir vinstriflokkar hafi ekki
sinnt þessum málum sem snerti
mjög almenna borgara. Hnignun
vinstriflokka geti að nokkru verið
túlkuð sem eðlileg valdaskipti eftir
langt tímabil við völd en menn verði
að hafa einnig í huga þessa mikil-
vægu breytingu á hátterni kjósenda-
hópa. Áður hafi flokkar skipst á um
völdin vegna þess að lítill hópur kjós-
enda á miðjunni hafi ýmist kosið til
hægri eða vinstri en staðan sé nú
breytt.
Hægribylgja í Evrópu
Verkamannaflokkur Wim Koks
fer fyrir stjórninni sem beið ósigur í
Hollandi í gær. Hægriflokkur Aust-
urríkismannsins Jörg Haiders vann
mikinn sigur fyrir nokkrum árum og
á nú aðild að ríkisstjórn. Leiðtogar
annarra ríkja Evrópusambandsins
reyndu um hríð að refsa Austurríki
með því að hunsa fulltrúa landsins en
sú leið hefur nú verið gefin upp á bát-
inn.
Mið- og hægriflokkabandalag
undir forystu hægrimannsins Silvio
Berlusconis tók við stjórnarforyst-
unni á Ítalíu í fyrra eftir kosninga-
sigur, í apríl tók samsteypustjórn
mið- og hægrimanna við í Portúgal,
einn flokkanna er andvígur innflutn-
ingi fólks frá fátækum löndum. Á
Spáni er hægrimaðurinn Jose Maria
Aznar við völd, hann er hófsamur en
sagði í vikunni að ástæða þess að
vinstriflokkar hefðu látið undan síga
væri slök stefna í innflytjendamál-
um. Ríkisstjórnir hægrimanna í
Noregi og Danmörku styðjast nú
báðar við nýja hægriflokka á þingi
og nýlega olli það miklum titringi í
Frakklandi er hægriöfgasinninn
Jean-Marie Le Pen skákaði leiðtoga
sósíalista og þáverandi forsætisráð-
herra, Lionel Jospin, í fyrri umferð
forsetakosninganna.
Áhyggjuefni fyrir
hefðbundna flokka
Mikill munur er á nýju hægri-
flokkunum milli landa þótt sameig-
inleg stef séu þau sem nefnd hafa
verið. En þess má geta að hinn myrti
leiðtogi samnefnds Pim Fortuyn-
flokks í Hollandi var mjög á móti því
að vera dreginn í dilk með Le Pen og
sagðist alls ekki vera á móti fólki af
öðrum kynþætti en hvítum. Hann
gagnrýndi hins vegar hart íslam og
vildi sporna við að fleiri innflytjend-
ur frá þriðja heiminum fengju að
flytja til Hollands, landið þyldi auk
þess ekki mikið fleira fólk vegna
þéttbýlis.
Le Pen sækir margt í stefnu sinni
og málflutningi til gamallar, franskr-
ar þjóðrembu og gyðingahaturs þótt
kynþáttafordómar sem hann höfðar
til beinist nú mest gegn aröbum sem
eru margir í Frakklandi. Fortuyn
var einnig yfirlýstur hommi sem
ekki hefur þótt góð latína meðal
öfgafullra hægrimanna og nýfasista.
En það sem þeir Fortuyn og Le Pen
áttu ekki síst sameiginlegt er einföld
slagorð þar sem athyglinni er beint
að innflytjendum og glæpum, mál-
efnum sem stjórnmálaskýrendur
eins og Pierre Rousselin, blaðamað-
ur hægriblaðsins Le Figaro í Frakk-
landi, segja að hafi verið hunsuð af
tillitssemi við pólitíska rétthugsun.
Hægriflokkarnir nýju fullyrða að ná-
in tengsl séu á milli innflytjenda-
straumsins og aukinnar afbrotatíðni.
