Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 27
xxxxxxx xxxxx
Le Vrai GourmetHome Elements
Herraskór frá 6.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
77
21
05
/2
00
2
debenhams
S M Á R A L I N D
Le Vrai Gourmet
Le Vrai Gourmet
kuldaboli
er farinn
fiess vegna eigum vi› engin hl‡ föt
og ekki regnhlífar heldur.
Vi› eigum hins vegar fulla bú›
af fallegum sumar- og
sundfatnaði á alla fjölskylduna
- láttu ferska og hl‡ja vinda
leika um kroppinn í sumar.
KIM Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu,
skipaði samyrkjubúum í landinu að
rækta ópíum með það fyrir augum að
hagnast á eiturlyfjaversluninni í
heiminum.
Yun Seong Su, sem áður var hátt-
settur embættismaður í n-kóreska ör-
yggismálaráðuneytinu en flýði land
1998, sagði á fréttamannafundi í
Washington í gær, að frá 1992 hefði
einræðisherrann sjálfur skipað fyrir
um eiturlyfjaframleiðsluna. Sagði
hann, að hverju samyrkjubúi hefði
verið gert að rækta ópíum á 10 ekr-
um. Heróínið, sem úr því var unnið,
hefði síðan verið flutt til Kína, Japans
og Suður-Kóreu. Að hans sögn var
framleiðslan um eitt tonn á mánuði.
Miklar efnahagsþrengingar eru í
Norður-Kóreu, margir íbúar svelta að
staðaldri. Tekjur í erlendum gjaldeyri
eru litlar og stjórn kommúnista ver
miklu fé í að halda uppi fjölmennum
og öflugum her.
N-Kórea í eitur-
lyfjaverslun
Washington. AFP.
ÍSRAELSKI sagnfræðingur-
inn Ilan Pappe mótmælti í gær
meintum ofsóknum á hendur
sér af hálfu háskólans í Haifa
en skólinn hefur beðið Pappe
að segja upp starfi sínu hjá
stofnuninni. Sagnfræðingurinn
hefur aðstoðað annan fræði-
mann, Theodor Katz, sem gert
hefur rannsókn á frásögnum af
fjöldamorðum Ísraela á Palest-
ínumönnum í þorpinu Tantura
árið 1948 en þá var Ísrael
stofnað. Að sögn Pappe hafa
engar af bókum hans verið
gefnar út á hebresku en hins
vegar á ensku og frönsku.
Hann segir að Ísraelar ættu að
biðjast afsökunar á atburðun-
um í Tantura og jafnframt
brottrekstri hundruða þúsunda
Palestínumanna frá hinu nýja
ríki gyðinga. Ein af bókum
hans fjallar um brottreksturinn
og örlög Palestínumanna.
Geislavirkur
leigubíll
LÖGREGLA í bænum Veliko
Tarnovo í Búlgaríu stöðvaði í
vikunni leigubíl og handtók
fjóra menn sem grunaðir eru
um smygl á plútoni frá Rúss-
landi. Bíllinn reyndist þúsund
sinnum geislavirkari en eðlilegt
hefði verið og fylgdust læknar
vandlega með ástandi mann-
anna eftir handtökuna. Hægt
er að nota plúton til að búa til
kjarnorkuvopn en einnig geta
hryðjuverkamenn notað efnið
til að eitra vatnsból; plúton er
eitt eitraðasta efni sem til er.
Lög um
líknardráp
í Belgíu
SAMÞYKKT voru í gær lög í
Belgíu um heimild til líknar-
drápa með 86 atkvæðum gegn
51 á þingi landsins en tíu sátu
hjá. Reglur um aðgerðina eru
strangar en framvegis verður
læknir sem tekur að sér líkn-
ardráp ekki talinn sekur um
glæp ef sjúklingur hans hefur
verið dauðvona, mjög þjáður
líkamlega eða andlega og sjálf-
ur tekið ákvörðun um að fá að
deyja. Læknirinn verður að
ganga úr skugga um að sjúk-
lingurinn hafi verið við fulla
meðvitund og hafi tekið
ákvörðun af fúsum og frjálsum
vilja en ekki verið beittur
þrýstingi.
Holland varð fyrsta landið í
heimi til að heimila líknardráp
og voru lögin samþykkt í apríl.
Fagna
samningi um
Kaspíahaf
BANDARÍSKUR sendimaður,
Steven Mann, í ríkjunum við
Kaspíahaf sagði í gær stjórn
sína fagna samkomulagi sem
Rússland og Kazakhstan gerðu
í vikunni um skiptingu olíurétt-
inda á hafsbotni. Mann sagði að
Bandaríkin myndu einnig
styðja að gert yrði sams konar
samkomulag milli Rússlands
og Azerbajdzhans. Bandarísk
olíufélög eiga mikilla hags-
muna að gæta á svæðinu.
Íranar hafa mótmælt samn-
ingnum og segja að öll ríkin
sem eiga land við Kaspíahaf
eigi að semja um hafsbotninn.
STUTT
Sagnfræð-
ingur mót-
mælir