Morgunblaðið - 17.05.2002, Qupperneq 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JACQUES Chirac sór í gær embættiseið sem forseti Frakklands næstu
fimm árin. Fór athöfnin fram við Elysee-höll en þar lýsti Yves Guena, for-
seti stjórnarskrárréttarins, úrslitum í síðari umferð forsetakosninganna 5.
maí. Chirac sagði í ræðu sinni, að Frakkar hefðu staðist freistingar öfga-
aflanna og ítrekað hollustu sína við lýðræðið og Evrópu. Chirac sigraði
þjóðernissinnann Jean-Marie Le Pen í seinni umferð forsetakosninganna.
AP
Embættiseiðurinn svarinn
BRESKA vikuritið The Economist
segir margt benda til þess að Daninn
Steffen Smidt, yfirmaður sjávarút-
vegsdeildar Evrópusambandsins,
hafi verið færður til í starfi í því
skyni að friða spænsku stjórnina
sem er andvíg tillögum fram-
kvæmdastjórnar ESB um breyting-
ar á sameiginlegri sjávarútvegs-
stefnu sambandsins.
The Economist segir einnig að svo
virðist sem Spánverjinn Loyola de
Palacio, annar af varaforsetum
framkvæmdastjórnarinnar, hafi bar-
ist gegn sjávarútvegstillögunum í
samstarfi við spænsku stjórnina þótt
meðlimir framkvæmdastjórnarinnar
eigi alltaf að gæta hagsmuna Evr-
ópusambandsins í heild en ekki
þeirra ríkja sem þeir koma frá.
Í tillögum framkvæmdastjórnar-
innar er gert ráð fyrir því að fiski-
skipum verði fækkað um allt að 40%
og styrkir til sjávarútvegsins verði
lækkaðir verulega. Þessi áform
koma hart niður á Spánverjum, sem
eru með stærsta fiskiskipaflotann
innan ESB og fá meiri sjávarútvegs-
styrki en önnur aðildarríki sam-
bandsins.
„Skrýtin skýring“
Upphaflega átti framkvæmda-
stjórnin að leggja tillögur sínar fram
fyrir lok síðasta árs en því var
frestað til mars og aftur til apríl.
Birtingu tillagnanna var síðan
frestað um mánuð til viðbótar eftir
að Jose Maria Aznar, forsætis-
ráðherra Spánar, hringdi í Romano
Prodi, forseta framkvæmda-
stjórnarinnar, 21. apríl til að kvarta
yfir tillögunum, að því er fram kem-
ur í grein sem birt var í The Ec-
onomist 11. maí með forsíðufyrir-
sögninni „Evrópskt sjávarútvegs-
hneyksli“.
„Það sem gerðist tveimur dögum
síðar ... virðist hneykslanlegt,“ segir
blaðið og skírskotar til þess að Steff-
en Smidt var þá tilkynnt að hann
yrði færður til í starfi og ætti ekki að
koma frekar að endurskoðun sjáv-
arútvegsstefnunnar.
Framkvæmdastjórnin sagði að
þessi ákvörðun væri liður í almennri
uppstokkun í embættismannakerfi
ESB sem tilkynnt var daginn eftir.
Neil Kinnock, sem fer með stjórn-
sýslumál innan framkvæmdastjórn-
arinnar, neitaði því að Steffen Smidt
hefði verður færður til í starfi vegna
íhlutunar spænskra stjórnvalda. Að-
stoðarmenn
Kinnocks segja
að Smidt hafi áð-
ur óskað eftir því
að verða fluttur
til í starfi á næsta
ári eða árið 2004
en hentugra
hefði þótt að
flýta brottför
hans úr sjávarút-
vegsdeildinni nú þegar verið væri að
stokka upp í embættismannakerfinu.
„Þetta er skrýtin skýring þar sem
það virðist mjög óhentugt að reka
háttsettan embættismann í sjávarút-
vegsmálum meðan á miklum breyt-
ingum stendur,“ segir The Econom-
ist. „Auk þess var Smidt eini
embættismaðurinn sem var rekinn
svo skyndilega; flestir hinna sem
tengdust uppstokkuninni höfðu vitað
í marga mánuði að þeir yrðu færðir
til.“
Blaðið hefur eftir nokkrum hátt-
settum embættismönnum, sem ekki
vildu láta nafns síns getið, að Smidt
hefði verið rekinn til að friða Aznar.
„Þetta mál er hneisa,“ sagði einn
þeirra. „Þar til nú hefur eitt af því
fáa, sem Prodi hefur staðið sig vel í,
verið að standast
þrýsting ríkis-
stjórna aðildar-
ríkjanna. Og nú
gerist þetta.“
„Fnykinn legg-
ur til himna,“
sagði Struan
Stevenson, for-
maður sjávarút-
vegsnefndar
Evrópuþingsins, um brottvikningu
Smidts og boðaði til sérstaks fundar
í nefndinni til að rannsaka málið.
Grefur undan
stjórnsýsluumbótum
The Economist segir ákvörðunina
um að víkja Smidt úr sjávarútvegs-
deildinni sorglega í ljósi þess að hún
var sögð liður í stjórnsýsluumbótum
sem eiga að torvelda ríkisstjórnum
ESB-landanna að hafa óeðlileg áhrif
á ákvarðanir framkvæmdastjórnar-
innar. Markmiðið með umbótunum
er að binda enda á óformlegt kerfi
sem byggist á því að ákveðin ríki fá
alltaf ákveðin embætti, það sé til að
mynda alltaf Þjóðverji sem fari með
samkeppnismál og Frakki með land-
búnaðarmál. „En ef forsætisráð-
herrar geta nú látið reka þá embætt-
ismenn sem þeim líkar ekki við
grefur það undan þessum umbót-
um,“ segir The Economist.