Ristjóri erlendra frétta á breska
dagblaðinu The Times, Bronwen
Maddox, segir að sameiginlegi þátt-
urinn í skýringum á vexti nýju
hægriflokkanna sé innflytjendamál-
in. „Það er áhyggjuefni fyrir stjórn-
málamenn úr öllum hefðbundnum
flokkum að kjósendur skuli álíta að
þessi eini þáttur, sem er lítilfjörlegur
í flestum löndum Evrópusambands-
ins, geti verið orsök hvers kyns fé-
lagslegra vandamála,“ segir Madd-
ox.
Margir segja að innflytjendamálin
hafi verið hunsuð. „Ef fólk styður
flokka Haiders, Le Pens eða Fort-
uyns er það vegna þess að þeir hafa
fundið réttu aðferðina við að vekja
athygli á málefnum sem snerta al-
menning en þagað er um eða fjallað
um með allt of almennum orðum,“
sagði pólska dagblaðið Rzeczpospol-
ita sem er frjálslynt.
Bent er á að ósigur mið- og vinstri-
flokka í mörgum löndum geti valdið
því að stefnan varðandi landamæra-
gæslu, glæpi, stækkun Evrópusam-
bandsins og efnahagsmál geti tekið
stakkaskiptum. Svo gæti farið að
hægriflokkarnir sigri í þingkosning-
um í júní í Frakklandi, einnig gætu
jafnaðarmenn Gerhards Schröders
misst völdin í Þýskalandi í kosning-
unum í september. Færi svo myndi
Verkamannaflokkur Tony Blairs
verða síðasta sterka vígi mið- og
vinstrimanna í álfunni.
Réttar spurningar, röng svör
Bent er á að almenn hægrisveifla,
sem eykur einnig fylgi við hefð-
bundna hægriflokka og gefur þeim
aðgang að stjórnvelinum, sé í senn
áskorun fyrir þá og tækifæri. Þeir
geti komið í gegn þeirri stefnu sinni
að auka veg frjáls markaðshagkerfis
í efnahagsmálum sem þeir segja að
muni ýta undir hagvöxt og draga úr
atvinnuleysi; síðastnefnda atriðið er
oft nefnt sem ein helsta ástæða and-
úðar á innflytjendum sem sakaðir
eru um að ræna störfum frá þeim
sem fyrir eru. En mistakist flokk-
unum að finna lausnir sem beri aug-
ljósan árangur geti enn öfgafyllri
þjóðernisstefna og andúð á ESB
fengið byr í seglin.
„Hægriöfgamenn spyrja réttra
spurninga en svörin eru röng.
Vinstrimenn láta eins og ekki sé
ástæða til að spyrja. Nú þurfa hefð-
bundnir hægrimenn að veita rétt
svör,“ segir Rousselin.
Innflytjendamál í
skugga pólitískrar
rétthugsunar?
Hægriöfgaflokkar sagðir eflast vegna sinnuleysis og
þagnar um viðkvæm mál sem snerti almenning
Reuters
Kosningaspjöld með myndum af Pim Fortuyn, daginn eftir að hann var
myrtur í Hilversum 6. maí. Líklegt er talið að sumir kjósendur hafi kosið
flokkinn til að lýsa andstyggð á morðum á stjórnmálaleiðtogum.
París. AFP.
MÁLGAGN kommúnistaflokksins á Kúbu,
Granma, birti í gær sögulega ræðu Jimmys Cart-
ers, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, meðal
annars kafla þar sem Carter vakti athygli á áskor-
un lýðræðissinna á Kúbu um pólitískar og efna-
hagslegar umbætur í landinu.
Carter flutti ræðuna á þriðjudagskvöld og var
henni sjónvarpað til allra íbúa eyjunnar. Carter,
sem er í heimsókn á Kúbu, fór lofsamlegum orðum
um árangur stjórnar Fidels Castros í mennta- og
heilbrigðismálum en gagnýndi mannréttindabrot
hennar. „Stjórnarskrá ykkar viðurkennir mál- og
félagafrelsi en önnur lög svipta þá, sem eru and-
vígir stjórninni, þessum réttindum,“ sagði Carter.