Hlutverk meðlima framkvæmda-
stjórnarinnar er að framfylgja lög-
um Evrópusambandsins og gæta
alltaf hagsmuna þess en ekki þess
lands sem þeir koma frá. Þegar
Prodi varð forseti framkvæmda-
stjórnarinnar sagði hann að ef ein-
hver af meðlimum framkvæmda-
stjórnarinnar yrði staðinn að því að
fara eftir fyrirmælum stjórnvalda í
heimalandi sínu myndi hann krefjast
afsagnar hans.
The Economist segir að það hafi
því verið „nokkuð vandræðalegt, svo
ekki sé meira sagt,“ fyrir Prodi þeg-
ar sjávarútvegsráðherra Spánar til-
kynnti í sjónvarpi að spænska
stjórnin hefði „skipað“ fulltrúum
landsins í framkvæmdastjórninni að
leggjast gegn tillögunum um breyt-
ingar á sjávarútvegsstefnunni. Ann-
ar Spánverjanna í framkvæmda-
stjórninni, Pedro Solbes, studdi þó
tillögurnar. De Palacio, sem er vinur
og pólitískur bandamaður Aznars,
var hins vegar á meðal fjögurra
framkvæmdastjórnarmanna sem
lögðust gegn tillögunum. Hún skrif-
aði Franz Fischler, sem fer með
sjávarútvegsmál í framkvæmda-
stjórninni, bréf þar sem hún lýsti
andstöðu sinni við tillögurnar og rök
hennar voru sláandi lík þeim rökum
sem komu fram í greinargerð
spænsku stjórnarinnar um málið, að
sögn The Economist.
De Palacio hefur neitað því að hún
hafi fengið fyrirmæli frá spænsku
stjórninni og spænski sjávarútvegs-
ráðherrann segist nú hafa mismælt
sig. Prodi kveðst trúa De Palacio.
Framkvæmdastjórnin
gæti hlutleysis
The Economist segir að þótt deilt
sé um hversu mikil völd fram-
kvæmdastjórnin eigi að hafa séu allir
sammála um að hún eigi að beita
þeim á hlutlausan hátt. Ef öflugar
ríkisstjórnir geti beygt fram-
kvæmdastjórnina undir sig vakni
efasemdir um tilgang hennar. „Sjáv-
arútvegshneykslið“ komi á mjög við-
kvæmum tíma því ríkisstjórnirnar
virðist hafa æ meiri tilhneigingu til
að hnekkja ákvörðunum fram-
kvæmdastjórnarinnar.
„Embættismenn framkvæmda-
stjórnarinnar vona að verði marg-
frestaðar tillögur Fischlers á endan-
um lagðar fram óbreyttar sýni
framkvæmdastjórnin þrátt fyrir allt
sjálfstæði sitt. En það kann að vera
of seint,“ segir The Economist.
„Framkvæmdastjórn sem getur ekki
verndað eigin embættismenn frá
hefnigjörnum ríkisstjórnum ESB er
illa á sig komin.“
„Evrópskt sjávar-
útvegshneyksli“
Breska vikuritið The Economist fjallaði nýlega um deilur sem stað-
ið hafa yfir í Evrópusambandinu um skyldur þeirra sem sitja í
framkvæmdastjórninni. Þeir eiga samkvæmt reglum að láta hags-
muni alls sambandsins hafa forgang, ekki hagsmuni eigin þjóðar.
’ Framkvæmda-stjórn sem getur
ekki verndað eigin
embættismenn er
illa á sig komin ‘
NORÐMENN standa sig best í að
innleiða ný lög og reglugerðir á
Evrópska efnahagssvæðinu, EES,
og síðan Svíar, Danir, Íslendingar
og Finnar. Liechtenstein er í sæti
14. Kemur þetta fram í nýrri
skýrslu frá Eftirlitsstofnun EFTA.
Í skýrslunni segir, að EFTA-rík-
in þrjú, Noregur, Ísland og Liecht-
enstein, hafi tekið sig mjög á að
undanförnu. Sem dæmi um það má
nefna, að Noregur var í 17. sæti af
18 alls í að innleiða lög og reglu-
gerðir fyrir ári, í 7. sæti fyrir hálfu
ári og nú í því fyrsta.
EFTA-ríkin mæta ýmsum vanda
við innleiðingu EES-laga og reglna
og er hann nokkuð ólíkur milli
landa. Í Liechtenstein er hann
mestur á sviði fjarskiptaþjónustu
og neytendaverndar; á Íslandi hvað
varðar lög um vinnumarkaðinn og í
Noregi hvað varðar umhverfis-
vernd.
Stundum koma upp mál, sem
varða ranga framkvæmd EES-laga.
Mál af því tagi eru nú 31 gagnvart
Noregi, 13 gagnvart Íslandi og 11
varða Liechtenstein. Þrátt fyrir það
standa EFTA-ríkin sig mjög vel að
þessu leyti innan Evrópska efna-
hagssvæðisins.
Að lokum má þess geta, að Ís-
land stendur sig best allra EES-
ríkjanna 18 í að leiða til lykta mál,
sem formleg athugasemd hefur ver-
ið gerð við. Noregur og Liechten-
stein eru að þessu leyti í hópnum
miðjum.
Innleiðing laga og
reglna á EES-svæðinu
Noregur
í fyrsta
sæti,
Ísland
í fjórða