Hann kvaðst hafa frétt af áskorun sem þingi Kúbu
hefur borist frá nokkrum lýðræðissinnum þess
efnis að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
pólitískar og efnahagslegar umbætur. Meira en
11.000 manns hafa undirritað áskorunina en
fréttaskýrendur segja að fæstir Kúbumenn hafi
vitað af henni fyrr en Carter vakti athygli á henni í
ræðunni. „Þegar Kúbumenn nota þetta frelsi til að
breyta lögunum með friðsamlegum hætti og þjóð-
aratkvæðagreiðslu mun heimsbyggðinni verða
ljóst að það eru Kúbumenn sjálfir sem ráða örlög-
um sínum, en ekki útlendingar,“ sagði Carter.
Granma tók fram að blaðið teldi að markmiðið
með áskoruninni væri að steypa kommúnista-
stjórninni.
Carter hvatti einnig stjórn Castros til að heim-
ila Alþjóðaráði Rauða krossins að rannsaka að-
stæður í fangelsum Kúbu og leyfa Mary Robinson,
framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, að heimsækja landið til að kanna
hag samviskufanga og annarra sem afplána fang-
elsisdóma.
Málgagn Kúbustjórnar
birtir gagnrýni Carters
Havana. AFP.
ENGAN sakaði þegar lítil, eins
hreyfils einkaflugvél af gerðinni
Piper Cherokee brotnaði í nauð-
lendingu við þjóðveg númer 70 í
Pickerington í sambandsríkinu
Ohio í Bandaríkjunum í gær.
Tveir voru í vélinni og samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á
staðnum sluppu þeir báðir
ómeiddir, en miklar tafir urðu á
bílaumferð. Annar vængurinn
brotnaði af vélinni. Svo virðist
sem hún hafi orðið eldsneytislaus.
AP
Nauð-
lending
í Ohio
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, reyndi á mið-
vikudag að blása lífi í samninga-
viðræður sem ætlað er að binda
enda á næstum þrjátíu ára langar
deilur á Kýpur. Annan átti þá fund
með bæði Rauf Denktash, leiðtoga
Kýpur-Tyrkja, og Glafcos Klerides,
forseta Kýpur-Grikkja, en Denkt-
ash lét þau ummæli falla eftir fund-
inn að Annan gerði sér grein fyrir
því að það markmið, að ná sam-
komulagi fyrir júní-lok, myndi ekki
nást.
Annan sagði í gær að hann ætl-
aðist ekki endilega til að endanlegt
samkomulag lægi fyrir í lok júní en
að deilendur þyrftu a.m.k. að hafa
losað um helstu ásteytingarstein-
ana. Hann sagði að þrátt fyrir efa-
semdir Denktash væri hann sann-
færður um að ná mætti verulegum
árangri á tilskildum tíma.
Annan er sagður hafa áhyggjur
af því hve lítt hefur miðað í sögu-
legum viðræðum þeirra Denktash
og Klerides. Hann heimsótti Denkt-
ash í tyrkneska hluta eyjarinnar á
miðvikudag og varð hann fyrstur
framkvæmdastjóra SÞ til þess, en
sjálfstætt tyrkneskt lýðveldi í Norð-
ur-Kýpur hefur ekki hlotið viður-
kenningu umheimsins.
Hlaut hann fyrir það nokkra
gagnrýni harðlínumanna úr röðum
Kýpur-Grikkja.
Tyrkneski herinn réðst inn í Kýp-
ur árið 1974 og lagði undir sig norð-
urhluta eyjunnar eftir að til valda
komst stjórn sem vildi sameina
Kýpur Grikklandi. Viðræðurnar,
sem nú standa yfir, miða að því að
binda enda á skiptingu eyjarinnar í
tvö svæði og finna lausn á því
hvernig þjóðarbrotin tvö geta
stjórnað eyjunni í sátt og samlyndi.
Reyndi að blása lífi
í viðræður á Kýpur
Nicosia. AFP.